Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Side 28
40
DV. MIÐVIKUDAGUR18. APRlL 1984.
Andlát '
Guðbjörg (Stella) Stefánsdóttir, fyrrv.
matráðskona sjúkrahússins á Patreks-
firði, lést 16. apríl.
Kristín Magnúsdóttir, Skógskoti, Miö-
dalshreppi, sem lést 12. apríl, verður
jarðsungin á Kvennabrekku laugar-
daginn21.apríl.
Björn Ragnar Stefánsson frá Framtíð,
Vestmannaeyjum, lést 7. apríl. Jarðar-
förin hefur farið fram.
Sæmundur Pálsson, múrari, Byggðar-
enda 16, andaöist 16. april.
Hjalti Jónsson frá Víöiholti, er lést 6.
apríl, verður jarðsunginn frá Víði-
mýrarkirkju laugardaginn 21. apríl kl.
14.00.
ásóiar
sandokum
10 peru bekkur og
10 peru himinn í setti
Verð kr. 72.100 (gengi 12.4.’84)
Þegar 2 eða 3 slá saman
verða kaupin leikur einn.
Greiðsluskilmálar.
Nú er rétti tíminn að
panta, verða brúnn og
ná úr sér vetrarbólgun-
um.
Stuttur afgreiðslufrestur.
Eigum einnig til ljósa-
perur til afgreiðslu strax:
Bellaríum
Bellaríum S
frá Wolf System, V-þýskar
„SUPERSUN“ mest seldu
sólbaðstækin á íslandi
frá byrjun
Páll Stefánsson
umboðs- og heildvérslun
Blikahólar 12
Sími (91) 72530
Ásrún Sigurjónsdóttir, hjúkrunarkona,
Víöimel 19, Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju fimmtudag-
inn26.þ.m.kl. 10.30.
Unnur Eriendsdóttir lést 7. apríl sl.
Hún var fædd á Akureyri 27. október
1903. Foreldrar hennar voru hjónin
Sigurbjörg Olafsdóttir og Erlendur
Sveinsson. Unnur giftist Guðmundi
Markússyni, en hann lést fyrir nokkr-
um árum. Unnur og Guðmundur
eignuöust fjögur börn. Utför Unnar
verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl.
13.30.
Hrefna Amadóttir lést 10. apríl sl. Hún
var fædd í Hafnarfirði 2. febrúar 1921,
dóttir hjónanna Arna Sigurössonar og
Sylvíu Isaksdóttur. Hrefna giftist
aldrei en var í sambúð meö Benedikt
Einarssyni í nokkur ár eða þar til hann
lést árið 1980. Utför Hrefnu verður
gerð frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í
dagki. 13.30.
Guðmundur Jónsson er látinn. Hann
var kvæntur Guðrúnu Jónasdóttur.
Guðmundur rak um áratuga skeiö fisk-
verkun og útgerð, fyrst í Garðinum,
síðar í Sandgerði. Utför hans verður
gerð frá Utskálakirkju í dag kl. 14.00.
FJÁRFESTINGARFÉLAG
ÍSLANDS HF
Aðalfundur
Fjárfestingarfélags íslands hf. árið 1984 verður haldinn að
Hótel Sögu, Átthagasal, jaröhæð, miðvikudaginn 2. maí nk. kl.
16.
DAGSKRÁ:
1. Aðalfundarstörf skv. 15. gr.
samþykkta félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhiutabréfa.
3. Tillaga um aukningu hlutafjár
félagsins.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu
vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en sjö
dögum fyrir aðalfund.
Fundargögn verða afhent á skrifstofu Fjárfestingarfélagsins
að Skólavörðustíg 11, Reykjavík, þrjá síöustu virka daga fyrir
aöalfund og á fundardegi.
Stjórn Fjárfestingarfélags íslands hf.
Gunnar Sigurður Kristjánsson er lát-
inn. Hann var fæddur á Isafirði 6.
desember 1935, sonur hjónanna Jónu
Guðbjargar Sigurðardóttur og
Kristjáns Karls Péturssonar. Gunnar
var giftur Höllu Hermóðsdóttur og
eignuðust þau tvö börn. Þau slitu sam-
vistum. Eftirlifandi sambýliskona
Gunnars er Sigríöur Sigurðardóttir.
Gunnar lauk búfræðiprófi frá Bænda-
skólanum á Hvanneyri. Utför hans
verður gerö frá Fríkirkjunni í Reykja-
vík í dag kl. 13.30.
Tilkynningar
Páskagleði í IMeskirkju
Annan páskadag, kl. 2.00, veröur brugöiö út af
heföbundnu messuformi og efnt til páska-
gleöi. Börn í sunnudagaskóla kirkjunnar
flytja helgileik ásamt ungu fólki í sókninni.
Þá veröa lesnar sögur og mikiö sungið bæði
hreyfisöngvarog æskulýössöngvar.
Frank M. Halldórsson.
Vitni óskast
Keyrt var utan í Mözdu 626 fyrir utan Mikla-
garö mánudaginn 16. apríl sl. um tvöleytiö.
Hefur þaö aö öllum líkindum verið gulur bíll.
Þeir sem einhverjar upplýsingar geta gefiö
um atburðinn eru vinsamlegast beðnir að
hringja í síma 32647 eöa snúa sér til lögregl-
unnar.
Félag áhugamanna um
heimspeki
Laugardaginn 21. april 1984 veröur á vegum
Félags áhugamanna um heimspeki
Samdrykkja um siöfræöi. Dagskrá hennar
verður sem hér segir:
Kl. 13.00: EyjólfurKjalarEmilsson: Um hið
góða.
Kl. 13.45: Þorsteinn Gylfason: Velferð eöa
réttlæti?
— Umræður —
Kl. 15.20: Kristján Kristjánsson: Er
siöferöileg hluthyggja réttlætanleg?
Kl. 16.00: Vilhjálmur Ámason: Um siðfræði.
— Umræður —
Samdrykkjan verður haldin í Lögbergi,
stofu 101.
Stjórnin.
KFUM og KFUK, Reykjavík
Samkomur um bænadaga og páska:
Föstudagurinn langi: Samkoma kl. 20.30 í
kristniboðshúsinu Betaníu, Laufásvegi 13.
Astráður Sigursteindórsson talar.
Páskadagur: Samkoma kl. 20.30 að
Amtmannsstig 2B. Sigurður Pálsson talar.
Æskulýðskórinn syngur.
Annar páskadagur kl. 20.30: Lofgjörðar- og
vitnisburðarsamkoma. Hugleiðing: Lilja
Kristjánsdóttir. Tekið á móti gjöfum í launa-
sjóð.
Allir velkomnir á samkomurnar.
Páskatrimm Flugleiða 1984
Undanfarin ár hafa Flugleiðir gengist fyrir
skíðagöngu og svigmóti í Hlíðarfjalli við
Akureyri um páska í samvinnu við skiðaráð
Akureyrar. Nú er komiö aö Páskatrimmi
Flugleiöa 1984.
Svigkeppni barna og unglinga fer fram á
föstudaginn langa. Keppt er í aldurs-
flokkunum 7—9 ára, 10—12 ára og 13—16 ára.
Allir þátttakendur fá sérstaka viðurkenningu
fráFlugleiðum.
Skírdagsskemmtun Barð-
strendingafélagsins
Barðstrendingafélagið hefur nú starfað i 40
ár. Alla tíð hefur félagið haldið skemmtun
fyrir eldra fólkið á skírdag. Skemmtun þessi
veröur fimmtudaginn 19. apríl í Domus Med-
ica við Egilsgötu og hefst kl. 14. A þessa
skemmtun eru allir 60 ára og eldri, sem búið
hafa í Barðastrandarsýslum eða eru ættaðir
þaðan, velkomnir. Þama gefst gott tækifæri
til að hitta kunningja og sveitunga. Kvenna-
deild Barðstrendingafélagsins veitir kaffi og
kræsingar. Einnig verður eitthvað til
skemmtunar ásamt almennum söng.
Kvennadeildin hefur undanfarin ár boðið
67 ára og eldri í eins dags ferð um Jónsmess-
una og hafa þær tekist mjög vel.
Stórdansleikur að Hlöðum
annan í páskum
Björgunarsveitin Hjálpin á Akranesi stendur
fyrir stórdansleik að Hlöðum á Hvalfjarðar-
strönd annan í páskum. Hljómsveitin
Toppmenn sjá um f jörið. Rocky Horror Show.
Sætaferðir með Sæmundi frá Reykjavík,
Akranesi og Borgamesi.
Sýning á verkum
íslenskra arkitekta
1 tilefni 25 ára afmælis Byggingaþjónust-
unnar er haldin sýning á verkum íslenskra
arkitekta í húsakynnum Byggingaþjónust-
uxmar aö Hallveigarstíg 1. Sýningin er opin
alla virka daga kl. 10—18, frá 24. apríl til 28.
apríl.
Fyrirlestur um dreifingu
nifteinda og segulmagn
Prófessor AUan R. Mackintosh frá H.C.
örsted-stofnuninni í Kaupmannahöfn flytur
erindi á vegum eðUsfræðiskorar þriðjudaginn
17. aprU nk. klukkan 17.15 i stofu 158 í
húsi verkfræöi- og raunvísindadeUdar við
Hjarðarhaga. Erindið nefnist „Neutron
scattering and magnetism”. öllum er heimill
aðgangur.
Skorarformaður.
Flugleiðaganga
Flugleiðagangan fer fram á páskadag og er
opin öUum sem áhuga hafa. Keppt er í 4 km og
8 km skíðagöngu. Auk hefðbundinna
verðlauna verða óvænt ferðaverðlaun tU
heppinna þátttakenda. Dregið verður úr
nöfnum þátttakenda í hvorri göngunni fyrir
sig og eru helgarferðir til Reykjavikur í vinn-
ing. Ekki er aUt búið enn því síðan verður
dregiö út eitt nafn úr hópi aUra þátttakenda.
Sá heppni hlýtur Oslóarferð í boði Flugleiða.
Páskatrimm Flugleiða er fyrst og fremst
hugsað til að hvetja fjölskyldur til að koma í
Hh'ðarfjaU og taka þátt i skemmtilegri keppni
þar sem þátttaka er aðalatriðið.
Sýningar
LISTASAFN ALÞYÐU við Grensásveg: Þar
stendur yfir samsýning Valgerðar Hauksdótt-
ur og Malcolm ChristhUf. Þau sýna grafík-
myndir, teikningar og myndir unnar með
biandaðri tækni. Sýningin er opin aUa virka
daga, nema mánudaga, kl. 16—22 og ’m helg-
ar kl. 14—22. Á páskadag verðursýninginopn-
uð kl. 15.00. Sýningunni lýkur 1. maí.
LISTMUNAHUSIÐ Lækjargötu 2: „Leir og
lín” nefnist sýning er stendur yfir í Listmuna-
húsinu. Þar sýna listakonumar Arndís Ögn
Guðmundsdóttir, Bryndis Jónsdóttir, Heiða
Björk, Herborg Auðunsdóttir, Hildur Sigur-
björnsdóttir, Hjördís Bergsdóttir, Hjördís
Guðmundsdóttir, Kristín Isleifsdóttir, María
Hauksdóttir, Olöf Ingibjörg Einarsdóttir og
Valgerður Torfadóttir. Á sýningunni eru leir-
munir og textilverk. Sýningin sem er sölusýn-
ing er opin virka daga frá kl. 10—22. Um helg-
ar og helgidaga frá kl. 14—22. Lokað verður
þriöjudaginn 24. apríl. Sýningunni lýkur 29.
apríl.
Myndlistarsýning
á Húsavík
Fimmtudaginn 19. april opnar Guðmundur
Björgvinsson sýningu í Safnaðarhúsinu á
Húsavík. Á sýningunni verða 40 myndir,
akrílmálverk, pastelteikningar og myndir
gerðar með blandaðri tækni. Myndefnið sækir
Guðmundur í manninn og mannslíkamann.
Sýningin verður opin alla daga kl. 14—22 og
lýkur henni 24. apríl.
Myndasýning
í Neskirkju
Á eftir guðsþjónustu á skirdagskvöld kl. 20.00
verða sýndar myndir frá páskahaldi í Israel,
en í Israel halda menn páska á þrjá mismun-
andi vegu. Kristnir menn minnast krossdauða
og upprisu Jesú Krists. Samverjar koma
saman til fórnarhátíðar og fylg ja í einu og öllu
fyrirmælum Mósebókar. Þeir sem eru
gyðingatrúar halda páska til þess að minnast
brottfararinnar frá Egyptalandi. Fæstir
þeirra sem ekki hafa komið til landsins helga
gera sér grein fyrir því hversu páskahald er
þar frábrugðið því sem viö eigum að venjast.
Á myndasýningunni á skirdagskvöld mun sr.
Frank M. Halldórsson leitast við að gera
þessu nokkur skii. Þá munu konur í kven-
félaginu annast kaffiveitingar.
ÁSMUNDARSALUR við Freyjugötu: Þar
stendur yfir sýning Hönnu Gunnarsdóttur á 35
vatnslitamyndum. Hanna hefur stundað nám
bæði hér heima og erlendis en hún lauk burt-
fararprófi í innahússhönnun og myndUst frá
Cuyahoga coUege í Ohio í Bandaríkjunum.
Súyning Hönnu stendur til 23. apríl og er opin
aUa daga frá kl. 14—22. Á pálmasunnudag
verður sýningin opnuð kl. 15.00.
Kaffisala á sumardaginn
fyrsta
Skátafélagið Kópar og kvennadeildin Urtur
halda sína árlegu kaffisölu i FélagsheimUi
Kópavogs (uppi), á sumardaginn fyrsta, frá
kl. 3-6.
Hlaðborö meðgirnilegum kökum.
Styrkið okkur í starfi.
íslenska óperan
Islenska óperan sýnir vinsælustu óperu
Verdis, La traviata í kvöld, miðvUtudags-
kvöld, síðasta vetrardag, kl. 20.00. Er það 28.
og jafnframt síðasta sýning.
Gamanóperan Rakarinn í SevUla eftir
Rossini, verður sýnd í 20. sinn á mánudag,
annan í páskum kl. 20.00.1 helstu hlutverkum
eru Sigríöur EUa Magnúsdóttir, Kristmn
Sigmundsson, Júlíus Vífill Ingvarsson, Krist-
inn HaUsson, Jón Sigurbjömsson, Guðmund-
ur Jónsson og Elísabet F. Eiríksdóttir.
Rakarmn í SevUla gerist á Spáni á síðustu öld
og segir frá ungum greifa á biðilsbuxunum.
Ekki gengur það erfiðislaust fyrir hann að ná
ástum hinnar útvöldu því hann á við annan
vonbiðil að etja. En sjón er sögu ríkari og
ópera þessi er tilvaUn skemmtun fyrir unga
sem aldna. Því er upplagt að slá botninn í gott
páskafrí með því að sjá góða sýningu á óper-
unni.
Tónleikar
Tónleikar að Breiðumýri
Kristinn öm Kristinsson píanóleikari, Lálja
Hjaltadóttir fiöluleikari og Þuríður Baldurs-'
dóttir altsöngkona halda tónleika að Breiðu-
mýri í Reykjadal þriðjudaginn 24. aprU kl. 21.
A efnisskránni eru sónötur fyrir fiðlu og pianó
eftú- Jón Nordal, W.A. Mozart, sjö sígauna-
ljóð eftir A. Dvorak, íslensk söguljóð og fiðiu-
tónlist eftir F. Kreisler og V. Monti.
Tónleikar Kukls
Kukl hefur ákveðið að auka framlag sitt til
tónleikahalds í aprUmánuöi hér á landi. Áuk
fyrirhugaðra tónleika þann 21. aprU í Félags-
stofnun stúdenta, með Slagverki, Dái, P.P
Djöf uls ég, hefur Kukl nú fært arma sina yf ir í
Safari. Annan í páskum, eða þann 23. apríl,
heldur Kukl grímuleik í Safari. Þetta verður
grímubaU að fornum sið. Engin afsökun er tU
fyrir að mæta ekki því grímur verða til við
dymar fyrir aUa þá sem gleyma þeim heima.
Þetta verða siðustu tónleikar Kukls um nokk-
urra mánaða skeið. Sem fyrr verða gestir
Kukls Slagverkur en auk þeirra bætast i hóp-
inn P.P. djöfuls ég, Roggkha = Roggkha =
Dromm og Lojpippos og Spojsippus.
Nokkur skemmtiatriði verða Uka á dagskrá.
Sem og fyrr verður verði stiUt í hóf eða 150
krónur. Ætti það ekki að spUla fyrir kvöldi
hlöðnu spennu, æsingi og jafnvel hrolU.
Tapað -fundið
Silfrað drengjahjól hvarf frá
Hvassaleiti
Sex ára drengur varð fyrú- því óláni að tapa
afmælisgjöf sinni, nýju Kalkoff drengjahjóli
frá Hvassaleiti um fjögurleytið í gærdag.
Finnandi vinsamlega hringi í síma 30733 á
daginn og 38709 á kvöldin.
70 ára afmæli á í dag, 18. apríl, Garðar
Þórhallsson, aðalféhiröír Búnaöar-
banka Islands, Karfavogi 46. Foreldr-
ar hans voru Þórhallur Sigtryggsson
kaupfélagsstjóri og kona hans Krist-
björg Sveinsdóttir. Afmælisbarniö er
erlendis: Hótel Bronsemar, Playa del
Englesa, Grand Canary. Kona hans
var Kristín Sölvadóttir. Hún lést fyrir
tveim árum.