Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1984, Blaðsíða 5
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER1984.
5
ÞórJakobsson
veðurfræðingur:
Skipuleggur
„mannkyns-
hátíð” um
allan heim
„Þaö eru nokkur ár síðan mér datt
þetta í hug og byrjaði að nefna þetta
við fólk á ferðum minum en í haust hóf
ég aö skipuleggja þessa hátiö,” sagöi
Þór Jakobsson veðurfræðingur í sam-
tali við DV. Hann hefur gert áætlun um
„mannkyns-hátíð” þar sem hugmynd-
iner að skipuleggja hátíðir með fjöl-
breyttu sniði í öllum heimsálfum. Hér
er átt við íþróttahátíðir, listahátíðir,
vísindaráðstefnur, sýningar o.fl.
Hjá Þór kom fram að hann er nú i
sambandi við hópa fólks í Kanada og
Engiandi sem áhuga hafa á málinu.
„Markmiðið er að hvert land fyrir
sig skipuleggi sínar hátíðir en síðan
verða þær tengdar saman með
boðgöngu sem verður jafnframt tákn
um samstarf milli þjóöa,” sagði hann.
Hugmyndin er aö lagt verði af stað
frá Þingvöllum árið 1989 og þaðan
stefnt til Kanada en síðan farið staö úr
stað þar sem hátíðahöld verða, um
austurhluta Bandaríkjanna en siöan
siglt til Bretlandseyja, farið um
Noröurlönd og meginland Evrópu. Það
verður svo fariö eftir skipulagðri leið
um Afríku, Asíu, Ástraiíu, Suöur-
Ameríku og Norður-Ameríku og svo
endað aftur á Þingvöllum nokkrum
árum eftir árið 2000.
I boðgöngunni er hugmyndin að nýir
þátttakendur taki stöðugt við og
vonast Þór til aö milljón manna hafi
slegist í hópinn áður en yfir lýkur en
ætlunin er að allsherjarfagnaður verði
haldinn um aldamótin 2000 á öllum á-
fangastöðum boðgöngunnar.
,,Eg vil hvetja fólk til að hafa
samband við mig og koma á framfæri
hugmyndum sínum um þessa hátíð en
ég vona aö einkum ungt f ólk hafi áhuga
á að starfa að þessu,” sagði hann.
Almennur fundur verður boðaöur um
máliö síðar í þessum mánuöi og nánar
verður greint frá hugmyndum og
skipulagi í bæklingi næsta vetur.
-FRI.
Café
Myllan
— nýtt
kaffihús
I nýrri viðbyggingu Brauös hf. í
Skeifunni 11 í Reykjavík hefur verið
opnað nýtt kaffihús undir nafninu Café
Myllan.
Þar er boðið upp á ýmsar veitingar
á hófiegu verði í björtu og notalegu
umhverfi.
A boðstólum er m.a. nýbakað smurt
brauö með margs konar áleggi,
nýbakað kaffibrauð í fjölbreyttu úr-
vali, ásamt kaffi og gosdrykkjum. A
morgnana, milli kl. 7.00 og 9.00, er
boðið upp á morgunverðarhlaðborð
fyrir fast verð. I hádeginu eru á
boðstólum súpur og smáréttir sem eru
breytilegir frá degi til dags.
Café Myllan hefur opið mánudaga
til föstudaga milli kl. 7.00 og 18.00.
„Uffe Ellemart Jensen, utanríkisráðherra Danmerkur, tekur sór hvíld frá veiðunum og færsór ípípu á meðan hann spjaliar við blaðamann DV.
D V-myndir EJ.
Danski utanríkisráðherrann
skolar af fiskum sinum.
grænlenskan fisk, svo að
Grænlendingar eru í fullum rétti til
að gera samkomulag á borð við
þetta.”
— Það var talað um það á sinum
tíma að þið hefðuð gert einhvers
konar samkomulag viö Norðmenn
um Jan Mayen svæðið. Er það rétt?
„Við gerðum ekkert sérstakt sam-
komulag viö Norðmenn. Við
veiddum bara þessi 105 þúsund tonn
sem við fengum úthlutað og sem við
vorum í fullum rétti til að veiða,”
sagði Uffe Elleman Jensen.
-KÞ.
„Grænlendingar í
fullum rétti að
semja við
Færeyinga”
— segir Uff e Elleman Jensen,
utanríkisráðherra Danmerkur
,,Ég vona, að Islendingar skilji
sjónarmið okkar. Eg er ekki bara
utanríkisráðherra Danmerkur
heldur líka Færeyja og Grænlands,
svo Islendingar verða að skilja það
að þaö eru fleiri en þeir sem hafa
áhuga á að veiða á svæðinu við Jan
Mayen,” sagði Uffe Elleman Jensen,
utanríkisráðherra Danmerkur, í
samtaliviðDVígær.
DV hitti Elleman Jensen að máli
við Laxá í Kjós um hádegisbilið í gær
þar sem hann var að veiðum. Hann
lét vel af laxveiðinni, enda búinn að
fá einn fjögurra punda lax og
nokkra silunga. „Þennan fer ég
meö heim og beint í reyk,” sagði
hann þegar hann sýndi hróðugur
laxinn. Hann sagðist því miður ekki
geta veitt meira á Islandi að þessu
sinni þar sem skyldan kallaði.
I gærkvöldi töluöu þeir saman
Geir Hallgrímsson, Svend Stray,
utanríkisráðherra Noregs, og Elle-
man Jensen. Við spurðum hann
hvers hann vænti af þeim f undi.
„Eg á von á því að við náum ein-
hverju samkomuiagi.”
Danskur fongur i íslenskri lög-
sögu — Laxá i Kjós.
— Þið hafið svo oft rætt saman án
árangurs, heldurðu að þessi fundur
verði öðruvísi?
„Já, ef Islendingar sýna sam-
starf. Við höfum árum saman veitt
þarna. I ár veiddum við lítið vegna
þessa ágreinings um svæðið.”
— Hvert er þitt álit á hinu nýja
samkomulagi Grænlendinga og
Færey inga um veiðar á þessu s væði?
„Við lítum svo á að þama sé um
að ræða grænlenskt svæði og
Kaupleiga á píanóum:
SEX MÁNAÐA LEIGA UPP í KAUPVERÐIÐ
„Við erum að kynna þetta á heimilis-
sýningunni og hefur verið mjög vel
tekiö þar,” sagði Ásdis Þorsteinsdóttir
hjá versluninni Lampar og gler, en sú
nýbreytni hefur verið tekin upp hjá
versluninni að leigja píanó til lengri
eða skemmri tíma.
„Píanóin eru þýsk og eru frá
Schimmel sem er mjög þekkt merki.
Þeir hafa framleitt píanó síðan 1885 og
nú flytja þeir út um fjörutíu og átta
prósent af öllum píanóum frá
Þýskalandi,” sagði Asdís ennfremur.
Skilmálamir em þeir að gerður er
nokkurs konar kaupleigusamningur til
tólf mánaða. Leigjandinn verður að
greiða mánaðarlega leigu sem er um
tvö þúsund og fimm hundruð krónur af
ódýrustu píanóunum. Ef leigjandinn á-
kveður innan sex mánaða aö kaupa
hljóðfærið þá gengur sú leiga sem hann
hefur greitt upp í kaupverð píanósins.
-SJ.
MALASKOLI
■26908-
Danska, sænska, enska, þýska, franska, ítalska,
spænska og íslenska fyrir útlendinga.
Innritun daglega kl. 13—19.
Kennslahefst 17. september.
Skírteini afhent 14. september (föstudag) kl. 16—19.
Umboð fyrir málaskóla: EUROCENTRES, SAMPERE
o fl. í helstu borgum Evrópu, svo og i New York.
-26908-
HALLDÓRS