Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1984, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ — VÍSIR
202. TBL. — 74. og 10. ÁRG. — MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1984.
Samningaviðræður Verkamannasambandsins og VSÍ:
VIUA AFNEMA TEKJU-
SKATTINN Á 2-3 ÁRUM
Lognið á undan storminum/’ segir Guðmundur J. Guðmundsson
„Við höfum orðið sammála um að
fella beri niður tekjuskatt í
áföngum,” sagði Guðmundur J.
Guömundsson, formaður Verka-
mannasambands Islands, er hann
var inntur eftir gangi viöræðna
VMSI og Vinnuveitendasambands
Islands til lausnar kjaradeilu
þessara aðila. Sagði Guðmundur að
■ 'skattinn ætti að fella niöur á tveimur
til þremur árum, frá áramótum.
Magnús Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri VSI, staöfesti þetta í
samtali við DV og sagðist fyrst hafa
vakið máls á þessu í sumar. ,,Eg hef
lagt áherslu á þaö að lækkun tekju-
skatts er trúlega áhrifaríkasta
aðferðin til að bæta kjör launafólks í
landinu,” sagöi Magnús. „Jafnframt
tel ég þetta mildustu leiðina fyrir
efnahagskerfið í heild, takist að ná
fram spamaði í ríkisrekstri sem
samsvarar skattalækkuninni. Meö
þessu fær fólk kjarabót sem hefur
ekki áhrif á verðlag í landinu, eða
m.ö.o. er ekki spennuvaldandi,”
sagði framkvæmdastjóri Vinnu-
veitendasambandsins.
Þeir Magnús og Guðmundur sögðu
aö lítið væri annars að frétta af gangi
samningaviðræöna. „Þetta er logniö
á undan storminum,” sagði
Guðmundur. „Málin skýrast í
þessari viku en það getur brugöið til
beggja vona.” -EA
Banaslys í
Borgaiiirði
Banaslys varð í Lundarreykjadal í
Borgarfirði á laugardag. Tvítugur
piltur missti stjóm á ökutæki sínu
meö þeim afleiðingum aö það fór út
af veginum og valt. Pilturinn varð
undir og lést samstundis.
Slysiö varð viö bæinn Iðunnarstaði
um klukkan 17.30. ökutækið var
Volkswagen án yfirbyggingar en
með veltigrind.
Pilturinn hét Hannes Gunnar
Einarsson, til heimilis að
Iðunnarstöðum. Hann lætur eftir sig
unnustu.
-KMG.
íslands
motið
í skák
— sjá bls. 2
Á slysstaðnum á Ártúnshöfða. D V-mynd S.
Hörkuárekstur á Vesturlandsvegi:
Bændaf ulltrúarnir málglaðir:
Bræður fórust
á Ártúnshöfða
Tveir miðaldra bræður létust í
mjög hörðum árekstri á Vestur-
landsvegi á móts við Nesti á Ártúns-
höfða klukkan 14.30 í gær. Tveir
ungir menn vom auk þess fluttir á
sjúkrahús.
Annar ungu mannanna fékk fljót-
lega að fara heim en hinn var lagöur
á gjörgæsludeild. Sá var á batavegi
er DV hafði samband við Borgar-
spítalann í morgun og búist við að
hann yrði fluttur úr gjörgæslu í dag.
Ungu mennirnir vom á Willys-
jeppa á leið vestur, inn í borgina.
ökumaður jeppans missti stjórn á
honum er annar bíll, er ók í sömu átt,
rakst utan í hann við framúrakstur.
Jeppinn sveigði inn á hina akreinina
og skall framan á Volkswagen-bíl
sem kom úr gagnstæðri átt. Jeppinn
valt síðan út af. Bræðurnir sem lét-
ust voru í Volkswagen-bílnum.
Svo skyndilega varð slysið að öku-
mönnum gafst ekki ráðrúm til að
stíga á hemlana. Engin bremsuför
sáust.
-KMU.
190 ræður á
aðalfundinum
Á aðalfundi Stéttarsambands
bænda, sem lauk aðfaranótt sunnu-
dags, voru haldnar 190 ræður, og voru
það 55 ræðumenn sem skiptu þeim á
millisín.
Ingi Tryggvason formaöur sagði að
þessi fundur markaöi tímamót og von-
aðist til að þær ályktanir sem gerðar
voru verði til aö auka atvinnuöruggi
bænda.
Eftir þennan fund er ljóst að unnið
verður markvisst að því að koma
framleiðslu allra búgreina undir eina
stjóm. Búmarki veröi komið á í öllum
búgreinum en eins og flestum er lík-
lega kunnugt hefur ekkert búmark ver-
ið í svína- og alifuglaframleiöslu. Full-
trúar svokallaðra aukabúgreina hafa
lýst áhugaá að ráðist verði í þetta sem
fyrst.
Þá var einnig samþykkt ályktun um
stefnumótun í landbúnaði, þar sem
kveöur skýrt á um hver meginmark-
mið landbúnaðarstefnunnar eigi að
vera.
APH.
— Sjá nánarbls.2 —