Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1984, Side 26
26
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER1984.
VIKAN
SKOLA
ER KOMIN A SÖLUSTAÐI
ALLT FYRIR SKÓLAFÓLK Á ÖLLUM ALDRI
Nemendafélög undirbúa mælsku- og rökræðukeppni
1 undirbúningi er fyrsta mælsku-
og rökræðukeppni framhaldsskóla
sem tekur til landsins alls. Allir skól-
ar, sem útskrifa stúdenta, eiga rétt
til þátttöku.
Framkvæmd keppninnar er í hönd-
um nemendafélaga skólanna og
stefnt er aö því aö keppni þessi veröi
árlegur viðburöur.
Helgina 5. til 7. október er ráögerð
ráöstefna þar sem tveir fulltrúar
koma frá hverjum skóla ásamt
framkvæmdanefnd til að reka
endanlegt smiðshögg á undirbúning
keppninnar. Samhliöa veröur haldiö
dómaranámskeið fyrir veröandi
dómaraefni.
JI
lesa fleiri Vikuna
Vona að ég haf i glatt
og hneykslað marga
— segir höfundur sjónvarpsauglýsingarinnar
þar sem fólk er hvatt til að
greiða afnotagjöldin
,,Eg vona bara að ég hafi bæði glatt
og hneykslað marga, meira er ekki
hægt aö biöja um í auglýsingagerð,”
segir Rósa Ingólfsdóttir sem vinnur
hjá sjónvarpinu og hannaði auglýsingu
þá þar sem fólk er hvatt til að greiöa
afnotagjöldin bæði fljótt og vel. I aug-
lýsingunni eru fætur alls konar í aðal-
hlutverkum, fætur herra, sem er að
eru flutt í nýtt húsnæði að Bolholtí 6
Fjölbreytt námskeið hefjast í september.
Sérfræðingar leiðbeina með
snyrtingu • siðvenju
• hárgreiðslu
• fataval
• hreinlæti
• framkomu
og ýmislegt fleira.
• borðsiði
gestaboð
ræðumennsku
göngu
Síðustu
innritunar-
dagar
Fyrir ungar stúlkur, herra og konur á öllum aldri.
Innritun og upplýsingar daglega frá kl. 2-7 Sími68-74-90
Unnur Arngrímsdóttir.
bjóöa stúlku út, fætur pípulagninga-
manns, ellilífeyrisþega, sjómanns og
ræstingarkonu svo eitthvaö sé nefnt og
haft er fyrir satt að f jölmargir af eldri
kynslóðinni neiti alfarið að greiða af-
notagjöldin eftir að hafa séð þessa aug-
lýsingu.
„Ef þessi auglýsing hneykslar ein-
hverja þá hlýtur það að vera fólk af
kynslóðinni sem fæddist á árunum
1910—1918. Á þeim árum var kynlífs-
fræðsla í lakara lagi og fólk fýrir
bragðið óþarflega bælt. Það er einhver
feimni í þessu fólki,” segir Rósa sem
sjálf er af stríösáratímabilinu...
„þegar hræringar urðu í þjóðfélaginu,
landið opnaöist og fordómamir minnk-
uöu”, svo notuð séu hennar eigin orð.
Reyndar er auglýsingin skrýtna að-
eins ein af f jórum og verða hinar þrjár
sýndar ein af annarri þegar fram líða
stundir. „Eg reyni að raða saman
myndmáli og hrynjandi, fletta upp í
sjálfri mér í stað þess að apa upp eftir
öðrum,” segir höfundurinn.
Annars hefur Rósa Ingólfsdóttir ný-
lokið við aö myndskreyta sjónvarps-
þátt um Gunnar á Hliðarenda sem
danska s jónvarpið hefur verið aö vinna
að og svo leikur hún eiginkonu Gvend-
ar í Grillskálanum í nýjustu kvikmynd
Agústs Guðmundssonar, ,,Sandur”.
Um einkalíf sitt vill hún ekkert ræða
frekar en um greiðslurnar sem hún
fékk frá danska sjónvarpinu fyrir að
myndskreyta Gunnar á Hlíðarenda.
„Annað er atvinnuleyndarmál. Hitt
er prívatleyndarmál sem kemur al-
menningi ekkert við,” segir Rósa.
-EIR.
FUILVAXTA:
Nam fyrir ftlk í fullu starfi
SKÓLABÖRN:
Fœdi, kloiði og fleira gott
NÝ SAGA:
Framhaldssogan Áslir Emmu
ATHUGIÐ:
CorkUur eru hemma„nx,mlu,.