Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1984, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1984, Qupperneq 12
12 DV. MIÐVIKUDAGUR 24. OKTOBER1984. Frjálst.óháð dagbJað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖROUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Áuglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR.P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 686611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiðsla, áskriftir.smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI 11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 19. Áskriftarverö á mánuöi 275 kr. Verö í lausasölu 25 kr. Helnarblaö 28 kr. Endalok stjómarstefnunnar Stjórnarstefnan er að hrynja eins og spilaborg. Tölur hafa farið hækkandi með hverjum degi í kjarasamning- um, sem hafa verið gerðir. Nú stefnir að óbreyttu í, að al- mennt verði kauphækkanir næstu fjórtán mánuði vel yfir 20 prósent. Því fylgja gengisfellingar. Því fylgir verð- bólga, líklega 30—40 prósent. Ríkisstjómin hefur byggt stefnu sína á allt öðrum for- sendum. Verðbólgunni hafði verið komið niður úr 130% í 15—20% með kjaraskerðingu. Á þessu átti að byggja. Á miðju sumri ræddu formenn stjórnarflokkanna um endurnýjun stjórnarsáttmálans. Eftir það var enn rætt um að koma verðbólgu næsta árs niður í eins stafs tölu. Gengisfelling skyldi aðeins verða 5 prósent á árinu. Þetta er nú, nokkrum vikum seinna, eins og fornsaga. Verði kjarasamningar eins og stefnir, mun verðbólgan ríða yfir að nýju. Eftir kauphækkanirnar kemur gengis- felling mun meiri en stjórnarstefnan sagði til um. Hallinn á viðskiptum við útlönd mun enn vaxa, svo og erlend skuldasöfnun. Stjómarflokkunum tókst ekki að sannfæra þjóðina um, að þeir gætu haldið á framhaldinu, eftir góðan árangur í baráttu við verðbólguna, en aðeins tímabundinn. Vænta mátti nýrra aðgerða strax síðastliðinn vetur, ætti ríkisstjórnin að halda áfram að höfða til fólks. Þær urðu engar. Vonir voru bundnar við endurskoðun stjórnarsáttmál- ans. Þar var þó ekki tekið á meginvanda efnahagsmála. Lagfæringarnar, sem formennirnir, Steingrímur og Þorsteinn, komu sér saman um, voru góðra gjalda verðar. En mikið skorti á, að þær kæmu ríkisstjóminni úr sjálfheldunni. Enn átti ríkisstjómin leik fyrir aðeins rúmum mánuði. Talsveröur skilningur var í launþegahópnum á nauðsyn þess að fara ekki í gamla farið og gera verðbólgusamn- inga. Margir launþegaforingjar töluðu um, að varðveita þyrfti kaupmátt samninganna frá síðasta vetri — en ganga ekki lengra. Þannig voru víða uppi kröfur um 5—7 prósent kaup- hækkanir og skattalækkanir. Mörg verkalýðsfélög sögðu ekki einu sinni upp kaupliðum kjarasamninga 1. septem- ber. Ríkisstjórnin hefði mörgu bjargað með því að gangast fyrir samningum af þessu tagi. Þá hefði enn verið unnt aö segja, að stjórnarstefnan væri til. Til voru þeir að vísu, sem sögöu, að nú skyldi stjórnar- stefnunni hnekkt. Forysta Alþýðubandalagsins ýtti undir ákafamennina. Ríkisstjórnin tók ekki af skarið og glataði tækifærinu til að standa fyrir samningum, sem hefðu varðveitt kaup- mátt án verðbólgusprengingar. Ríkisstjórnin glataði til- trú meirihlutans, þegar á samningabardagann leið, eins og skoðanakönnun sýnir, sem DV birti í gær. Því hefur stjómarstefnan hrunið, þar sem saman hefur farið harðýðgi einstakra verkalýðsforingja og stjórnar- andstæðinga og lánleysi stjórnarforystunnar. Verst er, að fómir landsmanna síðustu mánuði kunna að hafa verið unnar gjörsamlega fyrir gýg. Við tekur nýtt glæfraskeið eins og fyrrum var. Haukur Helgason. Létt að hirða millj ónir úr léttmjólk Við höfum fengið nýtt mjólkurverð og reyndar nýjar mjólkurumbúðir lika, eöa að minnsta kosti öðruvísi prentaðar. Og í lista yfir mjólkur- efniö, eða innihaldið og næringar- gildið, þar sem sagt er frá víta- mínum og fosfór, segir að nýmjólkin sé nú 3,5% feit, sem er dálítið ein- kennilegt því meðalfita í mjólk frá samlagssvæðinu hér, eða Mjólkurbúi Flóamanna, er leggur til obbann af samsölumjólkinni, var á seinasta ári 3,9% og fyrir norðan og á öðrum stöðum er fituinnihaldið 4% og vel yfir það. I lögum er nýmjólk, eða mjólk á hinn bóginn skilgreind að hún sé það sem kemur úr kúnni og ekkert hefur verö tekiö úr og engu bætt í. Og það hygg ég að sé réttur og almennur skilningur á orðinu mjólk. Er því óljóst með öllu, hvemig farið er að því að fá fituna niður í 3,5% án aöstoðar vatnsveitunnar, nema prentvilla sé á femunum, sem núna eru grænar, svona eins og til aö undirstrika að landbúnaöurinn ekur enn á grænu ljósi, þrátt fyrir allt. JÓNAS GUÐMUNDSSON RITHÖFUNDUR Mjólkurfítan er verðmæt Eins og flestum er kunnugt þá fer verð til bænda á mjólkm.a. eftir fitu- innihaldi mjólkurinnar vegna þess að mjólkurfitan skiptir veruiegu máli fyrir mjólkuriðnaðinn. Hin hnausþykka kostamjólk er þannig verömætari en sullið er vondir mjólkurgripir gefa frá sér. Þess vegna taka mjólkurkaupendur, eða mjólkuriönaðurinn, fituinnihaldið með í reikninginn þegar gert er upp við bændur, en þess utan er mjólkin flokkuð og verðfelling er ekki eins- dæmi, þótt mest af mjólkinni sé fyrsta flokks, eða 98,3% hjá MBF og meöalfita mjólkur jókst um 0.028 og er meðalfitan nú 3.920% sem þó mun undir landsmeðaltali. Þeir sem eitthvað þekkja til mjólkuriðnaðar vita að fituinnihald nýmjólkur skiptir vinnsluna veru- legu máli og erlendis eru neytendur látnir njóta þess arna. Island er þó undantekning að þessu leyti, því að þar er mjólkurfita neyt- endum og verölagningunni óvið- komandi, endá þótt um milljóna verðmæti sé að ræða. Má ætla aö mjólkurstöðvarnar hafi þannig haft af neytendum og yfir- völdum milljóiiatugi á seinasta ári með prettum. Sem dæmi um þetta, þá kostaöi einn lítri af nýmjólk á fyrri hluta þessa árs kr. 22,30 og mjólkin þá talin 3,8% feit. Léttmjólk, sem er aðeins 1,5% feit, kostaði þá það sama, eða kr. 22,30 enda þótt búið sé ^ „Þar að auki eru milljónir hafðar af ríkinu með niðurgreiðslum á smjör sem búið er til úr óborguðum rjóma.” -s Orðum í eyru bar áttumanns vísað til föðurhúsanna Einhver Garðar Sverrisson, sem titlar sig starfsmann þingflokks Bandalags jafnaðarmanna, sendi mér í sumar kaldar kveðjur hér á síðumDV. Þar sem ég var f jarri menningar- straumum síðdegispressunnar drjúgan hluta sumarsins var það fyrir hreina tilviljun að mér var bent á tilskrif herra Garðars Sverris- sonar. Tilefni skrifa hans er grein eftir mig um skipulagsmál verkalýðs- hreyfingarinnar sem birtist hér í DV. I téðri grein benti ég á að frum- varp Vilmundar heitins Gylfasonar, um breytingar á skipulagi verka- lýðshreyfingarinnar, væri dæmi um tilraunir af hálfu misviturra pólitík- usa til að þrengja réttindi og baráttu- stöðu verkalýðshreyfingarinnar. Þetta hefur ugglaúst farið fyrir brjóstið á „bírókratanum” hjá Bandalagi jafnaðarmanna því aö eftir því sem best veröur vitað er umrætt frumvarp einn af hugmynda- fræðilegum hornsteinum þess flokks. Hugmyndafræðilegir hornsteinar þess flokks eru víst ekki margir svo að það er skiljanlegt að „bírókrat- anum” sámi. Hins vegar stend ég að fullu við þessi orð og mun rökstyðja það í þessari grein hvemig umrætt frum- varp er dæmigert í þessa veru, dæmigert stéttasamvinnufrumvarp sem eins hefði getað verið samið í höfuðstöðvum atvinnurekenda í Garðastræti. GUÐMUNDUR J. HALLVARÐSSON VÉLGÆSLUMAÐUR, TRÚNAÐARMAÐUR ÍSTJÓRN DAGSBRÚNAR. Lygar og persónulegar dylgj- ur dæmi um rökleysu „bíró- kratans" Auðvitað fagna ég því ef skrif min hér í DV verða til þess að skapa um- ræðu en sú umræða verður þá að vera fyrir alla muni rökvís og efnis- leg. Gallinn viö grein Garðars er hversu óefnisleg hún er og rís aldrei undir því að vera sannfærandi inn- legg. Til að breiða yfir þekkingar- leysi sitt á viðfangsefninu grípur þessi vesæli „bírókrat” hjá Banda- lagi jafnaðarmanna, herra Garðar Sverrisson, til hinna ómerkilegustu aðferða að hætti koliega sinna, þ.e. lyga og persónulegra áviröinga. I grein sinni finnur herra Garðar minni persónu hinar furðulegustu ávirðingar sem margar hverjar eru allsendis óskyldar því efni sem hann annars þykist vera aö fjalla um í greininni. Fyrir utan skútuútgerö mína, sem virðist vera herra Garð- ari einstaklega hjartfólgin, þá finnur hann það minni persónu helst til for- £ „Allir verkalýðssiimar, sem skílja w nauðsyn þess að verkalýðshreyfingin standi sjálfstæð gagnvart ríkisvaldinu, skilja þetta mætavel þó að þetta rúmist ekki í heila- búi Garðars Sverrissonar.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.