Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1984, Qupperneq 2
2
DV. LAUGARDAGUR 9. JUNI1984.
Breið-
síðan
KRYPD^RIWH
Barði Friðriksson, lögfræðingur
Vinnuveitendasambandsins, er
að þessu sinni kryddarahöfundur.
Hann kaus að hafa Kryddarann
stuttan að þessu sinni. Sagan er
sönn þó ekki verði viðkomandi
nákvæmlega nafngreindir.
Kryddarinn fjallar um samskipti
tengdaföður og tengdasonar og
er á þessa leið: Tengdafaðir við
tengdasoninn: „Hvað vilt þú vera
að tala út í þetta, Kristján tengda-
sonur, sem skynsömustu menn
skilja ekki og ég varla. Barði
skorar á Sigurð Baldursson
hæstaréttarlögmann tH að verða
næsta þátttakanda í Kryddaran-
um.
Sigurður Baldursson hæstaréttar-
lögmaður verður næsti þátttak-
andi.
Sunnudaginn 30. ágúst 1936 birtist fyrsta myndasagan með Andrési önd i aðalhlutverki. Eins og sjá má
er Andrés rúm/iggjandi og mýfluga er að gera honurn Hfið leitt. Hann kann illa við þetta og verður
æfur af reiði og rýkur upp, nær i byssu sína og skýtur á mýfluguna. Það tekst að lokum og Andrés v
sofnar sæll og ánægður þó að afleiðingarnar hafi verið stærðargat á vegginn.
í fyrstu kom Andrés önd fram i teiknimyndum. Og það er 1936 sem hann kemur fyrst fram i teikni-
myndaserium sem birtust reglulega i dagblöðum. Það var Alfred Taliaferro sem só um að teikna og
semja þessar sögur. Á þessum tíma er Andrós miðstóttarönd og fjalla sögurnar um ýmiss konar vand-
ræði sem hann lendir i og raunveruleikinn kemur sjaldan fram i dagsljósið. Það sem Andrós er að
glima við eru mál úr daglega lifinu. Ekki er heldur laust við að hann sé striðinn og leikur oft á tiðum ,
hrekkjalóm á borð við Ugluspegil. Það er ekki fyrr en 1937 sem Ripp, Rapp og Rupp bætast i hópinn.
En þeir voru ekki nema einn mánuð með Andrósi frænda þvi sama ár sendir hann þá upp í sveit tit
frænku sinnar og þaðan koma þeir ekki aftur fyrr en i febrúar 1940.
Draumtirinn um
Ameríku
Þaö hefur verið ritaö margt um
þessa teiknimyndahetju. Fram hafa
komið misjafnar skoðanir í þeim skrif-
um. Sumum þykja íbúarnir í Andabæ
ekki vera góð fyrirmynd fyrir böm
sem eru að alast upp. Þar sé um aö
gera að gera sem minnst til að fá sem
mest og einskis svifist til að koma tak-
marki sínu í framkvæmd. Þar er það
tilgangurinn sem helgar meðalið. Þá
þykir mörgum að lítið sé gert úr íbúum
utan Bandaríkjanna og þá sérstaklega
íbúum vanþróuðu rflcjanna. Þangað er
gjarna skroppið til að reyna að stela
gömlum fjársjóðum og eru íbúar við-
komandi staða ekki látnir stiga í vitið.
Vinsældir Andrésar jukust mikið
eftir seinni heimsstyrjöldina utan
Bandaríkjanna. Ástæðurnar fyrir því
eru kannski þær að þar birtist fólki
ævintýralandið Ameríka á meðan allt
var í rústum í Evrópu og víðar. Þar
var m.a. að sjá hluti sem fólk hafði al-
drei augum litið s.s. geimför, umferð-
aröngþveiti, sælgætisstengur, vatns-
melónur og safaríka kalkúna. Þama
birtist sem sagt draumurinn um ríki-
dæmi og velferð sem var ofarlega í
hugum fólks eftir heimsstyrjöldina.
Andabær með litlu snotru húsin og fall-
egu garöana hlaut að vera góður stað-
uraðbúaá.
FYRSTU
MYNDA-
SÖGURNAR
I dag, 9. júní, era liðin 50 ár frá þvi
að Andrés önd sá dagsins ljós í fyrsta
sinn. Á þessum árum má segja með
nokkrum sanni aö þessi litla önd hafi
farið sigurgöngu um heiminn. Andrés
er liklega vinsælasta teiknimynda-
fígúra í heiminum. Með um 170 kvik-
myndum og óteljandi teiknimynda-
blöðum og bókum hefur hann heillað
bæði litlaogstóra.
Hátíðahöld
Það verður víða haldið upp á þessi
tímamót Ándrésar. I heimalandi hans,
Bandaríkjunum, verður mikiö um
dýrðir. I Disneylandi munu stórir
flokkar anda ganga um og minnast
dagsins.
A sama tíma mun flugvél að na&ii
önd eitt fljúga kringum 13 bandaríska
bæi. Með í förinni verður risavaxinn
Andrés önd ásamt Ciarence Nash. En
þaö var hann sem upphaflega talaöi
inn á myndir fyrir Andrés, rödd sem
við öll könnumst við. Hann talaði inn á
fyrstu myndina sem hét Litla klóka
hænan sem sýnd var í fyrsta sinn 9.
júní 1934. Frá þeim tíma hefur Nash
talað inn á 170 myndir og er hann nú
oröinn 79 ára. Þá er einnig ráðgert að
gefa út fjölmargar afmælisútgáfur í
hinum ýmsu löndum.
Hátt verð
Hér á Islandi voru fáanleg Andrésar
andar blöð á dönsku og nú nýlega hefur
verið byrjað að þýða þau á islensku,
sem hefur mælst vel fyrir. Það er samt
ekki víst að Andrés hafi náð aö festa
jafndjúpar rætur og víða annars stað-
ar. I Bandaríkjunum eru fjölmargir
sem safna gömlum blöðum með þess-
ari hetju. Það fer því fyrir blöðunum
eins og frímerkjunum að þau sem eru
sjaldgæf og næstum ófáanleg hækka
mikið í verði. Þar í landi ganga þau
sjaldgæfustu á um 80 þúsund krónur
safnara á milli. I Noregi er verðið
nokkuð lægra en er samt á bilinu 16—20
þúsund krónur.
Hvers vegna svona
vinsæll?
En hvers vegna varð Andrés svona
vinsæll eins og raun ber vitni. Sumir
segja að margir þekki sjálfan sig í hon-
um.
Þó að hann hafi eitthvað breyst á
þessum árum er hinn dæmigerði
Andrés stöðugt í leit að hamingjunni.
Hann reynir allt til að ná frama, ást,
ríkidæmi og frægð svo eitthvað sé
nefnt. I hvert skipti ræðst hann á múr-
inn þar sem hann er hæstur og í hvert
sinn misheppnast tilraunir hans til að
ná takmarkinu.
Hann hefur stundað allflest störf.
Hann hefur verið slökkviliðsmaður,
póstur, næturvörður eða kappaksturs-
maöur, krókódílatemjari, slöngutemj-
ari og jafnvel geimfari.
En hann á við sama vandamál aö
stríöa og mörg okkar. Draumar hans
eru yfirleitt stærri en hæfileikar hans
ná til. Hann nær ákveðnu marki en vill
alltaf ná aöeins lengra, en þá mis-
heppnast honum og hann fellur aftur í
sama farið og hefur brotiö allar brýr
að baki sér. En yfirleitt, þegar Andrés
er á barmi glötunar, koma frændur
hans Ripp, Rapp og Rupp honum til
hjálpar og hafa ráð undir rifi hverju.
Andrés á einnig í stöðugum deilum
við frænda sinn Jóakim sem er vell-
auðugur og algjör andstæða við hinn
slyppa og snauða Andrés og þá er það
einnig Anton frændi hans sem gerir
honum lífiö leitt. Anton er einnig and-
stæða Andrésar og er þeim eiginleik-
um gæddur að vera yfirnáttúrlega
heppinn, sem ekki er hægt að segja um
Andrés.
ANDRÉS ÖND
50ÁRA