Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1984, Side 8
8
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER1984.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Hækkaö verð á
miólkurvörum
Hækkun á mjólkurvörum og nauta-
kjöti tók gildi 1. september. Nemur
hækkunin á mjólkurvörum aö meöal-
tali 4% en 4,3% á nautakjöti. Hækkun
á nautakjöti kemur ekki fram strax í
verslunum þar sem nýtt kjöt er til
allt árið og enn einhverjar birgðir til.
Samkvæmt nýjum verðlista frá
Mjólkursamsölunni hefur einn lítri
af mjólk hækkað úr kr. 22,30 í kr.
23,10, smásöluverð, heildsöluverð á
lítrafemu af mjólk er 21 króna, sama
verð er á léttmjólkinni.
Undanrenna hækkaði úr kr. 15,50 í
16,05 og 1/4 lítri af rjóma hækkaði úr
kr. 35,70 í 36,80.
Kílóverö af fyrsta flokks smjöri
hækkaði úr kr. 239,70 kr. í 250,30.26%
ostur hækkaði úr kr. 215,10 í 222,20,
17% ostur hækkaöi úr kr. 179,40 í
185,30 krónur hvert kíló.
Vakin skal athygli á því að 16 vöru-
tegundir, sem nefndar eru á verð-
listanum frá Mjólkursamsölunni,
eru á leiöbeinandi verði. Verslunar-
eiganda er frjálst að hækka eða
lækka þær vörur sem merktar eru
meöx.
-RR
Á Raufarhöfn stendur nú yfir sýning á orkusparandi aðgerðum. Eins og sjá má á myndinni getur verið kuldalegt
þarna, en hugsanlegt er að einhver hús þarna þyrfti að einangra betur.
Lánamöguleikar til orkusparnaöar:
Orkuspamaðarlán
65 milljónir í ár
Ert þú einn af þeim sem notar of
mikla orku til að kynda húsið þitt? Ef
svo er væri kannski ráðlegt að lesa
þennan greinarstúf.
Nú undanfarið hefur \ ;rið unnið
markvisst að því að kanna hvar sé
þörf á að gera orkuspamaðar-
aðgeröir. Þessar aðgerðir ganga
undir nafninu orkuspamaðarátak og
er það iðnaðar- og félagsmála-
ráöuneytið sem standa að baki þeim.
Sérstök verkefnisstjóm var skipuö og
í henni sitja Karl Omar Jónsson,
Guöni Jóhannesson verkfræðingar
og Jóhann Einvarðsson, aðstoöar-
maður félagsmálaráðherra.
Hverjir nota mest af orku?
Átak þetta beinist fyrst og fremst
að því að leita uppi þau hús sem nota
of mikla orku. Að sögn Guðna
Jóhannessonar em þetta hús á
Vesturlandi, Vestf jörðum og Austur-
landi. Upplýsingar em fengnar frá
orkubúum þessara staða, um hver
orkunotkun hvers einstaks húss er.
Síöan er rúmmetrafjölda hússins
deilt upp í orkunotkunina og fundiö
út hversu mikil orka er notuö á
rúmmetra í þessum húsum. Þau hús
sem lenda fyrir ofan ákveðin mörk
mega búast við aö fá heimsókn af
skoöunarmönnum. Þetta em hús
’sem eru með yfir 38 þúsund KWh
orkunotkun á ári og meira en 12 kWh
orkunotkun á hvern rúmmetra á ári.
Nú þegar er byrjað að fara í þau hús
sem hafa of mikla orkunotkun. Sér-
stakir skoðunarmenn, sem staðsettir
eru úti á landi, fá það verkefni aö
kanna aðstæöur á hverjum stað og
gera nák væma úttekt á hvað sé nauð-
synlegt að gera á hverjum stað.
Lán til
orkusparandi endurbóta
I framhaldi af þessum
orkuspamaöaraðgerðum er mögu-
legt fyrir húseigendur að fá lán til
endurbóta. Slík lán eru þó ekki veitt
til húsa nema þau hafi veriö skoöuð
af skoðunarmönnum og þeir gert
heildaráætlun um allar þær orku-
sparandi endurbætur sem þörf er á.
Þessi lán geta numið allt að 50% af
áætluðum heildarkostnaöi, þegar
hann er á bilinu 60—120 þúsund, en
ekki er þó lánað til aðgerða sem ekki
kosta yfir 60 þúsund krónur. Lánað
er til allt að 11 ára, afborgunarlaust
fyrstu tvö árin.
Ef kostnaðaráætlun er yfir 120
þúsund þá getur lánsfjámpphæð
numið allt að 80% af kostnaðar-
áætlun. Þá er lánaö til 16 ára og af-
borgunarlaust fyrstu tvö árin.
Um þessi lán er sótt hjá Húsnæðis-
stofnun ríkisins. Eyðublöð er hægt að
fá þar og einnig á skrifstofum
sveitar- og bæjarfélaga um land allt.
Miðað er við að lánin séu greidd út
innan hálfs mánaöar frá því að fram-
kvæmdumerlokið.
Lán til að breyta frá olíu-
kyndingu yfir í innlendan
orkugjafa
Þá er einnig stefnt að því í þessum
aögerðum að meirihluti þeirra íbúða,
sem nú eru kyntar með olíu, breyti
yfir í innlenda orku og þá aðallega
rafhitun. I því sambandi er hægt aö
sækja um lán og eru þau að upphæð
50 þúsund krónur. Lánstími er allt að
fimm ár og lánið afborgunarlaust í 2
ár. Húsnæðisstofnun ríkisins annast
afgreiðslu þessara lána.
Á þessu ári er ráðgert að lánaðar
verði um 40 milljónir til orku-
sparandi endurbóta og 15 milljónir
vegna breytinga úr olíuhitun.
Farandsýning um
orkusparnað
Nú á sunnudaginn var opnuð
sýning á Raufarhöfn. Þetta er sýning
á byggingarefnum og tækjum til
orkuspamaðar. Sýningin mun veröa
sett upp á 10 stöðum á Austurlandi nú
á næstunni. Slík sýning er án efa
mikilvæg fyrir þá sem standa
frammi fyrir því að þurfa að gera
gagngerar breytingar á húsnæði sínu
til orkuspamaðar.
-APH.
Itilsam 1 Hvað kos . Vinsamlega sen 1 andi i upplVsing í fjolskyldu af sön I tæki. 1 Nafn ásk íýsingaseðill! anburöar á heimiliskostnaði i tar heimilishaldið? lið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- j : amiðlun meðai almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar ,' u stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nvtsamt heimilis- ^ rifanda !
| i , Heimili l
, l i Sírríi 1
| I 1 l Fjöldi heimilisfólks J | Kostnaöur í ágúst 1984. J
i Matur og i Annaö 1 hr^ÍnlpPti^vrSnir kr 1
kr
Alls kr }
I | 1 _ 1
1 r»ra *
Vörutegund Krónur
Mjólk ný í lausu máli
Mjólk ný í 1/1 pakka
Mjólk ný 11/4 pakka
Mjólknýí2/lfernu 46,20
Mjólk ný í 201 kassa
G-mjólk í 1/41 pakka
G-mjólk í 1/11 pakka
Léttmjólk í 1/11 pakka 23,10
Rjómiílausumáli
Rjómi í 1/4 pakka
Rjómi í 1/1 fernu
Rjómi i 1/2 fernu
Rjómi sýrðurí200grdósum
ídýfur og sósur í 200 gr dósum
Kaff ir jómi í 1/4 pakka
Þeytirjómi í 1/4 pakka
Skyrílausumáli
Skýr í 500 gr pökkum
Skýr í 200 gr pökkum
Skyr í 500 gr boxum 19,50
Skyr í 200 gr boxum
Ávaxtaskyrí500grboxum
Ávaxtaskyr í 150 gr boxum 12,70 x
Rjómaskyr í 500 gr boxum 38,20 x
Sýrð mjóik í lausu máli 23,80
Sýrð mjólk í 1/1 pakka 26,30
Kókómjóik í 1/4 pakka 11,20 x
Kókómjólk í 1/1 pakka 34,70 x
Jógúrt án ávaxta í 180 gr boxum 14,00 x
Jógúrt með ávöxtum í 500 gr boxum 35,00 x
Jógúrt með ávöxtum í 180 gr boxum 15,70 x
Léttjógúrt í 1/21 fernum 30,50 x
Jógi í 1/4 pakka 10,40 x
Mysa í lausu máli 10,50
Mysaí2/lfernu
Mangósopl
Undanrenna í lausu máli
Smjör I. fl....." 250,30
Smjör II. fl 234,00
Ostur 17% 185,30
x Leiðbeinandi verð.
Heimilisbókhald DV:
Landsmeðaltalið íjúlí
— 7,6% lægra en í júní— 23% hærra en ífyrra
Landsmeöaltal einstaklinga i
heimilisbókhaldi DV í júh' er 2629
krónur. Meðaltalið er 7,6% lægra en í
júnímánuði, var þann mánuðinn 2846
krónur.
Landsmeðaltal í júlí 1983 var 2.140
krónur á einstakling og er því tæpum
23 prósentum hærra í júlí í ár. Þetta
meðaltal er fundið eftir tölum á
upplýsingaseðlum frá lesendum.
Þessir sérstöku seölar birtast í DV
yfirleitt fyrstu fimm virka daga
hvers mánaðar og bókhaldarar færa
sínar tölur inn á seðil og senda
okkur. Annars vegar era tölur yfir
kostnað við mánaöarinnkaup
heimilisins á mat og hreinlætis-
vörum og hins vegar tölur yfir önnur
útgjöld heimilisins.
Allir fylla út dálkinn yfir kostnaö
við mat og hreinlætisvörurnar og
flestir setja á seðlana kostnað yfir
„annað”. En þær meðaltalstölur,
sem við reiknum út mánaðarlega
eftir upplýsingaseölum sem okkur
berast, era tölur yfir mat- og hrein-
lætisvörur.
Landsmeðaltal mánaðarins segir
okkur hvaö hver einstaklingur hefur
variö hárri upphæð til kaupa á mat
og hreinlætisvörum í mánuö.
-ÞG.
Skiptimarkaður Pennans og BSE:
Gömlum bókum
skipt fyrir nýjar
Bókaverslanir í Reykjavík hafa
nú undirbúið af kappi skólabókaflóö-
ið sem fylgir byrjun skólaárs. Sú ný-
breytni var tekin upp í fýrra hjá
Pennanum að hafa svokallaðan
skiptimarkað þar sem hægt var að
koma með gamlar skólabækur,
leggja þær inn á reikning og taka síð-
an út á innstæðuna þaö sem nemend-
ur þurftu á að halda á komandi
skólaári, hvort sem það nú voru
skólabækur eöa ritföng. Nú hefur
önnur bóka- og ritfangaverslun tekið
upp þennan skiptimarkað og verður
nú einn slíkur einnig hjá Bókaversl-
un Sigf úsar Eymundssonar.
Að sögn önnu Borg, verslunar-
stjóra í skiptimarkaði Pennans, verð-
ur Penninn með skiptimarkað fyrir
menntaskólabækur og einnig bækur
fyrir níunda bekk í grunnskóla. Hún
sagði að nokkur aukning hefði verið
á bókatitlum í ár og væra þeir nú um
300 fleiri en í fyrra.
„Við tökum eingöngu viö bókum
sem eru vel með famar og þá ein-
göngu bókum sem viö höfum auglýst
eftir,”sagðiAnna.
Sá sem leggur gamla bók inn á
skiptimarkað Pennans fær fyrir
hana 40% af núgildandi búðarverði á
nýrri sams konar bók og getur við-
komandi tekið út á þá upphæð aðrar
bækur eða skólavörur. Er bókin selst
aftur á skiptimarkaðnum þá er verð
hennar 55% af búðarverði. Skipti-
markaður Pennans hófst sl. föstu-
dag.
Hjá Einari Oskarssyni, verslunar-
stjóra hjá Bókaverslun Sigfúsar Ey-
mundssonar, fengum við staðfest að
þar yrði einnig bókamarkaður fyrir
gamlar bækur og hófst hann á mánu-
dag. Er neytendasíðan hafði sam-
band við Einar hafði ekki verið
ákveðið hvaða kjör þeim sem vildu
leggja inn gamlar bækur myndu
bjóðast. Einar sagöi að einungis yrði
tekið við vel með förnum bókum og
þeim sem auglýst hefði verið eftir.
Innstæðuna sem bókareigendur eign-
uðust með því aö leggja bækur inn á
skiptimarkaðinn sagði Einar að væri
hægt að taka út á í öllum deildum
Bókaverslunar Sigfúsar Eymunds-
sonar. þjh