Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1984, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1984, Side 3
DV. MIÐVIKUDAGUR 24. OKTOBER1984. 3 Höskuldur Jónsson rádunoytisstjóri. Söluskattsskilum frestad í 5 daga — og lengur verði „ástand ekki komið í eðlilegt horf” „Við höfum ákveðið að eindagi söluskattsskila verði færður frá 25. október fram til 30. október. I dag munum við birta tilkynningar um þaö hvar menn geta fengið söluskatts- skýrslur og gert skil,” segir Höskuld- ur Jónsson, ráðuneytisstjóri í fjár- máiaráðuneytinu. Innheimtumenn söluskatts munu því halda áfram að þukla seðla- búntin lengur en ella í þessum verk- fallsmánuði. Vegna verkfalls opinberra starfsmanna hafa þeim engin eyðublöð borist vegna sölu-' skattsskilanna og eiga því óhægt um vik. Mánaöarleg skil á söluskatti munu nema 500—700 milljónum króna. Það er galli á frestun skiianna að eftir 30. er enn einn dagur eftir af október- mánuði. Dráttarvextir verða þvi reiknaöir á vanskil þann 31. Þó mun frestunin líklega verða lengd „verði ástand ekki komið í eöiilegt horf”, aö sögn Höskuldar Jónssonar. -HERB. ALSAMNINGAR UNDIR- _ r endurskoðun, RITAÐIR 5.N0VEMBER ogdómsátt A samningafundi islensku ál- viðræðunefndarinnar og fulltrúa Alusuisse í London þann 9. október síðastliöinn tókst samkomulag um öll helstu deilumál varðandi álverið í Straumsvík. Samkomulag varð um öll atriði orkusölusamningsins og aðilar eru sammála um að gera dómsátt í þeim þremur deilumálum sem lögð hafa verið fyrir gerðar- dóma. Búist er við að samkomulagið verði undirritað í Zurich 5. nó vember næstkomandi. Samkomuiagið sem gert var i London felur í sér að raforkuverð til álversins verði tengt heimsmarkaðs- verði á áli og getur þá orðið á bilinu 12,5 til 18,5 mill á kílóvattstund. Reiknað er með að meðalorkuverð á næstu árum verði um 15 til 16 mill. Orkuverðið er nú 9,5 mill. Um þetta var þegar samkomulag á fundi sem haldinn var í Amsterdam í september. I London tókst hins vegar samkomuiag um að ákvæði um reglulega endurskoöun verði tek- ið inn í orkusölusamninginn og verö- ur hann hér eftir endurskoðaöur á fimm ára fresti. Þá hefur Alusuisse faliið frá fyrri kröfu sinni um aö kaupskylda þess á raforku verði minnkuð um 30%, þannig að kaup- skyldan á raforku verður eins og í gildandi samningi. Aðilar urðu sammáia um að gera dómsátt í þeim þremur deilumálum sem lögð hafa verið fyrir gerðar- dóma. Hér er um að ræða í fyrsta lagi ágreining um skattgreiðslur Alusuisse og túlkun á ákvæðum samninga varðandi verð á aðföng- um, eða svonefnda „hækkun í hafi”. Borgarsamningarnir felldir: „Held að samningar BSRB fari aldrei langt f rá þeim” — segir Haraldur Hannesson „Eg held að þaö sé biðstaða þangaö til BSRB hefur náð samningum,” sagði Haraldur Hannesson, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborg- FyrirtækiíReykja- vík kaupa DNG Milli 10 og 15 fyrirtæki í Reykjavík ætia aö mynda hlutafélag og kaupa 51% í DNG rafeindafyrirtækinu á Akureyri. Núverandi eigendur munu halda 49%. Það er Félag íslenskra iön- rekenda sem hefur beitt sér fyrir þess- ari lausn. Víglundur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri þess, sagði í sam- tali við DV að gengið yrði frá þessu fljótlega. 1 sumar stóð til aö bjarga DNG með þvi að stofna almenningshlutafélag fyrir norðan um reksturinn. Að sögn Davíðs Gíslasonar, forstjóra DNG, safnaðist ekki nægjanlegt fé. „Það er vilji hjá almenningi en fyrirtækin voru ekki spennt. Það virðast ekki vera til peningar á svæðinu,” sagði hann. Núverandi húsnæði DNG er lítið og óhentugt og til stendur að fyrirtækið verði flutt í skemmu sem verið er aö reisa við Lónsbrú í Glæsibæjarhreppi, gegnt núverandi húsnæði DNG. Viglundur Þorsteinsson sagði að gert væri ráö fyrir að það tæki nokkurn tíma aðbyggja DNG upp. „Innan nokkurra ára gera menn sér vonir um að veltan geti orðið nokkrir tugir milljóna á ári. ” EH/JBH/Akureyri ar, í samtali við DV en borgarstarfis- menn hafa eins og kunnugt er fellt samninga þá sem gerðir höföu verið við Reykjavíkurborg. „Mér sýnist að það sé aðalsjónarmiöið i þessu að okkar fólk hefur taiiö að hægt væri að ná meira út úr þessum samningum. Eg held að samningar BSRB fari aidrei langt frá þeim samningum sem við höföum gert,” bætti Haraldur viö. „Ég tel að samningarnir hafi verið skynsamlegir og viðunandi og borgin hafi teygt sig langt í því skyni að rjúfa þann vítahring sem samningaviðræð- urnar hvarvetna voru komnar í,” sagði Davíð Oddsson borgarstjóri. „Samningamir voru affluttir af for- ystu BSRB. — Sem þó hafði áður mælt með því að þessar viðræður færu í gang. Nú eru liðnir tæpir tíu dagar frá þvíað samningarnirvorugerðir. A þeim tima hefur BSRB tapaö peningum sem kosta þá 3,5 til 4 prósent umfram borgarsamningana sem tekur þá heiltáraðjafna. Mér segir því svo hugur um að þegar upp verði staðiö muni opinberir starfs- menn sitja uppi með verri samninga heldur en þá sem felldir voru hjá borg- inni. Við munum halda að okkur höndum í bili og fylgjast með því sem gerist hjá BSRB og rikinu. Sjá hvort formaður og varaformaður BSRB munu koma út með þau 35 til 40 prósent sem þeir gáfu borgarstarfsmönnum í skyn að þeir gætu náð,” sagði Davíð Oddsson. -SGV. I öðru lagi er deiit um hvort íslenskum stjómvöldum sé kleift að leggja á skatt aftur í tímann þar sem ekki var krafist endurskoðunar innan ákveðins tíma. I þriðja lagi er fyrir gerðardómi ágreiningur um af- skriftareglur á hreinsibúnaði álvers- ins. Alusuisse er reiðubúið að greiða rúmlega eitt hundrað milljónir króna tii aö dómsátt geti tekist í þessum málum, samkvæmt heimildum DV. Þessi upphæö hefur þó ekki verið gef- in upp opinberlega en hugsanlega að hún verði upplýst á Aiþingi síðar í þessari viku er iönaöarráðherra leggur fram skýrslu um þessa samn- ingsgerð. Lögfræðingar beggja aðila eru nú að ganga frá texta að lögformlegum samningum um þessi atriði. Þar sem þeir liggja ekki fyrir hefur hvorki ríkisstjórn Islands né stjórn Alu- suisse formlega samþykkt sam- komulagiö. Ríkisstjórnin er þó sam- þykk samkomulaginu. Þegar samningamir hafa verið undirritaöir í byrjun nóvember eru aöeins tvö óleyst mál eftir. Annars vegar er talið þurfa að breyta reglum um skattgreiðslur Alusuisse og einfalda þær, þannig aö ekki þurfi að koma til ágreinings þeirra vegna síðar. Hins vegar er eftir að semja um stækkun álversins í Straumsvík. Rætt hefur verið um að stækka ál- verið um 50% og er miöaö við að hægt veröi aö taka þann hluta í gagnið á árabilinu 1988 til 1989. Nýr eignaraöili verður væntaniega tekinn inn í þann hluta verk- smiðjunnar og hefur ríkisstjórnin verið með það til athugunar að ger- ast eignaraðili. En þessi mái munu bíðasiðarifunda. -ÓEF. VANTAR ÞIG NOTAÐAN BÍL? HEKLll bílasalurinn er opinn virka daga kl. 9.00—18.00, fimmtudaga kl. 9.00 —22.00, laugardaga kl. 13.00—17.00. Glæsilegt úrval notaðra bíla! KAUPBÆTIR IMýir Goodyear vetrarhjólbarðar fylgja með not- uðu bílunum frá okkur. Sími söludeildar: 11276.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.