Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Blaðsíða 42
86
Jólagjafahandbók
DV. FIMMTUDAGUR13. DESEMBER1984.
Gjöfin fæst í Glæsibæ
íslenskir náttkjólar
Madam, Glæsibæ og
Laugavegi 66, býöur upp á
mikið úrval af fallegum ís-
lenskum náttkjólum frá
Ceres á veröi frá 760 krón-
um. Þetta eru þægilegir
náttkjólar og ekki sföur
vandaðir og henta vel í
skammdegiskuldanum.
Ceres náttkjólar eru bæöi
fyrir ungu dömurnar og
þær eldri.
Ullarnærföt
Já, hvernig væri nú að
skella sér á ullarnærföt og
gefa bæði honum og henni
í jólagjöf? Þau henta ein-
staklega vel fyrir fólk sem
vinnur úti og einnig þá
sem stunda vetraríþrótt-
irnar. Þessi ullarnærföt,
sem fást í Madam í Glæsi-
bæ og á Laugavegi 66, eru
ofin meö koparþræði og
sérlega mjúk og góö. Þau
kosVa 275—449 krónur.
Viltu koma í kúrekaleik?
Þessi litla, sæta stelpa á myndinni er aldeilis til-
búin í leikinn en hana vantar bara félagsskapinn.
Þaö er Undraland, leikfangaverslunin í Glæsibæ,
sem selur búninga á krakkana í minnst tuttugu
og fimm gerðum. Þaö er bara aö koma og velja
því þeir eru bæði á stráka og stelpur og kosta
320—838 krónur. Tjaldiö kostar 928 krónur og er
þaö með fimm stöfum og hattar eru auðvitað líka
til og kosta frá 95 krónum. Allt í leikinn fæst í
Undralandi.
Fyrir herrann, dömuna og barnið
Þaö væri ekki amalegt ef öll fjölskyldan gæti
fengið nýtt úr um jólin. Paul Heide, úrsmiöur í
Glæsibæ, hefur mjög fjölbreytt úrval af úrum
fyrir alla fjölskylduna. Á myndinni má sjá
sýnishorn: vandaö og fallegt Seiko herraúr með
tveimur borðum sem kostar 6.318 kr., kvenúr með
tveimur boröum frá Citizen sem kostar 6.049 kr.
og mjög gott skólaúr fyrir börnin. Auövelt er aö
læra á þaö og þaö kostar aöeins 957 kr. Öll viö-
geröa- og varahlutaþjónusta er á staönum.
Fallegt matar- og kaff istell
Þetta fallega matarstell hér á myndinni fæst í
Búsáhöldum og gjafavörum, Glæsibæ. Þetta stell
er meö örmjóum rauðum röndum en einnig er
hægt aö fá þaö með svörtum og gráum röndum.
Tólf manna matarstell kostar 3.950 kr. og tólf
manna kaffistell 2.190 kr. Hnífapörin á myndinni
eru á 1.648 fyrir sex manns. Einnig er hægt aö fá
þetta stell í stöku og hægt aö velja um fleiri gerðir
í versluninni.
Vandaðir stálpottar
Þessir vesturþýsku stálpottar frá hinu viöur-
kennda fyrirtæki Fissler eru nú aftur fáanlegir í
versluninni Búsáhöld og gjafavörur í Glæsibæ í
öllum stæröum. Þetta eru mjög góöir pottar og
vegna hagstæðra samninga getur verslunin boöiö
þá á mjög góöu veröi eöa á 902—1.930 krónur.
Pönnurnar, sem eru 24 og 28 cm, kosta 1.330 og
1.691 krónu.
Jólakönnur
Þessar skemmtilegu jólakönnur eru mjög ódýr
gjöf, kosta aöeins 85 krónur. Þær eru einstaklega
skemmtilegar undir jólasúkkulaöið og jólasveinar
ættu aö huga að þeim er þeir leita aö gjöfum
í skóinn handa góöum börnum. Þessar jólakönnur
fást í Búsáhöldum og gjafavörum í Glæsibæ.
Fyrir herrann
Þær í SS-snyrtideildinni í Glæsibæ hugsa ekki bara
um konuna því úrval af snyrtivörum og ilm-
vötnum er einnig á boöstólum fyrir hann. Jill
Sander ilmvötn kosta 497—710 krónur, Cacharel
ilmvatn 663 og rakspíri 498 kr„ Armani ilmvatn
455—728 krónur og Care nr 2 gjafakassi 488
krónur.
List í Ossa
Verslunin Ossa í Glæsibæ
er dálítiö sérstök verslun.
Þar fást gjafavörur frá
flestum löndum heims og
þar er aö finna hina ýmsu
listmuni. Handofin teppi,
sem hægt er aö hafa
hvort sem maður vill í
glugga eöa á vegg, koma
frá Mexíkó og kosta frá
1.700 krónum. Sýrlenskir
dúkar meö sérvíettum
kosta 650—2.000 krónur og
mætti svo lengi telja.
Hvftu stytturnar í Ossu
eru einnig í miklu úrvali.
Væri þvf réttara aö segja
að sjón sé sögu ríkari.
Fínlegar eldhúsklukkur
Paul Heide, úrsmiöur í Glæsibæ, býöur upp á
þessar fallegu eldhúsklukkur. Ef þú vilt kaupa
ódýra klukku getur þú fengið eina slíka frá Citizen
en hún kostar aöeins 1.900 krónur. Þessar nýju og
fallegu eldhúsklukkur, sem eru með pendúl, kosta
2.869 og 3.155 krónur. Þær eru í gylltri umgjörð og
gætu allt eins sómt sér í boröstofunni sem eld-
húsinu því að þetta eru glæsilegar gjafir frá Paul
Heide.
Hollensk ódýr glös
Þessi skemmtilegu glös, sem fást í versluninni
Búsáhöld og gjafavörur í Glæsibæ, eru einstak-
lega skemmtileg og ekki síður ódýr. Bæöi er hægt
aö fá glös fyrir kaffi á 85 kr. og fyrir te á 66 kr. Þá
er hægt að fá könnu sem kostar 179 kr. og glasa-
bakka meö mismunandi litri plastumgjörð og
korki á 135 krónur, sex í pakka. Glösin eru einnig
fáanleg með mismunandi litum höldum.
Fyrir dömuna
í SS-snyrtideildinni í Glæsibæ er gífurlega mikiö
úrval af ilmvötnum og glæsilegum gjafavörum
fyrir konuna. Viö getum nefnt hér nokkra hluti
eins og eru á myndinni. Gjafakassi frá Coty kost-
ar 199 og 401 kr„ gjafakassi frá Fabergé kostar 399
kr„ sápa frá Dior 219 kr„ Body Cream frá Dior 814
kr„ ilmúöi frá Dior 677 kr. og 556 kr. og ekta
ilmvatn 868 krónur.