Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Blaðsíða 20
20 DV. MÁNUDAGUR 26. NOVEMBER1984. Slysaæfingin á Keflavíkurflugvelli: FJÖLMÖRG MISTÖK TILAÐLÆRAAF læknar sem þar voru voru ekki sér- staklega merktir. Tilfinningalausir af kulda Viö hittum nokkra „farþega” eftir æfinguna og voru þeir sammála um að þeir heföu veriö orönir tilfinninga- lausir af kulda er þeir lágu „í valnum” eftir slysiö. Þeir sögöu einnig aö vegna skipulagsleysis heföu slasaöir veriö flokkaðir rangt. Sem dæmi um þaö voru einn höfuö- kúpubrotinn og annar hryggbrotinn úrskuröaöir fullfrískir eöa lítið slas- aöir. Einn meö opna slagæö fékk ekki umönnun fyrr en komið var á sjúkra- hús. -APH. „Þaö er hægt að gera miklu betur, þaö er engin spuming. Það stakk mjög í augu aö björgunarliðið oj sjúkrabílakostur, sem var til um- ráöa, lenti í vegatálmum og voru þar þannig að afl þeirra nýttist ekki. Þetta leiddi til þess að þaö dróst mjög aö koma þeim slösuöu frá slys- staö. Meginmarkmiðiö meö slíkum æfingum er aö fá niðurstöður sem tryggja þaö aö þegar viö lendum í al- vöruslysum þurfi enginn aö líöa fyrir þau mistök sem við höfum lært af,” sagöi Örn Egilsson, starfsmaður Al- mannavarna ríkisins, er hann var spurður hvernig til heföi tekist í hóp- slysaæfingunni á Keflavíkurflug- velli. Á laugardaginn var sviðsett flug- slys þar sem farþegaflugvél rakst á herflugvél skammt suður af Kefla- víkurvelli. Gert var ráö fyrir að um 70 farþegar væru um borð í vélunum og eftir slysiö lágu þeir eins og hrá- viöi á jöröu niöri, misjafnlega á sig komnir. Þaö voru almannavarnir Suöurnesja og Keflavikurflugvallar sem stóöu aö þessari æfingu. I hlut- verki farþega voru skátar af höfuð- borgarsvæðinu. Stjórnun á vettvangi klikkaði Aö lokinni æfingu var aö heyra aö nóg væri af mistökum til aö læra af. „Stjómun á vettvangi klikkaði. Þaö vantaöi mannskap, flutninga- bíla og skipulag,” sagöi Arngrímur Þessi farþegi var úrskurðaður „látinn" á slysstað. Hinir slösuðu farþegar voru dregnir saman á einn stað. Þar urðu þeir að biða helst tii iengi að margra dómi. Hermannsson frá Flugbjörgunar- sveitinni. „Þaö leið allt of langur tími þar til sjúkrabílarnir komu á slysstað. Björgunarsveitirnar fengu ekki aö koma á staöinn meö sinn útbúnaö fyrr en of seint. Teppi komu of seint þó svo aö neyöarkall kæmi frá lög- reglunni um þaö,” sagöi Gylfi Gunnarsson frá Flugbjörgunar- sveitinni. Einnig kom fram aö íslenskan lækni vantaði á slysstað og þeir Frá slysstað var farið með alla farþegana i sjúkrahúsið á Kefla- vikurflugvelli. Þar var ákveðið hvaða umönnun þeirþyrftu. D V-myndir Kristján Ari. Allir í sturtu! Ef þú velur = combac frí- standandi sturtuklefa færðu mikið fyrir pening- ana. Þægindin eru inn- byggð í hvern klefa. Stuöningshandfang. Reyklitað, yrjótt plast í veggjum. Færanleg handsturta. Hilla fyrir hreinlætisvörur. Þvottapokakrókur. Sjálfstillandi hitastýritæki. Mynstraöur stál-sturtubotn. Rennihurðir og rúnnuö horn. Combac sturtuklefarnir eru vel hannaöir og auðveldir í uppsetningu. Fást í 4 stæröum 80 x 80 cm, 90 x 90 cm, 70 x 90 cm og 90 x 70 cm. (BYGGINGflUORUR ] Byggíngavöruverslun Tryggva Hannessonar Síöumúla 37, símar 83290 og 83360 Frá ráðstefnunni „Hvað vilja félagshyggjumenn?”, sem haldin var á laugar- daginn. Margrét Bjömsdóttir í ræðustól. DV-mynd KAE. Stofna félagshyggjumenn eigið útvarp? „Ekki lengur hægt að róa á þessum litlu blaðsneplum” Fjölmiðlamál bar oft á góma hjá þeim sem tóku til máls á ráöstefnu er haldin var á laugardaginn og bar yfir- skriftina „Hvaö vill félagshyggju- fólk?” Fram kom aö mikil óánægja virðist ríkja meöal félagshyggjumanna meö núverandi ástand fjölmiölunar í landinu. Það séu hin ráöandi hægri öfl sem ráöi mestu af fjölmiölun í landinu og allt bendi til þess aö svo veröi í framtíðinni, ef ekki veröi aöhafst neitt af hálfu félagshyggjumanna., Á ráðstefnunni kom því fram mikill áhugi á aö kannaöur verði grund- völlurinn til að stofna útvarpsstöö eöa jafnvel sjónvarpsstöö þegar útvarps- lögunum veröi breytt, því ef ekkert veröi aöhafst í þessum málum séu líkur fyrir því aö félagshyggjumenn veröi aftarlega á merinni og íhalds- öflin veröi fyrri til aö tileinka sér þess- ar nýju leiðir, sem nú viröist vera aö opnastífjölmiðlun. Ritstjóri Alþýöublaösins, Guömund- ur Ámi Stefánsson, var einn þeirra sem mæltu fyrir stofnun útvarpsstööv- ar. Hann lagöi til aö vinstri menn tækju höndum saman um stofnun slíkrar stöövar. Þá voru nokkrir sem töldu aö sam- eiginleg blaöaútgáfa félagshyggju- manna væri einnig vænlegur kostur. „Það er ekki lengur hægt aö róa á þessum litlu blaösneplum,” eins og einn ræöumannanna orðaði þaö. En umfram allt kom fram aö almennur vilji er fyrir því aö félags- hyggjumenn reyni aö samhæfa krafta sína til aö hafa áhrif á stjórn landsins. Hvernig slíku væri best komið fyrir greinir menn þó nokkuð á um. Á fundinum var skipuð 7 manna samstarfsnefnd. Þessari nefnd er ætlaða aö skapa vettvang fyrir félags- hyggjumenn til aö geta hist og líkur eru á að stofnað veröi málfundafélag þessara aðila. Þar er ætlunin aö taka fyrir málefni sem varða félagshyggju- menn og kryfja þau til mergjar í bróðerni. -APH.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.