Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Page 32
32
DV. MÁNUDAGUR 26. NOVEMBER1984.
fþróttir
fþróttir
fþróttir
fþróttir
Úrslitin réðust á
lokamínútunum
— Valur sigraði KR, 88—82, í jöfnum og spennandi leik
Þaö var mikil spenna rikjandi í
íþróttahúsi Hagaskólans i gærkvöldi
þegar Valur og KR öttu kappi í úrvals-
deildinni í körfuknattleik. Valsmenn
voru sterkari aöilinn og sigruðu með 88
stigum gegn 82 eftir að staðan í leikhléi
hafði verið jöfn, 40—40.
Fyrri hálfleikurinn var mjög spenn-
andi og aldrei munaöi mörgum stigum
á liðunum. Þegar tólf mínútur voru
liðnar af leik var staðan 24—24 og allt í
járnum.
KR-ingar byrjuðu síðari hálfleikinn
á því að skora tvær körfur en um miðj-
an hálfleikinn hafði Valur náð níu stiga
forustu og meirihluti viðstaddra á því
aö Valsmenn væru að stinga af. En
KR-ingar voru ekki á því að gefa sig og
þegar 13 mínútur voru liðnar af síðari
hálfleik, sjö mínútur til leiksloka, var
staöan enn jöfn, 73—73. Valsmenn síð-
an sterkari á lokamínútum leiksins
eins og áður sagði.
Tómas Holton lék vel fyrir Val og
skoraði 19 stig. Er Tómas orðinn einn
besti bakvörður landsins þrátt fyrir
ungan aldur. Kristján Ágústsson og
Jón Steingrímsson léku einnig vel fyrir
Val en þessir þrír leikmenn skópu
sigur liðsins öðrum fremur.
Hjá KR var Birgir Michaelsson
skástur en þeir Þorsteinn Gunnarsson
og Matthías Einarsson léku einnig vel í
gærkvöldi.
Dómarar voru þeir Sigurður Valur
Halldórsson og Jóhann Dagur og voru
mjög slakir.
Stig Vals: Tómas 19, Kristján 18, Jón
17, Björn 8, Jóhannes 6, Páll Arnar 6,
Torfi 6, Siguröur 2 og Leifur 2.
KR: Birgir 18, Þorsteinn 14,
Matthías 13, Ölafur 12, Ástþór 8 og
Birgir Jóhannsson 2.
Einkunnir leikmanna:
Valur: Tómas 3, Jón 3, Kristján 3,
Björn 1, Jóhannes 1, Páll Amar 1, Torfi
1, Sigurður 1 og Leifur 1.
KR: Birgir 3, Þorsteinn 2, Matthías 2,
Ölafur 1, Ástþór 1 og Birgir 1.
Dómarar: Sigurður Valur 1 og Jó-
hannDagurl. -SK.
• Lee Chapman skoraði gegn sínum
gömlu félögum.
; Atli fékk ;
; bronsí j
i Karlstad j
| Atli Einarsson tryggði sér brons- .
■ verðlaun í sínum þyngdarflokki á |
! Norðurlandamótinu í karate sem ■
| fór fram í Karlstad í Sviþjóð um I
- heigina: Atli lagði Árna Einarsson I
I að velli, þannig að Árni varð í *
Ifjórðasætií60kgflokknum. I
Jónína Olesen varð fjórða í kata :
I kvenna, sem er mjög góður |
■ árangur, þar sem NM var fyrsta ■
I alþjóðlega mót hennar. |
Finnar urðu sigurvegarar í sveita- ■
I keppninni, Norðmenn í ööru sæti, I
ISvíar í þriðja og Islendingar í I
fjórða. ■
IÁætlað er að NM í karate verði I
haldið næst í Reyk ja vík. _
Lb ■■ ■■ ■ mm wmm tmm mmm ■!
Leei Chapn nan skor-
aði gegn Arsenal
þegar Sheffield Wed. lagði Lundúnaliðið að veili, 2-1, íf jörugum leik
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, frétta-
manni DV i Englandi:
— Sheffield Wednesday lagði
Arsenal aö veill, 2—1, í fjörugum og
æsispennandi leik sem fór fram á Hills-
borough í Sheffield í gær — og var
leiknum sjónvarpað beint. Það var Lee
Chapman, fyrrum leikmaður Arsenal,
sem kom Sheff. Wed. á bragðið á
«C
• Jónas Jóhannesson sést hér skora
tvö stig fyrir Njarðvík en ÍR-ingurinn
Gyifi Þorkelsson er til varnar.
DV-mynd Brynjar Gauti.
Leikur kattarins
að músinni
— þegar íslandsmeistarar Njarðvíkur unnu ÍR, 116—82
Njarðvíkingar áttu ekki í miklum
erfiðleikum með að tryggja sér sigur
gegn slökum IR-ingum er efsta og
neðsta lið úrvalsdeildar mættust í
íþróttáhúsi Seljaskólans í gærkvöldi.
Lokatölur urðu 116—82 og staðan í leik-
hléi var59—40.
Leikurinn er nokkuö jafn til aö byrja
meö en fljótlega sigu Njarövikingar
fram úr og náöu miklu forskoti fyrir
leikhlé. I síðari hálfleik náðu ÍR-ingar
aðeins að rétta sinn hlut og um miöjan
síðari hálfleikinn var staðan 78—65 en
Njarðvíkingar skoruöu síðan grimmt
Steve Archibald
á skotskónum
skoraði tvö mörk fyrir Barceiona
Skotinn Steve Archibald skoraði tvö
mörk fyrir Barcelona í gær þegar
félagið vann Real Valladolid í spönsku
1. deildar keppninni, 4—2. V-Þjóðverj-
inn Bernd Schuster skoraði eitt og
fjórða marklð skoraöi svo Jose
Alasanco.
Real Madrid lagöi Real Murcia að
velli, 1—0, með marki sem Argentínu-
maðurinn Jorge Valdano skoraði úr
vítaspyrnu.
Barcelona er efst á Spáni, með 22
stig eftir þrettán umferðir og hefur
félagið ekki tapað leik. Real Madrid er
meö 17 stig og síðan koma Atletico
Madrid og Valencia með 16 stig. -SOS
síðasta hluta leiksins og sigur þeirra
var stór.
Njarðvíkurliðiö var mjög jafnt í
þessum leik og er ekki annað aö sjá en
erfitt verði að stööva íslandsmeistar-
ana á sigurgöngu þeirra. iR-ingar eru
hins vegar ekki á neinni sigurgöngu og
mikið má vera ef liöiö fellur ekki í 1.
deild eftir þetta Islandsmót. Má veröa
mikil breyting á Ieik liösins ef svo á
ekkiaðfara.
Stig UMFN: Valur 25, Isak 21, Árni
18, Gunnar 12, Hreiðar 10, Ellert 10,
Helgi 9, Jónas 7 og Teitur 4.
IR: Hreinn 21, Kristinn 11, Björn 10,
Vignir 8, Gylfi 8, Karl 8, Hjörtur 7,
Ragnar 5 og Guðbrandur 4.
Einkunnir leikmanna UMFN: Valur
3, Isak 3, Arni 3, Gunnar 1, Jónas 1,
Hreiðar 1, Helgi 1, Ellert 1, Teitur 1.
IR: Hreinn 2, Kristinn 1, Gylfi 1,
Björn 1, Karl 1, Hjörtur 1, Vignir 1,
Ragnar 1 og Guðbrandur 1.
Einkunnir dómara: Jón Otti Olafs-
son og Kristinn Albertsson dæmdu
leikinn og fá báðir 3 í einkunn enda
dæmdu þeir vel.
-SK.
15.mín. leiksins, þegar hann skaliaði
knöttinn í þaknetið á marki Arsenal,
eftir að hafa fengið sendingu frá Gavin
Oliver. Chapman kastaði sér fram og
Pat Jennings, markvörður Arsenal,
gerði heiðarlega tilraun til að verja
skalla hans en án árangurs.
Wednesday var nær búið að bæta við
marki á 35. mín. en þá átti Brian
Marwood skot í stöngina á marki Ar-
senal, eftir að hafa komist einn inn
fyrir vörn Lundúnaliðsins.
Arsenal náöi að jafna, 1—1, á 70.
mín. eftir mikla pressu. Þá sendi
Charlie Nicholas kriöttinn fyrir mark
Wednesday, þar sem Ian Allison
skallaði að marki. Peter Shirtliff
bjargaði á marklínu en sendi knöttinn
til Tony Woodcock sem þakkaði fyrir
sig og skoraði.
Aöeins þremur mín. seinna var Mark
Smith búinn að skora 2—1 fyrir Sheff.
Wed. Andy Blair tók þá aukaspyrnu og
sendi knöttinn fyrir mark Arsenal, þar
sem Mark Smith stökk hátt upp og
skallaði knöttinn í netið. Jennings
reyndi að verja en náði ekki nema að
slá knöttinn áfram í netið.
Arsenal sótti grimmt eftir markið og
átti Brian Talbot skot í þverslána úr
aukaspyrnu á 75. mín. og Tony Wood-
cock komst í gott færi rétt fyrir leiks-
lok, en þá varöi Martin Hodge, mark-
vörður Wednesday, hreint ótrúlega.
Upp úr því fengu leikmenn Arsenal
tvær hornspyrnur og þá brást þeim
Paul Davies og Allison bogalistin er
þeir voru í góðu færi.
• Nottingham Forest lagði Leicester
að velii, 2—1, á City Ground. Peter
Davenport skoraöi bæði mörk Forest
en Ian Banks skoraði fyrir Leicester.
• Aston Villa lagði landsliö Ástralíu
að velli, 2—0, á Villa Park. Ástralíu-
menn mæta Arsenal á þriðjudaginn á
Highbury.
-SigA./-SOS.
„Farið ekki
til Dundee
miðalausir!”
Forráðamenn Dundee United óttast nú
„innrás” áhangenda Manehester United,
þegar félögin mætast í Dundee 12. desember í
UEFA-keppninni. Búist er við að um 12 þús.
áhangendur Man. Utd. mæti til leiks í
Skotiandl.
— Við gctum ekki tekið á móti svo
mörgum, sagði einn af forráðamönnum
Dundcc Utd. Þess má geta að forráðamenn
Man. Utd. hafa óskað þess að enginn áhang-
andi félagsins haldi til Skotlands — miðalaus.
-SOS.
Verona heldur
sínu striki
— er með þriggja stiga forskot á Ítalíu
Verona hélt sigurgöngu sinni áfram
á ítalíu í gær, þegar félagiö lagöi
Torínó að velli, 2—1, í Torínó. Það var
v-þýski Iandsliðsmaöurinn Hans-Peter
Briegel sem kom Verona á bragðið
með þrumufleyg og hann lagði síöan
upp sigurmarkið sem Luciano
Marango skoraði, en í millitíöinni hafði
Austurríkismaðurinn Walter
Schachner skorað fyrir Torínó.
Michel Platini skoraði tvö mörk fyrir
Juventus, sem vann góðan sigur, 3—0,
yfir Udinese.
Trevor Francis skoraði sigurmark
Sampdoría 1—0 gegn AC Mílanó — úr
vítaspyrnu.
Argentínumaðurinn Daniel Bertoni
skoraði mark Napoli (1—0) gegn
Cremonese. Roma varð að sætta sig
við jafntefli, 0—0, gegn Ascoli á útivelli
og Fiorentína og Inter Mílanó gerðu
1—1 jafntefli.
Verona er efst á Italíu með 17 stig
eftir tíu umferðir. Torínó og
Sampdoría eru með 14 stig, Inter
Mílanól3ogACMílanóll. -SOS.
fþróttir
íþróttir
fþróttir
fþróttir