Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1984, Blaðsíða 14
14
DV. MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER1984.
Þrír góðir leiktækjakassar
Til sölu góðir leiktækjakassar. Margs konar borgunarmögu-
leikar. Upplýsingar í símum 30404 og 23479.
Kennarar
Kennara vantar í Gerðaskóla í Garði. Upplýsingar hjá skóla-
stjóra í síma 72783 og í símum 92-7584 og 92-7053.
Rétt lagað te!
Betra te.
Telögun samkvæmt „gullreglunum fimm”.
1. Tekannan er forhituð.
2. Fyrir hvern bolla er látin ein teskeið af
te, ásamt einni skeið „fyrir könnuna”.
3. Sjóðandi heitu vatni er hellt yfir teið.
4. Teið er látið standa í 3-5 mínútur.
5. Eftir þetta má ekki gleyma að hræra
upp í og taka telaufið úr könnunni.
Mikið úrval hinna bestu tetegunda
færö þú hjá okkur.
Sérhæfð verslun með te og austurlenskar matvörur.
Menning Menning Menning
Fór létt með það
Slagverkstónleikar Andrews Cyrillo i
Norrœna húsinu 30. ágúst.
Það kann mörgum aö þykja það
heldur tilgangslítið að hafa heila tón-
leika með slagverki einsömlu, að
segja — ef slagverkið er ekki í formi
slaghörpu. En sannleikurinn er að
slíkt er síður en svo nokkur goðgá, aö
því fengnu að vísu, að ekki séu þaö
dúllarar einir sem um sláttinn sjá.
Hér starfaði meira að segja slag-
verkssveit, ein ágæt, og starfar
kannski enn, en heldur hefur veriö
hljótt um starf hennar, og er það
miður, því aö leikur hennar var ljóm-
andi tilbreyting í tónlistarlífinu, þótt
hljótt færi.
Fínn púls
Og það þurfti enginn aö kvíða til-
breytingarleysi sem kom til aö
hlusta á Andrew Cyrille í Norræna
húsinu. Fjölbreytnin í leik hans er
gífurleg og þó hann haldi sig að
mestu viö staðlað trommusett jass-
leikarans verður honum allt að hljóö-
gjafa, hans eigin höfuö og búkur,
veggir, gólf og hvaöeina. Og mitt í
Tónlist
Eyjólfur Melsted
allri rífandi fjölbreytninni slær þó
púisinn stöðugur og jafn undir, þ.e.
undir niðri dynur takturinn jafn og
stöðugur, hreint og beint óhnikanleg-
ur, þótt á yfirboröinu sé allt eitt ólg-
andihafrót.
Hávaðaverkstæði?
Nú kynnu margir að halda að slag-
verkstónleikar væru eitt herjans
mikið hávaðaverkstæöi. Satt er þaö,
oft situr hávaöinn í fyrirrúmi. En
ekki á tónleikum Andrews Cyrille,
því menn eins og hann, sam hafa yfir
svo gríðarmikilli leiktækni aöráða,
þurfa lítt á hávaöa að halda sér til
framdráttar. Hann leikur sterkt þeg-
ar það hentar honum leiksins og
túlkunarinnar vegna en að öðru leyti
hefur styrkur engan tilgang í sjálfu
sér. Það fer ekki á milli mála að hér
var einn skæðasti trymbill, sem Is-
land hefur heimsótt, á ferðinni. Það
segir sig sjálft að töluvert þarf til að
halda nærri fullum sal áheyrenda
föngnum í meira en tvo tíma, á tón-
leikum sem hefjast rúmum þremur
stundarfjóröungum of seint. Og
Andrew Cyrille fór létt með þaö.
EM
Sarnafil VIÐHALDSFRÍTT ÞAKEFNI TIL ENDURNÝJUNAR - TIL NÝBYGGINGA
FAGTÚN HF. LÁGMÚLA 7, 105 REYKJAVÍK, SÍMI 28230
þykkara stál
er ekkert smá mál!
Við óvœgar íslenskar
aðstœður skiptirþykktog
umleið styrkleikiog
veðrunarþol þakplötunnar
óendanlega miklu máli.
BARKAR-stálplöturnar
eru að lágmarki
en almennt gerist um litað stál
a íslenskum markað'i - þœr eru varanleg klœðning
sem þú leggur á þakið í eitt skipti fyrir öll Þykkt og lögun
platanna þýðir að þú kemst al með fœrri lestingar,
minna grindar- og spermefni,
fœrri vinnustundir við
lagningu o.fl. Þetta er lúmskur
sparnaður - en þó augljós
undirstrikun á yfirburðum
BARKAR-stáls þegar doemíð
er reiknað til fulls, Þegar
saman fer grimmsterkt etni.terski
og nýtískulegt útlit og hagstœtt verð er BARKAR-stál
eðlilegur og sjálfsagður valkostur allra þeirra sem
gera hámarkskröfur til gaeða, útlits og endingar.
Barkar-stál vegna
gæðanna,útlitsins og endingarinnar.
■ Framleitt erlendis undir ströngu gœðaeftirliti
■ Húðað með 0,2 mm þykku Plastisol sem
tryggir einstakt veðmnarþol
■ Afgreitt í lengdum að vali hvers kaupanda
■ Valsað hjá Berki hf. í fullkomnustu
vélasamstœðum sem völ er á
■ Fáanlegt í 10 litum
■ Besta þakplötuefnið á íslenskum markaði!