Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Síða 16
16
DV. MANUDAGUR26. NOVEMBER1984.
Spurningin
Fylgdist þú með
alþingisumræðunum á
fimmtudagskvöldið?
Bára Sigurjónsdóttir húsmóöir: Já, ég
fylgdist lítillega meö þeim. Eg fylgist
yfirleitt nokkuö vel meö stjórnmála-
umræöum.
Linda Ingadóttir nemi: Nei, þaö geröi
ég ekki. Ég hef ekki nokkurn áhuga á
stjórnmálum.
Brynjólfur Brynjólfsson bankamaöur:
Nei, ég hafði ekki tök á því. Yfirleitt
fylgist ég samt meö stjórnmálum þó aö
þau séu oft á tíðum ósköp döpur.
Þorsteinn Ingimarsson bakaranemi:
Nei, ég var sofandi á þessum tíma. Ég
fylgist dálítiö með stjórnmálum þó aö
oft á tíðum sé umræðan hálfslöpp.
Bergrós Björnsdóttir húsmóðir: Nei,
ég fylgdist ekkert meö umræðunum í
gær því ég haföi ekki nokkurn áhuga á
þeim.
Björn Pálsson lögregluþjónn: Nei, það
geröi ég ekki. Eg hef takmarkaðan
áhuga á slíku.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
„OFBELDI” REYKINGAMANNA
GAGNVART UMHVERFINU
Hilmir Sigurðsson skrifar:
Mig langar aö koma á framfæri hug-
mynd sem gæti orðið reykingamönn-
um og þeim sem langar að hætta aö
reykja umhugsunarefni. Ég vil aö
Alþingi efni til þjóðaratkvæöa-
greiðslu um efnið „Bann viö innflutn-
ingi og sölu á tóbaki ”.
Mörgum mun eflaust finnast þetta
fáránleg hugmynd og gamla tuggan
um skeröingu á persónufrelsi dregin
aö húni. En þaö er nú því miöur svo
aö þeir sem reykja hafa fram að
þessu beitt aöra „ofbeldi”. Þeir hafa
leyft sér aö reykja nánast hvar sem
er alveg án tillits til þeirra sem ekki
reykja. Þegar svo byltingarkennd
tillaga kemur fram munu margir
segja að smygl muni margfaldast og
þaö er alveg rétt. En þá er komin upp
sú staða aö menn geta ekki keypt
einn og einn pakka heldur eitt eöa
fleiri karton í einu og þá er kostn-
aðurinn oröinn áþreifanlegur.
Þriggja ára aðlögunartími yröi svo
f rá því aö atkvæðagreiðslunni lyki og
þangaö til lögin tækju formlega gildi.
Kostnaöurinn viö þessa heimsku-
legu iöju, reykingar, er einn þáttur
málsins sem veröskuldar góöa út-
tekt. Maöur sem reykir einn pakka á
dag brennir 20.440 kr. á einu ári. Ég
er viss um aö mörgum yrði þungt
fyrir fæti ef þeir væru skyldaðir til aö
henda þessari upphæö á gamlárs-
kvöld. Tóbaki og áfengi er oft stillt
saman sem skaðvöldum og auövitaö
er áfengi skaðlegt þeim sem ekki
kunna meö aö fara. Eg tel hins vegar
að vinbann sé út í hött vegna þess
hve auövelt er aö búa til áfengi. Ööru
máli gegnir meö tóbak sem ekki er
hægt að rækta hér nema e.t.v. í
gróðurhúsum og þá aðeins til eigin
nota. Ef til þjóðaratkvæðagreiðslu
kemur munu tóbaksvinir hefja upp
raust sína eins og þeir hafa líka full-
an rétt á í lýðræðisríki en erfitt
veröur fyrir þá aö finna rök sem
mæla meö tóbakinu. Ég kalla þaö
heldur ekki skeröingu á persónu-
frelsi aö meina fólki aö eyöileggja í
sér líffærin jafnvel þó þaö langi til
þess, því þaö kemur aö skuldadögum
og þá leita þessir unnendur frelsis til
lækna og sjúkrahúss og vilja fá
úrbætur.
Þjóöin eyddi samtals 900
milljónum í tóbaksvörur árið 1983 og
mættu sumir staldra viö þessar
tölur. Ég sem þessar h'nur rita reykti
sjálfur í 20 ár og þekki því af eigin
raun áhrif reykinga á Ukamann sem
eru vissulega miöur góö, þreyta í fót-
um og nábítur. Þessi einkenni hurfu
eftir aö ég hætti að reykja.
Hnattstaða Islands gerir okkur
kleift aö losna viö tóbaksböliö. Þeir
einu sem banniö myndi skaöa væru
umboðsmenn hér og framleiöendur
erlendis, þessir heilsuþjófar sem
mættu gjarna klóra sér í hausnum og
furöa sig á þessari þjóö sem hafnar
þeirri ímynd sem þeir vilja gefa
tóbakinu í auglýsingum sínum.
Að endingu þetta. Eg hef ekki hitt
eina einustu manneskju sem hefur
getað komiö meö rök fyrir gildi
tóbaks. Ég vona því aö fleiri láti álit
sitt í ljós á hugmynd minni og að ein-
hverjir þingmenn sjái sér hag í því
aö bera þetta upp í þinginu sem
fyrst.
„Þeir sem að reykja í peningum kvelkja...” söng Rut Reginalds. Samkvæmt
útreikningum Hilmis kostar þaö 20.440 kr. á ári að reykja einn pakka af sígar-
ettum á dag. Sóun?
Siðlausar uppsagnir hársnyrtinema
Hársnyrtisveinn skrifar:
I þessari grein langar mig aö vekja
athygli á uppsögnum hársnyrti-
nema. Fyrir um þaö bil viku var
flestum þessum nemum sagt upp
störfum meö viku uppsagnarfresti.
Þessa lágkúrulegu ákvörðun tóku
meistarar vegna nýgeröra kjara-
samninga, en samkvæmt þeim áttu
allir iönnemar aö fá lágmarkslaun
kr. 14.075. Laun nemanna fyrir hækk-
un voru rúmlega 8000 kr. á mánuði í
byrjunarlaun og rúmlega 10.000.
fyrir seinni hluta námsins. Þeir voru
ekki einu sinni búnir aö fá síðustu
hækkanir síöan í vetur (síðustu
kjarasamninga) en þá áttu einnig
allir iönnemar aö fá lágmarkslaun
ca 12.700 kr.ámánuði.
Þaö hefur lengi loöaö viö þessa
stétt siölaus framkoma gagnvart
starfsfólki sínu, en þetta keyrir nú
allt um þverbak. Þessir stofu-
eigendur virðast geta komist upp
með allt og er ég hissa á aö ekki skuli
hafa verið fjallaö um þessar upp-
sagnir meira í fjölmiðlum en veriö
ÓMAKLEGAR
ÁRÁSIR ÁINGÓLF
Sigurður Einarsson skrifar:
Einhver Bjöm Steffensen skrifáöi í
DV nýlega og kvartaöi undan því að
Ingólfur Hannesson skyldi standa
vaktir á móti Bjama Felixsyni í
íþróttaþættisjónvarpsins. Ég veit nú
ekki betur en hann sé sá þriöji eöa
fjóröi í rööinni sem þaö reynir en
hinir hafa allir hrökklast burt enda
höföu þeir aðeins fengið „molana af
allsnægtaboröinu”, aö því er virtist.
Hins vegar finnast mér árásir á
Ingólf ekki maklegar þar sem hann,
aö mínu mati og margra annarra
einnig, hefur staðiö sig vel þrátt fyrir
skamman starfsaldur. Hann fylgist
vel meö, er glöggur og sinnir vel
ýmsum íþróttum sem oft vilja verða
hornreka, t.d. akstursíþróttum sem
eru mjög vinsælar.
Svona í lokin má minna á að
Bjarni Felixson varö ekki sjaldan
fyrir svipuðum árásum fyrstu ár sin
hjá sjónvarpinu og hann er meiri
maöur af því aö taka þær árásir
hvorki starfslega né persónulega.
Vona ég aö þaö eigi einnig viö um
Ingólf Hannesson.
hefur, t.d. í sjónvarpi og útvarpi. Það
er lítilsviröing viö stéttina, því ef
þetta hefði verið einhver önnur stétt
er ég viss um aö það væri meira um
þetta fjallað.
Eg spyr bara, ætla meistarar aö
þurrka út sína eigin stétt? Hvernig
veröur vinnan á stofunum þegar
engir nemar eru til aö aöstoöa?
Innkoman á stofunum er einnig háð
nemunum, því ekki er hægt aö taka
eins marga viöskiptavini yfir daginn
ef þeir væru ekki til að hjálpa til.
Gerið þiö ykkur grein fyrir því,
meistarar góöir, því ef þiö hefðuö aö-
stoöarstúlku fengi hún lágmarks-
laun.
Að lokum vil ég skora á sveina aö
standa með nemum og fara í ein-
hverjar aögerðir. Eöa á kannski líka
að losa sig viö sveinana? Nei, því á
þeim græöa meistarar.
SJAIST
mcð
endurskini
Umferðarráð