Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Side 31
DV. MÁNUDAGUR 26. NOVEMBER1984.
31
íþróttir
(þróttii
íþróttir
— segir Bobby Gould, framkvæmdastjóri Coventry
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, frétta-
manni DV í Englandi:
— Bobby Gould, framkvæmdastjóri
Coventry, var ekki ánægður eftir tapið,
2—5, fyrir WBA og síst með það að
Terry Gibson var vísað af leikvelli
eftir að einn leikmaður WBA hafði
slegið hann í andlitið.
— Þegar ég var ungur framherji og
lék gegn Leeds (Johnny Giles, fram-
kvæmdastjóri WBA, er fyrrum leik-
maður Leeds), átti sér staö ýmislegt
ótrúlegt á leikvelli. I dag sá ég nokkur
merki gamla Leeds-liðsins í leik WBA.
Eg vil ekki segja það beint að Gibson
hafi verið sleginn í andlitiö viljandi til
að fá hann af leikvelli en ég sá greini-
lega Leeds-takta í leik Albion, sagði
Gould.
Peter Barnes kom Coventry á bragð-
iö eftir 53. sek. en Gary Thompson
skoraði sitt 13. mark, og CUve
Whitehead bætti síðan öðru marki viö;
Cyrille Regis jafnaði, 2—2, fyrir
Coventry gegn sínum gömlu félögum
en þaö dugði skammt. Steve
McKenzie, Tony Grealish og Derek
Statham skoruðu þrjú mörk fyrir
Albion, 5—2. 12.742 áhorfendur sáu
leikinn.
-SigA/-SOS.
„Þettavar eins
og á Ítalíu...
r
Eg trúi þessu varla,” sagði John Deehan, eftir að Norwich hafði
lagt Everton að velli, 4-2
AUSTURSTRÆTIÍO ------SÍMI 27211
Meira en venjuleg verslun!
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni,
fréttamanni DV í Englandi:
— Þetta var eins og í ítalska
boitanum. Við fengum fjögur tæki-
færi í fyrri hálfleiknum — nýttum
þrjú þeirra og áttum eitt skot í slá.
Ég trúi þessu varia, sagði John
Deehan hjá Norwich eftir að
Norwich hafði lagt Everton að
velli, 4—2, á Carrow Road.
— Everton er með mjög gott lið og
leikmenn félagsins réðu að mestu
gangi leiksins en viö náðum þó að nýta
okkur veikleika þeirra. Eftir þennan
leik hallast ég að því aö Everton verði
meistari. Leikmenn liðsins sýndu það
hér aö þeir hafa burði til þess, sagði
Deehan.
16.925 áhorfendur sáu Everton byrja
leikinn af miklum krafti og sækja stíft
að marki Norwich. En þaö voru leik-
menn Norwich sem voru á undan að
skora — þrjú mörk komu á færibandi.
John Deehan skoraöi fyrst á 15. mín.
og aöeins tveimur mín. seinna var
Dale Gordon búinn að skora, eftir
undirbúning Deehan og Channon.
Tarhan og
Derwall
reknir
Tyrkneska knattspymusambandið til-
kynnti fyrir helgi að búið væri að segja
landsliðsþjálfaranum Candan Tarhan
upp störfum og cinnig Jupp Derwall
sem var tæknilegur ráðunautur tyrkn-
eska sambandsins. Þessi brottrekstur
kom í kjölfar hins stóra taps, 0—8,
Tyrkja gegn Engiendingum í HM.
Jupp Derwall, fyrrum landsliðsþjálf-
ari V-Þýskalands, er þjálfari tyrkn-
eska liðsins Galatasarey frá Istanbul.
-SOS.
• Clive Walker — skoraöi þrjú mörk
gegn Man. Utd.
• John Gregory og Gary Bannister
tryggöu QPR sigur, 2—0, yfir Aston
Villa. 11.689 áhorfendur.
• Neil Webb skoraði bæði mörk
Portsmouth gegn Man. City en þeir
Gordon Smith og Kevin McKenzie
skoruöu fyrir City.
• Terry Connor skoraöi fyrsta mark
Brighton á 58. mín., en það dugði ekki
gegn „Boro”. David Mills skoraði bæði
mörk Middlesbrough.
• Blackburn er eina félagið í Eng-
landi, sem hefur alltaf skorað í leik.
Þeir Chris Thompson, Simon Garner
og Noel Brotherston skoruðu mörk fé-
lagsins (3—0) gegn Charlton.
-SigA/-SOS.
Deehan lagði síðan upp þriðja mark
(3—0) Norwich á 25. mín., sem Louie
Donowa skoraði.
Graham Sharp svaraöi fyrir
Everton, 3—1, á 27. mín. og síðan bætti
Kevin Sheedy marki við, 3—2, á 50.
mín. og Everton var búið að ná yfir-
höndinni. En þvert á gang leiksins náði
John Deehan aö skora, 4—2, fyrir Nor-
wich, eftir undirbúning Mike Channon
og Donowa.
Sögulegur leikur
á Roker Park
Manchester United mátti þola tap,
3—2, fyrir Sunderland á Roker Park
þar sem 25.405 áhorfendur sáu söguleg-
an leik — og þá sérstaklega fyrri hálf-
leik. United komst í 0—2 en þá tók Clive
Walker, fyrrum leikmaður Chelsea, til
sinna ráða og skoraði þrjú mörk og þá
voru tveir leikmenn látnir kæla sig.
Þaö voru þeir Mark Hughes og Dave
Hodgson, sem steyttu hnefa hvor
framan í annan og rak lélegur dómari
leiksins þá af leikvelli, þannig að liðin
léku með 10 menn mestan hluta leiks-
ins.
Bryan Robson kom United á bragðið
a 13. mín. og síðan bætti Mark Hughes
marki viö (0—2) á 15. mín.
Leikmenn Sunderland svöruöu, 1—2,
aöeins 60 sek. síðar, er Cliwe Walker
skoraði fallegt mark. Walker bætti
síðan tveimur mörkum við úr víta-
spyrnum — á 42. og 44. mínútu. Fyrst
var dæmt víti á Gary Bailey fyrir að
fella Gary Bennett og síðan á Gordon
McQueen fyrir aö brjóta á Stan Cumm-
ins.
Wark hetja Liverpool
John Wark skoraði tvö mörk hjá sín-
um gömlu félögum hjá Ipswich þegar
Liverpool lagöi Ipswich að velli, 2—0.
Wark skoraði bæði mörkin eftir undir-
búning frá Kenny Dalglish og Ian
Rush.
Fyrra mark hans var 100. deildar-
mark hans en hann hefur skorað 94
deildarmörk fyrir Ipswich. Þess má
geta aö Wark hefur skorað þrjú mörk
síðan Liverpool keypti Kevin
McDonald frá Leicester. 34.918 áhorf-
endursáu leikinn.
• Alvin Martin tryggði West Ham
jafntefli, 2—2, gegn Luton þegar hann
skoraði með skalla á 84. mín. Steve
Witton skoraði fyrst fyrir „Hammers”
á 9. mín., með þrumuskoti úr auka-
spyrnu af 25 m færi. Þeir Brian Stein
og Nígeríumaðurinn Emeka Nwajiobi
skoruðu mörk Luton, en Nwajiobi þessi
er læröur lyf jafræðingur.
• Stoke mátti þola sitt fimmta tap í
röð — 1—3 fyrir Watford. 10.564 áhorf-
endur sáu þá George Reilly, Wilf
Rostron og Luther Blissett skora mörk
Watford en Ian Painter skoraði mark
Stoke úr vítaspyrnu.
Enn skorar Dixon
Tottenham og Chelsea skildu jöfn,
1—1. 31.197 áhorfendur sáu leikmenn
Chelsea hafa betur í byrjun og skoraði
Kerry Dixon mark Chelsea á 5. mín. —
hans 19. mark, og síðan gat hann með
smáheppni bætt tveimur mörkum við.
Tottenham kom síðan inn í myndina og
Mark Falco náði að jafna, 1—1, á 47.
mín. — hans fyrsta mark í tólf leikjum.
• Southampton, sem hefur ekki
tapað í tólf leikjum, lagði Newcastle að
velli, 1—0, með marki Dave Arm-
strong. 18.895 áhorfendur.
Peysur verö áður kr. 595,-
buxur — — — 895.-
úlpur — — — 1.190.-
úlpur — — — 1.995.-
nú kr.
450.-
695.-
750.-
1.295.-
„Albio in með
gamla igrófa
Leeds-takta”
STAÐAN
l.DEILD
Everton 16 10 2 4 34—22 32
Tottenham 16 9 2 5 33—16 29
Man. United 16 8 5 3 31—21 29
Arsenal 16 9 2 5 31-23 29
WestHam 16 7 5 4 23—22 26
Sheff. Wed. 16 7 4 5 27-19 25
Southampton 16 6 7 3 20—17 25
Nottingham Forest 16 7 3 6 26—22 24
Liverpool 16 6 6 4 20—15 24
Chelsea 16 6 S 5 26-17 23
Sunderland 16 6 5 5 25—21 23
Norwich 16 6 5 5 25-23 23
WBA 16 6 4 6 28-23 22
Newcastle 16 5 6 5 28—30 21
Watford 16 4 6 6 33—34 18
Q P R 15 4 6 5 21—25 18
Aston Villa 16 4 S 7 20—32 17
Ipswich 16 3 7 6 17-23 16
Leicester 16 4 3 9 23-35 15
Coventry 16 4 3 9 15—28 15
Luton 16 3 S 8 19-33 14
Stoke 15 1 4 10 12—36 7
2. DEILD
Oxford 15 10 4 1 35—14 34
Blackburn 16 10 3 3 33—14 33
Portsmouth 16 9 5 2 26—15 32
Barnsley 16 8 5 3 18— 8 29
Birmingham 16 8 3 5 17—11 27
Leeds 16 8 2 6 27—20 26
Grimsby 16 8 2 6 33-27 26
Man. City 16 7 5 4 20-14 26
Fulham 16 7 4 5 19—20 25
Shrewsbury 17 6 6 5 30-26 24
Brighton 16 6 3 7 16—13 21
Wimbledon 16 6 3 7 28—33 21
Wolves 16 6 3 7 26-32 21
Charlton 16 5 4 7 23—22 19
Oldham 16 5 4 7 17—30 19
Carlisle 16 5 3 8 13-23 18
Middlesbrough 16 5 2 9 20-29 17
Sheff. United 16 3 7 6 23—27 16
C. Palace 16 3 5 8 20—25 14
Cardiff 16 3 1 12 20—37 10
Notts C. 16 2 1 13 15—38 7