Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Blaðsíða 6
50 Jólagjafahandbók DV. FIMMTUDAGUR13. DESEMBER1984. Dachstein skíðaskór Þessi skíöaskór hér á myndinni er sérstakiega hannaður keppnisskór. Hann er með framhalla- stillingu og hliðarstillingu sem gerir það að verkum að skíðamaðurinn er mjög stöðugur. Dachstein skíðaskórnir fást hjá Fálkanum, Suður- landsbraut 8. Þú færð einnig venjulega skíðaskó frá Dachstein í Fálkanum. í reiðhjóladeild Fálkans er mikið úrval af góðum reiöhjólum, hvort sem er fyrir stóra eða smáa, til dæmis þetta sterka og vandaöa þríhjól frá DBS sem kallast Lemmus. Það er með skúffu og kostar 2.578 krónur. Þá eru einnig á myndinni Dachstein gönguskór og kosta slikir skór frá 739 í barnastæröum og 875 kr. í fulloröinsstærðum. Salton og WKM kaffivélar í raftækjadeildinni í Fálkanum, Suðurlandsbraut 8, er mikið úrval af heimilistækjum. Má þar nefna Salton og WKM kaffivélar sem kosta frá 1.136 krónum og brauðristir frá WKM, einfaldar og tvöfaldar, frá 1.256 krónum. Raftækjadeildin á annarri hæð Fálkans leynir á sér því þar er ýmislegt hægt að finna til jólagjafa. Þetta vöfflujárn frá Steba er ekkert venjulegt vöfflujárn því hægt er að snúa því við og breyta í mínútugrill á svipstundu, létt og handhægt tæki sem getur komið sér vel við vöfflubaksturinn og steikinguna. Þá eru þeir einnig frábærir, djúp- steikingarpottarnir frá Steba. Þeir eru með hita- stillingu og þeir eru ekki kringlóttir eins og flestir pottar, heldur ílangir. Borvél með rafhlöðu Þessi litla en skemmti- lega borvél getur leyst mörg vandamálin á heimilinu eða vinnu- staðnum. Hún er ákaf- lega handhæg, gengur fyrir rafhlöðu og hefur tvær hraðastillingar. Þessi vél er frá Skil og fæst í raftækjadeild Fálkans, Suöurlands- braut 8. Skóver sér um karlmennina Þetta er víst óhætt að segja þvf Skóver, Laugavegi 100, er sérverslun með herraskó. Á myndinni er aöeins brot af öllu því úrvali sem verslunin býður upp á. Loöfóðraöir kuldaskór, Humanic, kosta 2.195 kr., ökklaskór, sem eru mjög vinsælir og einnig loðfóðraðir, kosta 1.610 krónur og reimaðir drengjaskór kosta 1.050 krónur. Þeir eru til í stærðum frá 30—39 og eru eingöngu í gráum lit. Mokkajakki á bæði kynin Það er rétt að þessi mokkajakki, sem fæst í Framtíöinni, Lauga- vegi 45, er bæði fyrir dömur og herra. Hann er einstaklega vand- aður og sniðiö er nýtískulegt. Slíkur gripur kostar 10.500 krónur. Þetta er gjöf sem vermir og sem hægt er að nota ár eftir ár. Húfan kostar aðeins 530 krónur. Pelsjakki Þessi pelsjakki er meö leöurbryddingum og er fáanlegur hvítur, grár og svartur. Þetta er einstaklega hlý flík enda unnin úr íslensku ullinni. Jakkinn kostar 11.200 krónur og má segja að þetta sé eilíföarflík. Pels- jakkann færðu í Framtíðinni, Lauga- vegi 45, og húfan í stíl kostar 680 krónur. Fyrir skíðamanninn í skíðadeild Fálkans er úrvaliö geysilegt af öllu því sem skíðamanninn vantar. Má þar nefna Fischer svigskíði frá 3.000 krónum, gönguskíöi frá 2.000 krónum, Tyrolia bindingar, Dachstein skföa- skór frá 1706 krónum og töskur frá 300 krónum. Þá er einnig fáanlegur skföaáburður fyrir göngu- og svig frá Toko og Rode. Grillofn frá Steba Þessi glæsilegi grillofn er ekki bara brúklegur til að grilla matinn, hann er einnig mjög góður bök- unarofn. Þess vegna er hann heppilegur í eldhús sem eru fremur lítil. Grillofninn er fáanlegur í nokkrum stærðum og kostar frá 2.715 krónum. Steikarpanna frá Pifco kostar 3.223 krónur. Alla leið frá Mexíkó Það er satt. Nú er komin ný verslun við Laugaveg sem verslar eingöngu með listmuni frá Mexíkó. Verslunin ber auðvitað nafnið Mexíkó og er til húsa á þriðju hæðinni viö Laugaveg 28, sími 16014. Plattar eins og þessir á myndinni kosta 295 krónur og 480 krónur. Koparpönnur kosta frá 560 kr. og handmálaðar myndir á trjábörk kosta frá 310 kr. Sérstæðir mexíkanskir munir fást í Mexíkó, eins og t.d. vasar, kjólar, töskur, slár, myndir, teppi og ótal margt fleira. Já, það má segja að það sé úrval af úrum hjá Guðmundi B. Hannah úrsmið sem er til húsa að Laugavegi 55. Þar getur þú valið um Seiko, Citizen, Pierpont, Farve-Leuba, Adec, Pulzar, Zenith, Orient, Casio, Sanya, Loruz og Newton skólaúr svo úrvalið er fyrsta flokks. Þá býöur Guðmundur einnig upp á veggklukkur, eldhús- klukkur, loftvogir og yfir fjörutíu tegundir af vekjaraklukkum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.