Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1984, Side 16
16
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER1984.
fþróttir
fþróttir
íþróttir
fþróttir
II
Parkes til
Liverpool?
Frá Slgurbimi Aðalsteinssyni, frétta-
manni DV á Englandi.
Liverpool hefur síðustu mánuðl
fylgst mjög vel með Paul Parker, tví-
tugum miðverði Lundúnaliðsins
Fulham, og eru nú taldar miklar líkur
á að Liverpool kaupi pilt. Parker stóð
sig mjög vel í Milk Cup gegn Liverpool
á síðasta leiktímabiU. Bob Paisley,
fyrrum stjóri Liverpool, hefur séð ieiki
Fulham að undanförnu og nú virðist
einhver hreyfing að komast á að Liver-
pool dragi fram tékkheftið.
Ef Liverpool kaupir Parkes hlýtur
ástæðan að vera sú að losa Mark
Lawrenson úr mlðvarðarstöðunni —
láta hann taka við því hlutverki sem
Graeme Souness hafði áður bjá Liver-
pool. Greinilegt er að John Wark er
ekki maður til þess. SA/hsím.
Nielsen
kominn á fulla
ferð með IFK
Gautaborg
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta-
manni DV í Svíþjóð:
Thorbjörn Nielsen, knattspyrnu-
kappinn kunni, er nú byrjaður að skora
mörk fyrir IFK Gautaborg en eins og
menn muna lék hann með V-þýska
liðinu Kaiserslautern án þess að vera
oft á skotskónum. Það er merkilegt
með Nielsen að hann leikur aldrei vel
með sænksa landsliðinu og gerði það
ekki hjá Kaiserslautern en aftur á móti
gerir hann alltaf stóra hluti með
Gautaborgarliðinu.
IFK Gautaborg náði forustunni af
AIK frá Stokkhóimi um sl. helgi þegar
félagið lagði Hammarby að velli 2—0.
Nielsen skoraði annað markið
Gautaborg er með 26 stig, eins og
AIK, en er með betri markatölu. AK
hefur leitt „Allsvenskan” frá upphafi
eða fram að sl. helgi. -GAJ/-SOS
Jafntefli íKöln
Einn leikur var háður í vestur-þýsku
1. deildinni í knattspyrnu í gærkvöld.
Armenia Bielefeld og Köln gerðu jafn-
teflil—líKöln.
NEWCASTLl
MÖGULEIKA
—tapaði sínum fyrsta k
Tveir leikmenn Tottenham i
Nicholas lék samherja sína enda-
laust fría í leiknum í gærkvöldi og var
mjög óeigingjarn í leik sínum. Brian
Talbot skoraði fyrra mark Arsenal úr
aukaspyrnu á 48. mín. og Viv Anderson
hið síðara. Fyrsta mark hans fyrir
Arsenal eöa frá því hann var keyptur
frá Nott. Forest.
Tveir reknir út af
Það urðu heldur betur læti i leik
Sunderland og Tottenham en Totten-
ham hafði þar möguleika að komast í
efsta sætið í 1. deild. Það fór á aðra
lejð. Graham Roberts, landsliðs-
miðvörðurinn sterki, var rekinn af
velli á 44. mín. eftir aö hafa brotið á
Colin West og knötturinn ekki nærri.
Tottenham lék þvi einum færri allan
síðari hálfleikinn. A síðustu mín. leiks-
ins var Clive Allen rekinn af velli eftir
brot á Chris Turner, markverði
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, frétta-
manni DV á Englandi.
Skoski landsiiðsmaðurinn Charlie
Nicholas er nú heldur betur farinn að
sýna sitt rétta andlit með Arsenal.
Hann átti stórleik á Highbury í gær-
kvöld þegar Arsenal sigraði New-
castle, 2—8, á mjög sannfærandi hátt.
Það var fyrsti tapleikur Newcastle í 1.
deild á leiktímabilinu og Jackie Charl-
ton, stjóri Newcastle, var því sannspár
fyrir leikinn þegar hann sagði að það
hlyti að koma að tapi hjá liði sínu.
Þrátt fyrir tapið er Newcastle þó enn í
efsta sæti 1. deildar.
APARNIR FRA WALES
— leika á Laugardalsvellinum 12. september
Það voru Chelsea-leikmennirnir
Joey Jones og Mickey Thomas
sem létu hafa sig að öpum í Daily
Star, fyrir landsleik Wales og ís-
lands í Swansea 1981. Eins og við
sögðum frá í gær hleypti það illu
blóði í leikmenn islenska liðsins
þegar þeir sáu myndir af þessum
tveimur landsliðsmönnum Wales.
— Það var móðgun við ís-
lendinga að leikmenn Wales
skyldu leyfa sér að reyna að gera
lítið úr okkur, sagði Ásgeir Sigur-
vinsson.
Atli Eðvaldsson var mjög
óhress með myndimar og hann
sagði í viðtali við DV eftir leikinn í
Wales: — „Thomas er það ljótur
fyrir að hann hefði ekki þurft að I þeir Joey Jones og Mickey
notagrímu.” Thomas búnir að taka niður grím-
Á myndinni hér á síðunni eru | urnar. -SOS.
LÁRUS EKKIMED
— gegn Wales
Það bendir nú allt til að Lárus
Guðmundsson, sem leikur með Bayer
Uerdingen í V-Þýskalandi, geti ekki
leikið með tslandi gegn Wales. Lárus
hefur átt við meiðsli að stríða í hné og
ekki getað leikið með Uerdingen það
sem af er keppnistímabilinu í V-Þýska-
landi. Hann hefur ekki náð sér f ullkom-
lega eftir meiðslin og því ekki komin
reynsia á að hann geti leikið fullan
kappleik — og það þýðingarmikinn leik
í HM-keppni.
Tony Knapp landsliðsþjálfari f ær því
tækifæri til að bæta baráttumönnum
eins og Þorsteini Þorsteinssyni, Fram,
eða Mark Duffield, KA, inn í landsliðs-
hóp sinn, en þessir þindarlausu leik-
menn myndu sóma sér vel í landsllðs-
hópnum.
-SOS.
| ÚRSLIT
Úrslit í ensku deildarkeppninni í gærkvöldi urðu þessi:
1. DEILD
Arsenal — Newcastle 2-0
Everton — Ipswich 1—1
Luton — Liverpool 1—2
QPR —Stoke frestað
Sheff. Wed. — Southampton 2-1
Sunderland — Tottenham 1—1
West Ham — Coventry 3—1
2. DEILD
Carlisle — Shrewsbury 2-0
Fulham—Birmingham 0-1
Grimsby — Charlton 2-1
Huddersfield — Blackburn 1-1
Notts Co. — Barnsley 0-2
Wolves — Man. City 2-0
LENGI í ELDLÍNUNNI
— margir mjög kunnir leikmenn í liði Wales
Þegar maður lítur á nöfn leikmanna
Wales, sem leika í heimsmeistarakeppn-
inni við ísland á Laugardalsveili 12.
september, virðist sem þar séu margir
„gamlir” leikmenn. Svo er þó ekki. Þeir
hafa aðeins verið lengi í eldlinunni í
ensku knattspyrnunni. Aðeins einn er
þrítugur að aldri. Hlnir yngri.
Sá þrítugi, eöa elsti maður liösins, er
Alan Curtist sem nú leikur með South-
ampton. Lengstum lék hann með Swan-
sea, og þar undir stjóm John Toshack,
jafnt í fjórðu sem fyrstu deild. Hann
hefur einnig leikið með Leeds. Lék sinn
fyrsta landsleik fyrir átta árum og hefur
leikið um 40 landsleiki.
Bakvörðurinn Joey Jones er næstelst-
ur, 29 ára, og lék um tíma með Liverpool
eða um 72 leiki. Lengst af lék hann meö
Wrexham frá Noröur-Wales en er nú
bakvörður hjá Lundúnaliðinu Chelsea.
Robbie James, sem nú leikur meö Stoke,
er 27 ára. Hefur leikið meö Swansea
nær allan sinn leikferil og er fæddur þar í
borg. Fyrir nokkrum áratugum var
Swansea talin mesta „uppeldisstöð”
knattspymumanna á Bretlandi og má
í því sambandi minnast á Allchurch-
bræðurna og Charles-bræðuma, þá John
og Mel. John lék með Leeds áður en hann
fór til Italíu og var talinn besti leik-
maður um árabil í ensku knattspyrn-
unni. Mel lék með Swansea, síðan Arsen-
al, og er faðir Jerome Charles sem leikur
gegn Islandi á miðvikudag. Jerome
leikur nú með QPR eftir að hafa leikið
um langt árabil meö Swansea. Hann er
25 ára. Hann á langt í að ná sama lands-
leikjafjölda og faöir hans og fööurbróðir.
Hefur leikið um 10 landsleiki. Joey Jones
hefur leikið flesta landsleiki þeirra, sem
hingað koma, um 60.
Efnilegir strákar
Auk þeirra leikmanna, sem hér að
framan eru nefndir, er Peter Nicholas,
Crystal Palace, mjög þekktur. Hann
hefur leikið 35 landsleiki og var um tíma
hjá Arsenal. En þaö eru efnilegir strákar
í landsliði Wales, einkum þó Mark
Hughes og Alan Davies sem báðir eru
hjá Man. Utd. Leiknir og spáð miklum
frama. Þá er í liöinu leikmaöur sem lék
um tíma með Man. Utd. — Mickey
Thomas. Hann leikur nú meö Lundúna-
liðinu Chelsea og er kvæntur fyrrum feg-
urðardrottningu Englands. Kannski er
það skýringin á því að hann hefur þvælst
talsvert milli félaga M — I Swansea fyrir
HM-leik Wales og Islands var Thomas
annar þeirra sem var með apagrímuna.
Hinn Chelsea-félagi hans nú, Joey Jones.
Bestu leikmenn Wales-liösins nú eru
hiklaust Everton-leikmennimir Neville
Southall markvörður og Kevin Ratcliffe,
fyrirliði Liverpool-liðsins. Meðal bestu
leikmanna í ensku knattspyrnunni.
Aðeins einn leikmaöur Wales nú leikur
með liði í Wales. Þaö er Neil Vaughan
hjá Cardiff sem leikur í 2. deildinni
ensku.
-hsím.
Robbie James, Stoke, skoraði fyrra
mark Wales gegn tslandi í Swansea,
samanrekinn nagli og sterkur vel. Hitt
mark Wales í Swansea skoraði Alan
Curtis.
Faðir og sonur — Mel Charles, sem lék m.a. með Arsenal, og Jerome sem leikur gegn
tslandi á Laugardalsvelli.
Iþróttir
(þróttir
(þróttir
fþróttir