Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1984, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1984, Side 8
8 DV. LAUGARDAGUR17. NOVEMBER1984. Frjáist.óháð dagblað útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjórl: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRDUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 680611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI 11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF„ SÍÐUMÚLA 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 19. Áskriftarverð á mánuöi 275 kr. Verð í lausasölu 25 kr. Helaai blað 28 kr. ~____________ * > Saltverí salt Saltverksmiðjan á Reykjanesi virðist vera ein af draumaverksmiðjunum, sem hafa tilhneigingu til að rísa hér á landi í sameinuðu átaki stjórnmálamanna, sem eru fullir af óskhyggju, og sérfræðinga, sem hafa miklar aukatekjur af ýmissi skýrslugerð á þessu sviði. Orkuverið við Kröflu var hannað og reist í miklum flýti, án þess að gagnrýnin endurskoöun kæmi til mótvægis við takmarkalitla bjartsýni og stórhug þeirra stjórnmála- manna og sérfræðinga, sem komu orkuverinu á laggirn- ar. Enda er Krafla meiriháttar vandamál í þjóðfélaginu. Steinullarverið á Sauöárkróki er önnur verksmiðja, sem er í smíðum og á eftir að verða skattgreiðendum og húsbyggjendum dýrt spaug. Hins vegar hefur saltverið á Reykjanesi, Sjóefnavinnslan hf., nú fengið þá gagnrýnu endurskoðun, sem líklega dugir til að stöðva framkvæmd- ir. Iðntæknistofnun Islands hefur gefið út mikla skýrslu um saltverið. Þar segir, að einfaldast sé „að leggja á hill- una öll áform um uppbyggingu efnavinnslu Sjóefna- vinnslunnar um fyrirsjáanlega framtíð”. I staðinn eigi að reyna að selja orkuna, til dæmis til fiskeldis. Iðntæknistofnunin bendir á, að fyrirhugaðar afurðir verksmiðjunnar séu flestar mjög ódýrar á almennum markaði. Ennfremur geri aðstandendur versins ekki ráð fyrir, að samkeppnisaðilar bregðist á nokkurn hátt við með því að útvega betra eða ódýrara salt en nú. Þá segir, að „torskilið” sé, hvers vegna ríkið hafi ákveðið að fjármagna 8000 tonna tilraunaverksmiðju að miklu leyti með erlendu lánsfé. Menn verði að gera ráð fyrir, að tilraunir geti leitt til neikvæðrar niðurstöðu. Annars þyrfti ekki að vera með neinar tilraunir. Iðntæknistofnunin segist ekki sjá, að stjórn Sjóefna- vinnslunnar hafi notað markaðskannanir til að meta hugsanlega markaöshlutdeild fyrirtækisins. Og „ráðgjaf- ar fyrirtækisins telja furðu oft, að vandalaust sé að ryðja öðrum seljendum út af markaöi”. Áfram segir í skýrslunni: „Þá er heldur ekki gert ráð fyrir, að verðjöfnunarkerfi það, er nú gildir að nokkru leyti á fisksalti, breytist. Telja verður, að þetta viöhorf lýsi þekkingarleysi um eiginleika markaða almennt.” Þetta hlýtur að teljast nokkuð hörð gagnrýni. Iðntæknistofnunin telur næsta ólíklegt, að saltverið nái nokkru sinni áætlaðri markaðshlutdeild og segir: „Ráð- gjafar Sjóefnavinnslunnar reikna með því, að vandalaust sé að selja framleiðsluna. Vandinn virðist að þeirra mati fyrst og fremst vera að framleiða salt. ” Bent er á, að kostnaður við aðkeypta ráðgjöf, hönnun, eftirlit og rannsóknir nemi yfir 20% af stofnkostnaði til- raunaverksmiðjunnar. Þrátt fyrir alla þessa ráðgjafa virðist aldrei hafa verið til umræðu „sú staðreynd, að 40 þúsund tonna verksmiðja sé hæpin fjárhagslega”. Loks segir, að saltverið hafi „aðeins um þriggja mán- aða skeið haft tæknimann í starfi og aldrei kunnáttumenn á sviði iiiarkaðsfærslu”. Og erfitt sé að skilja, hvers vegna ekki sé í stjórninni „nokkur kunnáttumaður um efnaframleiðslu og sölu eða á sviði tilraunarekstrar”. Þessari gagnrýnu skýrslu Iðntæknistofnunar Islands fylgir hressandi gustur. Vonandi verða aðrar, fyrirhugað- ar gæluverksmiðjur ríkisins látnar sæta hliðstæðri, gagn- rýninni endurskoðun, áður en þær leggjast með fullum þunga á hrjáða skattgreiðendur landsins. Jónas Kristjánsson. ►N Hnigmiii, hrirn og fall Hann sat viö gluggann og hafði áhyggjur af framtíðinni. Ekki fram- tíðinni í þeim skilningi, að hann ætti ekki fyrir skuldunum, eða aö konan væri orðin ólétt aftur, eða að olíu- verðhækkun myndi gera honum og þjóðarbúinu lifið leitt. Onei, hann hafði áhyggjur af framtiö alheims- ins, mannkynsins og öllum þessum meiriháttar málum, sem menn hafa áhyggjur af ídag. — Þaö er gömul fallasía, að þróun sé jákvæð. Við tölum um vegferð mannsins, eins og það sé Skólavörðu- stígurinn! Dálítið á fótinn, í áttina að Hallgrími, en ekkert mál fyrir ungt og hraustfólk! Hann horfði um stund af athygli á fjórar konur, sem reyndu að skýla sér undir einni regnhlíf, fyrir utan. — Sjáðu bara allar hugmyndirnar, sem menn gefa sér, þegar Darwin er annars vegar! Fyrst höfum við ap- ana og svo aðskiljanlega hlekki, sem eru að finnast hér og þar um heim- inn. Og s vo stöndum við í ræðustólum á hátíðisdögum og tölum eins og mannskepnan sé kóróna sköpunar- verksins. Og við lítum meir að segja á Islandssöguna sem eins konar kUf- ur. AUtaf upp á við. EUífar framfar- ir. En þetta er auðvitað ekki rétt. AUa vega höfum við ekki neina ástæðu tU þess að taka það sem gef- inn hlut, að við séum betri, eða lengra á veg komin en forfeður okk- ar, hvort sem viö eigum þá við land- námsmennina eöa Neanderthal- manninn. Mér leiðast svona spekúlasjónir. AUa vega leiddist mér að sitja og hlusta á þennan gamla svikahrapp fara með þessa tilgerðarlegu þvælu. En það rigndi úti, og auk þess var ég ekki búinn að gefa upp aUa von um að fá hann tU þess að borga fyrir kaffið. Svo spurði ég hann, hvemig hann Uti á mannkynssöguna. — Eg held, að við myndum skilja mannkynssöguna betur, ef við Utum á hana sem stanslausa afturför! Ég held, að mannkynið sé að vísu að ganga sinn Skólavörðustíg, en þaö er á leiðinni niðreftir, og fer svo Banka- strætið og Aðalstrætið og endar í Morgunblaðshöll. — Eflaust að leita að einhverj- um tU þess aö draga inn á kaffihús og slá um vínarbrauð og kaffi, muldraði ég, en hann kærði sig ekkert um að hlusta á mig. Ólafur B. Guðnason Það rann upp fyrir mér, aö hann átti ekki fyrir kaffinu og að ég yrði að borga! — Sjáðu til, ef þú skoðar sögu mannkynsins, finnurðu þar ekkert annað en sögur af hnignun, falU og hruni. Af hverju stafa aUar svokaU- aðar framfarir í sögu mannkynsins? Þær verða tU vegna styrjalda, óreiðu og samkeppni. Það þarf alltaf að vera hnignun. Ernhver verður aUtaf aötapa. Ég skUdi vel, hvað hann átti við. Ég var búinn aö tapa sálarstríöinu um það, hvor okkar átti að borga kaffið. — Taktu til dæmis gengið! Mér brá óneitanlega. Þessi reyndi kaffisníkir leggur þaö ekki í vana sinn að tala um svo veraldlega hluti sem gengi, raunvexti eða vergar þjóðartekjur. Ég hef aldrei séð þess merki, aö hann skildi upphæðir um- fram þær, sem menn þurfa að reiöa af hendi til þess aö fá kaffibolla á kaffihúsum. — Gengið hefur verið að faUa frá því að krónan varð til. — En krónan er enn til fyrir það, sagði ég og dauðsá eftir því, um leið og ég opnaði munninn. — Já, en hún er ekki svipur hjá sjón. Ég man þegar kaffibolUnn kost- aðiekkinema.... Eg gafst upp, borgaöi kaffið og hljóp út. Varð auövitað holdvotur, meðan ég beið eftir strætó, komst þó um borð og settist þar í tvímenning, og horfði hatursfuUu augnaráöi á aöra farþega til þess að hvetja þá til þess að setjast annars staðar. En það var vonlaus barátta. Inn eftir vagninum kom askvaðandi miðaldra maöur, meö týrólahatt og í skóhlíf- um, og hlammaði sér niður viö hliö mér. Ég leit þegar í stað út um hUð- argluggann og starði sem fastast á umferðina, en hann tók ekkert mark áþví. —Ja, þessir kratar, nú ætla þeir að fara aö feUa formanninn, enn einu sinni. Mér dauðbrá! Ætlaði hann nú að fara að tala um hnignun, hrun, faU ogalltþaö, líka. — Þessu fer öUu aftur, blessaður vertu. Annars er þetta ekkert nýtt. Kratar sameinast aldrei um neitt nema að feUa formenn. Ég hringdi á stopp í dauðans of boöi og ruddist að dyrunum. Þar rakst ég á tvær ungar stúlkur, sem ræddu heimUistækjakaup, og voru hjartan- lega sammála um það, að best væri að kaupa núna, áður en þeir feUa gengið. Ég stóð eftir í rigningunni og horfði á strætó keyra burt. Það var ekkert annað að gera en að leita að leigubíl og merkUegt nokk, renndi einn sUkur fram hjá innan skamms og skartaði merkinu „laus”. Svo ég veifaði í hann og bað hann í guðs nafni að keyra mig heim og vera ekki að hirða of nákvæmlega um hraðatakmark- anir. Síðan haUaði ég mér aftur í sæt- inu og gladdist yfir því að vera kom- inn í örugga höfn. Bílstjórinn ræskti sig. — Hvenær helduröu nú að Þor- steinn fari í ríkisstjómina? Ég svaraði engu, en gaf mig ör- væntingunni á vald. — Annars er ég ekki svo viss um að þaö sé sniðugt af honum aö fara í þessa ríkisstjóm. Hún er búin að vera. Auk þess er ég ekki viss um, að Þorsteinn sé rétti maðurinn í þetta. Ég horfði á hann í sjónvarpinu um daginn, með konunni, og eftir að þátturinn var búinn, vorum við að tala um hann, og þá sagðist konan mín hafa það á tilfinningunni, að hann væri ekki maður í þetta. „Innst inni er hann Þorsteinn yfirborðsleg- ur,” sagði hún. Og hún Gunna mín er mannþekkjari. Ég man það næst, að bUstjórinn studdi mig upp að dyrunum heima.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.