Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Page 2
2
DV. MÁNUDAGUR 26. NOVEMBER1984.
Sigursveit Búnaðarbankans, til hægri, teflir við Útvegsbankann.
Fremstur er Bragi Kristjánsson, siðan skálið og íslandsmeistarinn Hilm-
ar Karlsson, þriðji Guðmundur Halldórsson. Stefán Þormar, fyrirliði og
fyrsti varamaður, var fjarverandi þegar myndin var tekin — kannski að
semja við Skáksambandið um kaup á ólympíuréttinum fyrir íslands
höndl
Flugleiðamótið í skák:
Kaupir Búnaðarbank-
inn ólympíuréttinn?
Hiö árlega Flugleiðamót í skák var mannlegu brosi, ,,því að sú þjóð sem
haldið með pomp og prakt um helg- heldur mótið ræður því sjálf hvenær
ina og tóku 24 þriggja manna sveitir þaöferframumhaustið.”
þátt aö venju — 12 af höfuðborgar- ,,Ef Búnaðarbankinn segöi sig úr
svæðinu og annaö eins úr hinum lögum við Island gæti hann sent sína
dreifðu byggðum. eigin sveit á ólympíumótið og sú
Sveit Búnaöarbankans fór með sveitmyndiskoekkistandasiglakar
sigur af hólmi eins og oft áður, en en margar aörar,” sagöi annar
það sem gerir frammistöðu hennar í áhorfandi og Stefán Þormar, fyrir-
þetta sinn eftirminnilega og allt að liöi, Búnaðarbankasveitarinnar,
því óviðjafnanlega er sú staöreynd tókst á loft er hann heyrði þessa
að tveir öflugustu menn sveitar- skoðun.
innar, þeir Jóhann Hjartarson og „Eg hugsa nú ekki aö viö segjum
Margeir Pétursson, voru víös fjarri okkur úr lögum við landið,” sagði
aö tefla fyrir íslands hönd á ólympíu- Stefán, „en hinsvegar kom sú uppá-
skákmótinu. stunga fram á árshátíðinni hjá okkur
Það var því hálfgerð varasveit í gærkvöldi, að bankinn keypti rétt-
sem mætti nú til leiks en þeir Bragi inn til ólympíuþátttöku af Skáksam-
Kristjánsson, Hilmar Karlsson, Guð- bandinu fyrir 25 milljónir króna og
mundur Halldórsson og Stefán þaðmálerískoðun!”
Þormar sýndu og sönnuðu að maður
kemur í manns stað — þeir fengu 54 Vígdrekar að norðan
vinninga af 69 mögulegum og urðu Vígdrekar Skákfélags Akureyrar
langefstir. vöktu sérstaka athygli á mótinu aö
þessu sinni. Þeir hafa jafnan haft
Væringjar fjarri nokkuð sterka sveit en þó ekki svo að
góðu gamni orö færi af fyrr en núna. Þeir náðu 2.
En þaö voru fleiri sveitir sem áttu s®ú meö 48 vinninga. Gylfi Þórhalls-
um sárt að binda vegna ólympíu- son teflir á 1. boröi fyrir hinn norð-
mótsins. DV varð að sjá af stafnbúá lenska höfuðstað, þéttur maöur á
sínum, honum Jóni L. Arnasyni, en velli °S þéttur í lund, en sveinarnir
vegnaði engu að síður allvel og náði Pálmi Pétursson og Jón Garðar
7. sæti með 43,5 vinninga. Karl Þor- Viðarsson eru harla mannvænlegir
steins hefði teflt fyrir gestgjafana, °8 veröa engin lömb að leika sér við
Flugleiðir, en þeir létu samt vel yfir ef svo fer sem horfir.
sérognáðu6.sætimeð45 vinninga. Köð sveitanna var þessi: 1.
Helgi Olafsson hefur oft getiö sér Búnaðarbanki 54 v., 2. Skákfélag
góðan orðstír á Flugleiðamótum en Akureyrar 48 v., 3. Einar Guðfinns-
hann er nú farinn aö vinna fyrir NT son 47,5 v., 4. Járnblendið 45,5 v., 5.
og hefði því tæplega átt kost á að Verkamannabústaðir 45 v., 6. Flug-
vera meö nú, því að þar á bæ kann leiðir 45 v., 7. DV 43,5 v., 8. Útvegs-
víst enginn mannganginn nema hann banki 43,5 v., 9. Lögmenn Ránargötu'
og Magnús ritstjóri. 13 (ný sveit með Ásgeir Þ. Árnason í
Oneitanlega fannst manni mótið fylkingarbrjósti) 43 v., 10. Ríkis-
setja dálítið ofan vegna fjarveru spítalar 42 v., 11. Taflfélag Garða-
hinna ungu væringja sem nú eru að hæjar 41,5 v., 12. Landsbankinn 40,5
herja suður á Grikklandi, því að þeir v„ 13. Jón Friðgeir Einarsson
bera með sér einskonar alþjóðlegan (Bolungarvík) 38 v., 14. Fjölbrauta-
anda og höföingjabrag sem aörir skóliSuði.rnesja34,5v., 15. Taflfélag
keppendur kunna velaðmeta. Norðfjarðar 33 v., 16. Taflfélag ísa-
fjarðar 31 v., 17. Veðurstofan 30,5 v.,
Kaupir bankinn lg skákklúbbur KEA (ný sveit) 28,5
ólympíuréttinn? v., 19. Sölumiðstöð hraðfrystihús-
„Erekki hægtaöláta hann Jóhann anna 24,5 v., 20. Taflféiag Sauðár-
Þóri tala við þennan Campomanes króks 22,5 v., 21. Póstur og sími 17 v.,
og sjá til þess að þetta ólympíumót 22. ÍSAL 16 v., 23. Taflfélag Vest-
sé ekki að þvælast fyrir Flugleiða- mannaeyja 10 v., 24. Trausti, félag
mótinu?” sagöi einn gamall garpur sendibílstjóra 3,5 v.
og glotti viö tönn, en Jóhann Þórir, Hálfdán Hermannsson stjórnaði
guðfaðir islenskrar skáklistar, stóð mótinu eins og herforingi en Jóhann
nærri og heyrði hvaö sagt var. Þórir dæmdi — sem sagt, allt með
„Það er nú því miður ekki hægt, gamla góða laginu og hittumst heilir
strákar mínir,” sagöi hann meö góð- aðári. Baldur Hermannsson.
Vigdrekar Norðurlands leggja til orrustu. Frá hægri: Gylfi Þórhallsson,
Pálmi Pétursson, Jón Garðar Viðarsson. Yfir þeim stendur Jakob Krist-
insson og virðist hugsa með sér: „Afhverju fæ ég aldrei að tefía?"
Malcolm Spaven um ratsjárstöðvarnar:
Einkum fyrir
hernaðarflug
— stöðvarnar að mestu sjálfvirkar
Fyrirhugaðar ratsjárstöðvar eru
einhlítar hernaðarratsjár og hluti af
vamarkerfi Bandaríkjamanna í
Norður-Atlantshafi. Sams konar rat-
sjár eru einnig í Norður-Noregi og á
Grænlandi. Þetta kom fram í erindi
sem Malcolm Spaven, sérfræöingur í
vígbúnaðarmálum, hélt á landsfundi
herstöðvaandstæðinga í gær. Þá kom
einnig fram að liklegt væri að sú rat-
sjárstöö sem yrði fyrir valinu væri
fyrst og fremst hugsuð fyrir
hernaðarflug og gæti ekki þjónað
skipum. Hún væri einnig mjög tak-
mörkuð hvaða áætlunarflug snerti.
Samkvæmt því virðast fullyrðingar
um not landsmanna af þessum stöðv-
um vera orðum auknar.
Spaven sagði einnig að þessar
stöövar væru að mestu sjálfvirkar og
væri einungis þörf á þremur
viðgerðarmönnum til að annast þær.
Og þessir menn þyrftu ekki einu
sinni að vera á staðnum óslitið. Þetta
stingur í stúf viö þær fullyrðingar að
þessar stöövar verði til að auka at-
vinnutækifæri. Einnig vitnaði
Spaven í Westly McDonald, einn yfir-
mann heraflans í Norðurhöfum, og
sagði að hann hefði látið þau orð falla
á Bandaríkjaþingi að stöövar þessar
gegndu gríðarlega miklu hlutverki í
hemaöaraðferðum Bandaríkjanna.
„Þessar upplýsingarsanna að með
þessum stöðvum eru Bandarikja-
menn aö efla vígbúnaöarmátt sinn
hér á landi,” sagði Ámi Hjartarson,
formaður herstöðvaandstæðinga, í
viðtaliviðDVígær.
„Aldrei aftur Hiroshima"
Ámi sagði að á næsta ári væru liðin
40 ár frá því að Bandaríkjamenn
vörpuðu kjamorkusprengjunum á
Hiroshima og Nagasaki. Næsta ár
yrði tileinkaö þessum atburðum og
kjörorðið væri „Aldrei aftur
Hiroshima”. Einnig yrði á næsta ári
lögö aukin áhersla á baráttuna fyrir
kjamorkulausum svæðum á íslandi.
Nú væru þessi mál í brennidepli á
hinum Norðurlöndunum og aukinn
skilningur þar að Island ætti að vera
meö í þessum áætlunum.
APH
Geir smakkar
á svissneska
konfektinu
„Þetta er ekkert venjulegt konfekt,”
sagði Geir Gunnarsson alþingismaður
er hann bragöaði á handunnu svissn-
esku konfekti sem honum var fært sér-
staklega. I eldhúsdagsumræöum á Al-
þingi gerði þingmaöurinn aö umræðu-
efni vikulegan innflutning á svissnesku
konfekti sem ný verslun við Laugaveg-
inn selur.
„Eg nefndi þessa nýjustu ráðstöfun
ríkisstjórnarinnar á gjaldeyri, sem
sjómenn hætta lífi sínu til aö afla, á
meöan hluti af fiskiflotanum er boðinn
upp. Þá segir ríkisstjómin: Má ekki
bjóða ykkur handunnið svissneskt
konfekt,” sagði Geir Gunnarsson. En
það er einmitt það sem Ragnar Peter-
sen hjá versluninni Sviss gerði, færöi
þingmanninum nokkra mola af viku-
legum skammti.
-ÞG/DV-mynd KAE.
„Stefni að þvíað
opna i söngleik”
— segir Janis „Grizabella” Carol
„Hlutverk Grizabellu hefur breytt
ýmsu fyrir mig, en maður veit aldrei í
þessum bransa hvað bíður handan við
horniö,” sagði Janis Carol, söngkonan
íslenska, sem hér er stödd í stuttu fríi.
Hún og maður hennar, Ingvar Árelíus-
son, komu á föstudag og fara aftur á
miðvikudag til London. Þau fluttu frá
íslandi ’76, fóm fyrst til Svíþjóðar en
hafa búið í Englandi síðustu fimm ár-
in. Janis hefur skapað sér sterkt nafn í
hinum harða söngleikjabransa
Lundúnaborgar.
Fyrir átta mánuöum tók hún við
aðalhlutverkinu í vinsælasta söng-
leiknum sem nú er sýndur í London,
Cats eftir Andrew Loyd Webber.
„Mitt stóra tækifæri var í raun í
fyrra, þegar mér bauðst meö engum
fyrirvara, tveimur klukkustundum eöa
svo, að taka aö mér aðalsönghlutverk-
ið í Song and dance. Þá vom báðar
veikar, aðalsöngkonan og staðgengill-
inn og ég tók boöinu. Þetta var í
nóvember í fyrra og eftir fyrsta kvöld-
ið fékk ég samning.” 1 Songanddance
söng Janis þar til henni bauðst hlut-
verk Grizabellu í Cats. Og það hefur
hún sungið í átta mánuði, átta sýning-
ar á viku hverri, „sem er strangt”,
sagði hún, því væri gott að koma hing-
að í nokkurra daga frí. Að undanfömu
hef ur Janis komið mikiö fram í útvarpi
og á næstunni kemur hún fram í sex út-
varpsþáttum. Síðar í vetur bíður sjón-
varpsþáttur sem hún vildi ekki segja
nánar um. Fyrir tveimur mánuðum
kom út hljómplata með Janis Carol,
lög eftir Mike Reed, kynning á nýjum
söngleik sem heitir Six for gold.
Ingvar og Janis eiga tvær dætur,
„hund og kött og bamapíu”, eins og
hún komst að orði. Þau hafa keypt sér
hús í Bames, opnað nýtt 24 rása studio
í London og eru ekkert á leiðinni heim.
„Það sem maöur stefnir að er að
„opna í söngleik” í London,” sagði
Janis Carol, „ekki taka við hlutverki af
öðrum.”
-ÞG
Janis Carol fer til London á miðviku-
dag sem er afmælisdaguriun hennar
og í veislu í Hyppodrome þar sem
glæsileg íslandskynning fer fram.
DV-mynd KAE.