Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1984, Page 28
DV. FÖSTUDAGUR 9. NOVEMBER1984.
DIANA ROSS - SWEPT AWAY:
HRIFIN BURT UR VERULEIKANUM?
Þessi nýja plata bandarísku söng-
konunnar Diönu Ross kemur manni
fyrir sjónir eins og skyrtumar úr
Vinnufatabúðinni: köflótt og klæðileg
en ekki meir. Eg hef ekki tölu á því
hvað Díana Ross hefur sungið inn á
margar plötur, en bara sólóplötumar
eru komnar eitthvað á annan tuginn að
ógleymdum öllum plötunum sem hún
söng með The Supremes. Og við
skulum ekkert draga dul á hæfileika
Diönu Ross þar sem söngurinn er
annars vegar. Fínn söngur er hins
vegar engin trygging fyrir góðri plötu.
Diana Ross hefur einhvern veginn
ekki fundið sér ákjósanlegt rými í
rokkinu. Hún skondrar á milli stefna
og gerir tilraun til þess að taka sér
verkefni fyrir hendur sem margir hafa
reynt en engum tekist: að gera öllum
til hæfis. Samhliöa því sem hún
rembist við að halda í gömlu
aðdáenduma, til dæmis með því aö
lokka til sín Julio Iglesias og raula meö
honum vemmilegan söng, reynir hún
að tolla í tískustraumunum og mér
finnst einhvern veginn það sé næsta
númer við það að sjá ömmur í breik-
dansi. Diana Ross er sumsé dálítið á
skjön við veruleikann að minni hyggju,
í eölinu gamaldags og óspennandi en á
ytra borði ungleg og nýtískuleg. Að
venju eru lögin úr ýmsum áttum og
sumir höfundar þekktir, til dæmis
Lionel Richie, Bob Dylan, Bernard
Edwards og Daryl Hall. Sá síðasttaldi
samdi nýja smáskífulagiö: Swept
Away sem rétt klöngraðist inn á topp
tuttugu vestra. Þá má nefna að fyrsta
lag plötunnar, Missing You eftir Lionel
Richie, er tileinkað minningu Marvin
Gaye.
Útsetningar em allar mjög fínlegar
og fágunin á köflum með þeim
ósköpum að helst minnir á vínarbrauð
með alltof miklum glassúr. Þarna em
auðvitað fagmenn á hverjum takka og
allt gert til að þóknast söngkonunni en
tilfinningin er einhvers staöar bakatil
og kemst því miður ekki til skila.
Köflótt og klæðileg en ekkert meir.
-Gsal.
ROBIN GIBB - SECRET AGENT:
T“ DIANA ROSS i
11PRIVATE LIVES - - PREJUDICE AND PRIDE: ■
LITIÐ HLIÐARSPOR
HVITUR OG
SVARTUR DÚETT
PRIVATE LIVES
Það hefur lítið fariö fyrir Bee Gees
undanfarið. Þaö síðasta sem þeir
bræður Robin, Barry og Maurice Gibb
gerðu saman var tónlist við Staying
Alive sem var framhald Saturday
Night Fever. Sú kvikmynd mistókst,
bæði kvikmyndalega og tónlistarlega
séð. Þeir bræður hafa þó ekki verið að-
gerðalausir. Alltaf eru einhverjar
fréttir að berast af þeim. Robin og
Barry hafa verið duglegir við að koma
öðrum listamönnum á framfæri, hafa
bæði samið lög og stjómað upptökum
fyrir þá. Og svo hafa þeir veriö hver í
sínu homi og unniö að sólóplötum.
Robin Gibb hefur nú sent frá sér
plötu er nefnist Secret Agent. Á undan-
fömum árum hefur Robin Gibb falliö
nokkuð í skugga yngri bróður síns,
Barry, í Bee Gees. Falsetturödd Barry
Gibb hefur veriö þeirra helsta sölu-
vara. En þaö má ekki gleyma því að á
fyrstu árum þeirra bræðra saman var
Robin aðalnúmeriö. Hann söng allar
þessar fallegu ballöður sem geröi þá
fræga. Því hefur honum sjálfsagt þótt
tími kominn tii aö fá að njóta sín aftur.
Ekki er þessi plata hans gerð í neinni
Það hefur færst í aukana í heimi
dægurlaganna að tveir karlmenn taka
sig saman og mynda söngdúett. Þeir
sem fyrst gerðu það virkilega gott var
bandaríski dúettinn Hall & Oates.
Síðan kom breski dúettinn Wham..
Þessir tveir hópar eru nú meðal vin-
sælustu í poppheiminum í dag og fer
svo að segja hvert lag sem kemur með
þeim beint í efstu sæti vinsældalista
um heim allan. Það er því engin furða
,þótt þaö færist í aukana að tveir karl-
menn taki sig saman, semji lög og fari
að syngja þau inn á plötu.
Einn slíkur dúett er Private Lives,
skipaöur þeim John Adams og Morris
Michael. Hafa þeir sent frá sér plötu er
nefnist Prejudice And Pride. Ekki veit
ég mikið um fortíö þeirra félaga.
Breskir eru þeir, annar hvítur, hinn
svartur. Tónlist þeirra er léttrokkuð,
þar sem söngur er í fyrirrúmi, lítiö fer
fyrir hljóöfæraleik, nema í heild sem
N^aplötur
Byrjunin er virkilega góð. Tvö fyrstu
lögin, From A River To A Sea og No
Change You’ll Pay, eru bestu lög
plötunnar. Framhaldið er aftur á móti
ekki eins glæsilegt. Þr jú næstu lög eru
öll frekar slöpp og valda vonbrigöum
eftir góða byrjun.
Aðeins lifnar yfir þeim félögum í
fyrsta lagi á seinni hlið plötunnar,
Break The Chains, en næstu tvö lög eru
lítt spennandi. Síöustu lögin aftur á
móti, Break The Whole Thing Down og
titillagið Prejudice And Pride, ná
aðeins aö lyfta plötunni yfir það meöal-
lag sem hún í heild verður að teljast.
HK.
GYLLENE TIDER - THE HEARTLANP CAFE:
Heppnir að hætta
undirspil, og hljóðfæraleikur sem
slíkur er nokkuð góður.
Prejudice And Pride inniheldur tíu
lög sem öll eru eftir Adams og Michael.
Hljómsveitin Gyllene Tider var fyr-
ir nokkrum árum ein alvinsælasta
unglingahljómsveit Svíþjóðar. Eg segi
var, vegna þess að samkvæmt nýjustu
fréttum hefur hljómsveitin lagt upp
laupana.
Eftir að hafa hlýtt á þessa síöustu
plötu hljómsveitarinnar, The Heart-
land Café, get ég ekki annað en óskast
liösmönnum hennar og aðstandendum
tii hamingju með þaö að hún skuli hafa
hætt. Og það geri ég vegna þess að með
þessari plötu ætlaði hljómsveitin að
reyna að hasla sér vöU á enska mark-
aðnum en hefur nú sparaö sér stórfé og
fyrirhöfn með því að hætta. Það er
nefnilega ekkert aö finna á þessari
plötu sem bendir til þess aö hún hafi átt
nokkurt erindi á enska markaðinn.
öll lög plötunnar eru eftir söngvar-
ann Per Gessle og eiga það sammerkt
ennfremur að vera yfirmáta flatn-
POPP-
SMÆLKI
óvild við bræður sína, því lögin níu á
plötunni eru öll samin af Robin í sam-
vinnu við þá. Og stjóm plötunnar er í jj
höndum Robin og Maurice.
Eg er á því að Robin hafi bestu söng-
rödd þeirra bræðra, og þrátt fyrir að
lögin á plötunni séu engin meistara-
smíð þá gefur hann þeim nokkuð við-
kunnanlegan blæ. Hlustandinn er fljót-
ur að venjast lögunum og í heild er
Secret Agent þægileg hlustun.
Lögin eru mjög áþekk að gæðum.
Eitt lagið, Boys Do Fall In Love, hefur
náð töluverðum vinsældum og svo gæti
velfarið umfleiri.
Ekki veit ég hvort Secret Agent sé
byrjun á sólóferli hjá Robin Gibb, ef
svo er þá má hann vara sig á því að
falla ekki í sömu gryfju og Bee Gess
gera orðið, aö endurtaka sig um of.
Það þarf ekki aö hlusta á marga tóna
af Secret Agent til aö vita hvar tónlist-
in er upprunnin. En þeir bræður hafa
alltaf verið samrýmdir, svo ætla má aö
ný plata með Bee Gees eigi einhvern
daginn eftir aö líta dagsins ljós og
Secret Agent sé eingöngu lítið hliðar-
spor. HK.
eskjuleg og óinteressant að flestu leyti.
Otsetningar eru sömuleiðis flatneskj-
an uppmáluð.
Það er ljóst að með þessari píötu er
verr af staö farið en heima setið fyrir
Gyllene Tider. Per Gessle og félögum
heföi verið nær að halda áfram að
sjarmera sænskar smápíur upp úr
skónum en að ráðast í verkefni sem er
þeimgjörsamlega ofviða.
-SþS-
Sæl nú! Nokkrir molar af
borðum poppstjarnanna . . .
Okkar menn þurfa ekki síður
en aðrir listamenn að liöa
fyrir list sina annað veifið.
Sting í Police var barinn 1
hausinn með kylfu um daginn
við upptökur á kvikmyndinni
The Bird. Sauma þurfti sjö
spor í kollinn á stráknum. . .
Eftirlæti söngvara i stór-
hljómsveitunum þessa
dagana er að spóka sig á
eigin vegum án hljómsveit-
anna. Dennys DeYoung i
Styx tætir upp bandaríska
listann óg gítarleikari Styx er
líka buinn að gefa út sóló-
plötu, Girls With Guns. . .
Stundum er sagt: Það er ein-
manalegt á toppnum og
........
ROBINGIBB
frægöin er ekki tollfrjáls.
Paul McGartney má sig auð-
vitað lítið hræra nema þá
helst í fámenni. Um daginn
skaust hann á Bensanum
sínum eitthvert upp í skoska
hálendið og þurfti meðal
annars á ieið sinni að fá
bensín á drekann. Slöngu-
temjarinn var stúlka og gapti
ógurlega þegar hún sá hver
ökurnaðurinn var og lét dæl-
una ganga meðan hún sjálf
staröi eins og í leiöslu á
Palla. Svo fór stjarnan leiðar
. sinnar, — en ekkí langt.
Bensinn hikstaöi og það kom í
ljós að stulkan hafði dælt
dísilolíu á bíiinn. . . Hver er
þessi stúlka? spurði fólk í for-
undran þegar ’Boy George
mætti með þessa laglegu
hnátu á hljómleika hjá F’rank
Sinatra i Lundúnum um
daginn. Stúlka? Raunar er
þetta piltbarn, Paul Dawson.
sem dáir Gogga voðalega.
„Við erum ekkí elskhugar,
sofum ekki sanian, en erurn
samt injög nánir vinir.". . .
Strákarnir í Duran Duran
hafa slitið samvistum, hver
og einn baukar í sínu horni og
þetta er allt í mesta bróöerni.
John og Andy ý>ru sagðir vera
að taka upp plötu með Robert
Palmer í Bandaríkjunum og
Simon og Nick eru að dunda
við upptökur á fjögurra laga
plötu. Roger var að taka bíl-
'próf. .. Gary Numan er aftur
kominn niður á jörðina og ný
smáskifa heitir: Berserker
iBerserkur) fylgir í kjölfarið
á Appollo 9.. . Nokkrar nýjar
plötur: The Fugitive Kind
meö Swans Wav, The Big
Express meö XTC, Vermin in
Ermine með Marc Almond
og þær allra vinsælustu sjást
svo á útlendu breiðskífu-
lístunum á hinni síðunni. . .
Sæl aðsinni...
-Gsal.