Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Blaðsíða 11
DV. MÁNUDAGUR 26. NOVEMBER1984.
n
VIÐTALIÐ:
Nýtt frá
Hudson
Hvildav-
OWing sokkabuxur
Mjög áferðarfallegar
með sérstakri
aðhaldsteygju
semfellur vel að
og heldurfótum þínum
óþreyttum
frá morgni til kvölds.
Sauðfjárslátr■
unhjáKNÞ
„Menn sjá helst mikil-
vægi símans þegar
eitthvað bjátar á"
Ölafur Tómasson, framkvæmdastjóri tæknideildar Pósts og síma.
Olafur Tómasson verkfræðingur
hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri
tæknideildar Pósts og síma frá 1. des-
ember. Ölafur er hagvanur í þeirri
stofnun því þar hefur hann unnið
lengst af frá því hann kom frá námi ár-
ið 1956. Til þessa hefur hann verið yfir-
verkfræðingur sambandadeildar við
tæknideildina en tekur nú viö stöðu
yfirmanns. I viðtali við DV sagði Olaf-
ur að nýja staöan fæli í sér yfirgrips-
meiri störf og meiri afskipti af stjórn
stofnunarinnar. Olafur sagði aö starfið
hjá símanum væri mjög fjölbreytt og í
mörgum tilvikum áhugaverðara en
störf á álmennum markaöi sem svo er
kallaöur. Það hefur alltaf borið nokkuð
á að einkafyrirtæki byðu í opinbera
starfsmenn og þau gætu boðið þeim
betri kjör, en margir halda tryggð við
sína stofnun. Sjálfur sagðist Olafur
hafa um tíma rekið teiknistofu á eigin
vegum en snúiö aftur til símans.
Fyrsta krafan sem menn gera til
símans er aö hann sé í lagi. Not lands-
manna fyrir síma eru svo almenn og
þykja svo sjálfsögö að menn taka varla
eftir því fyrr en eitthvað bjátar á. Störf
manna hjá símanum fela fyrst og
fremst í sér þjónustu viö landsmenn,
þjónustu sem verður aö ganga snurðu-
laust fyrir sig. Olafur sagði að á síð-
ustu árum hefði mikið verið unnið að
uppbyggingu og endurbótum á síma-
kerfinu í landinu. Á næsta ári ættu allir
símar að vera komnir í sjálfvirkt sam-
band og þá hefði einnig mikið verið
unnið að því að auka öryggi símaþjón-
ustunnar. Það væri m.a. gert með því
að tengja einstaka landshluta við
símakerfið á fleiri en einn veg þannig
að ef ein leið bilaði þá ætti önnur að
sagði Ölafur.
Frítíma sinn sagðist Olafur m.a.
nota til að leika golf. Hann hefði auk
þess starfað að félagsmálum golf-
manna og haft mikla ánægju af. Áður
fyrr hefði hann einnig sótt í laxveiðar
en væri nú hættur vegna kostnaðar. Þá
sagðist Olafur ávallt verja nokkrum
tíma til utanlandsferða meö konu
sinni, Stefaníu Maríu Pétursdóttur.
-GK
vera í lagi. Þá væri einnig reynt að
koma viö nýrri tækni eftir föngum.
Álagið á símann veldur oft óánægju
meðal notenda. Olafur sagði að Islend-
ingar töluöu meira í síma en flestar
aðrar þjóðir. Þá væri einnig áberandi
hve margir þyrftu að tala á sama tíma.
T.d. væri oft erfitt að fá samband eftir
sjónvarpsfréttjr á kvöldin eins og
margir þekkja. Eina leiðin til að ráða
bót á þessu er að efla stöðvarnar,
— hæsta meðalvigt
17,3 kg
Frá Auðuni Benediktssyni, Kópaskeri:
Sauðfjárslátrun hjá KNÞ á Kópa-
skeri gekk mjög vel að þessu sinni og
var slátrað 26.077 kindum. Meöalþungi
var 15,16 kg og er það um 0,8 kg betra
en á síöasta ári. Má þar örugglega
þakka því einmuna veðurfari sem hef-
ur verið í sumar og haust. Hæsta með-
alvigt innleggjenda að þessu sinni
hafði Sigurður Karl í Hólseli á Fjöllum,
17,3 kg. Heimtur af f jalli hafa þó ekki
veriö sem skyldi og vantar flesta
bændur enn nokkuð á að „kollheimt”
sé. Þó sláturtíð sé fyrir nokkru lokið er
mikil vinna eftir við úrvinnslu slátur-
afurða. Verið er aö svíöa og verka
hausa, einnig er unnið við sláturgerð
og kjötvinnslu og verður sú vinnsla
eitthvað fram eftir vetri.
-EH
Minni heimtur
Samkvæmt upplýsingum hjá inn-
heimtu Selfossbæjar var búið að inn-
heimta af fasteignafjöldum þann 11.
þessa mánaðar sem svarar 79,2% á
móti 84,2% á sama tíma í fyrra. Af út-
svörum var búið að innheimta 72,9%
en í fyrra 77%. Þetta er lakara en á
sama tíma í fyrra og spila þar verkföll-
in inn í, en bæjarskrifstofan á Selfossi
var lokuð í einn mánuð vegna verk-
falla. Hér hefur verið sól og sumar í
allt haust og bætir það upp hið mikla
rigningarsumar.
Attu '
vörust
Nú þegar frost er á fróni viljum við minna viðskiptavini
okkar á að hitastig í vöruskálum Eimskips getur farið
niður fyrir 0°C. Öryggi eigenda vöru sem ekki þolir frost
eykst eftir því sem varan staldrar skemur við í skálunum,
og mikilvægt er t.d. að athuga að frostlögur sé á bílum
eða vélum.
Vandaður frágangur vörunnar tryggir öruggari flutning
EIMSKIP
*
Síml 27100
Regína Thorarensen.