Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1984, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1984, Blaðsíða 43
DV. MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER1984. 43 Sandkorn Sandkorn Sandkorn Asnaskapur með ólíkindum Vissara þykir að taka það strax fram að eftirfarandi saga er dagsönn: Það gerðist hjá ábyrgri stofnun hér í borg að þangað barst gíróseðill, hvar á stóð að umræddur aðili ætti 3 krónur! ógreiddar í launa- skatt tU Tollstjóraembættis- ins. Þar sem fjármálastjóri stofnunarinnar er frómur maður og vel gerður, ákvað hann að gera þegar ráðstaf- anir til þess að gjaldið yrði greitt. Hann sendi þvi stúlku á skrifstofu tollstjóra með seðUinn og þrjár krónurnar. Þegar stúlkan ætlaði aö greiða skuldina sagði starfs- maður sá, sem fyrir varð, að það væri algjör óþarfi. Ekki væri ætlast til að slíkar smán- aruppliæðir væru greiddar þótt rukkun í formi gíróseöUs bærist. Stúlkan varð hálf- hlessa en málinu lyktaði þannig að starfsmaöurinn reif gíróseðUinn og kvað það úr sögunui. Þá hafði þetta heijarstökk Tollstjóraemb- ættisins kostað andvirði gíró- seðUs, póstburðargjald + skitnu krónurnar þrjár. Stúlkau greiddi svo að sjálf- sögðu í stöðumæli meðan hún skrapp inn tU að borga launa- skattinn. Grunsamlegar mannaferðir Þaö varð uppi fótur og fit á KeflavíkurflugveUi í vikmmi sem leið. Upphaf óstandsins mátti rekja til þess að verið var að malbika Reykjanes- brautina á svonefndum Fitjum. Meðan á þessum framkvæmdum stóð varð að beina allri umferð um Völl- inn. Voru menn þá látnir keyra inn um aðalhliöið og út um Grænáshliðið. Gekk allt að óskum hjá þeim sem fóru inn á Völlinn. En þegar þeir ætluðu út af honum, sem leið liggur, kárn- aði heldur en ekki gamaniö. Verðirnir i hliðmu skUdu nefnUega ekkert í þessum aragrúa fólks sem allt í einu streymdi út. Lentu þannig margir alsaklausir vegfar- endur í því að vera stöðvaðir og spurðir hinna ólíkustu spurninga. En allt gekk þetta upp að lokum og væntanlega verður umferðin komin í samt lag aftur þegar þessi litla skemmtisaga birtist... Nýbreytni Eins og alþjóð er kunnugt var það haft að leiðarljósi, þegar gamla Tímanum var breytt í NT, að flytja þyrfti nýja strauma í blaðaútgerð- ina, sem hafði verið stöðnuð í tíu ár eins og ritstjóri NT tók fram. Þessi nýbreytni hefur lýst sér í ýmsum myndum. TU dæmis tók NT upp erlendar fréttir, sem sennUega hafa þá verið óþekktar í blöðum landsins. Þá tók blaðið upp fréttaskot og fór að birta varnargreinar um SÍS, sem ekki var vanþörf á. Núna síö- ast er NT farið að birta neyt- eudasíðu, sem sýnir gífurlegt hugmyndaflug í blaöaheimi, sem hefur verið staðnaður í tíu ár. Hæst flýgur NT þó i ný- breytninni með því að endur- prenta leiðara gamla Tím- ans, aUs ekki þessa tiu ára gömiu, heldur þessa frá því í fyrra. Hinir stöðnuðu á öðrum blöðum bíða nú skjálfandi eftir næstu nýbreytni í NT. Með föngum eða eftir föngum Á aðalfundi Stéttarsam- bands bænda voru bændur ekki aUtaf sammála um orða- lagið á ályktunum fundarins. í ályktun um stefnumótun í iandbúnaði stendur á einum stað: Tryggja skal og styrkja eftir föngum, núverandi byggð í landinu. Orðalagið eftir föngum féU ekki i geð aUra og vUdu þeir taka það burtu úr setningunni. Um þetta var þrefaö drykklanga stund. Að lokum kom Guðmundur Stefánsson bóndi, Hraungerði, upp í pontu. Hann sagði ef eftir föngum yrði sleppt gæti orðið erfitt að tryggja byggð hvar á landi sem væri. Hugsanlega dytti einhverjum bónda í hug að flytja burt og enginn annar fengist í staðinn á jörðina. Þá væri erfitt að tryggja byggð- ina. Hann hafði hins vegar lausn á þessu ágreiningsefni. 1 stað orðanna eftir föngum gæti komið með föngum. Þá liti þetta þannig út: Tryggja skal og styrkja meö föngum núverandi byggð í landinu. Umsjón: Jóhanna S. Sigþórsdóttir. Nú geta Eyrbekkingar spælt kvótakerfið TELEFAX EMT 9165-9145 Fyrir þá sem þurfa að koma teikningum, skýrsluformum o.fl. heimshorna á milli Hraði allt að 35 sek. QqÐ þjónUSTA. # H %€ SF Ármúla 1. ' ir\k Sími 687222. Bílabúöin! / LJOS&STYR! Siðumúla3—5 simar: 37273 og 34980 Þetta er búöin sem þú vissir ekki um en sérö eftir aö hafa ekki verslað í Sænsku viöurkenndu dráttarbeislin undir flestar gerðir bila — mjög gott verö Isetning á staðnum Allt original festingar Allir almennir varahlutir Kerti, platínur, kveikjulok, demparar, stýrisendar, spindilkúlur, bremsuklossar, straumlokar, kertaþræöir, viftureimar, kúplingar i flestar geröir bif reiöa. Auk þess listar og rendur í miklu úrvali Þar sem verð og gæði fara saman Póstsendum um landallt LJOS&STYRI Heildsala —smásala Símar: 37273 og 34920 f

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.