Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1984, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1984, Síða 14
14 DV. ÞRIÐJUDAGUR 24. J0LI1984. DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL STJORNUSPEKI Árni Snævarr GMT8:0 Dags 4:3 1962 Breidd 64,8 N Lengd 21,56 V ÖLDRUÐ EN VIÐ BESTU HEILSU Gangur himintunglanna hefur löngum verið sérstakt áhugaefni homo sapiens. Er skyggnst er til baka i sögu mannkyns verður maður var við stjörnuspekinga af einu eða öðru tagi hvert sem litið er; á stundum býsna áhrifamikla. Með aukinni skynsemistrú virtist stjörnuspekin ætla að syngja sitt síðasta. Svo fór þó ekki, stjörnuspekin hefur lifað af afstæðiskenningar, ferðir mannsins tíl fjarlægra stjarna, uppgang og fall heilu heimsveldanna. Hún hefur ekki aðeins lifað afheldur virðist eins og að hún só i mikilli sókn um þessar mundir. Dægradvöl að þessu sinni fjallar um stjörnuspeki. Til að gefa lesendum ör- litla hugmynd um stjörnuspeki og stjörnukortagerð heimsóttí Dægradvöl Stjörnuspekimiðstöðina, rabbaði við Gunnlaug Guðmundsson stjörnu- speking og fékk hann tíl að gefa sýnishorn af starfsaðferð sinni. Árangur- inn birtíst hér á síðunum. STJÖRNUSPEKIN ER TÆKITIL AÐ ÞEKKJA SJÁLFAN SIG — rætt við Gunnlaug Guðmundsson stjömuspeking Gunnlaugur Guðmundsson stjörnuspekingur túlkar stjörnukort fyrir Sigrúnu Bragadóttur. Hann sá mikla möguleika í þessu og ekki aöeins peningalega heldur og kom hann auga á aö athugun stjömukorta eykur skilning á manneskjunni. Þaö fór því svo aö við Guölaugur settum á stofn fyrirtækið Stjömuspekimiðstöð- ina. Keypt var tölva til fyrirtækisins sem eykur afköstin gífurlega. Viö stimplum inn í tölvuna fæöingardag, stund og stað og hún útbýr afstöðukort plánetanna sem lagt er til grundvallar. Hún er aðeins fimmtán mínútur aö gera þetta en er ég vann þetta í höndunum tók það mig heilan vinnu- dag aö gera slíkt kort.” Tölvuvædd stjörnuspeki En hvaö er þaö sem gert er í Stjörnu- spekimiðstöðinni? Fyrsta skrefið er að stjömuspekiáhugamaður mætir á Laugaveg 66 þar sem hún er til húsa og gefur upp fæðingarstað, stund, ár, og dagsetningu. Tölva er mötuð með þess- um upplýsingum, hún býr til fæðingar- kort þar sem fram kemur hvaða plánetur eru í merkinu, afstaðan á milli þeirra og staöa þeirra í húsum. Tölvan býr yfir upplýsingum sem Gunnlaugur hefur matað hana á. Tölvuútskriftin gefur upp hvað stjörnuspekin hefur að segja um, t.d. sól í Fiskum, samhljóma afstöðu sólar og Neptúnusar, svo dæmi sé tekið. Þú spáir ekki fram í tímann? „Nei, nei, við spáum ekki fram í tím- ann. Ég reyni það ekki. Það er þó hægt að sjá fyrir ákveðna þætti, hvei t orkan beinist, en ekki ákveöna atburði. Þetta er eins og hjá veðurfræðingi. Hann spáir í veður, kannar loftmyndir, skýjafar og þess háttar og getur dregiö vissar ályktanir af því um veður á ákveðnum tíma, um eina helgi, getur sagt hvort það verður góö tíð eitt árið, léttur eða haröur vetur o.sirv. Hann segir ekki nákvæmlega fyrir um at- burði en getur sagt til um stóru línum- ar. Líkterfarið umstjömuspekinginn. Stjörnuspekingur getur séð t.d. hversu Satúrnus er sterkur á ákveðn- um tíma og gefið fólki ráðleggingar hvernig skuli bregðast við. Rétt eins og veðurfræðingur getur sagt til um hættu á hálku og ráðlagt út frá því. Varpa Ijósi á mótsagnir Gagnsemi stjömuspekinnar liggur fyrst og fremst í því aö hún er tæki til sjálfskönnunar, eins konar sjálfs- könnunarspegill. Hún varpar ljósi á eiginleika okkar, kosti og galla, gerir okkur kleift að nýta orku okkar á betri hátt, eykur sjálfsþekkingu og þekkingu á öðm fólki. Einn helsti til- gangur hennar er að varpa ljósi á þær mótsagnir og andstæður sem búa í Stjömuspekimiðstöö tók til starfa í Reykjavík í upphafi síðasta mánaðar. Það er Gunnlaugur Guðmundsson sem stendur fyrir stofnun hennar með dyggum stuðningi Guðlaugs Berg- manns, kaupmanns í Karnabæ. Gunnlaugur hefur verið mikill áhugamaður um stjörnuspeki um ára- bil. Hann stundaði alllengi stjörnu- kortagerð einn síns liðs, en svo fór, er orðstír hans jókst, aö hann hafði ekki lengur við að sinna þeim pöntunum sem bárust. Á liðnum vetri ákváöu þeir félagar, Gunnlaugur og Guðlaugur, að setja á stofn tölvuvætt fyrirtæki þar sem áður var hljómplötudeild Kamabæjar á Laugavegi 66 í því augnamiði að kynna stjömuspeki á Islandi. Gunnlaugur Guömundsson er þrítug- ur Reykvíkingur, fæddur 28. apríl árið 1954, ogerþví Naut. Byrjaði fyrir átta árum Við ræddum við Gunnlaug Guð- mundsson um tildrög þess að Stjörnu- spekimiöstöðin var sett á stofn. „Eg byrjaði á fullu í stjömuspekinni í júlí 1976, en hafði lesið mér aöeins til um þetta áður. Upp frá því hef ég lesiö gríðarlega mikið um stjömuspeki og hafði gott tækifæri til að kynnast fræðunum er ég var á atvinnuleysis- bótum í Kaupmannahöfn í eitt ár. Síðan var ég næturvörður í þrjú ár og gat einbeitt mér að þessu. Eftir þann tíma fór ég að starfa við gerð stjörnu- korta, ýmist eingöngu eða með annarri vinnu.” — Hvenær fæðist hugmyndin um Stjörnuspekimiöstöðina ? „Það var eiginlega að hrökkva eða stökkva. Ég varð að gera upp við mig hvort ég ætlaði að snúa við blaðinu og taka upp einhverja hagnýta iðju eða að gera stjömuspekina hagnýta. Eg var búinn að eyða „bestu áram” ævi minnar, eins og sagt er, í þessi tíma- freku fræði og því valdi ég síöari kost- inn. En þann tíma sem ég var aö þessu einn var það mér fjötur um fót hversu Nanna Þórarinsdóttír, starfsmaður Stjörnuspekimiðstöðvarinnar, sér um að tölvukeyra fæðingarkort. Nafn, fæðingardagur og ár, fæðingarstaður og stund er stimplað inn i tölvuna og á örfáum mínútum skil- ar hún uppdrættí afstöðu himintunglanna á þeim stað og þeirri stundu. DV-myndir: Sveinn Þormóðsson. tímafrek stjörnukortagerð er sé hún unnin í höndunum. Ég var um það bil einn dag að vinna aö gerð hvers korts. Það hrúguðust upp pantanir sem ég gat ekki sinnt vegna tímaskorts. Þaö var því ljóst að ég yrði að tæknivæðast til að anna eftirspum. Gamla sagan um handverkið og nútímann hefur sem sé endurtekið sig í mínu tilfelli. Vogin Gulli Bergmann Það breytti miklu fyrir mig að kynn- ast Guðlaugi Bergmann í Kamabæ. Eg held aö stjömuspekiáhugi hafi alltaf blundað í honum. Stjömuspekin fjallar fyrst og fremst um fólk og slíkur áhugi er Voginni, Guölaugi Bergmann, eðlis- lægur, Nú, ég geröi fyrir hann stjömu- kort og einnig fyrir konu hans og tvö börn. Áhugi Gulla jókst og svo fór að hann sótti tvö námskeiö hjá mér í stjörnuspeki. „Tölvan getur þó ekki unnið nema handavinnuna. I útskriftinni er hver þáttur túlkaður fyrir sig. Það er ekki hægt að útbúa tölvuútskrift sem tengir og les þættina saman. Þar verður mannleg þekking að koma til. Þess vegna legg ég mikla áherslu á að fólk fái ekki einungis stjömukort sitt frá tölvunni heldur komi líka í einkatíma þar sem ég túlka það á nákvæman og samræmdan hátt. Það er býsna margt sem liggur ekki i augum uppi eftir lestur tölvuútskriftarinnar og reyndar er töluverð list aö túlka þessar upplýsingar. Mér finnst nokkuð hætt við því aö fólk fái ekki eins mikiö út úr þessu ef það lætur sér nægja aö fá tölvuútskriftina og þess vegna geri ég nánast að skilyrði að það sé útskýrt í einkatíma,” segir Gunnlaugur. Stjörnuspeki og veðurfræði — Hvaða gagn gerir stjömuspekin? hverjum manni og birtast á mismun- andi hátt, t.d. eftir tíma og aöstæðum. Þetta er gert til þess aö létta hverjum manni að finna málamiðlun og byggja heilsteyptan persónuleika, finna hæfi- leika sem ekki hafa notið sín vegna sterkari áhrifaþátta. Eg tel að stjörnu- kortin opni mönnum sýn inn á fleiri þætti í persónuleikanum, geti víkkað út sjálfsímynd hvers og eins. Sumir hafa ákaflega einfalda sjálfsímynd. Segja um sjálfa sig ,,ég er bjartsýnismaður” og telja þaö afgreitt mál. Það er m.a. þess vegna sem ég legg áherslu á túlk- un korta í einkatímum til að tryggja að fólk horfist í augu við sjálft sig, aö þetta verði því að einhverju gagni. Ólík öfl togast á Það er líkast til best að gefa dæmi, því annars er hætta á því að þetta verði of almennt orðað. Við skulum taka dæmi af manneskju sem hefur sól í krabbaog tungl í bogmanni. Eg bendi manneskjunni á þessa tvo aöalþætti. Þetta eru ólfk merki og þýðir að sterk og ólík öfl togast á. Annars vegar er það Krabbinn sem gefur til kynna þörf fyrir tilfinningalegt öryggi, heimili og fastar rætur. Bogmaðurinn á hinn bóg- inn hefur þörf fyrir hreyfingu, að ferð- ast og víkka út sjóndeildarhringinn. Þessi togstreita getur verið vandamál hjá manneskjunni. Ég bendi henni því á þetta og á það að málamiðlun milli þessara tveggja afla er nauðsynleg. Hún ætti að ferðast án þess þó að missa sjónar af rótum sínum. Það er nefni- lega svo að fólk gerir sér ekki grein fyrir að persónuleikinn er myndaður úr ólíkum þáttum. Menn eiga oft og tíð- um erfitt með aö finna málamiðlun milli þeirra en láta einn þátt í sér vera ráðandi. Hinn er þá kúgaður og ófull- nægður. Hann vex þannig allt þar til hann springur út og kúgar hinn. Fólk f er úr einum öfgum í aörar. Glíma Satúrnusar og Júpíters Eg get tekið annað dæmi, um manneskju sem hefur í senn sterkan Satúrnus, sem veldur þvi að hún er metnaðargjöm, og hins vegar sterkan Júpíter sem hefur í för með sér þörf fyrir mikla hreyfingu. Hér er ef til vill um að ræða atvinnurekanda sem lætur metnað reka sig áfram í vinnu 5 daga vikunnar, en vegna Júpítersáhrifanna fer hann á dúndrandi fyllirí um helgar. Síðari þátturinn er þó ófullnægður og vex og vex sem hefur í för með sér að helgarfylliríin lengjast smátt og smátt og á endanum verður þessi þáttur, sem hefur verið niðurbældur, ríkjandi og allt endar meö ósköpum. Stjörnukortið er spegill Með því að stúdera stjömukortin reynir maöur að gera sér grein fyrir persónuleikanum í heild sinni. og í þessari starfsemi reyni ég að draga ályktanir af því og hvetja fólk til þess að lifa í heild og nýta alla sína hæfi- leika. Kortið er eins konar tæki til um- ræðna, eins konar spegill. Það hafa allir gott af því að hugsa sinn gang, setjast niður með hlutlausum aðila þar sem stjörnukortið er og líta á sjálfa sig. Stjörnuspekin er nokkuð fast kerfi sem hægt er aö nota á ýmsan hátt. Það er hægt að kíkja á stjömukort sér til gamans og pæla í sjálfum sér. Það er líka hægt að nota það sem viðmiðun. Til dæmis ef maður er staddur á kross- götum í lífinu, að skipta um starf eöa þess háttar, er stjörnukortið kjörinn miðill til aö komast aö þörfum sínum og hæfileikum. Eg held að unglingar hafi mjög gott af því þegar þeir eru í þann veginn að velja sér farveg í lífinu. Foreldrar sömuleiðis geta notað það til að komast á hlutlausan hátt að því hvaða þarfir og hæfileika bam þeirra hefur, í stað þess að ákveða að bamið verði ballettdansari vegna þess að for- eldrið vildi verða ballettdansari en gat ekki. Tek ekki ákvarðanir fyrir fólk Eg vil taka það fram að ég skipa ekki

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.