Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1984, Blaðsíða 20
DV. MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER1984.
. 20
Frá Menntaskólanum
í Kópavogi
Skólinn veröur settur föstudaginn 7. september kl. 14.00 í sam-
komusal skólans.
Eftir skólasetningu verða stimdaskrár afhentar gegn greiðslu
1.500 kr. skólagjalds.
Kennarafundur verður þriðjudaginn 4. september kl. 14.00.
Skólameistari.
HBH pMB 1
MHRI • EURCKAPD
PANTANIR
SÍMI13010
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
KLAPPARSTÍG 29.
NÝ SENDING
AF KULDASKÓM
Romika inniskór og allar gerðir af kuldaskóm.
Herraleóurskór, st. 40-45. Litur: svartur. Verð 1.575. Kreditkort Póstsendum
Bamaleðurskór, st 28- 38.
titur: svartur. Verð 950.
VANTAR ÞIG SKO?
FÆRÐ ÞÁ HJÁ
A,
Laugavegi 11 Rvík, simi 21675,
Eitt mikilvægasta atriði varðandi rafsuðu er að velja rétta gerð
rafsuðuvírs. Til þess að hámarksgæði verði á suðu er nauðsyn-
legt að vírinn sé valinn með tilliti til allra aðstæðna.
Með þessa staðreynd í huga eigum við til á lager mikið úrval af
rafsuðuvír auk tækja og fylgihluta. T æknimenn okkar veita
fúslega allar upplýsingar og eru þér innan handar um valið.
Hafið samband við söludeild.
FORYSTA ESAB ER TRYGGING FYRIR GÆDUM OG GÖÐRI PJÖNUSTU
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SlMI: 24260
Ha, má ég heyra aftur?
Nemendur ekkert vandamál,
það eru kennararnir sjálf ir
— Keith Humphreys, 37 ára kennari f rá Newcastle, hef ur
ákveðnar skoðanir á hegðun unglinga í skólum
„Nemendur eru ekkert vandamál í
skólum. Það eru kennararnir sjálfir
sem eru vandamálið.” Ha, má ég
heyra aftur! Er þetta satt? Þaö er nú
það. En þessi fullyrðing er samt mikill
hvalreki fyrir böm og unglinga, sem til
þessa hefur verið sagt að þau séu jú
vandamáliö.
Keith Humphreys heitir 37 ára kenn-
ari í Newcastle, Englandi, sem hefur
Utið á skólavandamálið meira út frá
þeirri fullyröingu sem áðan var nefnd.
Hann hefur dvalið hér á landi um
tíma og flutt fyrirlestra fyrir kennara
og haldiö námskeið með þeim.
Oneitanlega hafa kenningar hans vak-
ið mikla athygli. Og er nema von að
íslenskir kennarar hafi sperrt eyrun?
Kennarar skapi
vandræði. . .
En sjáum hvaö Keith Humphreys
hefur um málið aö segja: „Mín skoöun
er sú að kennarar og sjálft mennta-
kerfið skapi vandræöi meö því aö líta
einatt ekki rétt á nemendur og hæfi-
leika þeirra.
Sjáðu til. Eg tel miklu vænlegra að
líta á hvern nemanda með þaö í huga
hvað hann getur í stað þess hvað hann
getur ekki.
Ef alltaf er reynt aö finna út hvað
ákveðinn nemandi getur ekki gert þá
byrja vandræðin að skapast. Eg er á
því aö þetta sé of algengur hugsunar-
háttur á meðal kennara.
Með breyttum hugsunarhætti, sam-
fara breyttu skólakerfi, tel ég að
nemendur nytu sín mun betur í skólum
en nú er og þeir komi bjartsýnni út í
þjóöfélagiö.”
Viö spuröum Humphreys hvað hann
ætti við með breyttu skólakerfi. „Það
sem ég vil að við gerum er að spyrja
okkur hvort námsefnið, sem krakkar
og sérstaklega unglingar eru að læra,
sé í rauninni við hæfi. ”
Búa fólk undir
lífið, ekki bara
háskólanám
„Mín skoðun er sú aö svo sé ekki.
Það miðast allt of mikið viö þaö að
undirbúa fólk undir nám í háskóla. Það
vill gleymast að þaö er veriö að undir-
búa nemendurna undir h'fið s jólft.
Kaith Humphreys, 37 ára kennari í
kennaraháskóla í Newcastle. Hann
hefur dvalið hérlendis að undan-
förnu og flutt fyrirlestra fyrir ís-
lenska kennara. „Menntunin á að
undirbúa fólk fyrir lífið en ekki mið-
ast við það að allir fari i háskóla."
DV-mynd Bjarnleifur.
Núverandi kerfi og próf segja aðeins
hversu góður viðkomandi er að læra,
ekki hversu góð manneskja nemand-
inn sé.
Þannig er það ríkt hjá fólki að álykta
sem svo að sá sem hafi háskólapróf
sé gáfaðri en sá sem hefur það ekki
En það hvort einhver getur lært á bók
er að mínu viti ekki mælikvarði á gáf-
ur.”
Mælikvarði á gáfur?
„Það á frekar að meta það, hvort
menn hagi sér sem þroskaðar verur,
séu góðar manneskjur, séu gott fólk.
Það finnst mér segja mest til um gáfur
fólks.
Ef við skoðum skólakerfin, þá mið-
ast þau í rauninni við það að fella
ákveðinn fjölda nemenda á prófum.
Þið hafið til dæmis prófkerfi í grunn-
skóla sem miðast viö ákveöna kúrfu,
normalkúrfu, og þar er gert ráð fyrir
að 30% nemenda falli.
Það' hlýtur aö vera hyggilegra aö
hafa námskerfi sem miðast við aö fella
ekki neinn. Þá veröum við líka að bæta
námsefnið, koma með fög, sem eiga
betur við unglingana, búa þá betur
undir lífið sjálft. Með því yfirgefa ungl-1
ingarnir skólana bjartsýnir á að þeim
hafi tekist, þeir hafi náö árangri.”
— Hvers konar námsefni er það, sem
þú hefur í huga, og telur að sé frekar
viðeigandi fyrir stóran hluta unglinga?
Kenna unglingum
að ala börn upp
„Þetta er kennsla til dæmis í
matreiðslu, gera við bílinn, ala upp
börn, gera við híbýli, undirbúa sumar-
fríið, svo að ég nefni eitthvaö sem
dæmi. Aðalatriðið er að fög í þessum
dúr undirbúa unglingana undir lífið
sjálft.
Finnist unglingunum námsefnið lítt
áhugavekjandi vegna þess að þeir ætla
ekki í háskóla, koma upp hegðunar-
vandamál, þegar reynt er of mikið að
kenna þeim þessi fög. ”
Humphreys minnist hka á annað
atriöi, sem setji mörgum bömum og
unglingum ákveðnar skorður í námi.
„Hér á ég við það að börn og ungling-
ar heyri illa, sjái illa og þess háttar.
Oft á tíðum hefur það ekki uppgötvast
að bam til dæmis sjái illa.”
. . . svo halda allir að
barnið sé hæfileikasnautt
„Þegar svo lestrarkennslan ber ekki
tilætlaöan árangur halda alhr að
barnið sé gjörsamlega hæfileika-
snautt. Og hver láir barninu þótt það
fari þá í baklás og upp komi hegðunar-
vandamál?
Reynslan sýnir að dæmi sem þessi
eru of algeng. Þess vegna verða kenn-
arar ævinlega að hafa það í huga,
hvort barninu séu settar einhverjar
hkamlegar skorður, sem vinna má bug
á.
En umfram allt, hugmyndir mínar
um að ýmissa breytinga sé þörf í skóla-
kerfinu snúast um það að menntunin er
fyrir lífiö, en ekki fyrir það að alhr fari
íháskóla.”
Að mati blaðamanns fer ekki svo illa
á að enda þetta viðtal meö orðum sem
einn íslenskur kennari sagði eitt sinn
um unglingavandamáhö.
„Eg held svei mér aö það sé ekkert
til sem heitir unghngavandamál.
Vandamáhö er frekar að þaö er alltaf
verið aö segja unglingum aö þeir séu
vandamál, og margir þeirra eru famir
aðtrúaþvíaðsvosé.” -JGH
Bók og
plata um
nykurinn
Nýiega er útkomin hljómplata og
bók, saman í einum pakka, sem fjallar
um nykurinn, furðuskepnu úr þjóðtrú
okkar Islendinga, skepnu sem vart er
þekkjanleg frá hestum, nema ef væri
að hófamir snúa aftur.
Heiti verksins, sem gefið er út af
ÞOR, er Ævintýri úr Nykurtjöm og er
einkum ætlað börnum. Tónhstin er
samin af þeún Bergþóru Árnadóttur og
Geir-Atle Johnsen en texti bókarinnar
er eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson.
Meðal hljóðfæraleikara á plötunni
má nefna Gísla Helgason, Helga E.
Kristjánsson, Tryggva Hubner, Stein-
grím Guðmundsson og Amþór Helga-
son. Komið hefur tU tals að gefa efniö
út í Noregi og þar í landi er undir-
búningur hafrnn að leikgerð. Hér á
landi hefur verkið aftur á móti verið
tekiö upp á myndband og er væntan-
legt á markað innan tíðar.
-EIR.
Þessir tveir nykrar hafa að undan-
förnu ferðast um höfuðborgina og
kynnt Ævintýri i Nykurtjörn.
DV-mynd E.J.