Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Síða 47
DV. MÁNUDAGUR26. NOVEMBER1984.
47
Sandkorn
Sandkorn
Sandkorn
Ölafur Thors undirritaði greinar-
gerft sem m.a. gerði ráð fyrir kyn-
þáttaaðskilnaði um borð í skipum.
Kynþátta-
fordómar
Það halda víst flcstir að ís-
lensk löggjöf hafi alltaf veriö
laus við allt sem heitir kyn-
þáttafordómar. Svo er þó alls
ekki. Fram til ársins 1979
gUtu „Reglur um eftirlit með
skipum og öryggi þeirra”
sem Ölafur Thors uudirritaöi
20. janúar 1953. Grein númer
195 í þeim reglum hcitir
„Annarra kynstofna fólk” og
þar segir: „Ef á skipi eru
samau að staðaldri hvítir
menn og menn af öðrum kyn-
stofnum, skulu, ef ástæður
þykja til, vera sérstakir
svefnklefar handa hvorum,
einnig skulu þeir vera sér um
salerni. Ef þeir, sem ekki eru
hvítir, matreiða fyrir sig
sjálfir, skal ætla þcim sér-
stakteldhús.”
t reglugerð frá 1979, sem
fjallar um vistarverur í skip-
um, er þessi grein feUd niður.
Nú er aöeins gerð krafa um
sérklósett fyrir kynþættína.
★
Lýsi út
og inn
Mikið hcfur verið rætt um
lýsi að undanförnu og ekki að
ástæðulausu. Vísindamenn
þykjast nú vissir um það sem
allir aðrir vissu fyrir löngu,
að lýsi sé hollt og gott. Eins
og fram hefur komið í Sand-
korni og víðar hafa Vest-
mannaeyingar sett á mark-
aðinn neytendalýsi sem er
ætlað til að keppa við lýsið frá
Lýsi hf. Það vekur hins vegar
nokkra athygli hvaða leið það
kemur inn á íslenska markað-
inn og sannast kannski þar að
Eyjamenn standi öðrum þjóð-
um en íslendingum nær.
Eyjalýsið er nefnUega pakk-
að í Englandi og sent með
skipum til íslands. Það er því
orðin löng leiðin sem lýsið
hefur farið áður en það kemst
til neytenda á islandi, þessu
nágrannalandi Vestmanna-
eyja. Menn hljóta sannarlega
að velkjast í vafa um hvort
Eyjalýsið skuii teljast innan-
landsframleiðsla eða inn-
%
flutningur.
★
Við skál
Matarmenning islendinga
Ekkicrvitaftí hvaða víni þcssi
kjúklingur var matreiddur en von-
andi cr hann ckki ofurölvi.
er komin á hátt stig, um það
vcrður ekki dellt. Eins og
auglýsingar frá matsöiustöð-
um á Akureyri og Dalvík bera
með sér kunnum við nú vel þá
list að bragðbæta nánast
hvað sem er með hinum og
þessum tegundum víns:
koníaksbætt sjávarréttasúpa,
fcrskir ávextir í likjör.
hvítvínssoðnar laxasneiðar,
púrtvínslegnir ávextir,
madeiralegin kjúklingalifur,
eldsteiktur turnbauti mcð
bakaðri kartöflu og rauðvíns-
sósu.
Þetta sull með v'tn í eldhús-
inu gctur dregið dilk á eftir
sér. Sjálfsagt er frcistandi
fyrir kokkana að smakka oft-
ar en bráönauösynlegt er en
þeir ættu þá að halda víninu
frá blessuðum dýrunum.
„Drukkinn kjúklingur með
kryddsósu ” auglýsti Bautínn
um síðustu helgi. Það er sko
allt í lagi að borða vel mat-
reiddan og edrú kjúkling en
mikið hlýtur að vera skraut-
legt að fást við hann blindfull-
an.
Að læra
að vinna
Heyrst liefur að Magnús H.
Ölafsson, sjúkraþjálfari hjá
Sjálfsbjörg á Akureyri, hafi
sagt upp störfum þar. Hann
hefur starfað meira og minna
í 14 ár hjá Endurhæfingar-
stöðinni Bjargi og á drjúgan
þátt í þeirri miklu uppbygg-
ingu scm þar hefur verið.
Hann var lUía hvatamaður að
stofnun Iþróttafélags fatl-
aðra og hefur mikið unnið í
sambandi við þáð.
Magnús mun ætla að halda
áfram að ryðja nýjar brautir.
Hann hefur í hyggju að bjóða
fyrirtækjum ráðgjöf varð-
andi vinnuaöstöðu og vinnu-
tækni. Þetta hefur verið kaU-
að iðjufræði og er vaxaudi
grein á Noröurlöudum. TaUð
er aö miklir fjármunir fari í
súginn hér á landi og annars
staðar vegna sjúkdóma sem
rekja má beint til rangra
vinnubragöa og lélegrar
vinnuaðstöðu. Á þann risa
ætlar Magnús að ráðast.
Umsjónarmaður:
Jón B. Ilalldórsson
Kvikmyndir Kvikmyndir
Bíóhöllin—YEHTL ***
MIÐALDRA FRÆNKA
í DULARGERVI
YEIMTL, bandarísk 1983.
Handrit: Jack Rosenthal, Barbra Streisand
eftir sögu Isaac Bashevis Singer.
Leikstjóri: Barbra Streisand.
Aðalhlutvork: Barbra Streisand, Mandy
Patinkin, Amy Irving og Nehemiah Persoff.
Yentl, kvikmyndin sem enginn
vildi gera, nema Barbra Streisand.
Hún gerði sér lítiö fyrir og leikstýrði,
framleiddi, söng og lék aðalhlutverk-
ið í myndinni. Yentl var líka ætlaö að
vera stórmynd sem myndi hreppa
óskarsverðlaun. Streisand féU þó í
skuggann fyrir Steven Spielberg þeg-
ar að úthlutun kom en mætti e.t.v.
vera þakklát fyrir.
Myndin er kvikmynduð í Tékkó-
slóvakíu og er sviðsetningin mjög
sannfærandi. Yentl er gyöingastúlka
sem á þá ósk heitasta að menntast.
Heimspeki gyðinga ætlar konum
hins vegar annaö hlutskipti en að
setjast á skólabekk. Konur eiga að
I
vera undirgefnar eiginmönnum sín-
um og einungis að vita hver er uppá-
haldsmaturinn þeirra. Yentl tekur
því þaö ráð að dulbúast sem karl-
maður til þess að fá að ganga í skóla.
Þegar Yentl, sem nú kaUar sig
Anshel, sest á skólabekk með ein-
tómum karlmönnum kemur ástin
auðvitað tU skjalanna eins og í öUum
góðum sögum. Yentl kynnist
Avidgdor og unnustu hans, Hadass,
og allir verða ástfangnir í kross og
mikil ringulreið skapast vegna
blekkingaleiks Yentl. Spennan hleöst
upp og áhorfendur velta fyrir sér
hvort komist upp um Yentl en Streis-
and minnir helst á miðaldra frænku
á grímubaUi í dulargervinu.
Helsti galU myndarinnar er hve
Streisand tekst illa að fá áhorfendur
tU að gleyma dulargervinu. Hún er
auðvitað skegglaus og aUar hreyf-
ingar kvenlegar í meira lagi, svo
ekki sé minnst á röddina. Annar gaUi
er aUt sönglið en menn mega varla
hverfa fyrir horn því þá hefur Streis-
and upp raust sína og syngur af mik-
illi innUfun. TónUstin í myndinni nýt-
ur sín þó í fjögurra rása stereo.
Það er áugljóslega ekkert sparað
við gerð myndarinnar en það vantar
samt eitthvaö tU að gera heillandi
sögu sannfærandi. Amy Irving, sem
leikur Hadass, skilar hlutverki sínu
vel og af mnlifun. Þaö sama má
reyndar segja um Mandy Patinkin í
hlutverki Avidgdors. En Streisand,
aöalstjarnan, kemur erns og skratt-
inn úr sauðarleggnum í hlutverki
Yentl: kona á fimmtugsaldri í hlut-
verki kornungrar gyðingastúUm sem
auk þess læst vera gyðingastrákur.
Elm Hirst
CANNON-VÖRURNAR
STUÐLA AÐ VELFERÐ
BARNSINS
Skoðið CANNON-barnavörurnar
í næstu lyfjaverslun.
Kvikmyndir
Kvikmyndir