Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Blaðsíða 17
DV. FIMMTUDAGUR13. DESEMBER1984. Jólagjafahandbók 61 Þroskaleikföng Þroskaleikföng fyrir yngstu börnin eru til f miklu úrvali í Tómstundahúsinu, Laugavegi 164, hvort sem leitað er að Educalex, frönsku smábarna- leikföngunum, Fisher Price, nú eða Kiddikraft. Allt er þetta til i'Tómstundahúsinu og miklu meira en það. Og þú ræöur hvort þú vilt dýrt eða ódýrt. Verðið er allt frá innan við hundrað krónur og upp úr. T orf æru(smá)tröllið í Tómstundahúsinu, Laugavegi 164, er geipilegt úrval af fjarstýrðum bílum á verði frá 2.600 kr. Hægt er að fá sérlega spennandi torfærusmátröll eins og þennan á myndinni sem kostar 3.950 krónur. Þetta eru ekki aðeins leikföng fyrir strákana því pabbarnir, afarnir, mömmurnar og ömmurnar hafa alveg jafngaman af þeim. Hér fá þeir með bíladelluna eitthvað við sitt hæfi. Fjarstýrðu súpertækin Stelpurnar vilja dúkkuna sem talar eöa gengur en karlkyniö er aftur á móti vitlaust í f jarstýrðu báta- og bílamódelin sem Tómstundahúsið býður upp á. Það er hreint ótrúlegt úrvalið af f jarstýrðu bátun- um og bílunum og þegar saman er sett þá er þetta engin smásmíði. Pabbarnir og afarnir hafa jafn- gaman af þessari tækni og yngri strákarnir enda er hér um méiriháttar leikföng að ræða. Bflarnir kosta frá 1.140 kr., bátarnir frá 995 kr. og fjar- stýringar frá 3.280 kr. Plastmódel í Tómstundahúsinu er geysilega mikið úrval af alls kyns plastmódelum. Þau eru til á allt frá 62 krónum og er vart hægt að hugsa sér ódýrari jóla- gjöf sem þó gleður alla þá sem á annað borð hafa gaman af þessari skemmtilegu tómstundaiðju. Geimskutlan á myndinni kostar 827 krónur og trukkarnir 716 og 770 krónur. Dúkkan sem talar og hlær Þessi fallega dúkka á myndinni getur bæði gengið og hlegið. Hún er afburða myndarlegt „barn". Og ekki er að sjá á henni að hún borði ekki mikiö. Hún heitir Mary og bföur eftir því að eignast mömmu. Mary getur beygt hnén og göngulagið er því eins og hjá barni sem er að taka fyrstu skrefin. Hún kostar 1.876 kr. í Tómstunda- húsinu er einnig hægt að fá margar fleiri gerðir af svipuðum dúkkum sem kosta alít frá 1.165 kr. Fyrir dúkkurnar í Tómstundahúsinu, Laugavegi 164, er mjög mik- iö úrval af glæsilegum dúkkuvögnum og kerrum. Engu er líkara en hér sé um barnavagna og kerr- ur að ræða. Unga daman yrði himinsæl fengi hún augum litið allt það úrval. Verðið er að sjálfsögðu mismunandi. Vagninn á myndinni kostar 5.311 kr., stærri kerran 2.473 kr. og regnhlffarkerran 1.498 kr. Hægt er að fá kerrur á verði frá 546 kr. og vagnafráca 3000krónum. Raf knúnar bflabrautir Þessi rafknúna rallbraut, sem fæst í Tómstunda- húsinu, Laugavegi 164, er með þeim allra vinsæl- ustu á markaðnum. Henni fylgja tveir bflar og spennubreytir og kostar hún aðeins 1.695 krónur. Alltaf er hægt að bæta við hana aukahlutum og bflum. í Tómstundahúsinu eru einnig margar fleiri gerðir alveg frá ca 1.300 krónum. Jólagjöf in í ár í Tómstundahúsinu, Laugavegi 164, er hægt að fá hin vinsælu Star Wars leikföng. Hægt er að velja um margvíslega hluti f þessum leikföngum og kostar þetta tæki á myndinni, sem nefnist AT— AT, 2.998 krónur. Karlarnir í Star Wars kosta 120 krónur í Tómstundahúsinu og margs konar auka- tæki frá 215 krónum. Trilly, sú er talar á íslensku Nú eru þær farnar að tala og syngja á íslensku, dúkkurnar. Sú sem hér um ræðir er Trilly, sem er til í mörgum útfærslum: sú er talar eða sú sem syngur eða sú sem gerir hvort tveggja. Svo má ekki gleyma því að Trilly gengur líka. Trilly er það sem koma skal. Hún kostar frá 810—1.532 kr. TÓmSTUnDAHÚSID HF Laugauegi 164-Ftei|kiauit »21901 Draumadúkkan Dúkkuhöfuð, sem hægt er að greiða og mála, er einstaklega spennandi gjöf fyrir allar stelpur. Þetta dúkkuhöfuö er frá Sebino og fæst í Tómstundahúsinu, Laugavegi 164. Dúkkuhöföinu fylgir allt sem með þarf, svo sem hárrúllur, augn- hár, varalitur, andlitsfarði, háralitur og margt fleira. Þaö er jafnvel hægt að stytta eða síkka hárið. Draumadúkkuna er hægt að fá f mismun- andi útgáfum á verði frá 372—1.276 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.