Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Blaðsíða 15
DV. FIMMTUDAGUR13. DESEMBER1984. 15 j^agpf. PI.ISl.OS llÍ82%5 Guöbergur Bergsson. einu sinni var sköllóttur karl náttúru- laus, bls. 97), og (bls. 67): „Nú veit ég ekki hvort ég á aö þora að segja, vel- sæmisins vegna og þeirrar listrænu hlédrægni sem gætir í sögum og bók- menntum okkar, aö þessir gemlingar voru báöir hreinræktaöir hommar, svo hræöilega kynvilltir aö þaö fór hrein- lega fram hjá þeim báöum, eins og allt hiö rótgrónasta í eðli okkar; þvi hver tekur eftir mestu vitleysunni í sjálfum sér? Því er þaö, aö verstu hommar vita ekki aö þeir eru þaö.” Sögumaður ávarpar oft lesendur og ræðir við þá um sögur sínar, hefur um þær ýmsa frasa ritdómara: „Saga þessi er ekki öll þar sem hún er séö. . .” (bls. 44), „1 þessari ljúfu harm- og ástarsögu. . .” (bls. 34) o.fl., einnig veröur hann iöulega tvisaga (bls. 43 og 65—6). Allt verður þetta til þess aö lesendur taka sögurnar mátu- lega hátíðlega, þetta eru léttar skemmtisögur þótt þær snerti kviku mannlífsins. Síðasta sagan er sér á parti því hún setur, gegn öllum hinum sögunum, heföbundnar ástalífslýsing- ar og persónusköpun í vinsælum bók- menntum fyrri tíöar: Guörúnar frá Lundi og Elínborgar Lárusdóttur. Hún er því glæsilegur endapunktur bókar- innar sem myndar samþætta heild. En aö sama skapi var þessi saga óheppi- legur fulltrúi bókarinnar í Helgarpóst- inum fy rir f áeinum vikum. Mikið úrval af sóluðum radíaldekkjum Radíal vörubíladekk: : 1100 x 20r ......... 16 strigal. 1000 x 20r ......... 16 — ! 900 x 20r .......... 14 — 12 x 22.5 ................. Díagonal: 1100x 20 ........... 14 strigal. 1000 x 20 ......... 14 -- . I 900 X 20 ......... 12 — Sendibilar: : ; 9.5r X 17.5 . 8.5r x 17.5 D 8r x 17.5 , 825 x 16r . : 750 x 16r 700 x 16r : : 650 x 16r 215 x 14r Jeppar: 12 x 15 11 x 15 10 x 15 700 x 15 235/7 orx 15 ............... . i 175 x 16 ....... (Lada sport) Fólksbílar: Við bjóðum upp á 15 stærðir af heilsóluðum radíaldekkjum fyrir allar gerðirfólksbíla. 14 strigal. 12 — 12 — 10 — 8 — Dugguvogi 2. Sími: 84111 Sama húsi og Ökuskólinn. er búifi að stilla Ijúsin? UUMFERÐAR RÁÐ Menning Menning Menning Menning BANNHELGIN ROFIN. Guðbergur Bergsson: Hinsegin sögur. Forlagið 1984,112 bls. Þessar þrettán sögur gerast í Reykjavík nútímans, ein þó á Akra- nesi. Annars skipta staöur og stund litlu máh nema helst verslunargötur í sögunum „Fíllinn” og „Þetta henti” og skemmtistaðurúin í „Skáldkonan”. Sögumar eru allar stuttar, 5—10 bls. Persónur eru fáar í hverri sögu, 1—3 auk ósundurgreindra hópa. Kjarna- fjölskyldan er á sviðinu í annarri hvorri sögu. Fjórar sagnanna eru um alþýöufólk, tvær um listafólk, í hinum er félagslegt umhverfi óljóst og skiptir sjaldnast máli. Því hvernig sem þaö er rísa sögurnar upp af sams konar and- stæðum: raunveruleg náttúra sögu- hetju gegn því sem samfélag hennar telur æskilegt eöa leyfilegt. Oft eru þetta hommar en fleira kemur til því bókin stendur fyllilega viö fyrirheit kápunnar um fjölbreytni: „Sögurnar eru tileinkaöar ástarlífi Islendinga á öllum sviöum.” Eftirsótt stúlka ákveö- ur aö pipra og springur loks bókstaf- lega út í fæöu handa sínum eina sanna furðufugli, satýr barnar hverja konu á Akranesi í því skyni aö hressa dauð- vona móöur sína, fimmtug bónus- drottning umskapast aö neöan og lang- ar þá aö fara á stallsystur sinar en veröur aö sætta sig viö eiginmanninn í sambandi sem þar með er orðið hómó- sexúelt, fyrst hún fékk ekki aö þjóna eðli sínu í því sem virtist vera lesbismi. Ein sagan virðist fjalla um barnaflag- ara — vonandi elliæran — og snúast svo upp í anímalisma. En betur aö gáö segir hún líklega mest um hvernig kyn- hvöt barns birtist og leitar sér útrásar eftir tiltækum leiðuin. Þetta er kannski nokkur lykill aö sögunum almennt. Kerlingu tekst aö vekja náttúrulausan kall til lífsins, svo hann veröur kafloð- inn, m.a. En umhverfiö snýst þá gegn henni, hún er hrakin af böllum um allt Suöurland fyrir aö hafa „eyðilagt karl- mann” (hann haföi fengið náttúruna aftur meö því aö þvo upp fyrir kerlu, þ.e. stíga út úr einhliöa karlmennsku- hlutverki). 011 bókin er eiginlega útfærsla hvers- kyns kynóra á ærslafenginn hátt. Sögurnar þróast til fáránlegra öfga; t.d. fær hommi einn „nagla í hold sitt” (í þessu tilviki fírtommu í hausinn!). Viö þaö breytist hann i svín, sem fer á allt kvikt í miöbæ Reykjavikur, konur og karla, og færast þá kvöldgöngur fólks mjög í aukana. Eins og sjá má er Guðbergur meö besta móti í oröaleikj- um. Viöbrögö Reykvíkinga eru jafnjá- kvæð gagnvart fil, sem káfar á öllum meö rana sínum sem var ,,í allengsta lagi, svartur og hrukkóttur eins og hrossskaufi”. Fíllinn er mjög vinsæll þangaö til hann setur ranann í rassinn á nokkrum smástrákum. Þeir farast (svífa upp, útblásnir einsog blöörur, og springa) en aðrir strákar sækja þá í fíl- inn, alveg óöir. Eitt besta dæmi þess, hvernig smáatriöi er blásiö upp í fáránlegar stæröir, er þó „Varúö frú Önnu leikkonu”. Til aö ná viðeigandi sviösframkomu, „hinum listræna kulda”, beitti Anna þeirri hugsana- tækni í ástaratriöum „aö hafa allan hugann viö verjurnar sem þau hjónin notuðu. . . blautar og dálítiö ógeðsleg- ar, ef ekki ámátlegar, því ekkert er umkomulausara en linur Umur meö nýnotaða verju úr þunnu gúmmíi meö deyjandi sæöi í totunni og gamaniö búiö.” (bls. 81). Allt snýst síðan um verjurnar, þær veröa inntak sögunnar og tákn ævistarfs önnu. Guöbergur hefur frábær tök á aö segja útbreiddar goösögur meö orðalagi hópsins sem ber þær uppi, sjá t.d. bls. 97: „Eiginlega hendir það aldrei í veruleikanum að sköllóttir karlar séu náttúrulausir eöa ónýtir, þeir eru þvert á móti yfir höfuö afskap- lega kynsterkir menn, einkum ef hár- leysinu á höföinu fylgir í þokkabót að þeir séu hjólbemóttir, en þá þurfa þeir líka aö vera meö stórar hnéskeljar og jökulkaldar og mjög loðbrýndir í þokka-þokkabót.” o. áfr. Yfirleitt gerast sögurnar á mjög löngum tíma, enda er þaö sjaldnast aö þær rísi upp í dramatískan eöa áhrifa- mikinn atburö einsog oft er ur.i smá- sögur. Hitt er oftar aö þær beinist aö einhvers konar afhjúpun sem verður raunar stundum í einstökum atburði. En ekki eru dramatísk átök persóna, lítið um sviösetnmgu (bein ræöa, ná- kvæmar lýsingar svipbrigða persóna, hreyfinga og gerða), raunar er persónusköpun ekki sláandi skörp. Þetta er einsog oft áöur hjá Guðbergi. Þaö sem mér er minnisstæðast úr fyrri verkum hans eru ekki einstakar persónur (nema þá Tómas Jónsson), þaö eru frekar heildarmyndir úr mik- illi fjarlægö, meöal margra dæma mætti nefna hinar dýrlegu tímaskeiðs- lýsingar í Tómasi Jónssyni (bls. 13— 19, o.v. Hvenær skyldi þessi stórkost- lega bók veröa endurprentuð? Hún hef- ur verið ófáanleg síöan hún birtist, 1966, og þúsundir manna þannig misst af henni). Einnig í Hinsegin sögum eru kostulegar myndir, ljóðum líkar. T.d. balliö (bls. 17—18:): „Fólk er bara aö dansa og fara milli borða, hitta einhvern óvænt, hrópa upp í fögnuöi og fræöast um þaö hvort þessi eöa hinn hafi hitt þennan eöa hinn á ballinu og hvort þessi eöa hinn hafi ekki komið meö hinni eöa þessari. Nú heldur áfram um stund þaö mikla Bókmenntir Örn Ólafsson fræöslustarf sem stundaö er á böllum og oft sagt: Auðvitað kom hún meö, en hver er húnþá? Erhúnafturtýnd? Um leið er svo fariö aö leita, milli boröa, inni á klósettum, fariö milli hæöa, því skemmt er sér „á öllum hæö- um” eins og sagt er, flækst inn á dans- gólfið, hrasaö um fætur, velt um glös- um, stólum hent um koll, flöskum er rutt af boröum, öl fer í kjólinn, kallaö á Esú,” o.áfr. En þessar sögur eru sem sagt mest- megnis tóm frásögn. Sögumaður er þaraöauki sífellt aö leggja útaf sög- unni, segja lesendum frá hugleiöingum sínum. Þaö er sjaldnast aö sagan sé sögö frá sjónarhóli aöalpersónu, yfir- leitt er horft á þær frá sjónarhóli um- hverfisins, þ.e. einhvers meöaltals les- enda. Sögurnar eru því almennt aö- gengilegar en þeir sem ætlast til þess af bókmenntum aö þær séu „kortlagn- ing á veruleikanum” þeim má þykja litlu bætt viö sín kort þó svo að sögurnar fjalli um efni sem fram aö þessu hefur verið bannhelgt í íslensk- um bókmenntum. Sögumaöur er sífellt aö bera fram fordóma umhverfisins gegn ýmiskonar kynlífi, talaö er um lækningu homma (bls. 45 og 69), „hin- ar hroðalegu fýsnir sem búa innra meö kynvilltu fólki, einkum karlmönnum” (bls. 12), „hommar stríöa gegn öllu meö eðli sínu: lögmálum guös, náttúr- unnar, velsæmisins og jafnvel útvarps- lögunum nýju” (bls. 13). Hér er aug- ljóslega hæöst að því viöhorfi sem látiö er í veöri vaka en enginn er óhultur fyrir háöi Guöbergs, hommi á balli „fer undir eins aö sjá ofsjónir og ekk- ert nema eintóma homma. Hann sér ekki betur en hver maður sé tilbúinn aö mera sig, og þá fer rassinn auðvitaö að iöa á stólsetunni og hann að púa ótt eins og hommar gera þegar þeir hverfa andlega séö inn í kvikmynd og veröa aö frægum leikkonum.” (bls. 20) Enginn má taka orö mín svo aö ég sé að deila á Guðberg fyrir aö oröa al- genga fordóma. Hann skýtur þá þeim mun rækilegar í kaf. Hommarnir í fyrstu sögunni bera t.d. af ööru fólki aö hreysti og heilbrigði. Þeir eru raunar tvítóla báöir, meö tólin á brjóstinu. Spyrjamætti: „Hversvegna ertvítóla fólk kallaö hommar?” Svariö veröur: til þess aö þessi spurning sé borin upp, hversvegna ætti að flokka fólk eftir kynhneigö þess? I sömu átt hnígur ótalmargt fleira í þessum sögum. T.d. afhjúpar sögumaöur sárasaklausa hluti meö þessum oröum: „Því er alls ekki aö leyna” (aö einhverju sinni voru tveir karlmenn á balli, bls. 16) „Nú er ekki hægt aö leyna því lengur” (aö BANNHELGIN ROFIN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.