Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Blaðsíða 23
22
DV. FIMMTUDAGUR13. DESEMBER1984.
DV. FIMMTUDAGUR13. DESEMBER1984.
23
fþróttir
íþrótt
íþróttir
Southampton
grátt leikið
— og QPR áf ram í Milk Cup
QPR lék Southampton sundur og saman á Loftus
Road, leikvelli sínum í Lundúnum, í gærkvöid í
þriö ja leik liðanna í Milk Cup. Sigraði 4—0 (3—0), og
það stóð ekki steinn yfir steini í vörn Southampton á
gervigrasinu. Gary Waddock skoraði fyrsta mark
leiksins á 17. mín. en áður hafði Peter Shilton varið
frábærlega frá John Gregory og auk þess hafði
Gregory átt skot í þverslá. Warren Neill bakvörður
skoraði annað mark QPR og fyrirliðinn, Terry Fen-
wick, það þriöja fyrir leikhléið. í síöari hálfleik
skoraði Ian Stewart fjórða mark Lundúnaliðsins
sem ieikur við Ipswich á útivelli í 8-liða úrslitum 15.
eða 16. janúar.
í FA-bikarkeppninni sigraði Hereford Plymouth,
2—0, og leikur á heimavelli við Arsenai í 3. umferð.
hsím.
Þórarar slakir
gegn Stjörnunni
Frá Friðbirni Ó. Valtýssyni, Vestmannaeyjum.
Stjarnan úr Garðabæ vann auðveldan sigur á Þór
hér í Vestmannacyjum í gærkvöld í 1. deildinni í
handknattleiknum, 24—19, eftir 7—11 t hálfleik.
Stjarnan var alltaf sterkara liðið í leiknum gegn
slöku Þórs-iiði og hafði forustu frá upphafi til enda.
Það er erfið fallbarátta framundan hjá Þórurum.
Þeir verða auðveid bráð hvaða 1. deildar liði sem er
ef þeir leika áfram eins og í gærkvöld.
Þeir Hannes Leifsson og Magnús Teitsson, sem
lék þó lítiö, voru bestu menn Stjömunnar en Sig-
björn Oskarsson hjá Þór. Þórarar tóku aöeins við
sérframanaf s.h. Minnkuðu þá muninn í 10—12, síð-
an 13—15 en síðan sprakk allt hjá þeim og eftirleik-
urinn var auðveldur.
Mörk Þórs skoruðu Sigbjörn 7, Herbert Þorleifs-
son 4/2, Gylfi Birgisson 3, Oskar Freyr 2, Steinar
Tómasson 2 og Elías Bjarnason eitt. Mörk Stjöm-
unnar: Hannes 7, Magnús 5/2, Eyjólfur Bragason 4,
Hermundur Sigmundsson 3, Sigurjón Guðmundsson
2, Gunnlaugur Jónsson, Ingimar Haraldsson og
Guðmundur Þórðaron eitt hver. Dómarar Rögn-
valdur Erlingsson og Gunnar Kjartansson og höll-
uöu heldur á heimamenn. Sjö af leikmönnum Þórs
vikið af velli, þremur í Stjörnunni.
11. deild kvenna sigraöi Þór, Akureyri, IBV 21—
18 í Eyjum í gærkvöld.
FÓV/hsím.
Létt hjá Tottenham
Miðherji Tottenham, Mark Falco, gerði raun-
verulega strax út um viðureign Bohcmians og
Tottenham í UEFA-keppninni í Prag í gærdag
þegar hann skoraði eftir aðeins sjö mínútur. Tony
Galvin gaf vel fyrir og Falco skallaöi í mark. Eftir
markið þurftu Tékkarnir að skora fjögur til að
sigra. Á því áttu þeir aldrei möguleika.
Leikurinn var grófur og sjö leikmenn bókaðir, þar
á með Graham Roberts sem þar með missir fyrri
leik Tottenham í 8-liða úrslitum. Einnig Falco og
Miller og fjórir Tékkar. Jafntefli varö, 1—1, Prokes
tókst að jafna á 51. mín. Fleiri urðu ekki mörkin og
UEF A-meistararnir sigruöu því 3—1 samanlagt.
Tékkneska liðiö, sem er vel efst í 1. deildinni tékk-
nesku, lék ekki nálægt því eins vel í gær og í fyrri
leik liðanna í Lundúnum. Völlurinn erfiður. Hiti við
frostmark, Glenn Hoddle slasaöist á hné rétt í lok
fyrri hálfleiks og var fluttur beint á sjúkrahús.
Mabutt kom í hans staö. Löngu fyrir leikslok
flykktust áhorfendur af velli, svo vonlaust var það
þó Tékkar væru meira með knöttinn. Lið Tottenham
var þannig skipaö. Clemence, Perryman, Roberts,-
Miller, Houghton, Stevens, Hoddle (Mabutt),
Chiedozie, Falco Crooks (Thomas 87. mín.) og
Galvin.
-hsím.
Celtic tapaði
Austurríska liðið Rapid Vín sló Celtic út í Evrópu-
keppni bikarhafa á Old Trafford í Manchester í gær-
kvöid. Samanlagt 4—1. Peter Pacult skoraði eina
markið í gær á 18. min. og lítið annað gerðist í leikn-
um. Hins vegar á Celtic yfir höfði sér sektir eða
jafnvel bann í Evrópukeppni vegna framkomu
áhorfenda. Yfir 40 þúsund komu frá Glasgow. í f.h.
var þremur flöskum kastað að leikmönnum Rapid
og í þeim síðari varð að stöðva leikinn þegar einn
áhorfenda hljóp niður á völlinn og sló markvörð
Kapid í andlitið. Lögreglan sagði í gær að mál yrði
höföað gegn tveimur áhorfendum.
hsím.
Þorbjörn Jensson—fyrirliði landsliðsins, styðst við hækjur þessa dagana.
DV-mynd KristjánAri.
LANDSLIÐS-
FYRIRLIÐINN
FRÁ KEPPNI
Þorbjörn Jensson hef ur verið skorinn
upp við meiðslum í hné
Þorbjörn Jensson, fyrirliði íslenska
iandsliðsins t handknattleik, þarf að
taka sér þriggja vikna frí frá hand-
knattieik og mun hann ekki leika meö
Valsmönnum gegn Stjörnunni á laug-
ardaginn og FH á miðvikudaginn kem-
ur.
— Ég hef lengi fundið til í hné og eftir
að hnéð var speglaö kom í ljós að liö-
þófi var eyddur, sagði Þorbjörn í stuttu
spjalli við DV í gær. Þorbjörn var skor-
inn upp á mánudaginn og veröur hann
að taka sér frí frá handknattleik næstu
þrjár vikurnar. Hanr, cr nú á hækjum
og má ekki fara að stíga í fótinn fyrr en
í næstu viku þegar búið er að taka
saumana úr.
Það er mikið áfall fyrir Valsmenn aö
missa Þorbjörn í þeim erfiðu leikjum
sem framundan eru hjá þeim — gegn
Stjörnunni og FH.
-sos
Fyrsta tap Dundee
Utd. í Evrópukeppni
í heimavelli í 5 ár
— Man.Utd. sigraði 3-2 í UEFA-keppninni í gærkvöld
„Þessi leikur gat endað á hvorn veg-
inn sem var, mikið jafnræði með liðun-
um. Opinn leikur tveggja sóknarliða og
tvisýnn. Spenna mikil ailan leikinn og
varnarmistök áberandi hjá báöum lið-
um,” sagði kappinn kunni, skoski
landsliðsmaöurinn hér á árum áður
Dennis Law, eftir að Man. Utd. hafði
sigrað Dundee Utd., 3—2, í UEFA-
keppninni í Dundee í gærkvöld og því
samanlagt 5—4. Fyrsti tapleikur
Dundee-liðsins á heimavelli í Evrópu-
keppni í fimm ár og leikurinn bauð upp
á gífurlega spennu. Enska liðið þó allt-
af fyrra til að skora.
Strax á 12. mín. skoraði Man. Utd.
Fékk aukaspyrnu sem Duxbury tók,
Strachan og Stapleton léku saman við
vítateiginn. Af varnarmanninum
Narey fór knötturinn til Mark Hughes
sem skoraði örugglega hjá McAlpine,
hinum 37 ára markverði sem hélt liöi
sínu á floti með stórleik á Old Trafford
fyrir hálfum mánuði.
Heimaliöið haföi þó byrjað betur og
markið kom eins og köld vatnsgusa
framan í áhorfendur. Þeir voru eins
margir og frekast rúmaöist, 22.250, en
aðeins 500 þeirra frá Manchester.
Dundee Utd. tókst fljótt að jafna.
David Dodge skoraði á 25. mín. eftir
fyrirgjöf Sturrock. Vörn Man. Utd.
hriplek og miðverðirnir McQueen og
Duxbury unnu varla skallaeinvigi í
vítateignum. Skotarnir nýttu það meö
því að dæla öllum aukaspyrnum inn í
vítateiginn og þar var Frank Staple-
ton, miðherjinn, oftast besti varnar-
maðurinn.
Man. Utd. komst aftur yfir á 40. mín.
eftir hornspyrnu Strachan. Stapleton
skallaði aftur fyrir sig að markinu og
varnarmaðurinn McGinnis sendi
knöttinn í eigið mark. Tveimur mín.
Ósanngjarn sigur hjá
FH gegn Breiðabliki
— sigraði með tveggja marka mun, 25-23, í 1. deild
ígærkvöldi
Það er ekki hægt aö segja að íslands-
meistarar FH hafi átt skilið að fara
með sigur af hólmi gegn Breiðabiiki í
leik liðanna í 1. deild í handknattleik í
Hafnarfirði í gærkvöldi. FH sigraði,
25—23, eftir að staðan í leikhiéi hafði
verið jöfn, 11—11.
Leikurinn var jafn allan tímann og
Blikarnir lengst af mun ákveðnarí.
Dómarar leiksins voru allan tímann
mun hagstæðari FH-ingum og um
þverbak keyrði í byrjun síðari hálf-
leiks þegar þeir vísuöu Kristjáni Þ.
Gunnarssyni af leikvelli fyrir lítið sem
ekkert brot. Þetta hafði slæm áhrif á
leik nýliðanna og menn stóðu á öndinni
af undrun.
FH-ingar byrjuöu leikinn á þvi að
misnota tvö vítaköst, Kristján skaut í
stöng og Hans lét verja frá sér. Jafnt
var á öllum tölum til leikhlés og það
var ekki fvrr en í lokin að FH-ingar
náðu að sigla fram úr.
Mörk FH: Hans 6, Kristján 5 (1 v.),
Þorgils Ottar 5, Guðjón 4, Pálmi 4 og
JónErlingl.
Mörk Breiðabliks: Kristján Hall-
dórsson 8 (1 v.), Björn 6 (3 v.), Aðal-
steinn 4, Kristján Þ. 2, Magnús 2 og
Brynjar2.
Leikinn dæmdu þeir Hákon Sigur-
jónsson og Arni Sverrisson og dæmdu
þeir mjög illa. Voru mjög hliðhollir
FH-ingum. Sérlega var Arni slakur.
-SK
Urslitin ÍUEFA
• í Prag: Bohemaians Prag (Tékkóslóva-
kia) Tottenham 1—1 (1—1). 17.500 áhorfend-
ur. Mörkin: Mark Falco 0—1 á 8. min. og
Prokes 1—1 á 51. min.
• Tottenham vann samanlagt 3—1.
• I Sarajevo: Zeljeznicar (Júgóslavíu) —
Craiova (Rúmeníu) 4—0 (2—0). 20þús. áhorf-
endur. Mörkin: Skoro (32. mín.), Samardzija
(45.),Mihajlovic (62.) og Nikic (83.).
• Zeljeznicarvann samanlagt 4—2.
• I Tbilisi: Dynamo Minsk (Rússland) —
Widzew Lodz (Pólland) 0-1 (0-1). 20 þús.
áhorfendur. Dzekanowski skoraöi sigurmark
Lodz úrvítaspymuá 10. mín.
• Dynamo Minsk vann samanlagt 2—1.
• I Belgrad: Partizan Belgrad (Júgóslavíu)
— Videoton (Ungverjalandi) 2—0 (2—0). 10
þús. áhorfendur. Mörkin skoruðu þeir Zivko-
vic (6.) og Varga (45.).
Videoton vann samanlagt 5—2.
• I Köln: 1. FC Köln — Spartak Moskva
(Rússlandi) 2—0 (1—0). 35 þús. áhorfendur.
Uwe Bein (24.) og Pierre Littbarski (75.)
skoruöu mörkin.
• 1. FC Köln vann samanlagt 2—1.
• I Dundee: Dundee Utd. — Man. Utd. 2—3
(1—2). 22.250 áhorfendur, uppselt. Mörkin.
Dundee U. Davie Dodds 25. mín. Paul Heg-
arty 56. min. Man. Utd. Mark Hughes 12. mín.
Gary NcGinnis 40. mín. sjálfsmark, Arnold
Miihren 78. mín.
• Man. Utd. vann samanlagt 5—4.
• I Mílanó: Inter — Hamborg 1—0. Ahorf-
endur 82 þús., Liam Brady skoraöi markið úr
vítaspymuá78. mín.Samanlagt2—2.
Inter áframá útimarki.
• I Madrid: Real Madrid — Anderlccht 6—1
(4—1). Áhorfendur 95 þúsund. Mörk Real.
Sanchis 3. mín, Butragueno 16., 47. og 49.
Valdano 29. og 39. mín. Anderlecht. Frank
Amesen33.mín.
Real Madrid vann samaiilagt 6—4.
Hollendinguriiin Arnold Miihren skor-
aði sigurmark Man. Utd. í Dundee.
síðar komst Stapleton í dauðafæri en
lét McAlpine verja. „Þetta var auðvelt
tækifæri, Frank hefði átt aö skora,”
sagöi Law.
I stað þess jafnaöi Dundee Utd.
snemma í síöari hálfleik. Aukaspyrna,
knettinum spyrnt inn í vítateiginn.
Miðvörðurinn sterki, Paul Heggarty,
skallaði í mark. Spennan gífurleg og
áhorfendur heldur betur með á nótun-
um. Heimaliöiö sótti meira. Bannon
átti skot í þverslá. Fékk margar auka-
spyrnur og eftir þær var darraðardans
í vítateig Man. Utd. Bryan Robson,
fyrirliði Man. Utd., bókaður en hann
var oft tekinn af hinum áköfu Skotum.
Báðir leikir
Víkings hér?
„Þetta lítur mjög vel út og við erum mjög
bjartsýnir á aö okkur takist að semja um að
leika báða leikina hér á landi,” sagði Hallur
Hallsson, stjórnarmaður hjá handknattleiks-
deild Víkings, í samtali við DV í gærkvöldi.
„Við höfum verið í stöðugu sambandí víð
Júgóslavana að undanförnu og ég tel miklar
líkur á þvi aö við getum leikið báða leikina
í Laugardalshöllinni,” sagði Hallur.
Víkingar eiga að mæta júgóslavneska liðinu
Zcernevka og er það að mestu skipað júgó-
slavneskum landsliösmönnum.
-SK.
STAÐAN
l.DEILD
Staðan er þessi í 1. deiidar keppninni, eftir
leikina í gærkvöldi:
Þór—Stjaman
Þróttur—Vikingur
FH—Breiöablik
FH
Stjarpan
Víkingur
Valur
KR
Þór, Ve
Þróttur
Breiðablik
19-24
28—28
25-23
4 4 0 0 97—83 8
4 2 1 1 93—84 5
3 1 2 0 72—68 4
2 1 1 0 52-40 3
3 1 0 2 63—59 2
4 1 0 3 79^92 2
4 0 2 2 83—97 2
4 1 0 3 83—99 2
Næstu leikir: Þór—Þrótiur á laugardaginn
og á sunnudaginn: KR—Breiöablik, Valur—
Stjaraan og FH—Víkingur.
íþróttir
íþrótt
íþróttir
íþróttir
íþróttir
En Man. Utd. var alltaf hættulegt í
sóknaraðgerðum sínum. Moses átti
hörkuskot á markið sem þulir BBS
bókuðu mark en McAlpine varði á
undraverðan hátt. Síðan varði hann
tvívegis á skömmum tíma áður en
Hollendingurinn Miihren skoraði
sigurmark Man. Utd. á 78. mín. eftir
hornspyrnu. Sex leikmenn Dundee
Utd. milli hans og marksins en inn fór
knötturinn, efst í vinstra hornið.
McAlpine sá ekki knöttinn. Þar með
var staðan mjög góö fyrir enska liöið.
Dundee Utd. þurfti aö skora tvívegis til
að sigra. Það tókst ekki. Lið Man. Utd.
var þannig skipaö: Bailey, Gidman,
Duxbury, McQueen, Albiston, Moses,
Robson, Miihren, Strackan, Stapleton
og Hughes. Púað var á Skotann
Strackan í hvert skipti sem hann fékk
knöttinn. Hann fæddist í Dundee.
hsim.
Aðeins 23
áhorfendur
— sáu Þrótt og Víking
gera jafntef li, 28-28
Karl Þráinsson tryggði Víkingum
jafntefli, 28—28, við Þróttara í Laug-
ardalshöllinni í gærkvöldi — í mikl-
um delluleik sem aðeins 23 áhorfend-
ur sáu. Karl skoraði jöfnunarmarkiö
þegar aðeins þrjár sek. voru til leiks-
loka, eftir að Þróttarar höfðu sofnað
á verðinum. Þeir höfðu rétt áður
skorað, 28—27.
Þaö voru 34 mörk skoruð í fyrri
hálfleik — staöan þá jöfn, 17—17.
Þróttarar höfðu frumkvæðið í seinni
hálfleiknum — og voru oft tveimur
mörkum yfir, síðast 26—24.
Það vakti athygli að Víkingar
leyföu sér þann munað að mæta með
aðeins tíu menn til leiks.
Mörkin í leiknum skoruðu:
Þróttur: Sverrir Sv. 6, Gísli 5, Birgir S. 5/1,
Konráð 5, Páll 4 og Lárus 3.
Víkingur: Þorbergur 9, Viggó 5, Karl 6,
Hilmar 3, Einar 2, Siggeir 2 og Guömundur 1.
-SOS|
Pálmi Jónsson, FH, fer til Svíþjóðar.
Pálmi tók
tilboði f rá
Vasalund
Páimi Jónsson, hand- og knatt-
spymumaður úr FH, hefur ákveðið aö
taka tilboði 2. deildarliðsinsVasalund í
Svíþjóð og leika með því knattspymu
næsta keppnistímabil. Pálmi mun
einnig stunda nám í Stokkhólmi. Hann
heldur til Svíþjóðar 3. janúar.
-sos
Júgóslavi
þjálfar
Austurríki
Júgóslavinn Branko Elsner, sem er
55 ára íþróttaprófessor, var í gær
ráðinn landsliðsþjálfari Austurrikis —
og mun hann taka við landsliöinu 15.
janúar. Elsner tekur við af Erich Hof,
sem sagði starfi sínu lausu fyrir
nokkrum vikum. Aðstoðarmaður
Elsner hefur verið ráðinn Gustav
Starek, fyrrum leikmaður Bayem
Miinchen og landsliðs Austurríkis.
-SOS.
Þýsku þulirnir
héldu með Inter
—þegar ítalska liðið sló Hamborg út
Frá Hilmari Oddssyni, fréttamanni
DV í Þýskalandi.
Inter Milanó komst í 8-Iiða úrslit
UEFA-keppninnar eftir að hafa sigrað
Hamburger SV, 1—0, í Mílanó í gær-
kvöldi í geysilega spennandi og tvísýn-
um leik. írinn Liam Brady skoraði erna
mark leiksins úr vítaspyrnu á 78. mín.
ítalska liðið kom knettinum í mark
Hamborgar rétt áður en dómarinn
hafði flautað og dæmt hendi á Schröder
innan vítateigs. Vítaspyrna og Brady
skoraði af miklu öryggi í hægra hornið.
Leiknum var sjónvarpað beint til V-
Þýskalands og víðar um Evrópu.
Löngu uppselt og það kom nokkuð á
óvart að Hamborgarar höfðu í fullu tré
við ítalska liðiö. Léku miklu betur en
þeir hafa gert í Bundesligunni í vetur.
Hamborg fékk fyrsta færiö, Magath,
á 14. mín. en markvöröur Inter rétt
náði aö verja. Þá kom aö Itölum.
Mandolini átti skot á markið á 28. mín.
Stein varði frábærlega og þremur mín.
síðar komst Karl-Heinz Rummenigge
frír að marki Hamborgar. Spyrnti
framhjá af 10 metra færi. I síðari hálf-
leiknum voru leikmenn Inter ákveðn-
ari og pressuðu oft stíft. En skyndiupp-
hlaup Hamborgara voru hættuleg.
Bjargað var á marklínu frá Magath á
70. mín. Síðan kom vítaspyrna Brady
Pierre Littbarski — frábært mark.
og eftir það reyndu leikmenn Inter að
tefja. Hamborgarar sóttu og stemmning
gífurleg. Hreinn flautukonsert á leik-
menn þýska liðsins. Á lokamínútu
leiksins komst Rummenigge svo aftur
í dauðafæri eftir að hafa leikið snilldar-
lega á tvo mótherja. Spyrnti síðan yfir.
Greinilegt að Bæjarar héldu með Inter
í leiknum, hinir þýsku þulir sjónvarps-
ins voru næstum hlutdrægir. Rummen-
igge ástæöan.
Köln áfram
Köln sigraði Spartak Moskvu, 2—0, í
góðum leik í Köbi og komst áfram, 2—
1, samanlagt. Köln sótti miklu meira í
fyrri hálfleik. Fékk þá 14 hornspymur
gegn einni og þeir Allofs, Littbarski og
Hartwig léku frábærlega. Uwe Bein
skoraöi fyrra markið og skömmu síðar --
átti Hartwig skot í slá. Síðan rétt fram-
hjá. I s.h. hresstust Rússamir og áttu
hörkuskot í þverslá. Schumacher slas-
aðist þegar hann reyndi að verja. Lék
þó áfram haltur. Allofs komst tvisvar í
færi en sovéski landsliðsmarkvörður-
inn Dasajev varði frábærlega. Besti
maður Spartak. A75. mín. skoraði Litt-
barski annað mark Kölnar, geysilega
fallegt mark. Bogabolti sem hafnaði í
vinstra hominu.
HO/hsím.
Brotlending
Anderlecht
— Real Madrid sigraði Anderlecht
á Spáni, 6-1, og vann því samanlagt, 6-4
Belgisku meistararnir Andcrlecht fóru ckki
mikla frægðarför til Spánar í gærkvöldi er
liðiö lék síðari ieik sinn gegn Real Madrid í
Evrópukeppni mcistaraliða. Anderlecht vann
fyrri leikinn í Belgíu, 3—0, en mátti þola
slæma útreið í gærkvöldi. Real Madrid sýndi
allar sínar bestu hliðar og vann, 6—1. Rcai
Madrid vann því samanlagt, 6—4.
Það voru aðeins liðnar þrjár minútur af
leiknum þegar fyrsta mark Madrid leit
dagsins ljós. Juan Losano tók hornspyrnu og
Manuel Sanchis skoraði með skalla. Áfram
hélt sókn Spánverjanna og á 16. mínútu
skoruðu þeir sitt annað mark. Losano lék þá á
fjóra varnarmenn Anderlecht og gaf á Butra-
gueno sem skoraði með skalla, 2—0. Aðeins
þrettán minútum siðar skoraði Argentinu-
maðurinn Valdano þriðja markið og aðeins
þrjátíu mínútur liðnar af leiknum og Real
Madrid búið að vinna upp forskot Anderlecht
frá fyrri leiknum. Ahorfendur, 95 þúsund,
trylltir af spennu.
En á 33. minútu sló þögn á alla áhorfendur
er Per Hansen náði aö skora fyrir Anderlecht.
En Spánverjarnir gáfust ekki upp og á 39.
mínútu skoraði Valdano sitt annað mark í
leiknum og f jórða mark Madrid.
Síðari hálfleikinn hófu Spánverjarnir meö
álíka látum og þann fyrri. A 2. minútu skoraöi
Butragueno fimmta mark Anderlecht og út-
litiö dökkt hjá Anderlecht.
Aöeins tveimur mínútum siöar skoraði
Butragueno sitt þriöja mark og sjötta mark J
Real Madrid og sigur Spánverjanna í höfn.
Leikurmn var prúðmannlega leikinn og
aöeins einn Ieikmaöur fékk gult spjald. Það
var Real Madrid-leikmaðurinn Ricardo
Gallego. Eins og áður sagöi fóru leikmenn
Real Madrid á kostum og liöið lék stífan
sóknarleik meö þrjá leikmenn í fremstu víg-
linu. I.cikincnn Anderlecht áttu aldrei mögu-
leika og voru raunar slegnir út af laginu strax
á fyrstu mínútum leiksins. Arnór Guöjohnsen
kom inn á sem varamaöur hjá Anderlecht
þegar staðan var 6—1 og allt var orðið
vonlaust. Ekki skemmtilegt hlutskipti og
greinilegt aö Arnór er ekki i náðinni hjá þjálf-
ara liðsins. Anderleeht haföi fyrir leikinn i
gærkvöldi aðeins fengið á sig 15 mörk í 1.
deildinni í Belgiu en skoraö 58.
Liðin: Real Madrid: Angel, Michel
(Salguero), Camacho, Stielike, San Jose,
Gallego, Sanchis, Butragueno, Santillana.
Losano og Valdano.
Anderlecht: Munaron, Peruzovic, Grun,.
Scifo, De Groote (Arnór Guðjohnsen),
Vercauteren, Hansen, Hofkens, Arnesen
(Andersen), Olsen og Czemiatynski.
-SK.
JÓLAGJÖFIN
ÍÁR
ÚRVALSSNJÖLL HANDRYKSUGA
Á HEIMILIÐ, í SUMARBÚSTAÐINN,
BÍLINN OG HVAR SEM ER.
ATH., KYNNINGARVERÐ
AÐEINS
KR. 1.647.
VESTUR - ÞYSK
GÆÐA
VARA
LÉTT, SNÚRULAUS, HANDHÆG OG
HÁVAÐALAUS. ÓTRÚLEGUR SOG
KRAFTUR, HLEÐUR SIG SJÁLF.
Kynning
15. desember kl. 14—19
báða dagana.
Sendum í póstkröfu um
land allt.
Heildsöludreifing:
AVCO HF.
Pósthólf 8654,
128 Reykjavik.
Sími 91-38059.
B.V. BUSAHALDAVERSLUN,
Lóuhólum 2—6, Hólagarfli, Breiðholti. Pósthólf 157,111 Reykjavik, simi 91-79260.