Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1984, Síða 4
4
DV. FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER1984.
stuttir og síðir, bundnir og hnepptir, í
fjölda gerða, í stærðunum 38—46.
Á Schiesser sioppum er tveggja ára
ábyrgð.
OLYMPIA mm LAUGAVEG 26
Glæsibæ, sími 31300. sími 13300.
Sólbaðsstofur:
Eru þær flestar með
ólöglegar perur?
Samkvæmt heimildum DV er meiri-
hluti þeirra pera sem notaöar eru í
ljósalampa ó sólbaðsstofum ekki í
samræmi viö útgefin leyfi yfirvalda.
Þessar perur er hér um ræöir eru af
gerðinni Bellarium S. Þaö er heilbrigð-
is- og tryggingaráðuneytiö sem gefur
út leyfi fyrir lömpum og perum. Þar
hafa engin leyfi veriö gefin fyrir lömp-
um meö perum af þessari gerö.
Þessar perur gefa frá sér meira af B-
geislum en aörar viöurkenndar perur.
Þær flýta því fyrir myndun litarefna.
Hér á landi eru hins vegar engin tæki
til sem geta mælt þessa geislun.
Geislavarnir ríkisins hafa óskaö eftir
upplýsingum um geislamagn Bellari-
um S frá Svíþjóö. Þaðan hefur ekki
borist svar enn. Hins vegar hefur
komiö í ljós aö þessar sömu perur eru
mikið i notkun í Svíþjóö í óþökk yfir-
valda.
Liklegur tilgangur meö notkun
þessara pera er aö þær eru taldar flýta
fyrir brúnkunni. Ef í ljós kemur að
geislun frá þeim er talin vera of mikil
aukast líkurnar fyrir húökrabba.
„Utfjólubláir geislar geta stuðlað að
myndun húökrabba og eykst sú hætta
meö aukinni geislun,” segir í umsögn
sem Olafur Olafsson landlæknir hefur
sent frá sér.
„Okkur hefur borist til eyrna aö hér
séu þessar perur notaðar. Ég hef óskaö
eftir því viö Heilbrigðiseftirlitið að
kannaöar veröi allar sólbaösstofur.
Hvaöa tegundir og gerðir af lömpum
og perum eru í notkun þar,” segir Sig-
uröur M. Magnússon, forstööumaður
Geislavarna ríkisins.
Þessi könnun er ekki hafin. Gert er
ráö fyrir aö hún hefjist á næstunni.
Þeir sem flytja inn sólarlampa verða aö
fá tilskilin leyfi. Leyfin eru veitt
þannig aö leyfi er fengiö fyrir lampa
meö ákveönum perum. Hins vegar er
innflutningur á perum sem slíkur ekki
háöur eftirliti. Vonir standa til aö
geröar verði breytingar á því. Þaö er
reyndar bundiö nokkrum erfiðleikum
m.a. vegna þess aö perur í sólarlampa
eru í sama tollflokki og aörar perur.
Hvað verður gert ef í ljós kemur aö
hér eru perur í notkun sem ekki eru
leyfifyrir?
„Þaö veröur gripiö til víðtækra ráð-
stafana,” segir Sigurður M. Magnús-
son.
APH.
Lögmannafélag íslands:
Mótmælir Hæstarétti
„Stjórn Lögmannafélags íslands
leyfir sér aö mótmæla vítum Hæsta-
réttar á hendur Guömundi Jónssyni
héraösdómslögmanni. .,” segir
meöal annars í ályktun sem samþykkt
var á fundi Lögmannafélagsins 13.
þessa mánaðar.
Guömundur Jónsson, sem var verj-
andi fálkaþjófanna sem mjög voru í
fréttum hér á landi ekki alis fyrir
löngu, var víttur af Hæstarétti fyrir
ummæli í bréfi til Sakadóms Reykja-
víkur þarsem hann óskaði áfrýjunar.
Þá segir í ályktun Lögmannafélags-
ins: ,,Þó sjálfsagt megi deila um orða-
lag í bréfinu veröur engan veginn taliö
aö hann hafi í því gengiö lengra heldur
en máliö gaf tilefni til. Eru vítur
Hæstaréttar aö áliti stjórnarinnar
ómaklegar og til þess fallnar aö letja
starfandi lögmenn í störfum sínum á
þann hátt sem þeim er skylt og
hagsmunirskjólstæöinga krefjast.”
Ályktun Lögmannafélagsins hefur
þegár veriö send Hæstarétti.
-EIR.