Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1984, Blaðsíða 9
DV. MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER1984.
9
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Annað nasistaskjala-
safn komið fram
— Um 10 þúsund skjöl norska nasistaf lokksins f undin í einkasafni
Morgan
Kane
á hvfta
tjaldið
Frá Pétrl Ástvaldssyni, fréttarit-
ara DV.íOsló:
Hörkutólið Morgan Kane, sem
kunnur er mörgum Isiendingum, er
nú á leiðinni á hvíta tjaldiö eins og
öllum vestra-hetjum sæmir. Kjell
Hallbing, sem notar höfundarnafn-
ið Louis Masterson, hefur gert
samning við norsk-mexíkanskan
kvikmyndaframleiðanda um að
gera kvikmyndir eftir tveim
Morgan Kane bókanna, E1 Gringo
og Hefnd E1 Gringos. Myndirnar
verða teknar upp samhliða í
Mexíkó og Bandaríkjunum.
Kjell Hallbing er fyrir löngu
orðinn vellríkur á bókum sínum, 22
milljónir eintaka hafa selst síðan
fyrsta Morgan Kane bókin kom út
1966. Höfundurinn segist hafa halað
inn sem svarar um 120 milljónum
íslenskra króna fyrir þær. Upp-
runalega áttu bækurnar aðeins að
vera 12 en eru nú orðnar yfir 50.
Skemmdir
unnará
málverkum
Nistasafni
Skemmdarverk voru unnin á átta
ítölskum málverkum frá 15. og 17. öld
þar sem þau voru í vörslu í Umbria
listasafninu í Perugia. Virðist einhver
hafa tætt málverkin upp með dyralykli
eða einhverju oddhvössu áhaldi.
Skemmdirnar voru unnar á meðan
safnið stóð opið til sýningar. Ymsar
aðrar myndir, sem þykja verðmætari
listaverk, voru þó látnar ósnertar.
Möguleikar þykja á því að gera megi
við skemmdirnar.
Hundrað
þúsund
misstu
heimili sín
Að minnsta kosti 120 manns eru
taldir af í Suður-Kóreu eftir þriggja
daga úrhellisrigningar og flóð en yfir-
völd hafa fyrirskipað umfangsmiklar
hreingerningar og björgunaraðgerðir.
Þaö er þegar vitað um 83, sem farist
hafa í flóöunum og um 40 er saknað.
Nær 100 þúsund manns urðu heimilis-
laus.
Eignatjón af rigningunum óg flóðun-
um er ekki metið undir 6 milljónum
Bandaríkjadala og er þá ekki reiknaö
tjónið á hrísgr jónaökrum þar sem upp-
skera átti að hefjast eftir hálfan
mánuð. — Um 26 þúsund hektarar
ræktaös lands eru sagöir á kafi í vatni.
Rigningamar hófust á föstudags-
kvöld eða um nóttina og í höfuð-
borginni Seoul vaknaði margur
maðurinn upp við að allt var komiö á
flot inni á heimili hans.
Þyrlur Bandaríkjahers slógust í lið
meö björgunarsveitum við að bjarga
fólki af húsþökum þar sem það hafði
leitað sér hælis undan flóðavatninu.
Um 50 þúsund manns var bjargaö burt
frá heimilum sínum á bökkum Han-
fljóts sem rennur í gegnum höfuðborg-
ina.
Rigningin fór ekki að réna fyrr en í
gær, en hún hafði auk flóöanna víða
framkallað skriöuföll.
Frá Pétri Ástvaldssyni, fréttaritara
DVíOsló.
Milli átta og tíu þúsund bréf og skjöl
frá tíma norska nasistaflokksins,
Nasjonal samling, liggja í fórum
fertugs manns í Austur-Noregi að því
er norska Dagblaðið hefur upplýst.
Þetta eru bréf og skjöl frá árunum 1933
til 1945, fjölbreytt að innihaldi, og er
hér um aö ræða mjög verömæta papp-
íra. Ekki leikur vafi á því að skjölin
eruófölsuð.
Maðurinn sem hefur skjölin undir
höndum er óþekktur en kallar sig
„Martin”. Aðeins Hans Frederik Dahl,
blaðamaður á Dagblaðinu, hefur hitt
hann að máli. Á 10 til 12 ára tímabili
hefur „Martin” á einhvern hátt viðað
að sér safni sem er álíka umfangs-
mikiö og það sem ríkisskjalasafnið í
Osló á úr sögu Nasjonal samling. Um
er að ræða skjöl frá stjórn flokksins
sem sýna hvernig hann byggðist upp
og klofnaði svo á fjórða áratugnum.
Safnið inniheldur skjöl frá Quisling
sjálfum svo og áróðursdeild og stjóm
flokksins.
Martin hefur látiö hafa eftir sér í
Dagbiaðinu, að fái hann að halda safn-
inu sem sinni eign muni hann gjarnan
gera innihald þess opinbert. Geri ríkið
hins vegar kröfu til þess muni hann
draga allttii baka.
Ehn
HÆKKUM VIÐ
mniÁnsvEXTi
Vaxtabreytingar frá 27. ágúst:
SparireiKningar með 18 mán. uppsögn_hæKKa í 25%, ársávöxtun 26,6%
InnlánssKírteini 6 mánaða_hæKKa í 24,5%, ársávöxtun 26%
V/erðtryggðir sparireiKn. 3ja mánaða binding hæKKa í 3%
Verðtryggðir sparireiKn. 6 mánaða binding hæKKa í 6,5%
TéKKareiKningar_____hæKKa í 10%
Aðrir vextir eru óbreyttir frá 13. ágúst 5.1.
HÆ5TU
BAnHAVEKTIRniR!
SparireiKningar BúnaðarbanKans með 18 mánaða uppsögn
bera 26,6% ávöxtun á ári.
Þetta eru hæstu bankavextir sem bjóðast.
BúnaðarbanKinn mun ávallt leitast við að veita sparifjáreigendum
hæstu vexti sem í boði eru hverju sinni.
f^BÍNAÐARBANKI
\£y ISLANDS