Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Blaðsíða 59

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Blaðsíða 59
DV. FIMMTUDAGUR13. DEISEMBER1984. Jólagjafahandbók 103 í Gjafahúsinu við Skólavörðustíg — Sími 18525 Fyrir jólasmákökur Þaö vill alltaf koma upp vandamál fyrir jólin hvar eigi nú að geyma jólasmákökurnar. Gjafahúsið getur leyst þann vanda með nýju kökuboxunum sínum. Þau eru meira aö segja með jólamyndum svo smákökurnar verða ennþá jólalegri og betri. Boxin eru bæði til ferköntuð og þá í tveimur stærð- um og hringlaga í þremur stærðum. Þau kosta 155, 165 og 175krónur. Fyrir þá sem drekka te Þessi sniöugu flát á myndinni eru alveg stór- skemmtileg. Þú setur teketilinn ofan á og teið þitt kólnar ekki — það helst heitt. Það má meira að segja reyna aö halda mat heitum á þessum skrýtnu hlutum. Og þó kosta þeir ekki nema 159 krónur. Fallegar leirkrúsir Þær eru mjög skemmtilegar, þessar leirkrúsir sem fást í Gjafahúsinu. Þær eru glænýjar og hafa þó þegar aflað sér mikilla vinsælda. Það er sér- staklega unga fólkið sem er veikt fyrir slíkum leir í eldhúsið. Leirkrúsirnar eru til í ótalmörgum stærðum og gerðum og með mismunandi áletrun- um. Á myndinni er aðeins lítið sýnishorn en það er fyrir sykur á 1.395 kr„ brauð á 2.395 kr., kaffi á 695 kr„ áhöld á 395 kr. og ofnfast fat á 995 krónur. Partfljós Þetta er sannkallað partfljós. Þetta eru kerti, tuttugu í pakka, og þeim má stinga í tertur, ábæt- inn, osta eða hvaða glæsi- rétti sem þú ætlar að bjóða upp á. Þetta eru sér- stök kerti til að skreyta veisluborðiö og gera mat- inn enn Ijúffengari fyrir vikiö. Þessi skemmtilegu kerti eru til í sex litum og kostar pakkinn aðeins 96 krónur. I Jólaskraut á tréð eða pakkann Þetta fallega, litla jóla- skraut er til í mörgum gerðum og kostar aöeins 25 krónur. Þú getur hengt ] þaö á jólatréð eöa skreytt jólapakkann með því eða I hengt á skreytingu. Skrautið gefur ýmsa j möguleika ef hugmynda- j fiugið er látiö ráða. í | Gjafahúsinu er geysimikið úrval af fallegu, litlu jóla- skrauti. allt er ótrúlega ódýrt. Þaö er eins og verðbóigan hafi ekki ennþá fundið heimilisfangið okkar, enda myndum við henda henni á dyr hið bráðasta, þótt við séum annars ósköp Ijúf heim að sækja. Gleðileg jól! Póstsendum um allt land. Yfir hundrað tegundir og jafnvel meira en það segja þær í Gjafahúsinu er blómahringir koma til tals. Þeir eru nefnilega al- veg óskaplega margir og af öllum gerðum og stærð- um. Þú getur meira að segja fengið þá úr gleri þannig aö úrvaliö er breytilegt. Körfur undir prjónadót Það er víst löngu orðið landsfrægt allt úrvalið af körfum í Gjafahúsinu enda geta þær státað af körfum fyrir nánast hvað sem er, meira að segja brauð. Þessar körfur eru þó alveg nýjar og henta vel fyrir prjónadót en auðvitaö má nota þær undir hvaö sem er. Margar stelpur vilja geyma tísku- blöðin í svona körfum. Með loki kosta þær 2.245 kr. ogán loks 1.645 kr. Sniðugt á matborðið Viltu brydda upp á einhverri nýjung í gestaboö- inu? Þú getur fengið slíkan matseöil sem þennan á myndinni en á hann má skrifa með tússi og þurrka síöan út. Slíkur matseðill fæst í Gjafahús- inu. Einnig fást þar litlir plattar þar sem þú getur skrifað nöfn gestanna og í stfl færðu statíf fyrir hnífinn og litlar mýs til að stinga í pinnabrauðiö eöa ostinn. Kerti — Kerti — Kerti Það er alveg ótrúlega mikið úrval af alls kyns kertum í Gjafahúsinu á Skólavörðustíg. Má segja að þau séu í öllum litum og stærðum og fyrir hvaða kertastjaka sem er, meira aðsegja útikerti. Það ætti að borga sig að líta á allt kertaúrvalið okkar, segja þær glaðhlakkalegar í Gjafahúsinu enda eru þær komnar í jólaskap og búnar að setja upp jólahúfurnar. Jólatilboðsverð í Gjafahúsinu er mjög mikið úrval af fallegum matar- og kaffistellum á einstöku jólatilboðsveröi. Hvítt stell passar einmitt svo Ijómandi vel á rauöan jóladúkinn. Þær í Gjafahúsinu ætla því að bjóða stellin aöeins fyrir jólin á alveg sérstöku verði. Þú getur valið um hina ýmsu fylgihluti með stellunum. 3*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.