Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1984, Blaðsíða 3
DV. FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER1984,
3
'enging við tölvubanka
og sjálfvirkur bílasími
Gagnaflutningskerfi, sjálfvirkur
bílasími og þráölaus öryggistæki eru
meðal þeirra tækninýjunga sem
Póstur og sími mun bjóöa lands-
mönnum áður en langt um líöur,
samkvæmt upplýsingum sem DV
fékk frá Jóni Skúlasyni, póst- og
símamálastjóra.
Gagnaflutningskerfi eöa Packet
Switch Stream Network, sem einnig
mætti nefna boðmiölun, gefur fólki
möguleika á aö komast meöal
annars í samband við tölvubanka
erlendis. Með þessu kerfi veröur og
hægt aö senda bréf. Bréfið kæmi til
viðtakanda nánast alveg eins og úr
umslagi, meira aö segja meö undir-
skrift.
Gífurlegir möguleikar
„Þetta gefur gífurlega möguleika.
Þróunin í gerö notendabúnaðar er
gífurleg og mikil samkeppni á því
sviöi,” sagði Jón Skúlason. Síma-
línur geta til dæmis flutt kyrrmyndir
en ekki lifandi myndir.
Notendabúnaöur, eöa svokallaöur
terminal, er tækiö sem notandinn
hefur hjá sér og tengir viö símalinu.
Jón Skúlason sagöi aö Póstur og sími
myndi ekki fara út í sölu á slíkum
tækjum heldur myndi einka-
framtakiö hafa þann þátt á sinni
hendi. »
Póstur og sími þarf aö koma upp
sérstakri sjálfvirkri skiptistöð fyrir
boðmiölunina. Jón Skúlason býst við
— meðal tækninýjunga sem Póstur og sími býður innan árs
Bílasíminn verður væntanlega orðinn sjálfvirkur undir lok næsta árs.
aö sú stöð veröi komin í gagniö í lok
næsta árs.
Bílasíminn sjálfvirkur
„Ráöherra póst- og símamála
hefur mikinn áhuga á sjálfvirkum
farsíma. Hann hefur beðið um aö því
verkefni verði hraðað,” sagöi Jón
Skúlason.
Farsíminn eöa bílasíminn veröur
væntanlega orðinn sjálfvirkur undir
lok næsta árs. Notandinn mun þá
hringja rétt eins og hann sé aö
hringja úr símanum heima hjá sér.
Ur bilnum verður meira aö segja
hægt aö hringja beint til útlanda.
„Farsíminn er alveg frábær lausn
fyrir sumarbústaöi. Hann veröur
einnig mikilvægt öryggistæki, til
dæmis í náttúruhamförum ef hitt-
kerfiö fer úr sambandi,” sagöi Jón.
Þráðlaus öryggissími
Þráölaust öryggistæki fyrir til
dæmis aldraða og hreyfihamlaöa er
meöal þess sem væntanlegt er.
„Þaö sendir merki yfir í símatækiö
sem síðan sendir merki til vakt-
stöövar, til dæmis Securitas eöa
einhverrar öryggisvörslu,” sagöi
JónSkúlason.
Tæki þetta mætti einnig tengja viö
reykskynjara eöa þjófavörn. Síminn
myndi þá senda boö ef eitthvað
óeðlilegt væri á seyöi.
DV spuröi póst- og símamálastjóra
hvort þráðlaus talsími væri
væntanlegur. Margir slíkir munu
þegar vera í notkun hérlendis án
þess aö hiö opinbera hafi viöurkennt
þá.
„Þráölaust tæki þarf að vera þaö
öruggt aö óviðkomandi geti ekki
komist inn á þaö. Þaö er til í dæminu
aö símtöl hafi komist inn á útvarps-
tæki. Viö höfum ekki viðurkennt
þetta. En ef þaö kæmi einhver meö
tæki sem væri það öruggt aö þaö
truflaði ekki útvarp eöa sjónvarp
skal ég ekki segja hvort það er
ólöglegt,” sagði Jón Skúlason.-KMU.
ÞIG EÐA EINHVERN
SEM ÞÚ ÞEKKIR,
ATHYGLISVERÐA
DRAUMA?
DRAUMARÁÐNINGAR
LÓFALESTUR
Fœst í nœstu bókabúð
Verð kr. 494,—
OPIÐ JÓLA TILBOÐ_______________
ÍKVÖLD HÚSGAGNADEILDAR JL-HÚSSINS:
TIL HEIMSENDINGAR END URGJALDSLA USAR
77/. KL. 22 Á STÓR-REYKJA VÍKURSVÆÐIÐ
ANNAÐ OGSUÐURNES
KVÖLD -
TIL KL. 22
Munið okkar hagstæðu
greiðsluskilmála.
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600