Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1984, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1984, Blaðsíða 28
28 DV. MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER1984. íþróttir íþróttir Iþróttir íþrótti ir Moses hélt upp á 29 ára afmælið með 109. sigrinum — snjall árangur á stórmótinu í f rjálsum íþróttum í Rómaborg mæli sitt meö 109. sigrinum í röö í 400 m grindahiaupi en náði ekki eins góð- um tíma og í Koblenz á dögunum. Bandaríkjamenn voru sigursælir í spretthlaupunum og Evelyn Ashford hljóp 100 metrana enn einu sinni á innan við 11 sekúndum, eða á 10,93 sek. Italir urðu fyrir nokkrum vonbrigöum þegar ólympíumeistarinn í kúluvarpi, Alessandro Andrei, varð að láta sér nægja annað sætið í kúluvarpskeppn- inni. Þar sigraöi Sovétmaðurinn Janis Bojars. Miklu verr gekk þó vestur- þýska ólympíumeistaranum, Rolf Danneberg, í kringlukastinu. Hann varð aöeins í sjötta sæti. Það voru líka vonbrigði fyrir ítölsku áhorfendurna að heimsmethafinn í 200 m hlaupi, Pietro Mennea, varð annar í 200 m hlaupinu. Sara Simeoni, sem Italir dá allra íþróttakvenna mest, gat ekki tekið þátt í hástökkinu á síöustu stundu vegna meiðsla. Hún hlaut silfurverölaun í Los Angeles — gull í Moskvu 1980 — og hástökkskeppni kvenna hafði verið auglýst mjög upp. Nýi heimsmethafinn, Ludmila Andon- ova, Búlgaríu, sigraði auðveldlega. Stökk 2,02 m en fyrrum heimsmethafi, Tamara Bykova, Sovétríkjunum, varð í öðru sæti með 1,98 m. Felldi þrívegis 2,02 m. Helstu úrslit á mótinu urðu þessi: Karlar: Sleggjukast: 1. Yuri Sedykh, Sovét. 83,90 2. Sergei Litvinov, Sovét. 80,58 3. Orlando Bianchini, It. 74,20 400mgrindahlaup: 1. Edwin Moses, USA 48,01 2. HaraldSchmid,V-Þýsk. 48,66 3. Amadou Diaba, Senegal 48,75 4. Toma Tomov, Búlgaríu 49,30 800mhlaup: 1. James Robinson, USA 1:45,64 2. Egberto Guimaraez, Brasil. 1:45,71 3. William Wuyke, Venesúela 1:46,25 Aukaspymur Giresse færðu Bordeaux sigur — Frönsku meistararnir hafa sigrað ífimm fyrstu leikjum sínum Það var mikið stjörnulið sem mætti á stórmót í frjálsum íþróttum sem háð var á ólympíuleikvanginum í Róma- borg á föstudag, þrjátíu heimsmeistar- ar frá Helsinki 1983 og 23 keppendur sem hlutu verðlaun á ólympíuleik- unum í Los Augeles. Og áhorfendur voru margir eða 52 þúsund. Hápunktur keppninnar var stangarstökkið þar sem heimsmetið féll tvívegis. Nánar er skýrt frá þvi á bls. 21. Veöur var frábært til keppni og árangur mjög góður í mörgum grein- um. Edwin Moses hélt upp á 29 ára af- Thierry Vigneron, Frakklandi, átti heimsmetið í stangarstökki í fimm mínútur. Sigurganga Bordeaux — frönsku meistaranna — heldur áfram í 1. deild- inni. Á föstudaginn færðu tvö mörk fyrirliðans Alian Giresse liðinu sinn fimmta sigur á leiktímabilinu og það var þýðingarmikill sigur á erfiöum keppinaut, Nantes, 2—1. Bæði mörk Giresse voru skoruð beint úr auka- spyrnum. Hið fyrra í lok fyrri hálfleiks af 25 metra færi og um miðjan síðari hálfleikinn náði hann aftur forustu fyrir Bordeaux. Loic Amisse hafði skorað úr vítaspyrnu fyrir Nantes á 47. mínútu. Bordeaux hefur náð tveggja stiga forustu í 1. deild — eina liðið sem sigrað hefur i öllum leikjum sínum. Auxerre komst í annaö sæti eftir sigur á Nancy, liðinu sem Albert Guðmunds- son gerðist fyrst atvinnumaður hjá. Korsíkuliðið Bastia hefur komið mjög á óvart og er nú í þriðja sæti en Nantes er nú í fjórða sæti. Urslit á föstudag uröuþessi: Bordeaux — Nantes 2—1 Auxerre — Nancy 1—0 Paris SG — Brest 1—1 Rouen — Strasbourg 1—0 Lens — Monaco 2—2 félag Frakklands, Paris Saint Germains, er nú í neðsta sæti en Racing Club de Paris — annaö félagiö sem Albert lék með í Frakklandi — hefur náð sér vel á strik að undanförnu eftir heldur slæma byr jun. Staðan eftir fimm umferðir er þannigíl.deild: Bordeaux 5 5 0 0 9- -3 10 Auxerre 5 4 0 1 9- -3 8 Bastia 5 3 1 1 7- -7 7 Nantes 5 3 0 2 11- -7 6 Brest 5 2 2 1 9- -5 6 Lens 5 2 2 1 7- -5 6 Racing Paris 5 3 0 2 6- -9 6 Monaco 5 2 1 2 13- -5 5 Sochaux 5 2 1 2 12- -9 5 Strasbourg 5 2 1 2 8- -6 5 Nancy 5 2 1 2 6- -5 5 Laval 5 2 1 2 6- -7 5 Tours 5 1 2 2 5- -8 4 Marseilles 5 2 0 3 6- -11 4 Metz 5 2 0 3 5- -14 4 Toulouse 5 1 1 3 8- -9 3 Rouen 5 1 1 3 4- -6 3 Toulon 5 1 1 3 6- -9 3 Lille 5 1 1 3 4- -7 3 Paris —SG 5 0 2 3 4- -10 2 -hsím. Alain Giresse — frábær mörk úr auka- spyrnum. Sochaux — Laval 2-0 Bastia — Toulon 3-2 Marseilles — RC París 0-2 Metz — Toulouse 2-1 Tours — Lille_ 2-0 Það kemur á óvart aö eitt þekktasta Edwin Moses hélt upp á afmælið með sigri. Kúluvarp: 1. Janis Bojars, Sovét. 21,00 2. Alessandro Andrei, Italíu 20,76 3. Helmut Krieger, Póllandi 20,28 Stangarstökk: 1. Sergei Bubka, Sovét. 5,94 2. Thierry Vigneron, Frakkl. 5,91 3. Alex Krupsky, Sovét. 5,70 4. Joe Dial, USA 5,60 5. Earl Bell, USA 5,60 6. Marian Kolasa, Póllandi 5,60 3000mhlaup: 1. Jack Buckner, Bretl. 7:46,06 2. Doug Padilla, USA 7:47,09 3. Bob Veerbeck, Belgíu 7:47,22 Hástökk: 1. Jim Howard, USA 2,31 2. Brent Harken, USA 2,31 3. Valery Sereda, Sovét. 2,28 1500 m hlaup: 1. Omar Kalifa, Súdan 3:37,40 2. Pierre Deleze, Sviss 3:37,69 3. Luis Gonzales, Spáni 3:37,89 4. Tim Hutchings, Bretl. 3:38,06 lOOmhlaup: l.KirkBapista,USA 10,16 2. Stefano Tilli, Italíu 10,24 3. Osvaldo Lara, Kúbu 10,31 200mhlaupkarla: 1. James Butler, USA 20,31 2. Pietro Mennea, Italíu 20,36 3. Desai Williams, Kanada 20,64 4. Alex Yevgeniev, Sovét. 20,79 400mhlaup: 1. Ray Armstead, USA 45,58 2. Viktor Markin, Sovét. 45,60 3. Todd Bennett, Bretl. 46,04 4. Walter McCoy, USA 46,21 5. Willie Smith, USA 46,36 6. Alb. Juantorena, Kúbu 46,63 Kringlukast: 1. Luis Delis, Kúbu 67,54 2. Luis Martinez, Kúbu 67,32 3. Geza Valent, Tékkósl. 67,28 4. G. Kolnoptchenko, Sovét. 66,52 5. Imrich Bugar, Tékkósl. 66,46 6. Rolf Danneberg, V-Þýskal. 64,62 Konur Hástökk: 1. Ludmila Andanova, Búlg. 2,02 2. Tamara Bykova, Sovét. 1,98 3. Debbie Brill, Kanada 1,94 80ðmhlaup: 1. J. Kratochivilova, Tékkósl. 1:59,05 2. Yek. Podkopayeva, Sovét. 1:59,36 lOOmhlaup: 1. Evelyn Ashford, USA 10,93 2. Lud. Kondratieva, Sovét. 11,09 3. Val. Brisco-Hooks, USA 11,14 I 200 m hlaupinu sigraði Brisco- Hooksá 22,82 sek. -hsím Evelyn Ashford — enn einu sinnl undir 11 sekúndum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.