Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1984, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1984, Blaðsíða 11
DV. FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER1984. 11 Aðalsteinn ísfjörð, múrari og harmónikuieikari, með nýútgefna piötu sina. D V-mynd JBH Tveirþingeyskir harmóníkuleikarar spila innáplötu „Ætli það sé ekki fjörið í kringum harmóníkuna sem gerir hana mest heillandi,” sagði Aðalsteinn Isfjörð, múrari á Húsavik, í samtali við DV. Hann og Jón Hrólfsson, sem vinnur í rækjuvinnslunni á Kópaskeri, spiluöu nýlega inn á harmóníkuplötu sem Tónaútgáfan á Akureyri gefur út. Plat- an heitir Samspil og eru öll lögin á henni erlend nema eitt. Til aðstoðar við hljóöfæraleikinn eru þeir Birgir Karls- son á gítar, Finnur Finnsson á bassa og Steingrímur Stefánsson á trommur. Hljóðritað var í Stúdiói Bimbó á Akur- eyri. Aðalsteinn sagðist hafa byrjað að spila á harmóníku 7 ára gamall og eignast sitt fyrsta hljóðfæri ári síðar. Þó harmóníkan hafi átt huga hans þetta lengi hefði hann samt leikið á fleiri hljóöfæri, til dæmis saxófón og ýmis hljómborð og verið í hljóm- sveitum frá 15 ára aldri. „Eg hafði ekkert lært á harmóníku fyrr en ég byrjaði í tónlistarskóla í fýrra,” sagði Aðalsteinn. „Þrjú árin þar áður hafði ég samt kennt á harmóníku í skólanum. Þaö er mikill áhugi fyrir harmóníkuleik í Þingeyjar- sýslum, og fjöldi fólks í Félagi harmóníkuunnenda. Ætli séu ekki líka um 10 manns að læra á hljóðfærið á Húsavík, bæði ungir og eldri.” JBH/Akureyri. Alþingi: Fé til Eþíópíu Ríkisstjóminni barst nýlega beiðni frá Rauða krossi Islands vegna hjálparstarfsins í Eþíópíu. Varð ríkis- stjórnin við 200 þúsund króna beiöni Rauða krossins en um annaö framlag hefur ekki veriö rætt. Þetta kom fram í svari Steingríms Hermannssonar for- sætisráðherra á Alþingi í fyrradag. Sagði hann ánægjulegt hvað vilji al- mennings í frjálsum framlögum væri góður til hjálparstarfsins. Eiður Guðnason, þingmaður fýrir Alþýöuflokk, hafði spurt forsætisráð- herra hvort ríkisstjórnin ætlaði að láta fé af hendi rakna til hjálparstarfs á þurrka- og hungursvæðunum í Eþíópíu. Svavar Gestsson Alþýðu- bandalagi sagöi ekki viö hæfi aö þing- menn færu í jólaleyfi án þess að ræða skerf Alþingis til hjálparstarfsins og lagöi til aö umræða um það yröi tekin upp við þriðju umræðu um f járlög sem er í dag. Úr fjölbraut til Sverr- is Hermannssonar —- ión Böðvarsson skráir Iðnsögu íslendinga Jón Böðvarsson hættir sem skóla- meistari Fjölbrautaskóla Suður- nesja um áramótin og fer að vinna hjá Sverri Hermannssyni iönaðar- ráðherra. ,,Þó þaö komi þessu máli ekki við þá hætti ég skólameistarastarfinu vegna launakjara. I staðinn hef ég tekiö aö mér að skrá Iðnsögu Islend- inga og eru þegar 2 milljónir á fjárlögum til þessa,” sagði Jón í samtali viö DV. „Eg hef 6 ár til starfsins og mun bókin fjalla um vinnulag, vinnubrögö, áhöld og tæki í íslenskum iönaði svo eitthvaö sé nefnt. Af nógu er að taka þar sem löggiltar iðngreinar á Islandi eru 58 talsins og meö undirgreinum 82. Þá eru ólögverndaðar iöngreinar, verk- smiðjugreinar, um 40 talsins. Má þar nefna sápugerð, fatahreinsun, kex- framleiðslu og þannig gæti ég haldið áfram aö telja langt fram eftir degi.” Jón Böðvarsson er ekki alls ókunnugur íslenskri iðnsögu þar sem hann hefur útskrifað um 200 iðnnema á þeim 8 árum sem hann hefur veriö skólameistari á Suðurnesjum. Þá hefur hann átt sæti í iðnfræðsluráði og er auk þess ai iðnaðarmönnum kominn: „Faðir minn var og bróðir minn er sérfræðingur í viðgerð og viðhaldi gamalla húsa og alls munu 7 frændur mínir vera trésmiðir,” sagði Jón Böðvarsson sem ætlar að taka til óspilltra málanna strax og hann losnar úr skólastarfinu. „Eg hef hugsaö mér að taka mið af bókum Lúðvíks Kristjánssonar um Islenska sjávarhætti. Hann var í 20 ár að skrifa þær en ég reyni að gera mitt besta á þeim 6 árum sem ég hef.” -EIR. Jón Böðvarsson verður önnum kafinn næstu 6 árin. DV-mynd Bjarnleifur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.