Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1984, Blaðsíða 19
DV. FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER1984.
19
Menning
Menning
Menning
Menning
Smásögur Fríðu
— tíðindi úr hugarfylgsnum
Höfðingleg gjöf til Árnastofnunar:
Bókasafn Einars
Ól. Sveinssonar
Fríöa Á. Sigurðardóttir:
VID GLUGGANN - smósögur.
Skuggsjá, 1984.
Fríöa A. Siguröardóttir er í hópi
athyglisveröustu sagnahöfunda sem
kvatt hafa dyra hjá íslenskum lesend-
um á síöustu árum. Form og list smá-
sögunnar stendur henni næst og hún
erjar þann akur af alúö og stefnufestu.
Þegar fyrra smásagnasafn hennar,
Þetta er ekkert alvarlegt, kom út 1980,
duldist fáum þeim sem fylgjast grannt
meö framvindu þessarar viökvæmu
greinar ritlistar að þar var á ferö höf-
undur, sem nokkurs mátti af vænta. Til
þess bentu ekki aöeins flest sólarmerki
verksins, heldur og óvenjulega góöur
byrjunarárangur. Þarna var nýr
höfundur að marka og þjálfa ákveðinn,
persónulegan stíl. Spurningin var
hvort hann mundi söðla um aö ein-
hverju leyti, leita nýrra taka og aö-
ferða, eöa halda sig við þennan veg og
freista þess aö ná meiri og sterkari
tökum á stílnum.
Meö smásagnabókinni, sem nú er
komin út, er þeirri spurningu svaraö
aö nokkru aö minnsta kosti. Þessi
höfundur hefur ekki steypt neinum
stömpum né brostiö þolinmæðina til
þess að sverfa og fága, halda sömu
áttum og kafa dýpra eftir því, sem hún
haföi fest augu á. Þarna er flest meö
sama hætti en betur gert en fyrr, en þó
líklega heldur meiri kröfur gerðar til
lesandans en áður. Sagan felst dýpra í
stílvefnum, og birtist eöa lætur í sig
Bókmenntir
Andrés Kristjánsson
skína með óvæntari hætti. Hún kemur
öll að innan, hefst aö vísu stundum í
fyrstu línum í örstuttri sviðslýsingu
eða atviki sem segir harla lítiö en vek-
ur ef til vill ofurlitla forvitni um sögu-
efniö eöa spurn um þaö hvert nú eigi að
halda, en síðan stingur hún sér, lætur
glitta í sig við og við en kemur ekki upp
aftur svo aö greina megi allt mynstur
hennar fyrr en í lokin. Og þá situr
maður ofurlitiö hugsandi um stund.
Fríða er skáld hugrenninganna —
tengslalögmálsins — og oft er býsna
öröugt aö greina á milli þess sem ger-
ist í raunheimi og hugarheimi, en er
þetta annars ekki ein og sama veröld-
in? Vbd milli líðandi stundar og minn-
inga er líklega áhrifamesti galdurinn í
þessum stíl.
I þessum sögum kemur víða fram
beittur og eggjaður næmleiki á sam-
skipti fólks, ekki síst barna — og barna
og fullorðinna —. Vegir ástarinnar
liggja víöa um þessar sögur, órannsak-
anlegir og kannski stundum torskildir,
ferðalag sögufólksins um þá öngstigu
lýtur oftast eöa ætíö aö sínum réttu
eðlislögmálum, þótt draumar, martröö
og veruleiki greinist ekki sundur.
Fríöa leikur ósjaldan þá list aö fella
eina sögu inn í aðra, eöa kannski marg-
ar eins og stokka sem raða má hverj-
um innan í annan. Þessar sögur virö-
ast lengi vel eiga litla samleið og þyrp-
ast að í ringulreiö. En allt í einu er sem
allir þræðir komi saman og heildar-
myndin birtist skýr, og maður upp-
götvar að í raun var verið aö segja
aöalsöguna meö þessum hætti, svo aö
ekki þurfti að búa hana sjálfa nema
fáum orðum. Skýrt dæmi um þessa
tækni er síöasta sagan, Við gluggann,
ein besta saga bókarinnar, þótt flestar
séu þær góöar.
Fríða Á. Sigurðardóttir.
Þannig tekst undravel að halda
áhuga lesandans um mikla krókavegi
og hugarfylgsni, ekki viö söguefniö
heldur í leit að því.
Dagsskíma er einhver hugtækasta
saga bókarinnar, þar sem fuglar tveir
fara með lykilhlutverk og hlýða á sorg-
arsögu úr sálardjúpi en leysa hugar-
flækju manneskjunnar meö því aö
lenda í kettinum. Listilega vel skrifuö
smásaga.
Málprýðin er þó líklega mestur
blóma þessara sagna og vængir stíls-
ins. Þaö er ekki aðeins, að fegurð og
hljómur þessa máls veki yndi lesanda,
heldur er auögi þess og tjáningarmátt-
ur oft meö ólíkindum og orðavaliö hnit-
miðaö og vandfýsið þótt hvergi sé
fyrnt. Dægurmálinu er ekki útskúfaö,
en það er fellt með sjaldbrigðulli
smekkvísi aö svipfögru tungutaki. Eg
nefni sérstaklega barnamáliö og oröa-
leppa unglinganna sem þarna er beitt
á kostum í tveimur eöa þremur sögum.
Smásögur Fríöu Á. Sigurðardóttur
eru enn eitt dæmi um það, aö smásag-
an er á hraöri uppleið í íslenskum bók-
menntum, og vonandi á hún sér æ fleiri
þakkláta lesendur. Þessar sögur er aö
minnsta kosti hægt aö lesa sér til
óblandinnar skemmtunar og áleitinnar
umhugsunar. a.K.
Hinn 12. desember sl. afhenti Sveinn
Einarsson rithöfundur Stofnun Arna
Magnússonar að gjöf vísindabókasafn
föður síns, Einars 01. Sveinssonar,
sem lést á liðnu sumri. I safninu eru
margvísleg rit í íslenskum og
erlendum fræöum, bækur, ritraðir,
tímarit, bæklingar og sérprent. Þá
afhenti Sveinn Einarsson safninu til
varöveislu öll handrit Einars 01.
Sveinssonar.
Afhendingin fór fram við hátíðlega
athöfn í Arnastofnun á afmælisdegi
Einars 01. Sveinssonar, en hann hefði.
oröið 85 ára þennan dag. Viöstödd voru
Ragnhildur Helgadóttir menntamála-
ráöherra, Guömundur Magnússon há-
skólarektor og fleiri gestir. Forstööu-
maður Arnastofnunar, Jónas
Kristjánsson, þakkaði hina höföing-
legu gjöf og minntist Einars 01.
Sveinssonar, sem var fyrsti forstööu-
maður stofnunarinnar og bar hag
hennar ávallt fyrir br jósti.
Sveinn Einarsson les upp gjafabréfið en á myndinni sjást einnig Ragnhiidur
Helgadóttir menntamálaráðherra, Guðmundur Magnússon háskólarektor
og Jónas Kristjánsson, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar.
LOKASPRETTURINN ER HAFINN
JÓLAGJAFIR í SÉRFLOKKI
Opið föstudag 9—18, laugardag 9—23 og mánudag 9—12.
sjálfvirkir eggjasjóðarar
fyrir 1—7 egg.
Verð kr. 1.571,-
PiípiflBlH,.
SHG
sjálfvirkar kaffikönnur.
Verð frá kr. 1.313,-
vrsA
Husqvarna
saumavélar með ára-
tugareynslu meðal ís-
lenskra húsmæðra.
Verð frá kr. 12.000,-
stgr.
Husqvarna
vöfflujárn.
Verð kr. 2.529,-
Husqvarna
Micranett örbylgjuofn-
inn.
Verð kr. 19.788,- stgr.
CSB 650 RLE-sett
13 mm höggborvél,
stiglaus hraðastillir, 0—
3400 snún./mín., snýst
afturábak og áfram. 650
vött.
Verð kr. 7.500,-
Bosch
PST 50
stingsög.
Sagardýpt
í stál 3 mm,
í tré 50 mm. 350 vött.
3000 slög/mín.
Verð kr. 3.900,-
Blaupunkt
VHS video.
Verð kr. 39.870,-
(fijHusqvarna BOSCH
Sanyo
C-15 ferðatæki, stereo
útvarp/segulband með
FM, lang., miðb. og
stuttb. 5 banda
tónjafnari og 2 way
losanlegir hátalarar.
Verð kr. 13.658,- stgr.
Sanyo
rafmagnsrakvélar.
Verð frá kr. 1.735,-
®SANYO
. CHmiEIíE j
^ SAIMYO
HíFi system 234
er meö á nótunum
storglæsiieg hljomtækjasamstæda i
vonduðum skap meö reyklituðum gler-
hurðum
2 >40 watta magnari með innbyggdum
5 banfla tonjafnara
Priggja bylgju stereo utuarp meö 5 FNI
stoðva minm
Segulbandstæki fyrir allar snældugerð-
ir með soft touch rofum og Dolby
suðeyði
Halfsialfvirkur tveggia hraða reimdrif-
inn plotuspilari
Allt þetta fyrir aöeins
kr. 31.760,- stgr.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 Simi 9135200