Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1984, Blaðsíða 6
6
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER1984.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Mulroney bafðl góða ástæðu til að f agna i nótt.
JÓMFRÚFERÐ
„DISCOVERY”
GEKK AÐ ÓSKUM
Geimskutlan „Discovery” er lögð af
stað til jarðar aftur aö lokinni geim-
ferð sinni sem fyrirUði áhafnarinnar
kallar „algjörlegafuilkomna”.
Eini vandinn, sem upp kom, var
myndun grýlukertis utan á skutlunni
en geimfaramir beittu vélstýrðum
armi skutlunnar til þess að sópa því af
ígær.
Gervihnettimir þrír, sem áhöfn
skutlunnar kom fyrir úti. í geimnum í
upphafi ferðarinnar, starfa allir eðli-
lega.
Þetta var jómfrúferð „Discovery”
og er hún búin að vera sex daga í ferð-
inni.
Henry Hartsfield, fyrirliði áhafnar
„Discovery”, sagöi að jómfrúferðin
hefði verið „algerlega fullkomin”.
Stuttíað
Treholt losni?
Gæsluvarðhald yfir Arne Treholt,
sem grunaður er um njósnir, hefur
verið framlengt um átta vikur, fram til
2. nóvember. Fariö hafði verið fram á
12 vikna framlengingu af hálfu lög-
reglunnar eins og verið hefur. Þykir
þetta því nokkur sigur fyrir Treholt og
verjanda hans, Ulf Underland. Næsta
stig verður líklega það að Treholt verði
látinnlausumtíma.
Einangrun Treholts hefur nú verið
rofin að miklu leyti en hann situr í
bæjarfangelsinu í Drammen. Nú fá
vinir Treholts að heimsækja hann, auk
fjölskyldu, og hann fær að fýlgjast meö
útvarpi, sjónvarpi og blööum. Honum
er einnig leyft að skrifa bréf, en þau
eru ritskoðuð.
Rannsóknarlögreglunni hefur tekist
að hafa uppi á þeim 50.000 dollurum
sem Treholt fékk fyrir njósnir í þágu
Iraks en peningamir eru geymdir í
svissneskum bönkum. Treholt hefur
hingað til ekki játað á sig njósnir fyrir
Irak eða Sovétríkin. Hann heldur fast
við þann framburð sinn að hann hafi
afhent f ulltrúum þessara ríkja leynileg
skjöl án þess aö skaða Noreg á nokk-
urn hátt.
-PÁ, Osló.
70 særðir eftir bíla-
sprengju á N-írlandi
Bílsprengja særði 70 manns í landa-
mærabæ á Norður-Irlandi í gær. Lög-
regla fékk aðvörun um aö sprengja
myndi springa á vissri götu í bænum
Newry eftir 40 mínútur en var ekki
sagt í hvaða bíl sprengjan væri. Hún
varð því að loka allri götunni en áður
en þaö tækist fullkomlega sprakk
sprengjan.
Enginn hefur tekið á sig ábyrgðina á
sprengjutilræðinu en Irski lýðveldis-
herinn er grunaður. Á 14 árum ofbeldis
á Norður-Irlandi hafa fleiri en 2.300
farist. Enginn meiddist alvariega.
æt Kanada:
Ihaldsmenn fá
yfirgnæfandi
meiríhluta
— Þeim er spáð 190 þingsætum af 282
íhaldsmenn undir forystu Brian Mul-
roney unnu stórsigur í kosningunum í
Kanada í gær. Síðustu tölur sýna að
framfarasinnaði íhaldsflokkurinn er
þegar kominn með hreinan meirihluta
á þingi, 144 sæti af 282. Frjálslyndi
flokkurinn, undir forystu John Tumer,
hrapaði úr 139 þingsætum niður í 29,
þegar atkvæði í rúmlega helmingi
kjördæma höfðu verið talin. Þingsæta-
tölur beggja flokkanna eiga enn eftir
að hækka töluvert eftir því sem tölur
koma frá fleiri kjördæmum. Ihalds-
mönnum er spáð aUs 190 sætum.
Mulroney vann persónulegan sigur
með því að ná kosningu á þing frá
heimabæ sínum Baie-Comeau, sem
venjulega hefur kosið frjálslyndan
mann á þing. Það þótti mikið hættuspil
hjá Mulroney aö bjóða sig fram í
þessum litla millubæ við St. Lawrence-
fljót.
John Tumer tók líka áhættu meö því
að bjóöa sig fram í Vancouver á Kyrra-
hafsströnd. Hann var í mikilli hættu á
aö tapa því sæti þegar síðast fréttist en
eitthvaö mun dragast að telja atkvæði
þaöan. Að minnsta kosti 11 ráöherrar
frjálslyndra, sem eru í stjóm, náðu
ekki kosningu.
Einna hrapallegastur var ósigur
frjálslyndra í Quebec en í því fýlki
hafa þeir venjulega staöiö hvað traust-
ustum fótum. Nú hafa íhaldsmenn
unnið að minnsta kosti 61 af 75 kjör-
dæmumíQuebec .
1 héruðunum við Atlantshaf unnu
íhaldsmenn að minnsta kosti 25 af 32
Minnisvarði
um
„Flug007”
I Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu,
hefur verið reistur nær 30 metra
hár minnisvarði um „Flug 007”,
kóresku farþegaþotuna, semSovét-
menn skutu niður fyrir ári. Meö
henni fórust 269 manns. — Minnis-
varðanum er komið fyrir í kirkju-
garði rétt sunnan höfuöborgarinn-
ar þar sem hvíla Kóreumenn er dá-
iöhafa erlendis.
þingsætum sem keppt var um. Fyrir
kosningamar réðu frjálslyndir þessum
svæðum með 19 sætum.
Þessi sigur íhaldsmanna er sá
stærsti síðan annar íhaldsmaður, John
Diefenbaker, komst til valda árið 1958.
Alls hafa frjálslyndir fariö með stjórn
á landinu í 21 ár fyrir utan níu mánaöa
valdatíma íhaldsmanna fyrir nokkrum
árum.
John Tumer, sem tók viö forsætis-
ráðherraembættinu þegar Pierre
Aö minnsta kosti einn maður lést og
50 særðust í mótmælaaðgerðum í Chile
í gær. Lögregla notaði háþrýstivatns-
dælur á mannf jölda sem var aö syngja
þjóðsöng Chile á þrepum dómkirkj-
unnar í Santiago. Fólkið var að mót-
mæla herstjórninni í landinu og krefj-
ast lýðræðis.
Maðurinn, sem lést, var franskur
prestur. Að sögn lögreglu er ekki vitað
hver drap hann en að sögn vinar
mannsins var það lögreglan sem skaut
Trudeau sagði af sér fyrir tveim
mánuðum, hefur eftir þessar kosning-
ar veriö styttri tíma í embætti en
nokkur annar forsætisráöherra Kan-
ada á 20. öldinni.
Kanadíska ríkissjónvarpiö spáöi því
í nótt að alls myndu íhaldsmenn fá 190
sæti á þingi en frjálslyndir 61. Afgang-
ur sætanna mun fara að mestu til hins
vinstri sinnaöa Nýja lýðræðisflokks,
sem virðist ætla að bæta við sig veru-
legufyigi.
hann eftir að hann hafði talað við
blaðamann á götu úti. Hann sagði að
lögregla heföi komið í hendingskasti
niður götuna og skotið á prestinn úr
hríðskotabyssum.
Lögregla sagði að 14 sprengjur, að
minnsta kosti, hefðu sprungið í Santi-
ago í fyrrinótt.
Fregnir frá Valparíso, næststærstu
borg Chile, segja að þar hafi lögregla
beint táragasi að námsmönnum sem
voru að mótmæla herstjórninni.
Robert Schneller frá Stuttgart vakti athygli í réttarsalnum í Hamborg sem
tvífari Hitlers.
Tvífarí Hitlers
Dómaranum í máli Heidemanns og
fölsuöu dagbókanna hans Hitlers brá
ekki lítið þegar hann tók sæti sitt í
réttinum í Hamborg og leit yfir sal-
inn. — Var þetta ekki Hitler sjálfur
sem starði beint í augu honum af
fremsta áheyrendabekk?
Að vísu ekki hann sjálfur en tvífari
hans. — Robert Schneller frá
Stuttgart bar sama yfirskeggið,
sömu hárgreiðsluna og svipað yfir-
bragð og varö fyrir þá sök tilefni
mikils uppistands í réttinum.
I réttarhléi sagði Schneller við
fréttamenn að hann hefði af tilviljun
veriö staddur í Hamborg og af for-
vitni litið inn til að hlýða á málflutn-
inginn. Hann lét sér hvergi bregða
við athyglina og var raunar ekki
fyrir neinum svo að ekki var amast
við veru hans í réttarsalnum.
Óeirðir íChile:
LOGREGLA SKAUT
FRANSKAN PREST