Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Side 18
18
DV. MÁNUDAGUR26. NOVEMBER1984.
Rakarastofan Klapparstíg
x Simi12725
Hárgreiðslustofan Klapparstíg
Timapantanir
13010
Á
TIIBOÐ
JL
id-NOV - 5 DES
(ffiÚWí\L gl «r<
2 Rl.. WC- 24-
4 RL. WC- «8- l'f-
1?» RL. WC- 142- H2f
fLWÍISRÍlUUk 62
(r«VtR$LUNER(fy^
cdfonóo
KANAÐÍSKm
KULDASKÓK
semhalda
T
Áður en flug „Double Eagle II“ hófst, leituðu
Ben, Maxi og ég aðjhlýiystu kuldaskóm sem
völ væri á, vegna hins mikla kulda sem við
áttum í vændum.
Ben og Maxi fengu sér snjósleðastígvél ein
mikil. Ég ákvað hinsvegar að vera í VA> árs
gömlu „Blondo“ kuldaskónum mínum.
í fluginu reyndust „Blóndo“ skórnir framar
vonum, — hlýir og þægiiegir. Núna, 2 árum
eftir að ég keypti þá, geng ég ennþá í sömu
skónum, sem sýnir hvað þeir duga vel.
Þakka ykkur fyrir að framleiða vandaða
vöru.
Larry Newman Flugfari „Double Eagle II“
ÚTSÖLUSTAÐIR UM ALLT LAND!
Nýjar bækur
Nýjar bækur
WAYNE W. DYER
VERTU ÞÚ
SJÁLFUR
Bókaútgáfan Iöunn hefur sent frá sér
bókina „Vertu þú sjálfur” eftir banda-
ríska sálfræðinginn Wayne W. Dyer.
Álfheiður Kjartansdóttir þýddi.
Dr. Wayne W. Dyer er víðkunnur
bandarískur sálfræðingur og hafa
bækur hans orðið miklar met-
sölubækur í Bandaríkjunum og víðar. I
fyrra kom út á íslensku bók hans
,,Elskaðu sjálfan þig” sem hlaut mjög
góöar viðtökur íslenskra lesenda. Með
„Vertu þú sjálfur” kemur Dr. Dyer
enn til liðs við þá lesendur sem vilja
stunda sjálfskönnun, efla sjálfstraust
sitt og auðvelda sér listina að lifa og
njóta þess. Á bókarkápu eru bókinni
gefin einkunnarorðin: „Bók handa
öllum þeim sem fylgja vilja eigin sann-
færingu og stjóma lífi sínu sjálfir.”
Þar segir enn fremur: „Vertu þú
sjálfur” fjallar um að ná tökum á
sjálfum sér og lifi sínu. Hún er skrifuö
handa þeim sem meta eigið frelsi og
fylgja vilja eigin sannfæringu í stað
þess að láta stjómast af skoöunum
annarra. Að vera frjáls táknar ekki að
þú hunsir ábyrgö þina gagnvart vinum
og fjölskyldu. Það felur í sér frelsi til
að ákveða sjálfur eigin ábyrgð. Frjáls-
astir allra í heiminum eru þeir sem
hafa öðlast innri frið. Þeir stjórna
eigin lífi í kyrrþey en hlaupa ekki eftir
dyntum annarra. Þessi bók fjallar um
að velja sjálfur. Hún byggir á þeirri
meginforsendu að þú hafir rétt til að
ákveða hvemig þú viljir lifa lífinu svo
framarlega sem þú gengur ekki á rétt
annarra.
Bókin er prentuð í Odda hf. Kápan
var hönnuö í auglýsingastofunni
Ocavo.
(C
ÁRMANN KR. EINARSSON
þýddar á fjölda tungumála.
1 ræningjahöndum ber öll einkenni
höfundar síns. Hún er ljúf og létt en um
leið spennandi. Höfundur leiðir les-
andann á vit ótrúlegustu atvika þar
sem allt getur gerst.
I bókinni, sem er á annað hundrað
blaösíöur, eru teikningar eftir Halldór
Pétursson, kápuhönnun annaðist
Gunnar Baldursson, en mynd á kápu
teiknaði Þorsteinn Eggertsson.
í ræningjahöndum er sett og prentuö
í Prentstofu G. Benediktssonar, en
bundin hjá Bókfelli hf.
VEISTU
SVARIÐ?
Veistu svarið? heitir nýútkomin bók
frá bókaútgáfunni Vöku. Þetta er bók,
sem nú bætist í hið vinsæla safn tóm-
stundabóka Vöku. Veistu svarið? er
alíslensk spumingabók, hin fyrsta
sinnar tegundar og einkar aðgengileg
fyrir unga sem aldna. Axel Ammend-
rup er höfundur bókarinnar en Þor-
steinn Eggertsson hefur myndskreytt
hana.
I bókinni Veistu svarið? eru j
spurningar úr ýmsum áttum, mörg af-
brigði spurningaleikja um menn og '
málefni, sögu Islands, landið sjálft og
þjóðlífið. Þá er spurt um önnur lönd og
álfur og sitt af hverju sem tengist nútíð
og fortíð. Spurt er um dægurflugur og
lesendur eru prófaðir í reikniþrautum.
Sumar spurningarnar eru léttar, aðrar
erfiðari. I bókinni er að finna
spennandi stigakeppni og einnig gátur
og glens, enda er markmiöið að
sameina í bókinni spennu, gagn og
gaman.
Veistu svarið? er sett hjá Odda hf.,
prentuð í Viðey hf. og bundin í Bókfelli
hf.
ASBJÖRN ÖKSENDAL
FLÓTTIIMIM
MEÐ GULLIÐ
f RÆNINGJA-
HÖNDUM
Bókaforiagið Vaka hefur gefið út1
bamabókina t ræningjahöndum eftir |
Ármann Kr. Einarsson. Þetta er þriðja
bókin í því vinsæla safni úrvalsbama-
bóka, sem Vaka gefur út undir
samheitinu „Ævintýraheimur Ár-
manns”. Spennandi atvik og litrík
ævintýri einkenna þessa bók sem er,
endurskoðuð útgáfa samnefndrar J
bókar er kom út fyrir tveimur ára-
tugum í flokki bóka um þá félaga Ola
ogMagga.
Armann Kr. Einarsson þarf ekki að
kynna fyrir lesendum. Hann hefur með |
penna sinum leitt tugþúsundir ís-1
lenskra barna og unglinga inn í
ævintýraheim, sem þau hafa notið til
hins ítrasta. Hann hefur fyrir löngu
hlotið viðurkenningu sem einn fremsti
bama- og unglingabókahöfundur
okkar og bækur hans hafa veriö
Hörpuútgáfan á Akranesi sendir nú
frá sér nýja bók eftir norska rithöfund-
inn Asbjöm Öksendal. Áður eru komn-
ar út eftir hann bækurnar Þegar neyð-
in er stærst, Gestapo í Þrándheimi,
Föðurlandsvinir á flótta og Fallhlífa-
sveitin.
9. apríl 1940: Bílalest lagði af staðfrá
Osló með gullforða Norðmanna, sam-
tals 50 smálestir. Þetta var upphaf
ævintýralegs flótta og hrikalegra at-
buröa sem áttu sér enga hliðstæðu.
29. apríl 1940: Molde, brennandi bær
undir stööugum loftárásum Þjóðverja.
Beitiskipið Glasgow lá við bryggjuna
og beið þess að flytja norsku konungs-
fjölskylduna og 50 smálestir af gull-
forða Norðmanna á öraggan stað.
Asbjörn öksendal skrifar einungis
sannar frásagnir af hildarleiknum í
Noregi, enda era bækur hans skráðar
eftir viötölum við fólk sem upplifði at-
burðina.
Kvikmynd hefur verið gerð um
þessa atburði.
Flóttinn með gullið er 151 bls. auk
mynda. Skúli Jensson þýddi bókina.
Kápu gerði Kristján Jóhannsson. Bók-
in er prentuð og bundin í Prentverki
Akraness hf.
GAVIN LAYALL
LAUNRÁÐí
LEYNI-
ÞJÓNUSTU
Hörpuútgáfan á Akranesi hefur sent
frá sér nýja njósnasögu eftir Gavin
Layall sem skrifaöi bókina Njósnanet-
iö. Þessi njósnasaga kom fyrst út í
Bretlandi árið 1983. Gavin Layall hefur
skrifað fjölda spennubóka og hlaut
hann m.a. Silfurrýtinginn, verðlaun
breskra spennusagnahöfunda, fyrir
bókina Mínútu eftir miðnætti.
Bókin Launráö í leyniþjónustu er
æsispennandi og mögnuð njósnasaga
eins og þær gerast bestar.
Umsagnir um Gavin Layall og bæk-
urhans:
, JFrábær njósnasaga” — The Times.
„Ein af þeim allra bestu” — Daily
Telegraph.
„Ein besta spennusaga ársins” —
Daily Herald.
„Bækur eins spennandi og þessi era
sjaldgæfar”—Daily Telegraph.
Gavin Layall er margfaldur met-
söluhöfundur og talinn einn af fimm
bestu höfundum spennusagna sem nú
era uppi.
Njósnasagan Launráð í leyniþjón-
ustu er 206 bls. Gissur 0. Erlingsson
þýddi. Bókin er prentuð og bundin í
Prentverki Akraness hf.
NETTA MUSKETT
FORBOÐIN ÁST
Hörpuútgáfan á Akranesi hefur sent
frá sér nýja bók eftir ensku skáldkon-
una Nettu Muskett í þýðingu Snjó-
laugar Bragadóttur. Áður hefur
Hörpuútgáfan gefiö út bækumar
Njóttu min og Hamingjuleiðin eftir
Nettu Muskett.
Cilla Partell er blinduð af eigin-
manni sínum. Hún sér ekki gegnum
þann blekkingaveg sem hann spinnur
um líf þeirra. Þaö er því reiöarslag
þegar hún uppgötvar að hann er
kvæntur tveim konum. Forboðin ást er
mögnuð og spennandi ástarsaga meö
óvæntri atburðarás.
Enska skáldkonan Netta Muskett
hefur skrifað fjöldann allan af ástar-
sögum sem gefnar era út í milljóna-
upplögum. Hinn stóri lesendahópur
vitnar best um vinsældir hennar.
Forboðin ást er 151 bls, prentuð og
bundin í Prentverki Akraness hf.