Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1984, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1984, Blaðsíða 16
16 DV. MIÐVIKUDAGUR 24. OKTOBER1984. Spurningin Hefur verkfallið haft áhrif á þitt daglega líf? Anna Steinþórsdóttir nemi: Já, ég hef ekki getaö stundaö mitt sjúkraliðanám vegna verkfalla í skólanum. Einnig finnst mér slæmt að hafa ekki blöðin. Sigurður Sveinsson rafverktaki: Eg hef nú átt við veikindi að stríða þannig að ég hef ekki svo mikið fundið fyrir verkföllunum. Þó er slæmt að hafa ekki útvarp og sjónvarp. Guðríður Guðjónsdóttir afgreiðslu- stúlka: Mér finnst þetta verkfall alveg hundléiðinlegt. Það er ferlegt að hafa ekkert sjónvarp. Sigurður Þormar ökukennari: Verkfalliö hefur haft talsverð áhrif á starf mitt sem ökukennara vegna þess að prófdeildin hefur verið lokuð. Skortur á eðlilegri fjölmiðlun hefur einnig verið bagalegur. Baldur Waage húsvörður: Eg er hús- vörður í Heymleysingjaskólanum og hef því verið í verkfalli. Það er mjög slæmt. Kristín Jónsdóttir húsmóðir: Verk- föllin hafa svo til engin áhrif haft á mig nema í sambandi við barna- heimilin. Það er líka vont að hafa engin dagblöö. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Um Banda- ríkja- flug Flugfarþegi skrlfar: Ég hef búið í Bandarikjunum í nokk- ur ár og fæ annað veifið gesti frá Is- landi. Það eru nokkur atriði sem ferða- fólki og kannski líka þeim sem starfa við ferðaþjónustu kemur vel að vita: Söluskrifstofur á Islandi viröast aldrei hafa upplýsingar um lægstu fargjöld innanlands i Bandarikjunum. Núorðið hefur fólk fargjöld hingað eða til næstu borgar. Hér er heldur ekki til sú smásjoppa í ferðabransan- um sem ekki er tengd við tölvubanka. Á Islandi er ekki einu sinni reynt að hafa þjónustu sem fær nýjar upplýs- ingar einu sinni á sólarhring ef það er of dýrt að endumýja þær stöðugt. Þá er það að fá far frá New Vork. Þaö liggur viö aö þaö þurfi að snúa upp á handlegginn á sumum til aö fá bókað flug út úr borginni sama kvöld og flog- iö er inn. Fólki er ráölagt að fá sér rán- dýra næturgistingu i stað þess að fara áfram á áfangastað. Flugfélög hér t.d. TWA láta líða tvo klukkutíma milli al- þjóölegs flugs og innanlandsflugs enda era tveir timar kappnógur tími. Full- frískt fólk á ekki aö láta telja sér trú mn að þaö þurfi að hvíla sig eftir flug- ið. Það kemst líka að því þegar það þarf að bögglast með farangurinn á hótel og aftur út á flugvöll næsta morg- un í stað þess að bóka farangurinn alla leið á áfangastað. Það er stundum eins og mönnum hætti til að gleyma að það er jafnlangt frá Reykjavík til Miami og frá Miami til Reykjavíkur. „Hann er fátæk- ur, þessi Konráð” H.J. skrifar: Leiðarinn í fyrsta tölublaði Isa- foldar þykir mér frumlegur. Hann býður landsmönnum til mikillar um- ræðuveislu um skilning á orðum í máli okkar, ásamt þeirri þörfu ábendingu að misþyrma ekki merk- ingu þeirra. Sjálfum varð leiðarahöf- undi þaö á að rekja ekki nema hálfa sögu. Hann gerir sögnina að græða að umræðuefni og allt sem græðist og grær telur hann af hinu góöa. Einni orðmynd af hinni góðu sögn gleymdi leiðarahöfundur þó að gera skil í máli sínu, þaö var orðið græðgi. Kristin siðfræði kennir okkur að svo sem vér sáum munum vér uppskera. Ef góðu er sáð grær gott. Ef sáð er illu grær illt. Þaö er sennilega út frá þessari gróðurmynd kristinnar sið- fræði sem okkur er gjarnt að sækja líkingamyndir til gróðursins, til glöggvunar á samskiptum i mannlíf- inu. „Við græðum sárin,” segir leið- arahöfundur. Eg tek undir þann skilning þessara orða að sárin skul- um við græða þangaö til þau era gró- in og líkaminn, sem ber þau, orðinn . heill. En viö skulum ekki græöa sárin í þeirri merkingu að rækta þau, efla ogstækka. „Við græöum llka peninga,” segir leiðarahöfundur. Fyrst og fremst er það sá gróði sem honum þykir mis- skilinn og vanmetinn af óæskilegum öflum í samfélagi okkar. Hann segir orðrétt: ..Andstæðingar þjóðskipu- lagsins hafa gert sér far um að sverta þetta failega orð í merking- unni ábati. Það er liður í atlögu þeirra að borgaralegu samfélagi.” Hvernig leiðarahöfundur fer aö því að fá óæskilega meiningu út úr orð- inu ábati er mér algjörlega hulið. Ef ég skil greinarhöfund rétt þá vill hann aö mönnum græðist peningar en hann vill ekki aö menn græöi meö þeim. Hann vill græða peninga, pen- inganna vegna, en hann vill ekki aö þeir skili ábata. Hann vill sem sagt rækta sárið en ekki græða líkamann. Einn góður vinur minn hefur á langri ævi haft þá íþrótt sér til dægrastyttingar og miðlaö henni til annarra, að draga fram merkingar- myndir hinna ýmsu orða í móður- máli okkar. Sá sem veröur áheyr- andi hans í þessari list, þó ekki sé nema dagstund, gleymir því seint. Eitt af þeim orðum sem hann skýrði fyrir mér á þennan myndræna hátt var orðið „auður”. „Orðið sjálft seg- ir allt um fyrirbærið. Gildi sjóðurinn var til vegna þess að hann skildi eftir sig auðn. Sá sem rakar saman auði skilur eftir sig auðn og verður auðug- ur.” Andstæðan við þann auðuga í mannheimi er sá fátæki. Hvað segir orðiö fátækur okkur? Það segir okk- ur að hann sé sá sem fátt hefur tekið til sín af því sem við metum til auðs og fátt verði af honum tekið af sama tagi. Þeir sem era iðnastir viö að auðgast, fyrirlíta heldur ekki þau verk sem fela það í sér að hirða það smáa. — Margt smátt gerir eitt stórt. — Eigur margra fátækra geta myndað gildan s jóð ef allt er hirt. Auður og fátækt fela náttúrlega i sér fleiri merkingar en þær sem gilda í riki mammons. 1 byggðarlagi hérlendis sat gestur eitt sinn í hópi heimamanna sem sögðu honum stór- ar sögur af auðmanni þess staðar, bæði ríkidæmi hans og framgangs- máta öllum. Þetta var á þeim árum þegar einn maður á hverjum stað átti þar gjaman öll gögn og gæði. Heimamenn vildu nú fá gest sinn til að leggja orð í belg viðvíkjandi þeim umrædda. Þá varð gestinum að orði: „Hann er fátækur, þessi Konráð”. Heimamenn úrðu hissa. Þeir höfðu þó ekki dregið af við að lýsa ríkidæmi þessa auðmanns og vildu fá skýring- ar á svarinu. „Jú, sjáið þið til, hann á ekkert nema peninga”. Óánægja með leyfísveit- ingu til skólaaksturs í Vogum Hlöðver Kristinsson, Vogum, hrlngdi: Eg vil hér koma á framfæri óánægju minni með leyfisveitingu til aksturs skólabama í nýja skólann í Vogum og í aukatima í Keflavík. Ríkið hafði borg- að allt að 85% í þessum akstri en síð- asta skólaár borgaði ríkið 60% þannig að kostnaður við þennan akstur er smám saman að færast yfir á sveitar- félögin. Rútubílstjóri úr Reykjavík bauð í þennan akstur fyrir 12—13 árum síðan og fékk leyfið. Hann haföi þá í hyggju að setjast að i plássinu en það hefur hann ekki enn gert. Sem heimamaöur hef ég í nokkur ár haft bæði áhuga og aöstöðu til aö taka að mér akstur þennan en því hefur ekki veriö neinn gaumur gefinn. I vor sendi ég svo hreppsnefndinni bréf þess efnis aö ég myndi sækja fast á aö taka aö mér þennan akstur og sýndi þeim m.a. bílinn sem ég ætlaði aö nota til þess arna. En niðurstaða hreppsnefndar- innar varð á þá leið að rútubilstjórinn úr Reykjavík fengi leyfi sitt framlengt til áramóta a.m.k. Eg vil benda á þaö að hreppurinn hefur engar tekjur af akstri þessum í formi skatta eða að- stöðugjalda. Það liggur því í augum uppi að það er hagnaður hreppsins að innanbæjarmaöur, sem getur veitt ná- kvæmlega sömu þjónustu, taki að sér aksturinn. DV hafðl samband við Leif tsaksson sveltarstjóra í Vogum: Hann sagði ástæðuna fyrir því að rútubílstjórinn hefði fengið leyfi sitt framlengt vera þá að skólastarf hefði veriö að byr ja og því yrðu breytingar á tilhögun akstursins ekki gerðar fyrr en um áramót. Rétt væri að sveitarfélög- in tækju nú meiri þátt í kostnaði við aksturinn en veriö hefði og því væri ætlunin að bjóöa aksturinn út. Svoköll- uð samgöngunefnd heföi einnig verið starfandi að þeirri hugmy nd að koma á föstum ferðum milli allra sveitarfélag- anna og myndu þær ferðir jafnvel yfir- taka skólaaksturinn. Aðspurður hvers vegna kröfum heimamanns um að taka að sér akstur- inn hefði ekki verið sinnt þegar þaö væri hagkvæmara fyrir hreppinn, svaraði Leifur því til að þar sem hann hefði aðeins verið starfandi sl. tvö ár vissi hann ekki ástæöuna fýrir því. Hins vegar væri sér kunnugt um að hér væri um gamalt mál að ræða sem upp hefði komið öðru hverju en kannski væri ástæðan einfaldlega sú að allir væra mjög ánægðir meö þá þjónustu sem núverandi bQstjóri veitti Hann hefði líka í júní sl. fært fyrirtæki sitt í Voga. En eins og fram hefði komið áður yrði aksturinn boðinn út um ára- mótin þannig að báðir aðilar væru þá á j af nr éttisgrundvelli. Alverksmiðja á Norðurlandi I.A. skrlfar: Vel get ég skiliö ótta fjölmargra Akureyringa við aö fá álverksmiðju í nágrenni sitt. Eiturmóðan bláa sem frá slíkri verksmiðju leggur mun læð- ast með jörðu undan hægum andvara sem oft leggur inn Eyjafjörðinn. Þaö verður þá ekki að sökum að spyrja. Móöa þessi hin eitraða mun fylla allar götur Akureyrar og gera fólki lífið leitt í bænum, valda vanlíðan og heilsu- tjóni. Þeir sem berjast fyrir álverksmiðju á Norðurlandi ættu að leita uppi annan staö, lítt byggðan eða óbyggðan, því að margt er slíkra staða. Eg vil aðeins nefna hér tvo staði sem gætu m.a. kom- ið tilgreina. Hvaö t.d. um Héðinsfjörð? Þar er nú engin byggð en aöstaða til hafnargerö- ar er sögö góö, enda var þama áöur fyrr blómleg veiðistöð og allmikil byggð. Og hvað um stað eins og Flateyjar- dal? öll byggð er þar nú í eyði og hafn- argerð er álitin auðveld. Þama er nær ávallt vindasamt og mengunarhætta því lítil rétt eins og í Straumsvík, þar sem aldrei er logn og mengun um- hverfis því í lágmarki. I Héðinsfirði og á Flateyjardal yrði að vísu að reisa íverahúsnæði fyrir starfsmenn og fjölskyldur þeirra vegna f jarlægðar frá stórum kaupstað, en með þessu móti yrði hinum stóra lognsæla byggðarkjarna, Akureyri, bjargað frá alvarlegri mengun og íbú- um frá heilsutjóni sem af mundi hljót- ast. Er það e.t.v. einskis virði? Kostn- aður við vegagerð til annars hvors þessara staða yrði smámunir einir miöað við allt annað sem slíka stóriöju varðar. Þeir. sem harðast berjast fyrir stað- setningu álverksmiðju í „hlaðvarpa” Akureyrar skyldu athuga vel aöra kosti áöur en flanaö er út í ófæra. Flas er ekki til fagnaðar, því að hér er mikið í húfi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.