Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1984, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1984, Blaðsíða 7
DV. MEÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER1984. 7 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Shiite-músllmar á fjöldafundi í Vestur-Beirút vegna kröfunnar um framsal Mussa Sadr, trúarleiötoga þeirra. VIUA TRÚAR- LEIÐTOGA SINN HEIM FRÁ LÍBÝU Shiite-múslimar í Líbanon sakna enn sárlega trúarleiötoga síns, Mussa Sadr, og efndu nýlega til kröfugöngu í Vestur-Beirút í tilefni af því aö sex ár eru liöin síðan Mussa Sadr hvarf sporlaust í Líbýu þar sem hann var gestur Gaddaf i-stjómarinnar. Þeir krefjast þess aö Gaddafi ofursti skili þeim Sadr aftur eða geri að minnsta kosti fulla grein fyrir af- drifum hans. — Auk kröfugöngunnar var vinna lögð niður í heilan dag að áskorun Nabih Berri, leiðtoga shiite- múslima. Frá því að Mussa Sadr hvarf hafa shiite-múslimar rænt farþegaþotu frá Líbýu, líbýskum diplómötum og marg- sinnis gert aðsúg að líbýskum fyrir- tækjum eða ræðismannsskrifstofum í Líbanon til áréttingar kröfum um að trúarleiðtoga þeirra verði skilaö. En allt hefur verið án árangurs. Þögnin rof- /n um for- seta Sovét- ríkjanna Þess er beöið með nokkurri eftir- væntingu hvort Konstantin Tjernenkó, forseti Sovétríkjanna, komi fram opin- berlega í dag, en hann hefur ekki sést á almannafæri í sjö vikur. Victor Louis, sovéskur fréttamaður sem þykir hafa góð sambönd viö ráða- menn, sagði breskum og v-þýskum blöðum í gær að búist væri við því að Tjernenkó mundi koma fram opinber- ,lega í dag til þess að heiöra þrjá sov- éska geimfra. Meðal þeirra mun vera Svetlana Savitskaya sem fyrst kvenna varö til þess að ganga úti í geimnum. Það hefur vakið mikið umtal að Tjemenkó skuli ekki hafa komið fram opinberlega lengi og hefur sjaldam verið getið í sovéskum fjölmiðlum! þennan tíma. Hann verður 73 ára núna 24. september. — Þykja mönnum ekki aörar skýringar nærtækar en aö annaðhvort eigi Tjemenko við heilsu- brest aö stríöa eöa þá aö hann hafi ekki náö völdum forvera sinna á leiðtoga- stólnum. Þegar Andrópov átti við sín veikindi aö stríða í fyrra kom hann.síðast opin- berlega fram í ágúst en hann andaðist í febrúar síöasta vetur. Allan þann tíma var þó nafn hans ofarlega á baugi í opinberum tilkynningum og fréttumj f jölmiðlanna í Sovétríkjunum. Blóðugar blökku- mannaóeirðir Eldar loguðu í hverfum blökku- manna í gærkvöldi eftir óeirðir sem kostuðu 29 manns lífið en í dag er geng- ið til forsetakosninga. Oeirðirnar hafa aðallega verið í Sharpeville og nærliggjandi blökku- mannahverfum og hófust fyrir þrem dögum. Lögreglan beitti táragasi og skotvopnum til þess aö dreifa mann- söfnuði og koma á ró og er talið aö hundruðhafi særst. Tilefnið var óánægja með hækkun á húsaleigu. Þetta þykja verstu óeirðir sem orðið hafa í S-Afríku síðan 1976. — Sharpe- ville, sem er um 50 km suður af Jóhannesarborg, var í heimsfréttun- um 1960 vegna óeiröa þegar lögreglan skaut tii bana 69 blökkumenn. P.W. Botha, fyrrum forsætisráð- herra (68 ára), verður kosinn af sér- stöku kjörráði þriggja deilda þingsins til nýbreytts embættis forseta S- Afríku. Hefur forsetinn meiri völd en áður. Frestar heimsókninni r Akvörðun Honeckers talin runnin undan rifjum Kremlverja I Bonn eru uppi ýmsar meiningar um þá ákvörðun Erichs Honeckers, leið- toga a-þýskra kommúnista, að fresta fyrirhugaðri heimsókn sinni til V- Þýskalands. Er jafnvel fullyrt að Kremlstjórnin hafi haft áhrif á Honecker, sem ætlaði að veröa fyrsti leiðtogi A-Þýskalands til þess aö heim- sækja opinberlega V-Þýskaland. I tilkynningu a-þýsku stjómarinnar um frestunina var komist svo að orði aðheimsóknin væri „ekkitímabær”. Að undanfömu hafa sovéskir fjöl- miölar veist mjög aö v-þýsku stjóm- inni og Kohl kanslara og hefur það ver- ið túlkaö svo að Kremlverjar hefðu ímugust á því hve dælt væri orðið á milli þýsku ríkjanna beggja. Búist hafði verið við því aö Honeeker kæmi í heimsókn dagana 26. til 30. september. Heimsókninni hefur ekki verið endanlega aflýst heldur aðeins slegið á frest. SEPTEMBER ÚTBOÐ RÍKISVÍXLA Skilafresturtilboða ertil kl. 14:00 miðvikudaginn 12. september 1984. Tilboðum sé skilað til lánadeildar Seðlabanka íslands, Hafnarstræti 10, Reykjavík, fyrir þann tíma. Útboðsskilmálar, sem eru hliðstæðir þeim sem giltu í ágústútboðinu, liggja frammi ásamttilboðseyðublaði í afgreiðslu Seðlabankans, en þeir eru helstir: IGert sé tilboð í lágmark 5 víxla hvern að ■ fjárhæð kr. 50.000.- þ.e. nafnverð kr. 250.000.-, eða heilt margfeldi af því. 2. 3. Tilboðstrygging erkr. 10.000.- Útgáfudagur víxlanna er 14. þ.m. og gjalddagi 14. desember n.k. A Ríkisvíxlarnir eru stimpilfrjálsir og án þóknunar. Um skattalega meðferð þeirra gilda sömu reglurog hverju sinni um innstæður í bönkum og sparisjóðum. Reykjavík 3. september 1984 RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.