Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Blaðsíða 26
DV. FIMMTUDAGUR13. DESEMBER1984. Tilkynningtil launaskattsgreiðenda Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að eindagi launaskatts fyrir mánuðina ágúst, september og október er 15. desember nk. Sé launaskattur greiddur eftir eindaga skal greiða dráttarvexti til viðbótar því sem vangreitt er, talið frá og með gjalddaga.Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til innheimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og af- henda um leið launaskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið. PANTANIR SÍMI13010 HÁRGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG 29. BARNASKÓR Stærðir 20—29. Verð kr. 523. Laugavegi 1 — Sími 1-65-84 Þóstsendum ^ÁLfóðraður KULDAFATNAÐUR frá MAX Ármúla 5 / við Hallarmúla S: 82833 Verslunin Vinnan, Síðumúla 29. Allir kannast við frábæra einangrun álpoka og álteppa. Nú kemur álfóðraður fatnaður frá MAX með sömu eiginleika. * Hentar öllum. "k Álfilman er stungin með DAKRON vattefni v/öndunar líkamans. ★ Heldur stöðugum líkamshita. ★ Frábært einangrun- argildi (frábær ein- angrun). He Þunnir og þægilegir. Domus, Laugavegi. Nýjar bækur Nýjar bækur Victoria Holt VICTORIA HOLT SYSTURNAR FRÁ GREY- STONE Systurnar frá Greystone er 18. bók þessa vinsæla höfundar. A bókarkápu segir í kynningu á efninu: Pippa var ákveðin í aö komast að sannleikanum þegar hún uppgötvaði að hin fagra systir hennar, Francine, hafði verið myrt og hafði verið miðpunktur í hneykslismáli í fjarlægu landi, en þangað hafði hún hlaupist á brott með dularfullum elskhuga. Systurnar höfðu verið mjög samrýndar og höfðu átt hamingjuríka æsku hjá óvenju- legum foreldrum, uns þeir dóu. Þá höfðu þær lent í umsjá hreintrúaðs afa síns, en fannst harðstjórn hans óbæri- leg.. . Saga Pippu berst frá kyrrlátu sveitahéraði í Englandi Viktoríu- tímans til Mið-Evrópuríkis. Systurnar frá Greystone er 220 bls. Bókaútgáfan Hildur gefur út. JÓHANNA ÁLFHEIÐUR STEINGRÍMSDÓTTIR DAGURí LÍFI DRENGS Iðunn hefur sent frá sér barnabókina Dagur í lífi drengs eftir Jóhönnu Alf- heiði Steingrímsdóttur í Arnesi. „Dagur í lífi drengs er ævintýri handa börnum, sagt af næmni og hlýju og með hugarflugi sem öllum sönnum ævintýrum er nauðsyn. Sagan er í senn ævintýraleg og trúveröug og aöal- persónan, Dúlli litli, lifir áfram í huga lesandanna að lestri loknum,” segir í forlagskynningu. Bókin fjallar um einn dag í lífi Dúlla litla. Hann á heima í fallegu húsi utan við þorpið sem kallað er Draumheim- ar. Hann er sex ára og foreldrar hans starfa inni í þorpinu. Dúlli verður því oft að una sér einn meðan þeir eru í burtu við vinnu eöa skemmtanir. Þeg- ar Dúlli litli er einn gerast margir spennandi hlutir. Hann þarf naumast annað en loka augunum þá er hann floginn af stað á vit spennandi ævin- týra, hittir fyrir ernina í fjallinu, flug- menn í loftinu, sjómenn á hafinu og undarlegt fólk hinum megin við hafið. Jóhanna Alfheiður Steingrímsdóttir í Arnesi kann að segja börnum sögu — og reyndar fullorönum líka, því að Dagur í lífi drengs höfðar til barnsins í okkur öllum og kennir okkur á nærfær- inn hátt aö gefa gaum að umhverfinu. Bókin er prýdd myndum eftir Hring Jóhannesson. Oddi prentaði. Aug- lýsingastofan Octavo hannaði kápu. ERICH SEGAL MAÐUR, KONA, BARN Ut er komin hjá Isafoldarprent- smiðju hf. bókin Maður, kona, barn eftir Erich Segal, höfund Love Story. Bókin fjallar um hið fullkomna hjónaband þegar því skyndilega og óvænt er ógnaö af rödd frá fortíðinni. Maöur, kona, barn er langbesta skáldsaga Erich Segals og jafnvel ennþá áhrifameiri en Love Story. Bókin er 196 bls. og er að öllu leyti unnin hjá Isafoldarprentsmiðju hf. Ut- söluverö bókarinnar er kr. 587,00. ÁRNIÓLA REYKJAVÍK FYRRI TÍMAI Ut er komin hjá Skuggsjá Reykjavik fyrri tíma I eftir Arna Ola. Er hér um að ræða endurútgáfu Reykjavíkurbóka hans sem voru 6 að tölu. Þessi nýja út- gáfa Reykjavíkurbókanna verður í þremur bindum, þ.e. tvær bækur í hverju bindi. I þessu fyrsta bindi eru Fortíð Reykjavikur og Gamia Reykja- vík. Reykjavíkurbækur Arna Ola hafa að geyma geysilega mikinn fróðleik um Reykjavík fyrri tíma, um persónur, stofnanir og staði, og er í þessu bindi hálft annað hundrað gamalla mynda frá þessum tíma, m.a. margt mynda af málverkum Jóns Helgasonar biskups. Saga og sögustaðir verða ríkir af lífi og frá síðum bókanna gefur sýn til fortíð- ar og framtíðar. Nútímamaðurinn öðl- ast nýjan skilning á höfuöborg lands- ins og forverunum sem Reykjavík byggðu. Öll er útgáfan hin vandaðsta svo sem vera ber. Arni Ola rithöfundur er fæddur á Víkingavatni í Kelduhverfi 2. desem- ber 1888. Hann lauk prófi frá Verzlun- arskóla Islands, geröist starfsmaður Morgunblaðsins strax við stofnun blaðsins og starfaði þar sem blaöa- maður, auglýsingastjóri og ritstjóri Lesbókar blaðsins allan starfstíma sinn, aö frátöldum fáum árum er hann var við verslunarstörf í Reykjavík og Viðey. Samhliða erilsömum blaða- mannsstörfum var hann afkastamikill rithöfundur og gaf út 37 bækur. Hann andaðist áriö 1979. Reykjavík fyrri tíma er 589 bls. í stóru broti. Bókin er sett og prentuð í Prisma en bundin í Bókfelli hf. Kápu- teikningu gerði Böðvar Leós. GUNNARDAL ORÐ MILLI VINA Víkurútgáfan hefur gefið út ljóða- bókina Orð milli vina eftir Gunnar Dal. Gunnar Dal er löngu þekktur rit- höfundur og eftir hann liggja fjöl- margar bækur. I Orð milli vina er fimmtíu og eitt ljóð og er bókin jafn- margar síöur. ALISTAIR MACLEAN DYR DAUÐANS Dyr dauðans nefnist nýjasta bók Alistair MacLean sem kallaður hefur veriö ókrýndur konungur spennubók- menntanna. Bækur Alistair MacLean hafa notið fádæma vinsælda um allan heim og þá ekki síst á Islandi í þau liðlega tuttugu ár sem þessi iðjusami höfundur hefur verið þýddur á íslensku. Dyr dauðans gerist á slóðum sem mörgum Islendingum eru núoröið kunnar, þ.e. í Amsterdam, þar sem hann teflir saman óbilgjörnum hryöjuverkasamtökum og yfirvöldum landsins. I upphafi bókarinnar er hinn frægi flugvöllur Hollendinga, Shiphol, kominn á kaf í vatn, flugvélarnar liggja sem hráviði umhverfis flug- stöðvarbygginguna og ráöamenn sitja á neyðarfundum því að búist er viö frekari ógnum af hendi hryðjuverka- manna. Dyr dauðans er ósvikin spennusaga sem jafnframt því aö halda les- andanum í spennu, gefur honum innsýn í þaö andrúmsloft sem ríkir í undirheimum stórborga á okkar dögum þar sem hann kynnist hugsunarhætti sem í senn er ógnvekj- andi og — kannski á einhvern hátt heillandi. Alistair MacLean hefur lagt mikla rækt viðsína bókmenntagrein. Margar bóka hans hafa verið kvikmyndaöar, svo sem Byssurnar í Navarone, en einnig hefur hann sjálfur skrifað kvik- myndahandrit beint, t.d. handrit að myndinni Arnarhreiðrið sem varö afar fjölsótt á Islandi. I bókinni Dyr dauöans er MacLean svo sannarlega í essinu sínu. Bókaútgáfan Iðunn gaf út. Oddi prentaði. Brian Pilkington hannaði kápu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.