Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1984, Page 8
8
DV. FÖSTUDAGUR 9. NOVEMBER1984.
GARÐBÆINGAR OG NAGRANNAR!
Erum flutt
l
l
í nýja miðbæinn.
Kappkostum að hafa ávallt |
gott efni, erum með I
Dynastyþœttina, allt í VHS j
kerfi. Leigjum einnig út |
tœki. Opið mánudaga— I
föstudaga kl. 17.00 - 22.00, 1
laugardaga og sunnudaga |
kl. 13.00-22.00.
VIDE0KLÚBBUR
GARÐABÆJAR,
Hrísmóum 4.
Hárgreiðslufðlk athugið.
Dr. Peter Gress, hárgreiðslumeistari frá
Hans Schwartzkopt, verður með kennslu í
hárgreiðslutækni og nýjustu greiðslurnar á
Hótel Esju næstkomandi mánudag, 12.
nóvember, þriðjudag, 13. nóvember, og
miðvikudag, 14. nóvember.
Allar nánari upplýsingar hjá Fríðu, sími
33968, Dórótheu, sími 17144, og Gunnu,
sími 41434.
Model óskast. Vinsamlega tilkynnið þátt-
töku sem fyrst.
HÁRGREIÐSLUMEISTARAFÉLAG ÍS-
LANDS.
PÉTUR PÉTURSSON, HEILDVERSLUN.
FLAGGSKIP BBBB FLOTANS H
BDH3B ARGENTA 1201.E.
1984 TIL SÖLU
Ekinn 7 þús. km.
V61120 ha., m/beinni innspýtingu.
Beinskiptur. Vökvastýri.
Aflbremsur. Þaklúga.
Rafeindakveikja.
Centrallæsingar.
Rafdrifnar rúður í framhurðum.
Sólhlífar fyrir afturglugga.
Millipúði í aftursæti.
Höfuðpúðar ð aftursætum.
Litað gler. Snúningshraðamælir.
Plasthlífar í brettum.
Bensínsparamælir.
Bensíneyðsla í blönduðum akstri, fullfermdur, ca 9 lítrar.
Aksturstölva.
Verð í dag
Aukahlutir:
Útvarps- og segulbandssett
Snjódekk
Sumardekk fylgja
Dráttarkúla
Alls
kr. 548.000.00.
kr 30.000.00.
kr. 15.000.00.
kr. 7.000.00.
kr. 600.000.00.
Æskilegt staðgreiðsluverð kr. 500.000.00.
Einnig mð greiða allan bilinn ð 6-18 mðnaða sjskbréfi eða 2-5 ðra fast-
■ eignatryggðu veðskuldabréfi. Skipti ð mun ðdýrari bíl koma til greina.
Upplýsingar í síma 75924.
k BBHEÍB avallt fremstur Jj
Neytendur Neytendur
Mikilvægasta næringarefnið i slátri erjám.
Slátur:
Höfuðlífgjafi
fólksins í landinu
—■ Gunnar Kristinsson matvælaf ræðingur skrifar
Slátur
Nú þegar sláturtíð er lokið og íólk
yfirleitt búið að taka slátur er ekki úr
vegi að fjalla örlitið um þessa sérís-
lensku matvælaframleiðslu sem á sér
stað á f jölmörgum heimilum á þessum
árstima.
Víst er um það að hér áður fyrr, í fá-
breytni matvælategunda þeirra tima
þegar fólk borðaði til þess að lifa í
harðri baráttu við eldgos og aðra
óáran sem ollu ómældum þjáningum
meðal þjóðarinnar, áttu blóðmör og
lifrarpylsa sinn stóra þátt í því að
halda lífinu í fólki.
En hvað olli þvi að þessi matvælateg-
und skipti svo miklu máli fyrir fólk?
Var þaö ekki bara fitan sem gaf margar
hitaeiningar? Þetta fólk þurfti mikla
orku til að geta tekið þátt i hinni erfiðu
lifsbaráttu. En núna, þegar fólk hreyf-
ir sig miklu minna, orsakar þá ekki
neysla á slátrí mikla hitaeininganeyslu
sem síðan veldur offituvandamáli?
Næringargildi sláturs
Ef litið er á niðurstöðu efnamælinga,
sem framkvæmdar voru af nemendum
í matvælafræöi við Háskóla tslands
undir stjóm dr. öldu Möller, matvæla-
fræðings hjá Rannsóknastofnun fisk-
iðnaðarins, sést að dæmiö er ekki
svona einfalt og að hollustugildið er
töluvert í þessum mat.
Efnainnihald í blóðmör og
lifrarpylsu
Slátur
Ef við lítum á þessa töflu og reynum
að gera okkur grein fyrir því hvað
þessar tölur þýða kemur eftirfarandi í
ljós:
Prótín. Bæði blóðmör og lifrarpylsa
eru ágætir prótingjafar og meö mjög
svipaö prótínmagn og t.d. skyr. Prótín
era nauðsynleg fyrir vöxt og viöhald
líkamans og eru sérstaklega nauðsyn-
legfyrirböra.
Fita. Sú fita sem finnst í þessum mat-
vælategundum er dýrafita. Því er
þessi fita mettuð. Mettuð fita er óhag-
stæð hvaö varðar hættu á hjarta- og
æðasjúkdómum. En hefur fólk athugað
hvers konar fita er í pylsum eða bjúg-
um, einum af vinsælustu fæðutegund-
unum, sérstaklega hjá bömum. Sú fita
er mettuö og fituinnihaldiö er mjög
svipað í einni pylsu og töluvert meira í
bjúgum. Auk þess eru pylsur og bjúgu
miklu óhollari. Þaö sem skiptir máli er
þó þaö að fólk getur stjóraaö fitumagn-
inu í bæði lifrarpylsu og blóömör. 1
þeirri uppskrift sem hér var stuðst við
var innihaldið ca 500 gr. af mör í 1 kg
af lif ur í staö 600 gr. sem var gefið upp.
Eg þekki hins vegar til þess að ekki var
notaö nema um 500 gr. af mör í 5 lifrar
(ca 2,5 kg) og 500 gr. mör í 3 lítra
blóös og get ég borið um, að hvort
tveggja var mjög gott og einungis til
hins betra að minnka mörinn.
Kolvetni. Þessi kolvetni sem hér um
ræðir eru úr mjölinu (rúgmjöli og
haframjöli) sem notað er. Þessi kol-
vetni eru góð fyrir meltinguna og
stuðla því að betri meltingarstarfsemi.
Járn í blóðmör og lifrarpylsu
Mikilvægasta næringarefnið í slátri
er jám. Ef miðað er við daglega þörf,
skv. töflu 2 , sést að blóömör gefur ríf-
lega dagsþörf miðað við alla hópana og
lifrarpylsa gefur einnig mjög mikið
magn af járai.
Margir þekkja þau einkenni sem
kennd eru við blóðleysi, þ.e. þreytu og
syfju. Hvað veldur þessum ein-
RÁÐLAGÐUR DAGSKAMMTUR
JAm Img )
Böm (1—3 óra) 15 mg
Böm (4—lOAra) 10 mg
Unglingar (11 —18ára) 18 mg
Karlar (19 Ara og aldri) 10 mg
Konur (18-50 Ara) 18 mg
Konur (51 Ars og eldri) 10 mg
kennum? Jú, blóðleysi, vissulega, en
hvað er átt við með blóðleysi?
Mikilvægasta hlutverk járas i líkam-
anum er að flytja súrefni. Efnið sem
flytur súrefnið heitir hemoglobin og;
inniheldur jám. Súrefniö tengist við
þetta jára og flyst þannig með blóðinu
umlikamann.
Þegar talaö er um aö einstaklingur
sé blóölaus er yfirleitt átt við að ein-
staklingurinn hafi lágt gildi hemoglob-
ins í i líkamanum.
Nægileg jámneysla er mikilvæg
fyrir böm, bamshafandi konur og
konur meö börn á brjósti. Mikilvægt er
meðan á meðgöngutíma stendur, að
konan hugi vel að jámneyslu sinni.
Astæðan er sú að fóstrið safnar jám-
forða sem á að endast því fyrstu 3—4
mánuöina eftir fæðingu.
Lokaorð
Það sem hér hefur komið fram um
blóðmör og lifrarpylsu sýnir að þessar
fæðutegundir eiga að skipa mikilvæg-
an sess í fæðinu. Bæöi í heimahúsum og
sjúkrastofnunum mætti vel hugsa sér
blóðmör og lifrarpylsu sem hluta af
morgunverði. T.d. hafragrautur ásamt
slátursneið, ávaxtasafa eöa appelsínu
og einni brauðsneið. C-vitamínið úr
appelsínunni stuðlar að betri nýtingu
jámsins i líkamanum.
Umsjón:
Arnar Páll Hauksson
og
Jóhanna Ingvadóttir
Soðinn blóðmör Soðin lifrarpylsa
Kolvatnl 18,4 gr. 28,5 gr.
Flta 15,0 gr. 13,0 gr.
Prótain 11,3 gr. 10,1 gr.
Vatn 54,0 gr. 49,0 gr.
Salt 0,3—0,4 gr. 0,3-0,4 gr.
Aska 1gr. 1 gr.
JAm 24,5 mg/100 gr. 9,6 mg/IOOgr.
Hitaeiningar 253,4 kcal. 261,4 kcal.
Efnainnihald í töflunni miðast við 100 gr. af vörunni.