Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Síða 8
DV. MÁNUDAGUR 26. NOVEMBER1984. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Finnar í olíuvinnslu með Sovétmönnum Sovétmenn hafa boðið Finnum að taka þátt í að nýta olíu og gas við Sakhalineyju nálægt iandamærum Sovétrikjanna og Japan. Að sögn Pauli Jumppanen, hins finnska formanns heimskautaáætlunar Sovétmanna og Finna, munu Finnar taka þátt í öllum þáttum olíu- og gasvinnslunnar. Finnar eru leiðandi i framleiðslu á útbúnaði til notkunar á kuldasvæðum og þeir eru nú aö byggja tvo kjarnorkuknúna ísbrjóta í samvinnu við Sovétmenn. Skæruliðar: Eþíopíu- stjórn notar hungrið sem vopn Skæruliöar sem berjast fyrir aöskilnaði Tígere héraðsins frá Eþíópíu sögðu um helgina að Eþíópíustjórn væri að nota sér hungursneyðina sem þar ríkir í baráttunni gegn skæruliðum. Eþíópíustjórn tilkynnti í síðustu viku að hún ætlaði að færa 2,5 milljónir manna frá þurrkasvæðunum til byggilegri svæða í vesturhluta landsins. Skæruliöarnir segja að með þessu ætli stjórnin að grafa undan stuðningi við aöskilnaðarsinna í Tígre héraöinu í norðurhluta Eþíópíu. Andreotti slapp með skrekkinn Italski utanríkisráðherrann, Giulio Andreotti, stóö af sér enn eina árásina þegar stjórnarandstaðan reyndi á föstudagskvöld að flækja honum i gamalt svikamál. Italska þingið felldi þrjár aöskildar tillögur um að láta rannsaka málið eða sækja Andreotti til saka. Ef einhver tillagnanna hefði verið sam- þykkt hefði það getað þýtt fall stjórnarinnar. Kommúnistar og nýfasistar ásaka Andreotti um að hafa látiö múta sér þegar hann var varnarmálaráð- herra árið 1974 til að ráða Raffaele Guidice hershöfðingja sem yfirmann tolla- lögreglunnar. Giudice var sakfelldur 1982 fyrir spiUingu í embætti. Afgönum vísað frá Peshawar Pakistanstjórn hefur vísað 10.000 afgönskum flóttamönnum út úr Peshawar, höfuðborg norðvesturlandamærahéraðsins. I borginni búa nú um 80.000 afganskir flóttamenn. Stjómvöld lokuðu fyrr í haust skrifstofum 35 stjórnmálaflokka flóttamannanna, eftir mikla sprengjuherferð sem virtist beint gegn Afgönum í borginni. Ekki er vitað hverjir stóðu fyrir sprengingun- um. Búist er við að um 5.000 flóttamönnum í viðbót verði vísað út úr Peshawar í næsta mánuði. Kína leyfir skoðun Varaforsætisráöherra Kína, Li Peng, sagði um helgina aö Kína mundi leyfa Alþjóöakjarnorkumálastofnuninni að skoöa kjarnorkuaðstöðu sína. Japanir hafa staðið í samningaviðræðum við Kínverja um sölu til Kína á útbúnaði til kjarnorkuframleiðslu. Samningamir hafa hingað til strandað á skilyrði Japana um að alþjóðastofnunin fái að fylgjast meö því að útbúnaðurinn verði ekki notaður til framleiðslu á kjaraorkusprengjum. Kýpur-viðræður byrja í dag Undarlegar samningaviðræður hefjast í dag milli Kýpur-Grikkja og Kýpur- Tyrkja. „Viðræðurnar” fara fram þannig að Perez de Quellar, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, fundar til skiptis með samninganefndum þjóöarbrot- anna tveggja og ber skilaboð á milli. Þennan háttinn verður að hafa á vegna þess aö Kyprianou, forseti gríska hlutans, hefur lofað að hitta ekki Denktash, forseta tyrkneska hlutans, fyrr en ákveðnum skilyrðum hefur verið fullnægt. Um þessi skilyrði vilja Tyrkir hins vegar semja. Sameinuöu þjóðimar segja að ef þessar viðræður lukkist ekki sé óvíst að af öörum veröi í bráð. Grikkir vilja sameiningu eyjunnar en Tyrkir vilja mikiö sjálfræði í eigin málum. Sómalíust jórn neitar að semja: Ástandið geig- vænlegt í Addis Flugræningjarnir vilja fanga úr haldi Sómölsku flugræningjarnir héldu enn 100 gíslum um borð í flugvél á flug- vellinum í Addis Ababa í Egyptalandi í morgun. Þeir krefjast þess að Sómalíustjórn leysi úr haldi 13 fanga og hætti við að taka sjö ungmenni af lífi fyrir aögerðir gegn ríkinu. Flugræningjarnir hótuöu að sprengja upp vélina ásamt þeim far- þegum sem eftir voru í henni klukkan níu í gærkvöldi, en þeir ákváðu síöan að gefa Sómalíustjórn frest fram til klukkan níu í morgun. Flugræningjarnir eru fimm. Leiö- togi þeirra er herforingi úr Sómalíu- her. Þeir eru sagðir hafa skammbyss- ur og nægt sprengiefni til að eyðileggja vélina. Á tímabili töluðu þeir um að drepa 20 sómalíska embættismenn sem eru í vélinni yrði Sómaliustjóm ekki aö ósk- um þeirra, en í morgun hótuðu þeir aft- ur að sprengja upp vélina sem er Boe- ing 707. Að sögn Eþíópíumanna eru það Ital- ir sem sjá um samningaviðræðumar, en þeir hafa gott samband við bæði Sómalíu og Eþíópíu. Rikin tvö eru erki- óvinir. Sómalíustjóm hefur algerlega neit- aö að verða viö óskum flugræningj- anna. Slíkt myndi ýta undir alþjóðlega hryðjuverkastarfsemi, segir hún. Otvarpsstöð í Norður-Sómaliu sagði í október aö taka ætti sjömenningana af lífi fyrir að vera í ólöglegum sam- tökum. Stjórnarerindrekar í Moga- dishu, höfuðborg Sómalíu, telja að það þýði að þeir hafi verið í skæruliðasam- tökum sem Eþíópíumenn styðja og vinna að því að koma Siad Barre for- seta frá völdum. Yfirvöld á flugvellinum í Addis Ababa sögðu í morgun að andrúmsloft- ið væri þrungið spennu og flugræningj- amir væru mjög æstir vegna neitana Sómalíustjórnar um aö hætta við af- tökur ungmennanna s jö. Indland Rajiv reynir að hreinsa flokkinn Kongressflokkur Rajiv Gandhi, for- sætisráöherra Indlands, lauk í gær viö aö úbúa lista yfir frambjóðendur flokksins í þingkosningunum 24. desember. Af 348 þingmönnum flokksins er ætlunin aö hleypa ekki 80 á listann. Taliö er að Rajiv Gandhi ætli sér að losa sig við ótrausta og óvinsæla þingmenn, á meðan hann nýtur samúðarinnar vegna morðsins á Indiru Gandhi. Á laugardag varö flokkurinn fyrir miklu áfalli í Manipúrfylki þegar 14 þingmenn hans gengu úr flokknum, og settu Kongressstjómina í fylkinu þar með í minnihluta. Þetta er álitið mikið áfall fyrir Rajiv Gandhi. Hann varð fyrir öðru áfalli þegar A.R. Antulay, sem var náinn samstarfsmaður Indiru, hvatti stuðningsmenn sína til að bjóöa sig fram gegn opinberum frambjóöendum Kongressflokksins. Antulay var rekinn vegna fjármálamisferlis en hann var aðalráöherra Maharashtrafylkis. Rajiv var talinn standa á bak viö þá ákvörðun. Rajiv Gandhi má passa sig ef hann vill forðast uppreisn í fiokknum. Gervihjartað sem Schroeder fær. ÖNNUR GERVI- HJ ARTA ÍGRÆÐSLA Læknar hófu í gær tilraunir til að græða gervihjarta í 52 ára gamlan mann í Louisville í Kentucky í Bandaríkjunum. Þetta er í annað sinn sem slík aögerð er reynd. Það var William Devries, sem græddi hartað í Bamey Clark fyrir tveimur árum, sem framkvæmir einnig þessa aðgerö. Gervihjarta- þeginn er William Schroeder. Að sögn lækna var ekki hægt að græða mannshjarta í hann vegna þess hve hann er gamall og vegna þess að hann er sykursjúkur. Sum lyfin sem honum yrðu gefin myndu virka gegn lyfjum sem hann þyrfti til að stjóma sykursýkinni. Hjartað er að mestu leyti þaö sama og Bamey Clark fékk, en búnaður utan líkama, sem þaö er tengt í, er öllu fyrirferðarminni og léttari. Barney Clark lést 112 dögum eft- ir ígræðsluna en það var ekki vegna þess að hjartað virkaði ekki. KosningaríUruguay: Miðflokkur sigrar Þúsundir Umguaya fögnuðu á götum úti fyrstu kosningunum í landinu eftir 11 ára stjórn hersins. Eftir að 210.000 atkvæði höfðu verið talin, eða um tíundi hluti atkvæða, var ljóst að Colorado miðflokkur- inn hafði forystuna, en Blanco- flokkurinn, sem er aðeins vinstra megin við miðju, var ekki langt á eftir. Hin vinstrisinnaða Breiöfylk- ing var í þriðja sæti. Herstjórnin hyggst afsala sér völdum 1. mars á næsta ári. Hún kom til valda árið 1973 í kjölfariö á gífurlega harðri herferö gegn Tupamaro-skæruliöunum. Búist er við að forsetaefni Color- ado, Julio Sanguinetti, sigri með naumindum Alberto Zumaran, sem Blanco valdi sem forsetaefni sitt eftir að leiötogi flokksins, Wilson Ferreira Aldunate, var settur í fangelsi þegar hann sneri heim síö- astliðinn júní. Þá haföi hann veriö í útlegðíllár. Allir flokkarnir hafa lofað því að vinna saman eftir kosningamar til að forðast stjómarkreppu. Áöur en herinn komst til valda var Uruguay velferðarríki, þekkt sem Sviss Suður-Ameríku. Nú, 11 árum síðar, hefur raungildi launa lækkað um 50 prósent og atvinnu- leysi er 15 prósent. Herinn ákvað að efna til kosninga eftir aö hann tapaði stórt í þjóðaratkvæða- greiðslu um að gefa honum yfirráð yfir öryggisgæslu til frambúðar, til aö stemma stigu viö skæruliða- hernaði í framtíðinni. Argentína: Samningar samþykktir Argentínumenn hafa samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta samning landsins við Chile umyfir- ráð yfir þremur smáeyjum viö suö- urodda Suður-Ameríku og sjónum í kringum þær. Þegar tveir þriðju hlutar atkvæða höföu verið taldir höfðu 81 prósent kjósenda sam- þykkt samninginn í þjóðarat- kvæðagreiðslu. Samkvæmt samningnum við Chile fær Chile eyjamar þrjár, en Argentínumenn fá sínu fram hvað varðar mörkin milli landhelgi land- anna tveggja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.