Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1984, Síða 2
2
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER1984.
Utanríkisráðherra Svía, Lennard Bogström, og Norðmanna, Svend Stray, sem
reyndar gegnir einnig starfi forsætisráðherra í Noregi í veikindum Káre Villock,
komu til landsins um miðjan dag í gœr. í gœrkvöldi átti Stray viðrœður við Geir
Hallgrímsson og Uffe Elleman Jensen um deilurnar sem risið hafa vegna loðnuveiða
við Jan Mayen. Aðspurður við komuna til landsins sagðist Stray ekkert vilja segja
um þetta mál fyrir fundinn. Á stœrri myndinni er Svend Stray lengst til hœgri, ásamt
aðstoðarmanni sínum, Lorentzen, sendiherra Noregs á íslandi, sem snýr baki í
myndavélina, og sendiráðsstarfsmanni. Á minni myndinni er Lennard Bogström.
-KÞ/DV-myndir Eiríkur Jónsson.
Kapphlaup bænda við rigninguna:
„Mikil hey en
gæðin misjöfn”
Af ótta viö rigningu hirða nú
bændur á Suöurlandi allt hvaö af
tekur, jafnt aö nóttu sem degi.
Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri
sagði aö Suðurlandsbændur væru í
þann veginn aö ljúka heyskap og út-
litið væri því mun betra en á horfðist.
„Heyin eru mikil en misjöfn aö
gæðum. Sum hey eru síðslegin og því
úr sér sprottin. En það eru til nægar
heybirgðir allt í kring um landið og
því eru engin vandamál á ferðinni í
því sambandi,” sagði Jónas.
Helga Eiríksdóttir á Vorsabæ á
Skeiöum sagðist hafa klárað hey-
skapinn í gær og hefði gengið mjög
vel síðustu daga. Hún sagðist hafa
byrjað heyskap 7. júlí og höfðu þá
komið nokkrir ágætir dagar en svo
kom rigningarkafli stuttu seinna
sem spUlti fyrir en góðviðrisdag-
arnir undanfariö hafa bjargað
málunum þar í sveit.
-JI.
Unniö að nóttu til viö aö koma síðustu böggunum i hús fyrír næstu rigningardembu & Vorsabæ á
Skeiöum. DV-mynd Eiríkur Jónsson.
Rutustríðið á Suðurlandi:
TILBOÐIN
VORUJÖFN
— segir bflstjóri hjá Krist jáni Jónssyni
„Það eru algjör ósannindi að
SérleyfisbUar Selfoss hafi verið með
lægsta tUboðið,” sagöi Einar Gíslason,
bUstjóri hjá Kristjáni Jónssyni, sér-
leyfishafa í Hveragerði, um rútustríðið
á Suðurlandi. Þar er bitist um hver
eigi að aka nemendum í Fjöl-
brautaskólann á Selfossi.
,,Eg tel aö mönnum hafi yfirsést
ýmis mikilvæg atriði í öðrum tilboðum.
Eg tel aö tUboðin hefðu verið mjög jöfn
ef aUir þættir hefðu verið teknir til
greina.
Eg vU einnig meina að taka hefði átt
með í dæmiö mannlega þætti. Við
höfum þjónaö þessu hlutverki frá
upphafi við góðan orðstír og meðal
annars fengið sérstakt hrós frá skóla-
meistara þar sem aldrei hefur brugðist
að nemendur kæmust á réttum tíma í
skólann þrátt fyrir erfiða færð oft,”
sagöi Einar.
Kristján Jónsson, sem Einar vinnur
hjá, hefur síöustu þrjú árin ekið
nemendum úr Þorlákshöfn, ölfusi og
Hverageröi. Núna hefur skólanefnd út-
hlutað SérleyfisbUum Selfoss verk-
efninu.
„Okkur finnst meðhöndlun málsins
furöuleg. Utboðið var nánast leynUegt.
Auglýsing um það var aðeins birt í
blaði sem gefið er út á Selfossi og
kemur ekki fyrir almenningssjónir og
heitir Dagskrán. Það var ekki einu
sinni haft samband við okkur sem
höfum verið með þennan akstur frá
upphafi. Af einskærri tilvUjun fréttum
við af þessu af afspum á síðustu
stundu. Við höfðum þá lítinn tíma tU að
ganga frá tUboðum en gerðum þaö þó,
undirbúningslítið,” sagði Einar.
Hann tók fram að hvorki í Þorláks-
höfn né Hveragerði hefðu Sérleyfis-
bUarnir verið hindraöir.
„Við erum þakklátir nemendum
fyrir aö styðja okkur og hvetja okkur
til dáða. Það er ekki síður þeirra ósk að
heimamenn annist aksturinn. Það
finnst öllum óeðlUegt að þetta sé rifið
úr höndum heimamanna og sett á eina
hendi á Selfossi,” sagði Einar.
-KMU.
Unniö að uppsetningu laxeldis i Grundarfiröi.
Grundarfjörður:
Hefja laxeldi
MUdar vonir eru bundnar við nýja
laxeldisstöð sem staðsett er í Grundar-
firði, í sjó, fyrir neðan Kirkjufell.
Svanur Guðmundsson, einn
aðstandenda laxeldisins, sagði að
fyrstu 4000 seiöin sem yrðu til prúfu í
vetur heföu komið í gær frá Hvamms-
vík í Hvalf irði.
Svanur sagði að vonir vieru bundnar
við 100 tonna ársframleiðslu þegar
fram í sækir en hversu vel mun tU
takast fer eftir ýmsu, svo sem veðráttu
oghitastigisjávar.
„Þessi atvinnugrein er mjög fjár-
frek og verður aldrei nein aukabúgrein
því fyrstu þrjú árin erum við algjör-
lega tekjulausir og þurfum því
einungis að fást við fjárfestingu,
rekstrarfé og kostnað,” sagöi Svanur.
Þegar laxinn hrygnir hægist á
vexti og er honum þá slátrað. Fyrsta
slátrun hefst ekki fyrr en eftir þrjú ár
þegar meðalþyngd er um 3,5 kg.
„Við munum kaupa 30.000—50.000
seiði ár hvert tU að ala og stQum aðal-
lega á erlenda markaði því sá innlendi
er fljótur að mettast. Stærstu
markaðir eru Frakkland, Vestur-
Þýskaland, Bandarikin og margir
aðrir smærri viða um heim,” sagði
Svanur.
„Fjármögnun er hálfloðin og
óviss,” sagði Svanur. ,,Steingrímur
Hermannsson sagði í útvarpsviðtali
fyrr í sumar að 20 miUjónum yrði
varið tU fiskeldis en enginn virðist nú
vita hvar þessar krónur Uggja.”
Einn starfsmaður mun sjá um lax-
eldisstöðina fyrsta árið en síðan þarf að
auka við starfsfólki upp í fjóra til
fimm, þegar því takmarki er náð sem
sett var, og enn þarf að bæta við fólki
þegar slátrun hefst. -JI.
ITILEFNIDAGSINS
VIÐ OPNUN EINNAR GLÆSILEGURSU SÓLBAÐSSTOFU í BÆNUM
BJÓÐUM VIÐ FRÍTT OPNUNARDAGINN, FIMMTUDAGINN 6. SEPTEMBER.
Opið fró kl. 7.00—23.00 virka daga, laugardaga og sunnudaga frá kl. 10.00—23.00.
KOLBRUN.
SÓLBAÐSSTOFAN, GRETTISGÖTU 57 A,
SÍMI62-14-40.