Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Side 6
DV. MÁNUDAGUR 26. NOVEMBER1984.
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Jólamatarpakkar:
HANGIKJÖTK)
VINSÆLAST
Er blaðamaöur og ljósmyndari DV
brugðu sér inn i Kjötbúr Péturs,
I^augavegi 2, árla morguns í síöustu
viku, var allt fullt af jólamatarpökkum
á gólfinu, tilbúnum á póstinn áleiðis til
neytenda víða um heim.
Pétur Pétursson, eigandi verslunar-
innar, sagöi að fólk heföi byrjað að
panta jólamatarpakka fyrir um
hálfum mánuði fyrir ættingja og vini
víða um heim og einnig væri mikið um
aö pantanir bærust utan úr heimi frá
útlendingum sem liefðu heimsótt
Island og þótt maturinn hér á landi
lostæti.
„Pakkarnir fara út um allan heim.
Við höfum sent til dæmis pakka til
Ástralíu, Thailands, Japans, Jórdaníu,
Israels en flestir pakkarnir fara til
Norðurlandanna og til Ameríku. Það
er misjafnt hvað fólk pantar en þegar
Islendingar eru að panta þá er hangi-
kjötið aðalnúmerið og einnig er harð-
fiskur, hákarl og reyktur lax vinsælt.
Einnig er nokkuð gert að því að panta
niðursoðin svið, rækjur og reykta
síld.”
„Utlendingar panta mikið London
lamb og reyktan íslenskan lax og fer
nú vaxandi að útlendingar panti hangi-
kjötiö okkar. Erlendir ferðamenn
koma margir viö í búðinni hjá okkur
vegna þess hve hún er miðsvæöis og
einnig erum viö með mikið af sér-
íslenskum mat. Viö höfum einnig veriö
með auglýsingar í þýskum blöðum og
panta Þjóðverjar töluvert frá okkur.
Auglýsingar eru einnig í „Iceland
Review” og í blöðum þeim sem gefin
eru út af flugfélögum.”
Kjötverslunin að Laugavegi 2 er búin
að starfa í um 80 ár og gekk hún áður
undir nafninu „Kjötverslun Tómasar”
en Pétur tók við versluninni í febrúar
sl. og breyttist þá nafnið í „Kjötbúr
Péturs”.
„Misjafnt er hvað fólk vill láta í
pakkana og best er fyrir það að koma
sjálft til okkar og velja það sem því
hentar með okkar leiðbeiningum.”
Pétur sagði að síöasti sjens til að
senda jólapakka til ættingja erlendis
væri 10. desember en það eru reglur
póstsins hér á landi svo að fólk geti
veriö öruggt um aö pakkarnir komist í
réttar hendur fyrir jólahátíðina.
Sendingin tekur viku til 10 daga eftir
því hvert pakkinn á að fara.
Jólapakkinn á meöfylgjandi mynd er
mjög stór miðað við það sem almennt
gerist. Þessi pakki mun kosta um 2.300
krónur út úr búöinni og síðan leggst
sendingarkostnaður ofan á það verö,
Pétur Pétursson kjötiðnaðarmaður með 2.300 króna jólamatarpakka.
DV-mynd KAE.
sem er 1.000 krónur til Ameríku, 490
krónur til Danmerkur og 710 til ítalíu
svodæmiséutekin.
Innihald pakkans er: tvö hangi-
læri, 1/2 laxaflak, einn pakki salt-
fiskur, fimm pakkar harðfiskur, tvær
dósir niðursoðin svið, tvær dósir
gaffalbitar, eitt London lamb og fimm
pakkar reykt síld.
-JI.
Jólaflug:
Þegar námsmennimir koma
heim með skítuga sokka
Það er oft mikið að gera hjá flug-
félögunum um jólin. Það er þá sem
fólki dettur gjarnan í hug að heim-
sækja hvert annað og fjiilskyldur
sameinast í eina heild á ákveðnum
stað. Dreifbýlisfólk sem ekki hefur
fest rætur í stórborginni fer á heima-
slóðir, námsmenn erlendis koma
heim með skituga sokka og annað til
mömmu og svo er'orðið algengt að
mamma og pabbi fari hreinlega út til
að heimsækja stúdeutinn sinn.
Þarf að panta
sem allra fyrst
Hjá Flugleiðum er boðið upp á sér-
stök jólafargjöld sem cinungis gilda í
desember. Þessi fargjöld var byrjað
aö selja fyrir einum mánuði. Þau
gilda i einn mánuð og þegar bókað er
verður að borga um leið. En miöana
þarf ekki að panta með fyrirvara og
ekki er um neina lágmarksdvöl að
ræða.
Verð:
Kaupmannahöfn 10.583
Gautaborg 10.683
Lúxemborg 9.567
Osló 9.858
Stokkhólmur 12.325
Ofangreint verð á við ferðir fram
og til baka og sama verð hvort sem
fariö er frá eða til þessara staöa um
jólin. Fólk utan af landi sem fer i
þessar ferðir f ær 35 prósent afslátt af
innanlandsflugi til og frá Reykjavik.
„Þessar feröir eru mikiö notaöar af
námsmönnum erlendis og einnig er
orðið algengt að foreldrar fari út og
heimsæki börnin sin,” segir
Sæmundur Guðvinsson, blaðafulltrúi
hjá Flugleiðum.
Hann sagði að einnig væri mikið
álag á innanlandsflugi og ástæða til
að hvetja fólk til að panta far sem
allra fyrst. I innanlandsfluginu er
ekki um nein jólafargjöld að ræöa en
ýmiss konar afsláttarfargjöld eru í
boði sem vert er að kynna sér.
Arnarflug á 11 staði
„Þaö kemur oft fyrir að fólk lendir
í vandræðum með pakkasendingar
út á land. Við höfum ekki sett upp
neinn skilafrest en það má helst ekki
dragast eftir 16. desember,” segir
Magnús Oddsson, markaösstjóri hjá
Amarflugi.
Arnarflug flýgur til 11 staöa innan-
lands og sagði Magnús að mikilvægt
væri aö fólk pantaöi sem fyrst því þá
væru meiri möguleikar á aö bæta við
aukaflugi ef þess þyrfti.
Hvaö snertir utanlandsflug hjá
Amarflugi snýst það nær einungis
um flug til Kanarí og er löngu upp-
selt í það. Hins vegar er boðið upp á
námsmannaferðir frá Amsterdam
og kosta þær um 9000 krónur.
! APH
Innlendurog
erlendur
jólapóstur
Björn Björnsson póstmeistari sagöi
að þó nokkuð hefði borist af jólaböggl-
um nú þegar og væri þá aöallega um aö
ræða jólapakka frá þeim verslunum
sem sæju um aö ganga frá jóla-
matarpökkum og gjöfum til fólks
erlendis.
Björn sagði aö ef fólk vildi vera
ömggt meö aö pakkarnir bærust fyrir
jól til viötakenda erlendis væri best að
þeir bæmst póstinum fyrir 10.
desember.
Hægt væri þó að taka viö pósti fram
til 16. desember til Norðurlandanna,
annarra Evrópulanda og jafnvel til
austurstrandar Bandaríkjanna. Jóla-
póstur hér innanlands þarf að berast
fyrir 17. desember. Ef senda þarf til
fjarlægari staða er æskilegt að póstur
berist fyrirlO. des.
Bjöm sagði að gefa ætti út bækling
um skiladaga pósts fyrir jólin og
verður honum væntanlega dreift um
mánaðamótin.
Jólapakkavertíð Rammagerðarinnar í fullum gangi
við að pakka inn vörum fyrir ferða-
menn sem komu í sumar og hafa
pantað meira til jólanna. Nú er yfir-
leitt of seint aö senda með skipum fyrir
jól. Hægt er þó að senda pakkana með
flugi fram til 10. desember svo að
öruggt sé aö pakkarnir komist til skila.
Við hjá Rammagerðinni límum sér-
staka miða á pakkana til að auðkenna
að um gjöf sé að ræða en komið hefur
fyrir nokkrum sinnum að gjafirnar
fari í toll og er þá lítið hægt að gera
annað en að borga og brosa.
Við sendum um allan heim,” sagði
Gunnar. „Pakkarnir fara flestir til
Skandinavíu, allrar Vestur-Evrópu og
til Bandaríkjanna. Síðan höfum viö
sent til Japans, Kína, Suður-Afríku,
arabalandanna, Israels og Júgóslavíu,
svo dæmi séu tekin. Þaö kemst allt til
skila nema kannski lítið prósentubrot.
Allar sendingamar eru fulltryggðar og
ef kemur í ljós að þakki hefur ekki
komist á ákvörðunarstað höfum við
pappírana og getum rakið ferðir
pakkans og komist aö því hvar hann
stoppaöi eða týndist. Ef svo vill til
sendum við sömu vörur á sama staö
eöa sendandi gerir það sjálfur — en
hver sá sem verður fyrir slíku fær það
fullbætt, en þetta er mjög sjaldgæft.”
Vöruval er mikið í Rammagerðinni.
Gunnar sagöi að ekki væri hægt aö
benda á einhverja eina vörutegund
sem væri vinsælust en hann taldi upp
vörur sem fólk keypti mikiö og eru hér
Rammagerðin er alltaf vinsæl meðal
erlendra ferðamanna hér á landi, svo
og meöal Islendinga sem viija senda
vinum og kunningjum erlendis sérís-
lenskar gjafir. Jólavertíð Ramma-
gerðarinnar er nú þegar hafin og eru
heilu staflarnir af pökkum sem senda
þarf víða um heim.
Gunnar Hauksson aöstoðar-
verslunarstjóri sagöi aö fimm til sex
póstpokar færu í póst á hverjum degi
frá Rammagerðinni og væri nóg að
gera við að pakka inn. Til dæmis fara
allir pakkar sem berast fyrir hádegi
hvern dag í póst þann sama dag,
annars fara þeir daginn eftir ef verslað
ereftirhádegi.
„Það er alls konar fólk sem verslar
hér: ferðamenn kaupa mikiö og panta
héðan jafnvel, Bandaríkjamenn
búsettir á Keflavíkurflugvelli koma
mikið og útlendingar búsettir hér á
landi kaupa og senda vinum og kunn-
ingjum erlendis. Frá því í júní erum
Fimm til sex jólapóstpokar staflast upp á degi hverjum i Rammagerðinni.
Pakkarnir eru tH fólks viða um heim og sér Rammagerðin um innpökkun
og sendingu og hefur gert svo i ein 30 ár.
Vinsælar gjafa vörur Rammagerðarinnar.
DV-mynd KAE.
á meðfylgjandi mynd. Allt eru þetta
nytsamir hlutir og geta notast í nokkur
ár.
Sem dæmi um verðlag á þessum
vörum kosta hvítu gæruskinnin 595
krónur, ullarteppin kosta frá 595—1280
krónur, keramikvasinn kostar 315
krónur, treflar kosta frá 175 til 265
krónur, húfurnar 198 krónur, ljóskerið
kostar 775 krónur, gærugestabækumar
530 krónur, bolirnir f rá 195 krónum upp
í 490 krónur og jólasveinninn 1180
krónur. Gunnar sagði að gærskinns-
skórnir væru mjög vinsælir handa
vinum erlendis. Þeir eru framleiddir
hjá Sláturféiagi Suðurlands og kosta
frá 510 til 743 krónur. Sjávarréttabakk-
inn, sem sýndur er á myndinni, kostar
380 krónur, en til er minni kassi á 280.
Innihald bakkans á myndinni er rækja,
kavíar, þorsklifrarkæfa, murta, hrogn
og sardínur og sagði Gunnar að þetta
væri mjög vinsælt til sendinga.
JI.