Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1984, Blaðsíða 6
6
DV. FÖSTUDAGUR 9. NOVEMBER1984.
t
☆
„LYST"
* DANSMÆRIN
HDNFY
skammtir föstudags- og laugardags-
kvöld. Hljómsveitin Glæsir leikur fyrir
dansi. Opið bæði kvöldin kl. 22.00—
03.00. Aðgangseyrir kr. 190,-. Snyrti-
legur klæðnaður.
VEITINGAHÚSIÐ
GLÆSIBÆR
SÍMI68-62-20.
V
V
V
V
V
V
&
Útlönd
Útlönd
Menaka sakar Rajiv
um hlutdeild
i ofsóknum sikka
Margir sikkar hafa orðið illa úti í óeirðunum á Iudlandi í kjölfar morðsins á
Indiru Gandhi.
Þórir Guðmundsson, Nýju Delhí:
Sikkar, sem í verstu róstunum flúöu
að heiman og leituðu hælis í flótta-
mannabúöum, eru nú byrjaðir að snúa
aftur til heimkynna sinna. Líf hefur
færst í eölilegt horf í Nýju Delhí.
Sífellt berast haröari ásakanir um
meinta hlutdeild Kongressflokksins í
uppþotunum fyrstu þrjá dagana eftir
morðið á Indiru Gandhi. — I viðtali við
DV hélt Menaka Gandhi, ekkja yngri
sonar Indiru, því fram að Rajiv
Gandhi, mágur hennar, hefði sjálfur
fyrirskipaö árásirnar á sikka í Delhi.
Menaka segist hafa séð eigin augum
Rajiv eiga orðaskipti við mann sem
alræmdur er fyrir óþokkaverk. Telur
Menaka aö sá maður hafi skipulagt
óeirðirnar.
Æ fleiri hallast að þeirri skoðun að
óeirðirnar hafi verið skipulagöar af
einhverjum sem aðgang hafi haft aö
opinberum gögnum, svo vel sem
árásarskríllinn var upplýstur um
eignir sikka og hvar sikkar hafi búið
eða verið niðurkomnir eða verið á f erö.
Menaka telur að Rajiv hafi fyrir-
skipað árásimar á sikka til að sýna
leiðtogum Kongress flokksins hver al-
mennur stuðningur við Indiru hefði
verið mikill og því kæmi hann, sonur
hennar, einn til greina sem eftirmaður
hennar.
Smám saman er að koma í ljós að
stuðningur viö Rajiv innan Kongress-
flokksins er ekki eindreginn. Margir
hinna eldri leiðtoga vilja að einhver úr
þeirra rööum taki við stjórn flokksins.
Stuðningsmenn Rajiv mega þó ekki
heyra á slikt minnst.
Umsjón: Guðmundur
Pétursson og
Friðrik Indriðason
Buchtal
úti sem inni
Allar Buchtal-flísarnar eru bæöi eldfastar
og frostheldar. Væri þaö ekki góö lausn aö
flísaleggja t.d. svalagólfiö, veröndina eða
útidyratröppurnar. Buchtal er alls staöar
rótta lausnin. Varanleg lausn. Ekkert viö-
hald.
Eigum nú fyrirliggjandi flestar geröir af
hinum viöurkenndu v-þýsku vegg- og
gólfflísum. Fyrsta flokks vara á viöráöan-
legu veröi. Einnig fyrirliggjandi límin góöu
frá PCI fyrir hvers konar notkun.
Ótrúlega hagstæöir greiösluskilmálar, allt
niöur í 20% útborgun og eftirstöövar til allt
aö sex mánaöa.
OPIÐ:
mánudaga — fimmtudaga kl. 8—18
föstudaga kl. 8—19
laugardaga kl. 9—12.
r i II. BYGGINGAVORUR1
vll L. ! -A C HRINGBRAUT120: Simar: Timburdeild ....28-604 ^ I Byggingavörur 28-600 Máiningarvörur og verkfæri 28-605 I ^ Gólfteppadeild .28-603 Flisar og hreínlætistæki ...28-430 J
Chad:
Þúsundir deyja
í þurrkum
Þúsundir manna hafa dáiö í miklum
þurrkum í Chad að undanförnu og for-
eldrar yfirgefa böm sín í stórum stíl
þar sem þeir eiga ekki mat handa
þeim.
Þetta kom fram á blaöamannafundi
sem forráöamenn Rauða krossins
héldu í Genf í gær en þar sagöi Paul
Dahan, sem nýlega er kominn frá
Chad, aö á milli tvö og fimm þúsund
manns hefðu farist í þurrkunum frá
því í september sl. Þurrkarnir hefðu
haft áhrif á líf um 1,5 milljón manna og
um 20.000 þeirra hefði flúið heimabæi
sína vegna þeirra, í leit aö mat og
vatni.
Rauði krossinn hefur höfðað til 135 al-
þjóðasamtaka sinna um 11 milljón
dollara aðstoö til að fæða fórnarlömbin
í Chad.
Um það bil 80.000 manns eru nú I
búðum í kringum höfuðborgina
N’djamena og Rauði krossinn fæðir
um helming þeirra nú.
Andófsskáldið
Sokolov látið
Andófsskáldið Valentin Sokolov
andaðist I geðspitala í Sovétríkjun-
um aðeins 58 ára að aldri. Alþjóðlegu
mannréttindasamtökin hafa komið
þessari frétt á framfæri.
Sokolov, sem tilnefndur var af
franska rithöfundaklúbbnum fyrr á
þessu ári til bókmenntaverðlauna
Nóbels, mun hafa andast í byrjun
þessa mánaðar. Hann hefur í tólf ár
verið lokaöur inni á Tjernyakhovsk-
geðspítalanum.
Hann var fyrst handtekinn 1947
fyrir „gagnbyitingaráróður” og
dæmdur í 25 ára þrælkunarvinnu.
Var hann látinn laus 1956 en tveim
árum síðar dæmdur í 10 ára
þrælkunarvinnu. Síðan var hann
margsinnis handtekinn og loks
lokaður inni á geðspítala.
Eftir hann liggja yfir 1000 ljóð.