Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1984, Blaðsíða 10
10
DV. FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER1984.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Menaka Gandhi í viðtali við DV:
„Kongressflokkurinn
búinn að vera”
— býður sig f ram f indversku kosningunum á aðfangadag í sama kjördæmi og Rajiv Gandhi
Menaka Gandhi fyrirutan hússittiNýju-Delhi. DV-myndÞóG
Menaka Gandhi er viðundur í ind-
verskum stjórnmálum. Þeir sem
líkar vel við hana, og þeir eru ekki
margir, sjá hana sem ofsótta tengda-
dóttur sem kaldrifjuð tengdamóðir
hefur beitt miklu ranglæti. Fyrir
öðrum er hún bara kjaftaskur sem er
að reyna að lifa á frægð og fyrri
völdum manns síns, Sanjays, sem dó
fyrir f jórum árum.
Menaka var einn harðasti gagn-
rýnandi Indiru Gandhi, tengdamóö-
ur sinnar, og deilur þeirra voru kjöt-
mikili matur slúðurdálkahöfund-
anna. Nú beinir hún broddi sínum aö
Rajiv, syni Indiru og núverandi for-
sætisráðherra.
1 einkaviðtali við fréttamann DV
vildí hún þó ekki ráöast beint
persónulega að forsætisráöherran-
um.
„Ég hef ekki persónulegt álit á
honum,” sagði hún þurrlega þar sem
við sátum í litlu hérbergi í stóru húsi
hennar í fínu hverfi í Nýju-Delhi.
Þegar ég kom aö húsinu og hringdi
á bjöllu sem var á jámgiröingunni
umhverfis húsið var þaö stór og mik-
ill sikki sem tók á móti mér. Menaka
sagðist vera svolítið lasin og að hún
hefði ekki ætlað að taka á móti gest-
um en hún er þekkt af öðru en áhuga-
leysi þegar erlendir blaðamenn vilja
taka við hana viötal. Þaö kom lika í
ljós aö ekki vantaði stóryrtar yfir-
lýsingamar sem hafa gert hana
fræga utan lands sem innan.
Búinn að vera
„Ég held að Kongressflokkurinn sé
búinn að vera. Þaö er bara tíma-
spursmál hvenær flokkurinn hefur
runnið sitt skeið. Nú er flokkurinn
bara samansafn hrædýra. Þetta var
aldrei flokkur. Þetta var eign eins
manns. Fólkið í flokknum var klæö-
skerasniöiö til að passa einum
manni. Það var í flokknum á grund-
velli hlýðni við foringjann en ekki
vegnaeigin ágætis.”
I kosningunum á aöfangadag
munu augu manna beinast aö hinu
fátæka sveitahéraði Amethi í Uttar
Pradesh-fylki. Þar bjóða sig fram
Menaka Gandhi og Rajiv Gandhi
sem hefur erft andúð móður sinnar á
Menöku.
„Ég er ákveðin í því aö bjóða mig
fram. Ég held að horfumar séu jafn
bjartar og fyrir dauða Indiru
Gandhi. Ég held aö Rajiv græði á
samúöinni vegna dauöa móður sinn-
ar. Samúð er ekki hægt að breyta í
atkvæði. Hlýðni gagnvart einum leið-
toga er ekki hægt að breyta
skyndilega í hlýðni gagnvart öðrum.
Ég komst að því þegar maðurinn
minn dó. Allir héldu aö hans menn
myndu koma til konu hans. En það
var öðru nær. Ég varð að byrja
algerlega upp á nýtt meö nýtt liö
stuðningsmanna.”
Hvíthærð
„Ef ég heföi beöið eftir stuöningn-
um þá hefði ég orðið hvíthærö áður
en hann hefði komið. Fylgi er alltaf
persónulegt. Og Kongressflokkurinn
hefur enga grundvallarstefnu. Hann
hefur aldrei haft neina ástæðu til aö
vera til nema eina persónu.
Nú fyrst um sinn munum við sjá
yfirboröskennda einingu og síöan
mun flokkurinn falla í sundur.”
Viðtalið var tekið í byrjun nóvem-
ber og það leið ekki á löngu áður en
spádómar Menöku byrjuðu að
rætast. Rajiv er að reyna aö hreinsa
til í flokknum og koma þeim allra
spilltustu út i kuldann. Afleiðingin
hefur orðið sú að minni háttar
uppreisnir hafa hrjáð flokkinn víða
umland.
Þó er enginn vafi á því að
Kongress mun sigra. Ef Rajiv fær
fleiri þingmenn en móðir hans 1980
verður það að teljast mikill persónu-
legur sigur f yrir hann.
Slagurinn hefur verið harður í
Amethi-fylkinu. Þar eru kosninga-
veggspjöld út um allt, flest með
mynd af ásjónu forsætisráðherrans.
Inn á milli má koma auga á einstaka
mynd af Menöku. Hún viðurkennir
sjálf að hún hefur ekki mikla mögu-
leika á að ná kosningu.
Krossför
„Það verður engin Maneku
Gandhi-stjóm í bráð. En okkar
aödráttarafl er einkum mikið gagn-
vart ungu fólki. Þetta er fólk sem
hefur farið í skóla en fær ekki vinnu.
Það er óánægt. Á hverju einasta
heimili er einhver atvinnulaus. ”
En nú er ekki mikið um skóla-
gengið fólk í Amethi og því mætti
halda að það væri ekki heppilegasta
kjördæmi þessarar einörðu konu. En
hún kemst ekki hjá því aö bjóða sig
fram þar. Samkvæmt indverskum
sið býður eiginkona fallins stjórn-
málamanns sig fram í kjördæmi
mannsins. Sanjay bauð sig fram í
Amethi.
Maneka heldur áfram krossförinni
gegn tengdamóður sinni með því aö
berjast gegn syni hennar. Hún
ferðast þreytulaust um landið til að
styðja aðra frambjóöendur Sanjay-
flokksins sem hún hefur stofnað. Hún
hefur reyndar komið manni á þing.
Enginn er í vafa um aö hún tapar
fyrir Rajiv í Amethi en menn eru
jafn vissir um að hún mun reyna
aftur og aftur.
5. árSovétmanna í Afganist-
an markaö af loftárásunum
Breytt hemaöartækni Sovétmanna
hefur sett sitt mark á fimmta árið
sem sovéska hernámsliðið er í
Afghanistan. Byggist hún á víkinga-
áhlaupum, sprengjuárásum yfir ná-
grannaríkinu Pakistan og þeirri al-
mennu stefnu að skilja eftir sig
sviðna jörð þar sem haldiö var að
skæruliöar og uppreisnarmenn ættu
íhlaup hjá búandlýð.
Innrásarher Sovétmanna, sem 27.
desember 1979 greip inn í atburða-
rásina í Afghanistan til þess aö
bjarga kommúnistastjórn landsins
frá falli, hefur allan tímann byggt
átök sín við uppreisnaröflin á yfir-
burðum sínum í lofti og öflugri her-
gögnum eins og skriðdrekum þar
sem þeim verður komið viö fyrir
þrengslum í fjalllendinu.
Dregst á langinn
Loftárásimar hafa dregið töluvert
mátt úr andspyrnunni sem saman-
stendur af sundurleitum öflum:
múhameðstrúarmönnum, þjóðemis-
sinnum og ættbálkurn sem hvergi
vilja hopa af slóðum feðranna. —
Þeir hafa reynt að mæta þessari
breyttu hemaðartækni með eld-
flaugaárásum á Kabúl, höfuöborg-
ina. Þær skutu aö vísu Kabúl-stjóm-
inni skelk í bringu í upphafi en hern-
aöarlegur ávinningur af þeim hefur
hins vegar reynst næsta lítill.
Það hefur teygst ótrúlega úr þess-
ari viöureign Davíðs og Golíats. Þar
hafa þeir reynst sannspáir sem í upp-
hafi trúðu þessari haröfylgnu fjalla-
þjóö til þess aö standa í hárinu á
hemaðarrisaveldinu, þrátt fyrir fá-
tækt í hergögnum og lítinn herafla.
Meðal vestrænna diplómata og
afghanskra útlaga er það orðiö
ríkjandi álit, að þörf sé pólitiskra úr-
ræða til þess að reyna að binda endi á
þetta stríð, eins og með samningum.
En árið 1984 ætlar að líða án þess aö
nokkuð bóli á tilburðum til slíks. I
staðinn hefur Sovétherinn hert sig
upp í að reyna að mæða uppreisnar-
menn og grafa undan þeim litla
stuðningi sem þeir hafa átt vísan í
þorpunum úti í dreifbýlinu og hand-
an viö landamærin í Pakistan.
Loftárásirnar veita
þungar búsifjar
Loftárásirnar hafa haft tvívirk
áhrif á skæruliðana. Osigrar á víg-
völlum og síöan aukin byrði af því að
þurfa að annast þúsundir þorpsbúa
sem orðið hafa að flýja brennandi
rústir heimila sinna og eyðilagða
akra. Áður lá þeim mest við að fá
hergögn erlendis frá en nú þurfa þeir
einnig aö afla matfanga bæði fyrir
sig og flóttafólkiö. Þar á ofan hafa
margir flosnað upp út af hrömandi
efnahag landsins sem til langframa
dregur úr afli uppreisnarmanna er
áður sóttu styrk sinn til athvarfs og
framlaga búandi manna.
I Pansjérdalnum, þar sem Jamiat-
i-islaníi andspyrnuflokkurinn ræður
ríkjum, em um 100 þúsund flótta-
menn frá fyrri yfirráðasvæði hans
sem flúðu á elleftu stundu áður en
kommúnistar náðu þar undirtökun-
um.
Aukin sókn
hernámsliðsins
Sovétmenn eru hættir að láta duga
að verja þá staði sem þeir höfðu
hreiðrað um sig á. Þeir hafa blásiö til
sóknar sem beinist að þrennu:
skæraliðunum, alþýðu landsins og
Pakistan þar sem flestir skæruliða-
flokkarnir eiga bækistöövar.
I byrjun þessa árs hóf Moskva
þessa sókn með því að senda þrjár
tylftir TU-16 sprengjuflugvéla í árás-
arferðir til Afghanistan og Pakistan
frá bækistöðvum í Mið-Asíuhluta
Sovétríkjanna. Um leið var meiri
áhersla lögö á að beita þyrlum til
víkingaáhlaupa til þess að slá skæru-
liöunum við í hreyfanleika. Sex
slíkar víkingasveitir eru stöðugt í
viðbragðsstöðu við Kabúl. Þær halda
uppi leifturárásum á felustaði
skæruliða og alla aðdrætti til þeirra.
Flutningaleiðir skæruliöa í suöur-
hluta landsins hafa nær alveg lokast
af þessum völdum og þær í norður-l
hlutanum gerast stöðugt viðsjár-
verðari.
Herstyrkur Sovétmanna í
Afghanistan er talinn vera um 70
þúsund menn undir vopnum, en 40
þúsund manna varalið er staðsett
rétt norðan landamæra Sovétríkj-
anna og Afghanistan.
Spilla matvælaöflun
og þrengja að
Pakistanstjórn
Loftárásirnarhafa einnig beinst að
ræktuðu landi á yfirráðasvæðum
skæruliða, áveitukerfum og fleiri
mannvirkjum í tilraun til þess að
uppræta alla byggð þar sem skæru-
liðar hafa átt víst athvarf og mat-
föng. Sverfur matarskortur mjög aö
skæruliðum og hefur það dregið úr
aðgerðum þeirra í að minnsta kosti
sex héraðum.
Um leið hafa verið auknar árásar-
ferðir yfir til Pakistans þar sem um
þrjár milljónir afghanskra flótta-
manna hafa leitað hælis og
andspymuflokkarnir eiga bækistöðv-
ar. Stjórnvöld í Islamabad segja að á
annaö hundrað manns hafi látið lífið
í þessum árásum. Með loftárásunum
þrýsta Sovétmenn um leið að
Pakistanstjóm til þess að láta af
stuðningi við andspyrnumenn.
Moskva krefst þess að Pakistan-
stjóm loki 80 bækistöðvum skæraliöa
í fjalllendinu þar sem hingaö til
hefur ekki verið komið við neinni lög-
gæslu. Um leið vilja þeir aö Pakistan
stöðvi alla hergagnaflutninga til
uppreisnarmanna. — Pakistanstjórn
hefur ítrekað neitaö að kannast við
aö hún leyfi flutninga á vopnum yfir
sitt landsvæði til andspymumanna.
Umsjón: Guðmundur Pétursson og Þórir Guðmundsson