Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1984, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1984, Síða 26
34 DV. FÖSTUDAGUR9. NOVEMBER1984. í gærkvöldi í gærkvöldi Magnús Kristjánsson frá Innra-Leiti lést 1. nóvember sl. Hann fæddist aö Innra-Leiti þann 25. maí 1907. Foreldr- ar hans voru þau Kristján Gunnlaugs- son og Ragnheiður Arnadóttir. Magnús starfaöi lengst af hjá fyrir- tækinu Þóröur Oskarsson hf. Utför Magnúsar verður gerö frá Akranes- kirkjuídag kl. 14.00. Franziska Karólina Sigurjónsdóttir lést í Landakotsspítalanum 6. nóvem- ber. k THBOO SKfLJ<\R MíiltJClft • SKftUFtifc Jón G. Nikulásson læknir lést 1. nóvember sl. Hann var fæddur aö Hrafnabjörgum í Jökulsárhlíö 30. desember 1897. Hann lauk námi í læknisfræði 1929. Framhaldsnám stundaöi hann í Vínarborg árin 1932— 1934. Arið 1936 varöhann viðurkenndur sérfræöingur í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp. Eftir þaö var hann starfandi læknir í Reykjavík þangað til fyrir nokkrum árum er veikindi lömuöu vinnuþrek hans. Eftirlifandi eiginkona Jóns er Helga Gísladóttir Olafsson. Þau eignuöust tvö börn. Ot- för Jóns verður gerö frá Bústaöakirkju ídagkl. 15. Sigurður E. Ásbjörnsson, Víðivöllum 6 Selfossi, er lést 2. nóvember, veröur jarðsunginn frá Selfosskirkju laugar- daginn 10. nóvember kl. 13.30. Ágústa Ingjaldsdóttir frá Auösholti, Njörvasundi 36 Reykjavík, andaðist 7. nóvember. Rósa Guðmundsdóttir, Þinghólsbraut 34 Kópavogi, andaöist á Vífilsstöðum 7. nóvember. Þorsteinn Ölafsson tannlæknir, Laufásvegi 42, varö bráökvaddur að heimili sínu 6. nóvember. Svanhildur Sveinsdóttir, sem andaöist 28. október, veröur jarðsungin frá Víkurkirkju laugardaginn 10. nóvem- ber kl. 14. Athöfnin hefst meö hús- kveðju frá heimili hinnar látnu kl. 13.30. Rúnar Júlíusson tónlistarmaður: Vantar íslenska tón- listarþætti í sjónvarpið Otvarpið hlusta ég alltaf á þegar ég er í bílnum og þá bæöi rás 1 og 2. Þó verð ég aö játa aö ég hlusta meira á rás 2 og er ég nokkuð ánægöur með þá rás en gjaman mætti tónlistin vera fjölbreyttari. Rásin hefur líka ágæta dagskrárgeröarmenn á sínum snærum eins og Svavar Gests og Þor- geir. Fréttum fylgist ég meö bæöi í útvarpi og sjónvarpi. Aöra dag- skrárliði sjónvarpsins horfi ég ekki reglulega á en þegar ég er að spila um helgar læt ég taka upp á mynd- band sjónvarpsefni ef vera skyldi aö eitthvaö áhugavert væri í dag- skránni. Annars finnst mér vera einn stórgalh á sjónvarpsdagskránni og hann er sá að þar eru engir þættir um íslenska dægurtónlist. Hér á ég viö þætti þar sem ungum hljómlistar- mönnum gæfist tækifæri til aö koma fram líkt og þættirnir „Hér er stuö” sem voru á dagskrá fyrir allmörgum árum. Skonrokk sýnir bara erlendu hlið dægurtónlistarinnar. Þaö er nóg gróska í íslenskri dægurtónlist til aö hafa a.m.k. einn þátt í mánuöi með ungum tónlistarmönnum. Valur Jóhannsson prentari lést 3. nóvember sl. Hann fæddist í Reykjavík 11. júní 1918. Foreldrar hans voru þau Guölaug Árnadóttir og Jóhann Hafsteinn Jóhannsson. Ongur hóf Valur nám í prentiðn og varö vélsetj- ari, vann hann við þaö mestan hluta ævi sinnar. Eftirlifandi eiginkona hans er Onnur Jóhannesdóttir og eignuöust þau fjögur börn. Otför Vals veröur gerö frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. JíilduR i dansk for voksne % DANSKA FYRIR HEIMANÁM Nú or tækifæri til aö hressa uppádönskukunnáttuna. Endur- tlutningur á dönskueíninu um Hildi er nú hafinn í sjónvarpi og útvarpi og í tilefni þess minnir Námsgagnastofnun á eftir- farandi hjálpargögn: 1) Námsbókin Hildur „ et kursus í dansk for voksne". Kaflar úr nýjum og gömlum verkum danskra höfunda um Danmörku og dönsk málefni ásamt mörgum Ijós- myndum og teikningum. Málfræöi o.fl.. Kr. 436.0«. 2) Hildur-bándudskrift. I-jölritaö hefti með afriti af hljóð- varpsþáttunum tuttugu. Handhægt hjálparet'ni. Kr. 325.00. 3) Hildur - Hljóövarpsþættir á hljómböndum. Fimm hljóm- snældur með 20 hljóövarpsþáttum. Kr. 840.00. Efniö um HILDI fæst í Skólavöröubúðinni, Laugavegi 166, s. 28088. Sólveig Elísabet Jónsdóttir frá Stóra- Sandfelli, Hátúni 12, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 12. nóvember kl. 10.30. Tilkynningar Námskeið í skyndihjálp Þriðjudaginn 13. nóv. heldur Reykjavíkur- deild RKI námskeið í almennri skyndihjálp í húsnæði sínu að Nóatúni 21. Á námskeiðinu verða kennd meginatriði skyndihjáipar auk blástursaðferðarinnar og lýkur því 21. nóv. með verkefni sem hægt er að fá metið í fjöl- brauta- og iðnskólum. Brautskráning kandídata frá Háskóla íslands Afhending prófskirteina til kandidata fer fram við athöfn í Háskólabíói laugardaginn 10. nóvember 1984 kl. 14. Rektor háskólans, prófessor dr. Guðmundur Magnússon, ávarpar kandídata en síðan afhenda deildarforsetar prófskir- teini. Að lokum syngur Háskólakórinn nokkur lög undir stjórn Áma Harðarsonar. Að þessu sinni verða brautskráðir 85 kandídatar og skiptast þeir þannig: Embættispróf í guðfræði 4, embættispróf í læknisfræði 1, aðstoðarlyfjafræðingspróf 1, BS-próf í hjúkrunarfræði 3, BS-próf í sjúkraþjálf un 1, embættispróf í lögfræði 2, kandidatspróf í íslensku 1, kandídatspróf í sagnfræði 2, kandidatspróf í ensku 1, BA-próf í heimspekideild 11, lokapróf í rafmagnsverkfræði 2, BS-próf í raungreinum 16, kandídatspróf í viðskiptafræðum 29, kandídatspróf í tannlækningum 1, BA-próf í félagsvísindadeild 10. Minningarkort Barna- spítala Hringsins fást á eftirtöldum stöðum: Versl. Geysir hf., Aðalstræti 2. Bókabúö Olivers Steins, Strandgötu 31, Hafnarfirði. Bókaversl. Snæbjarnar, Hafnarstræti 4. Bókabúðin Bók, Miklubraut 68. Bókhlaöan Glæsibæ. Versl. Ellingsen hf., Ananaustum, Grandagarði. Bókaútgáfan Iðunn, Bræðraborgarstíg 16. Kópavogsapótek. Háaleitisapótek. Vesturbæjarapótek. Garðsapótek. Lyfjabúð Breiðholts. Heildversl. Júlíusar Sveinbjörnssonar, Garðastræti 6. Mosfells Apótek. ^ Landspítalinn (hjá forstöðukonu). Geðdeild Bamaspítala Hringsins, Dalbraut 12. Olöf Pétursdóttir, Smáratúni 4, Keflavík. Kirkjuhúsið, Klapparstíg 27. Nýjasta tíska í hárgreiðslu Hér á landi er staddur Peter Gress hár- greiðslumeistari frá Hans Schwartskopf í Þýskalandi á vegum Hárgreiðslumeistara- félags Islands og heildverslunar Péturs Péturssonar. A sunnudagskvöld, 11. nóvem- ber, kynnir doktor Gress nýjustu tísku í hár- greiðslu á Hótel Sögu kl. 20.30. Módel 79 sýnir fatatísku. Kynnir verður Heiðar Jónsson. Dr. Gress verður síðan með kennslu í hárgreiðslu- tækni á Hótel Esju dagana 12., 13., 14. nóvember. Allar nánari upplýsingar gefa Fríða í síma 33968, Dóróthea 17144, Gunna 51434. Dr. Gress aðstoðar einnig við kennslu í Iönskólanum fimmtudaginn 15. nóvember. Basarar 10 sama dag. Hittumst í Domus Medica og fáum okkur kaffi og kökur. Allar upplýsingar veita: Guðrún 36137, Brynhildur 75211, Lára 33803 og Halldóra 23088. Stjórn og basarnefnd. Húnvetningafélagið í Reykjavík Sunnudaginn 11. nóvember nk. kl. 14 efnir félagið til basars og kaffisölu 1 Domus Medica. Félagsmenn eru vinsamlega beðnir að gefa kökur og muni á basarinn. Tekið verður á móti gjöfum í Domus Medica frá kl. Golf Golfskóli Þorvaldar Golfskóli Þorvaldar tekur aftur til starfa nú í byrjun nóvember. Kennsla er bæði fyrir byrj- endur og lengra komna í íþróttinni og öllum opin. Kennslan fer fram innanhúss og verður í iþróttahúsinu Asgarði í Garöabæ. Allar nánari upplýsingar eru gefnar í sima 34390. Siglingar Akraborg: Vetraráætlun Akraborgar hefur tekið gildi. Virka daga fer skipið f jórar ferðir á dag milli Akraness og Reykjavíkur. Á sunnudögum þrjár ferðir. Þá er fyrsta ferðin með skipinu kl. 11.30 frá Akranesi og kl. 13 frá Rvík. Þannig eráætlunin. FráAkranesi FráRvík kl. 8.30 kl. 10.00 kl. 11.30 kl. 13.00 kl. 14.30 kl. 16.00 kl. 17.30 kl. 19.00 Yfir vetrarmánuðina eru engar ferðir eftir kl. 19.00. Bella Þetta er dæmigert. . . einmitt nú þegar stjörnuspáin boöar eitthvað rómantískt, þá er ég að fara í frí með Hjálmari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.