Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1984, Blaðsíða 34
46
DV. FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER1984.
Menning
Menning
Menning
Menning
Páll Jóhannesson tenór.
Tvær hliðar á
einni hljómplötu
Hljómplata með söng Páls Jóhannessonar
tenórs.
Meðleikarar: Jakob Tryggvason og Jónas Ingi-
mundarson.
Upptökumenn: Halldór Vikingsson og Pálmi
Guðmundsson.
Pressun: AHa hf.
Útgefandi og dreifing: Stúdíó Bimbó, Akureyri.
Þaö vakti athygli mína þegar Póll
Jóhannesson hélt tónleika ásamt Jón-
asi Ingimundarsyni fyrir réttum
tveimur árum, hversu miklum fram-
förum hann hafði þá tekiö. Röddin fall-
eg og honum var farið aö vinnast vel úr
henni. Nú er komin á markaö hljóm-
plata meö Páli þar sem hann syngur
meö tveimur meöleikurum, hvorum
öörum betri. Á annárri hliö plötunnar
eru íslensk lög og í þeim leikur Jónas
Ingimundarson meö Páli en á hinni
syngur hann helgimúsík og þar leikur
Jakob Tryggvason meö á orgel Akur-
eyrarkirkju.
Góða hliðin
Samvinna Páls og meöleikaranna er
Tónlist
Hljómplötur
Eyjólfur Melsted
Césars Franck og Pieta signore —
Stradella. Þar tekst honum líka vel
upp. Forvitnilegt þykir mér að tvö
þessara verka er einnig aö finna á
plötu Hreins Líndals og er út af fyrir
sig fróölegt aö bera þessar tvær plötur
saman. Ekki verður fariö út í mann-
jöfnuð hér, en sakar ekki aö geta þess
að miöað við sönginn á plötunum þarf
hvorugur aö kvíöa. Þaö liggur ekki síö-
ur fyrir Páli aö syngja helgimúsík en
veraldlega. Aríu Xerxesar úr sam-
nefndri óperu Handels þekkja víst
flestir undir heitinu Largo. Ekki man
ég betur en Xerxes sé sunginn af bassa
í óperunni, en svo mjög er þessi eina
aría komin úr tengslum viö óperuna aö
sjálfsagt þykir aö tenórar syngi hana.
Sé jafn vel meö fariö hjá Páli er þaö í
stakasta lagi.
Sófasett: grátt, svart og hvítt.
Opið til 22.00 í kvöld.
Athugið, opið
sunnudag frá kl.
13-18.
N Y FORM
Reykjavíkurveui 6(i, HafnarfinV, sími 54100
ágæt á plötu þessari. Meö Jónasi syng-
ur hann Lindina og Bikarinn eftir Ey-
þór Stefánsson, Ferðalok og Hiröingj-
ann eftir Karl Ottó Runólfsson og fjög-
ur lög Sigvalda Kaldalóns, Eg lít í anda
liðna tíö, Storma, Soföu soföu góði og
Hamraborgina. Best finnst mér Páli
takast upp í lögum Sigvalda Kalda-
lóns. í lögum eins og Eg lít í anda liðna
tíö og Soföu soföu góöi, nýtur falleg
röddin sín mjög vel. Hamraborgina er
maður oröinn vanur aö heyra meö svo
miklu trukki og aukasveiflum, aö þaö
tekur mann smástund að átta sig á því
aö þessi fræga óskamelódía íslenskra
tenóra geti eins verið glæsileg þótt
söngvarinn skjóti beint á tóninn og
sleppi því aö sópa sér upp á hann með
þetta frá ferundar og upp í áttundarat-
rennum.
Ásamt Jakobi Tryggvasyni syngur
Páll Ave Maria — Bach/Gounod; Ave
verum corpus — Mozarts; Ombra mai
fu Handels; Panis angelicus —
Hin hliðin
En þaö eru tvær hliöar á hverri
plötu. Þótt söngvarinn sé hinn sami og
meðleikararnir báöir ágætlega starfi
sínu vaxnir er reginmunur á hliöum
þessarar plötu. Þaö er því líkast aö
hverfa inn í Niflheim aö snúa plötunni
viö. Snúa frá handverki Halldórs
Víkingssonar aö fúski Pálma Guö-
mundssonar. Ekki þykir útgefandan-
um taka því aö geta hver skar plötuna,
en Alfa pressaöi. Það er mikill munur
á vinnurmi og til dæmis á plötu sem var
nýlega unnin á sama staö. Grunar mig
að sá munur liggi meöal annars í
notkun á frumnota og endumota vinyL
Það er til vansa aö útgefandinn, Stúdíó
Bimbó, skuli sýna svo mikinn kotungs-
hátt í skiptum sínum viö jafnágæta
'listamenn og Jónas Ingimundarson,
Jakob Tryggvason, Halldór Víkings-
son og Pál Jóhannesson. Þeirra fram-
lag er miklu merkilegra en svo aö slíkt
sé bjóöandi.
EM
Jón Pállbýrsig undirað veltabíl. Hann þarf ekki tjakk ef springur.
Er Jón Páll sterk-
asti maður heims?
I byrjun janúar hyggst lyftingakapp-
inn frækni, Jón Páll Sigmarsson, halda
til Svíþjóöar þar sem honum hefur
verið boöiö að taka þátt í keppninni
„sterkasti maður í heimi”.
Laugardaginn 29. desember klukkan
tvö hyggst Jón Páll kynna keppnina og
æfa sig á einu keppnisatriðinu, þ.e.a.s.
aö velta bíl. Mun Jón Páll ráöast á bíl-
inn fyrir utan varahlutaverslunina H.
Jónsson og co. í Brautarholti 22 og
hyggst hann velta bílnum nokkrar velt-
ur. Sveinbjöm Guöjohnsen, eigandi H.
Jónsson & co, hefur skipulagt þessa
æfingu hjá Jóni Páli en Sveinbjöm
hyggst styrkja hann til fararinnar.
Vonast þeir félagar til aö fleiri fyrir-
tæki sjái sér fært aö styrkja Jón Pál
svo að hann komist til Svíþjóðar og
verður tekiö á móti styrkjum í vara-
hlutaversluninni H. Jónsson og co.
„Þaö er allt vel þegiö, jafnvel matur,”
segir Jón Páll sem er nú aö reyna aö
þyngja sig eins og hann getur fyrir
keppnina. Boröar hann átta sinnum á
dag og treöur þá í belginn eins og hann
getur. Kokkarnir á Hótel Borg, þar
sem Jón Páll vinnur, segja aö í hvert
skipti sem hann boröi sé það á viö sex
fíleflda karlmenn.