Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1984, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1984, Blaðsíða 2
2 DV. FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER1984. Nýþjóðhagsspá: KAUPMATTUR EYKST UM1% A NÆSTA ÁRI Búast má viö aö verölag hækki um 15% á næstu þremur mánuðum, aö því er fram kemur í nýgerðri þjóöhagsspá Þjóöhagsstofnunar. Þar kemur einnig fram aö á öðrum fjórðungi næsta árs megi hins vegar búast viö aö verulega dragi úr verö- breytingum og upp úr miöju ári gæti verðbólgan verið komin á svipað stig og var fyrir kjarasamningana í haust. I spánni er tekið fram að óvissa um hvort og í hvaða mæli kaupliðum kjarasamninganna veröur breytt næsta haust geri allar verölagsspár fyrir síöasta árs- f jóröung 1985 mjög erfiðar. Ef reiknað er meö óbreyttum samningum út næsta ár og jafnframt gert ráö fyrir aö gengi krónunnar verði á árinu 1985 ekki lækkað um meira en 5% frá gengi í árslok 1984 fæst sú niðurstaða aö verölag hækki nálægt 20% frá upphafi til loka árs 1985. Þaö er helmingi meira en gert var ráö fyrir í þjóöhagsáætlun. Verðbólgan á næstu tólf mánuöum yrði þá sú sama og á síðustu tólf mánuðum, eða 26 til 28% í staö 11 til 13% eins og gert var ráö fyrir í þjóðhagsáætluninni. Niðurstööur þessara áætlana um tekju- og verölagsbreytingar á næsta ári í þjóöhagsspánni eru aö kaup- máttur ráðstöfunartekna heimil- anna muni aukast um 1% aö meðal- tali á árinu 1985. En ef reiknað er á hvert mannsbarn mun kaupmáttur- inn haldast óbreyttur. Þá segir í þjóöhagsspánni aö þjóöarframleiðslan muni minnka um 0,5% á þessu ári en aukast um 0,5% á næsta ári. Auknar vaxtagreiðslur af erlendum lánum skerða vöxt þjóöarframleiöslunnar um tæpt 1% hvort áriö. Þar meö virðist lokið þriggja ára samdráttarskeiði í þjóöarbúskapnum. Viðskiptahallinn verður enn vandamál á næsta ári. Viöskiptahall- inn þetta ár og þaö næsta er talinn nema um 10 til 11% af útflutnings- tekjum, en miöaö viö þjóðarfram- leiöslu er hallinn 5,8% áriö 1984 og 5,6% áriö 1985, samkvæmt spánni. Þaö jafngildir aö viöskiptahallinn 1985 nemi 4,8 milljörðum króna. Viðskiptahallinn stafar aö mestu leyti af greiðslum vaxta af erlendum lánum. Vaxtahallinn er óhagstæður um 4,5 milljarða króna, þaö er vaxta- greiöslur af erlendum lánum aö frá- dregnum vaxtatekjum af ógreiddum útflutningi og gjaldeyriseign. Þetta er talin verða svipuö upphæö 1985. Vaxtagreiöslurnar af erlendum lánum eru taldar nema um 15% af út- flutningstekjum bæði áriö 1984 og 1985. Til samanburöar var þetta hlut- fall 4 til 5% af útflutningstekjum árin 197Q til 1974 og um 7% árin 1975 til 1979. OEF. Fyrir miðri mynd er Vaigerður Lindberg, íslensk stúika sem nú dvelur i Kúrgan. Verið er að lengja fót- leggi hennar og er hún annar íslendingurinn sem fer i aðgerð þessa, en Helgi er sá fyrsti eins og kunn- ugt er. „Hef hækkað um 32 sentímetra” — segir Helgi Óskarsson sem er nýkominn heim úr enn einni lengingaraðgerð í Sovétríkjunum Helgi Oskarsson, íslenski drengur- inn, sem hefur veriö í lengingaraö- geröum í Kúrgan í Síberíu hefur nú stækkaö úr 1,14 sentímetrum í 1,46. Helgi er nýkominn heim úr enn einni aögeröinni, en í þetta skiptið dvaldi hann tíu mánuöi ytra. Var verið aö lengja á honum lærleggina aö þessu sinni. „Ég verð svona 1,50 þegar upp verður staðið," sagði Helgi Óskarsson. „Því maður tekur alltaf smávaxtarkipp þegar búið er að gera hverja aðgerð." I Þaö var í janúar fyrir þremur árum aö Helgi fór fyrst til Kúrgan og hefur hann samtals verið 21 mánuð á sjúkra- húsinu þar. I fyrstu atrennu voru fót- leggir hans lengdir, síöan lærleggir og hann á eftir aö fara í enn aöra aögerð þar sem upphandleggir hans verða lengdir. ,,Eg er svo þakklátur fyrir þaö sem þeir hafa gert fyrir mig í Kúrgan,” sagöi Helgi sem kom heim á þriðju- dag. „Nú fer ég í stíft æfingaprógramm hérna heima til aö styrkja mig og fer svo út aftur um mitt ár til að læknirinn minn ytra geti fylgst meö mér. Eg fer svo eftir eitt ár eða svo í síðustu aögeröina.” „Jú, auövitaö er þetta erfitt og oft á tíöum sársaukafullt,” sagði Helgi, aöspuröur um þaö, „en hvaö gerir maður ekki til aö vera ánægöur meö lífiö?” sagöi þessi geðþekki unglingur. -KÞ Faiþegum Flug- leiða fjölgar Ekkert lát viröist ætla aö veröa á uppgangi í farþegaflutningum Flug- leiöa. Farþegum hefur fjölgað veru- lega í ár, eins og í fyrra. „Pantanir fyrir næsta ár eru mjög góöar. Það virðist ætla aö veröa áframhaldandi aukning,” sagöi Sæmundur Guövinsson, blaöafulltrúi Flugleiða. A þessu ári, fram til 8. desember, fluttu Flugleiöir um 20 af hundraði fleiri farþega á Norður-Atlantshafs- leiðinhi en á sama tíma í fyrra. I Evrópufluginu hefur farþegum fjölgaö um 26 af hundraði og í innan- landsflugi um 7 af hundraði. Þetta eru 90 þúsund fleiri farþegar í ár en í fyrra. I ár var bætt viö tveim nýjum áfangastöðum, Orlando og Detroit í Bandaríkjunum. Næsta ár bætast enn við tveir nýir staðir, Bergen í Noregi og Salzburg í Austurríki. -KMU. BSRB í mál þrátt fyrir niðurstöðu félagsdóms? „Reikna með því’ — segir Kristján Thorlacius „Endanleg afstaöa liggur ekki fyrir en ég reikna meö því aö viö förum í mál viö ríkið,” sagöi Kristján Thorlacius, formaöur BSRB, í samtali viö DV er viö spurö- um hann hvort BSRB myndi höföa mál gegn ríkinu vegna þess að laun voru ekki greidd fyrirfram í október. Sem kunnugt er af fréttum gekk nýlega dómur í Félagsdómi í svipuðu máli borgarstarfsmanna gegn Reykjavíkurborg en úrskuröur fé- lagsdóms var á þá leið aö borginni væri ekki skylt aö greiða laun nema vinna væri innt af hendi á móti. „Okkar mál veröur höföað fyrir al- mennum dómstólum en ekki félags- dómi þar sem í lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna stendur að greiða eigi laun fyrir- fram,”sagöiKristján. -FRI. Helgi Óskarsson i rúminu. Með honum á myndinni er erlendur félagi hans sem einnig hefur verið i sams konar aðgerð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.