Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1984, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1984, Blaðsíða 16
16 DV. MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER1984. Spurningin Finnst þér gaman að fara í bíó? Gunnar Gunnarsson bólstrari: Ég hef mjög gaman af því aö fara í bíó. Þó er nú langt síöan ég fór síöast, einir 3—4 mánuöir. Bergiind Waage nemi: Jú, ég fer stundum í bíó. Mínar uppáhaldsmynd- ir eru gamanmyndir. Páll Pálsson bilstjóri: Ég fer iöulega í bíó, alit aö 2—3 í viku. Skemmtilegustu myndirnar eru lögreglumyndir og minn uppáhaldsleikari er Clint Eastwood. Þórður Benediktsson, vagnstjóri SVR: Já, ég hef gaman af því og fer svona 2—3 í viku. Mér finnst engar sérstakar tegundir mynda skemmtilegar en ég hef áhuga á þeim flestum. Rannveig ísfjörö, vinnur hjá SÍBS: Ég fer mjög sjaldan í bíó, því aö ég hef ein- faldlega ekki tíma. Þegar ég fer reyni ég aö sjá gamanmyndir. Mér finnst þær skemmtilegastar. Sigurbjörg Kristjánsdóttir nemi: Nei, ég fer ekki mikið í bíó. En þegar ég hef tíma þá fer ég helst á spennumyndir alls konar. líf % Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Á vatni og brauði G.S.skrifar: Ég skrifa hér vegna greinar sem birtist í DV þriðjudaginn 28. ágúst sl. undir fyrirsögninni Upp meö fjöl- skyldupólitíkina. Mörgu er ég sam- mála sem þar er ritað en ekki öllu sem betur fer. Þaö sem aðaliega vakti fyrir þessari afbrýöisömu eiginkonu í hennar skrifum voru hækkuö bamsmeölög og er nú heldur betur ástæða fyrir því sökum þess aö eiginmaöur hennar var svo óheppinn að eignast þrjú böm fyrir hennar tíö og greiöir aö sjálfsögðu meðlag með þeim. Hann hefur greinilega fariö aö heiman frá fyrri eiginkonu sinni meö plastpoka undir hendinni og skuldir á herðum sér. Greinilega miklar skuldir því þau hjón hafa ekki enn getað keypt sér þak yfir höfuðuö. Heyr á endemi. Eg er einstæö móöir, 23 ára gömul og á einn son sem er 6 ára. Ég á þak yfir höfuöið og 76 fermetra til aö ganga á og þaö get ég sagt þér, kæra eiginkona, aö meö- lagsgreiösla sú sem ég fæ einu sinni í mánuöi á engan þátt í því. „Eins og allir vita fá böm ein- stæöra foreldra umsvifalaust pláss á dagvistarstofnunum á meöan hjón veröa aö bíöa von úr viti,” segir eiginkonan m.a. í bréfi sínu. Hvar hefur þú veriö allt mitt líf? Þig vildi ég hafa þekkt þegar ég beiö í rúma átta mánuöi eftir dagheimilisplássi og hef ég hvorki verið gift né í sam- búö. Þessi umrædda kona þekkir karlmenn sem labba út meö fötin sín í plastpoka undir hendinni og frúin hirðir allt góssiö. Um þetta get ég ekki annað sagt en aö mikið eiga þessir menn bágt og geta engum um kennt nema sjálfum sér. En svona rétt í lokin þá er hér mitt innlegg í ritgeröina um siðferði hér á landi. Ég og bamsfaöir minn skoðuö- um hvort annað í nokkra daga og spjölluðum um lífiö og tilveruna. Svo eitt kvöld ákváöum viö aö prófa þaö forboðna og eftir níu mánuöi eignað- ist ég indælan son. Én aö síöustu þetta. Ég er búin aö vera með manni í tvö ár en vandamálið er aö hann er fráskilinn og þarf aö borga meðlag meö þremur bömum. Og ég held bara svei mér þá aö ég þurfi aö hugsa mig tvisvar um í sambandi viö sambúö svo aö ég þurfi ekki aö lifa á brauði og vatni þaö sem eftir er. Tilmæli til sjónvarpsins: Sýnið framhalds- þættina Love Boat Sjónvarpsnotandi spyr: Til er amerískur gamanmyndafram- haldsþáttur sem nefnist Love Boat. Eg hef séö nokkra af þessum þáttum og finnst þeir dásamlega fyndnir og skemmtilegir. Er einhver von til þess aö sjónvarpiö veröi á undan mynd- bandaleigjendum til aö sýna þessa þætti. Ég er nefnilega ein af þeim sem hafa ekki efni á aö kaupa sér mynd- bandstæki til aö horfa á Dallas og Dynasty en hefði gjaman viljaö sjá báöa þessa þætti í sjónvarpinu. Mér skilst að úr því veröi ekki þar sem aör- ir eru kommr með einkaleyfin. Er þaö rétt? Ef svo er, er þá ekki orðin hætta á aö sjónvarpiö missi af öllum vinsæl- ustu framhaldsþáttunum? sýningar á Dallas né Dynasty. Elín- borg sagði einnig aö sér væri ekki alveg kunnugt um hvernig sýningar- rétti á Dallas-þáttunum væri háttaö nú þegar Olís sæi um dreifingu þáttanna á myndböndum. DV haföi þá samband viö Örn Vigfússon hjá Olís. Hann sagöi aö Olís heföi aöeins rétt á Dallas-þáttunum en myndbandaréttur er óháöur sjón- varpsrétti, sem þýöir í stuttu máli aö sjónvarpið getur, ef þaö vill, sýnt Dallas-þættina. Elínborg Stefánsdóttir hjá sjónvarp- inu sagöi í samtli viö DV aö ekki væru á döfinni sýningar á bandarísku þátt- unum Love Boat, a.m.k. ekki á næst- unni. Ekki væru heldur fyrirhugaðar Tveir af aðalleikendum bandarisku framhaldsþáttanna Love Boat. Ekki eru fyrirhugaðar sýningar á þáttun- um i sjónvarpi á næstunni. Dýr sím- tæki á íslandi Símnotandi skrifar: Mig langar að koma meö fyrirspurn tilPóstsogsíma. Hjáþeimerhægtaðfá keypta síma af geröinni Digitel 2000 fyrir 4.681 kr. stykkiö. Sams konar síma er hægt aö fá út úr búö í Danmörku á um 200 kr. danskar, sem eru ca 600 ísl. kr. Mig langar til aö vita í hverju þessi verömunur er fólginn. DV haföi samband við Guðmund Björnsson, fjármálastjóra Pósts og síma: Hann sagöi aö kerfiö í símtækjamál- um væri öðruvísi hjá Dönum. I Dan- mörku ætti danski síminn öll símtæki. Um leiö og einstaklingur þar fengi síma borgaöi viökomandi stofngjald, um 265 kr. danskar, en gjaldiö væri mishátt eftir því um hvers konar tæki væri aö ræöa. Síðan borgaöi sínmot- andi ársfjóröungslega fyrir notkun á símtækinu. Viö Islendingar notuöumst viö þetta kerfi hér áöur fyrr en því var breytt 1978 þannig aö símtækin voru seld og átti símnotandi þá sjálfur sitt símtæki. Varöandi veröiö á Digitel 2000 tegundinni væri það þannig tilkomiö: Innkaupsverö væri 1.612 kr. Flutningsgjald 90 kr. Tollar og vörugjald 1.425 kr. Álagning Pósts og síma 563 kr. Söluskattur991kr. Af þessu veröi fengi ríkið helminginn í tolla og önnur gjöld eins og glöggt sést af ofangreindu. Tilgerðarlegur talsmáti þula á rás 2 Utvarpshlustandi skrifar: Mig langar til aö finna aö rás 2. Kannski finnst forráðamönnum rásar 2 þessar aöfinnslur mínar bera vott um óþarfa skort á sjálfstillingu en þá sjaldan aö ég hlusta á þessa útvarps- rás á ég virkilega bágt meö aö umbera tilgeröarlegan talsmáta þulanna sem annast kynningar á dægurlögunum. Þessi tilgerðarlegi talsmáti ein- kennist fyrst og fremst af því aö ein- hvern veginn hafa þeir lag á aö bæta eum og ummum inn á milli oröa, ef ekki í sjálf orðin, og svo er sönglandinn slíkur aö mann sundlar viö aö hlusta á þulina. Áherslumar eru auövitað kol- vitlausar hjá velflestum þeirra og samræmast ekki góðri íslensku. Ég hiröi ekki um aö nefna málfarsvillum- ar sem oft á tíðum eru ótrúlegar. Eg er feimin viö aö kenna menntunar- skorti um þessar villur. Sjálfsagt stafa þær af fljótfæmi sem auðvelt ætti aö vera aö vinna bug á ef vilji yæri fyrir hendi. En þetta meö talandann er verra viö- fangs. Þeir dagskrárgeröarmenn viröast stæla taktana hver hjá öörum. Páll hljómar eins og Þorgeir, Ásgeir eins og Páll, Amþrúöur eins og Ásgeir o.s.frv. Ég kann því miður ekki aö nefna fleiri. Væri ekki ráð aö fá góöan fram- sagnarkennara til þess að messa yfir liöinu á rás 2 svo maöur geti óáreittur skemmt sér yfir léttum dægurflugum. Nokkrir af dagskrárgerðarmönnum á rás 2. ánægður með talsmáta þeirra. , Utvarpshlustandi" er ekki Ráð til að draga úrvmkaupum K.M. skrifar: Eg undriritaöur, höfundur þessa bréfs, er forfallinn áhugamaöur um áfengisböliö. Tilefnið aö þessu bréfi eru hinar stórmerku tillögur er nefnd sú sem fjallað hefur um áfengismál sendi frá sér á dögunum. I sem stystu máli þá era þarna að mínu viti fram komnar þær úrbætur á áfengislöggjöf- inni sem alltaf hefur vantaö. Og ef eitt- hvaö er þá ganga þær ekki nógu langt, samanber málflutning og tillögur S.Á.Á.A. manna (samtök áhuga- manna um áfengisneyslu annarra) sem ekki eru síður snilldarlegar og út- hugsaðar. Og sem ég var aö hugleiða þessi mál öll og í samhengi viö þær leiðir sem færar eru í baráttunni viö Bakkus þá dettur mér í hug þaö snjallræði að dubba nefndina góöu upp í vaktmannastöður viö vínútsölur. Jafn- framt fengju þeir í hendur byssur sem hlaönar væru þar til gerðum sérhönn- uðum gúmmíkúlum, sem væru þeirrar náttúru aö þær hvorki dræpu né lim- lestu þann sem fyrir þeim yröi en yllu engu aö síður óþægindum á viökvæm- um stööum. Því næst yröi nefndar- mönnum dreift milli útsala þar sem þeir myndu bíöa álengdar í skjóli, t.d. inni í bíl eöa á bak viö hús. Þegar svo vaktmenn sæju meö vissu að einhver væri á leiö inn í verslunina myndu þeir í fyrstu atrennu skjóta einu til tveimur aövöranarskotum. Dygöi þaö ekki væri ekki um annað aö ræöa en klykkja út meö einu föstu skoti í sitjandann á við- komandi og má þá telja öruggt aö sá hinn sami hugsaði sig um tvisvar næst þegar hann ráðgerði vínkaup. f€ K.M. er ekki beint ánægður með áfengiskaup landans. í grein sinni nefnir hann ráð sem hann telur duga tiiað draga úrþeim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.