Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Síða 10
10
DV. MÁNUDAGUR 26. NOVEMBER1984.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Jafnaðarstefna með
kínversku andliti
„Jafnaöarstefna er ekki betli-
stefna,” segja Kínverjar nú og eru
staöráönir í að sníða vankantana af
ríkisreknu jafnaðarkerfi sínu. Fyrir
sex árum byltu þeir landbúnaðar-
kerfi Mao gamla en fyrir mánuði
ákváðu þeir að gjörbreyta iðnaðar-
málum sínum. Þeir hafa ákveðið að
þar eins og í sveitinni hefðu þeir gott
af svolítilli markaðshyggju til að
bæta almenn k jör landsmanna.
Þykkt og mikið plagg um þetta efni
var samþykkt sem stefna Kommún-
istaflokksins á 12. fundi miðstjórnar
flokksins þann 20. október. Þetta
plagg líkist í mörgu því sem sam-
þykkt var 1978 um landbúnaðarmál.
Þá ákvað flokkurinn að varpa fyrir
borð ríkisreknum landbúnaöinum og
taka upp „ábyrgðarkerfi” þar sem
einstakir bændur fengju úthlutað,
landskika frá ríkinu og nytu tals-
verösfrjálsræðis.
Það var velgengni þessa nýja
kerfis sem ýtti á um innleiðslu sams
konar kerfis í iðnaðinum. Land-
búnaöarframleiðslan hefur aukist
svo mikiö á undanförnum fimm
árum að innflutningur korns hefur
minnkaö um helming. Á þessu ári er
búist við f jórða metárinu í röð og aö
innflutningur minnki um 20 — 30 pró-
sent. Þegar svo vel hefur tekist á
landsbyggðinni þykir stjórnvöldum
rétt að snúa sér aö borgunum.
Gallar gamla kerfisins
Hin nýja iðnstefna er mjög í anda
umbreytinganna í Ungverjalandi og
Júgóslavíu. Skýrsla miðstjórnar-
innar leggur áherslu á að „rígbundið
efnahagskerfi geti ekki mætt þörfum
hinna vaxandi framleiðslukrafta”.
Helstu gallar þess séu:
+ Vöntun á verkefnaskiptingu
ríkisins og fyrirtækja.
+ Skrifræðislegar og landfræði-
legar takmarkanir.
+ Öþarflega stirð stjórn ríkisins á
fyrirtækjum.
+ Ekkierlögðnógumikiláherslaá
verðmætalögmálið og samspil
markaðsaflanna.
+ Jafnaðarstefna í dreifingunni
hefur dregið úr einstaklings-
framtaki og hugmyndaauögi
fyrirtækja og verkamanna.
Endurbætur
Ráðamenn seg ja að með hinni nýj u
stefnu sé aðeins verið aö endurbæta
en ekki gjörbreyta jafnaðarstefn-
unni. Grundvallarreglunni um að allt
fólkið eigi öll framleiðslutæki sé
haldið, en aö veriö sé að skilja
...og á oliuborpallinn...
eignarréttinn fró valdinu til aö reka
fyrirtækin. Fyrirtækin verði óháðar
einingar og beri ábyrgð á eigin gróða
eða tapi og virki sem löglegir
einstaklingar með viðeigandi rétt og
viðeigandi skyldur.
Kommúnistaflokkurinn á áfram að
vera „leiðandi afi” og ríkið á áfram
að hafa hlutverk í stjórnun efnahags-
lífsins en það hlutverk á aö takmark-
ast við að ákveða og útfæra áætlanir,
grundvallarreglur og almenna
stefnu en ekki aö reka sjálf fyrir-
tækin.
Kínverjar munu áfram búa við
áætlunarbúskap en áætlanirnar
veröa bundnar við almenpa efna-
hagsstjóm — skattstefnu, verðiags-
ákvarðanir, lánastefnu og slíkt.
Markaðsöflin eiga að fá aukið mikil-
vægi.
Ýmis vandamál
Raunhæf vandamál aukins frjáls-
ræöis í iðnmálum eru mikil og ekki er
hægt að líta framhjá þeim. Ráða-
menn eru að reyna að breyta hámið-
stýrðu valdboðskerfi í frjálslyndis-
átt. Það skapar gífurlegan þrýsting
....og inn á hárgreiðslustofu.
á stofnanir og embættiskerfi að taka
ákvarðanatöku frá ríkinu og setja
hana í hendur forstjóra og annarra
fyrirmanna fyrirtækjanna sjálfra.
Það þætti reyndar kraftaverk ef
þetta tækist fyrir lok þessarar aldar.
Hingað til hafa íbúar borganna
aö allir meðlimir flokksins eru skuld-
bundnir til að styðja hana. En í
skýrslunni er lagt til að varlega verði
farið með efasemdarmenn.
„Fólk með önnur sjónarmið og að-
feröir varðandi umbætur mó ræða
ágreining sinn,” segir skýrslan. „Við
megum ekki sundra félögum og
fjöldanum með því að kalla suma
„umbótasinna” og aðra „íhalds-
menn”. Við ættum aö hafa traust á
félögum sem eru á eftir ástandinu á
hverjum tíma, vitandi það að þeir
munu skilja hlutina betur eftir því
sem breytingarnar eiga sér stað.”
Greinilegt er því að ekki á að
endurtaka aðfarir menningar-
byltinganna og ofsækja, handtaka
og drepa þá sem ekki eru sammála
stjórnvöldum. Einnig er líklegt að
höfundar hinnar nýju stefnu hafi
orðið aö lofa því aö taka vettlingatök-
um á eftirlegukindum einfaldlega
vegna þess hve þær eru margar.
Erlend fjárfesting
Samfara endurnýjungum innan-
lands hafa Kínverjar opnað land sitt
fyrir erlendri fjárfestingu. En sú
fjárfesting er að mörgu leyti háð
sömu takmörkunum og innlendur
iönaöur, það er útþöndu skrifræði
sem ölluræður.
Kínverjar eru óánægöir með hve
fjárfestingar Bandaríkjamanna
hafa verið af skomum skammti. Þær
hafa ekki numið nema sem svarar 20
milljörðumkróna.
En ef Kínverjar ná árangri í bar-
áttunni gegn skrifræðisdraugnum
má búast við að bæði erlend og inn-
lend fjárfesting fari aö veröa arð-
meiri. Þeirri spumingu er svo ósvar-
að hvort sú barátta geti borið mikinn
árangur og á hve skömmum tíma.
Ailt frá tímum Kúblæ Kan, og
reyndar fyrr, hafa stjórnendur Kína
viljað aðhyllast sterka miðstýringu.
Það að núverandi herrar ætla aöeins
að slaka til þýðir ekki aö það sé
þegar gert. Jafnvel höfundar umbót-
anna viðurkenna að þær verða ekki
gerðar að raunveruleika á nokkmm
áram. Sennilega þarf áratugi til.
Akvarðanataka færist frá skrifstofubyggingunum i Peking tii spunaverksmiðjunnar...
Umsjón:
Þórir Guðmundsson
notið niðurgreiddra vara og lágs
vöruverðs. Hætt er við að þeir taki
því ekki þegjandi og hljóðalaust ef
þeir eiga að fara að borga raunvirði
fyrir þessar vörur. Skýrsla mið-
stjómarinnar gerir ráð fyrir því aö
líklegt sé að einhver „óreiða” skap-
ist. „Mistök er varla hægt að forð-
ast,” stendur í skýrslunni.
Mikiö mál fer í að útskýra hvers
vegna nauösynlegt sé aö fara þessa
leið og hvernig hægt sé að samlaga
hana jafnaðarstefnu Kinverja.
Tíðum er eins og höfundar hennar
séu að sannfæra efasemdarsálir.
Skýrslan viðurkennir í raun að enn
eru margir á móti þessari
endurskipulagningu efnahagslífsins.
Utskýringarnar séu nauðsynlegar til
aö „ná fram einingu í hugsun og
bæta ímynd boöskaparins meðal
félaga í flokknum (sérstaklega
meðal leiðandi embættismanna
flokksins)”.
Vegna þess að skýrslan hefur verið
formlega samþykkt er hún orðrn að
opinberri stefnu flokksins. Það þýöir